Morgunblaðið - 28.09.2004, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2004 33
DAGBÓK
Ídoktorsritgerð sinni frá Gautaborgarháskóla,„Tengslanet og frændsemishyggja. Íslenskstjórnsýsla 1770–1870,“ beinir Einar Hjalta-son sagnfræðingur kastljósinu að þróun rík-
isvalds og stefnumiðum danska miðstjórnarvaldsins
á Íslandi á síðari hluta 18. aldar og fram til þess að
embætti stiftamtmanns var lagt af. Einar segir
stefnu miðstjórnarvaldsins í málefnum Íslands á síð-
ari hluta 18. aldar hafa einkennst af viðleitni til um-
bóta. „Danska miðstjórnarvaldið í Kaupmannahöfn
reyndi eftir megni að nútímavæða stjórnsýsluna á
Íslandi og steypa hana í sama mót og viðgekkst inn-
an alls konungdæmisins,“ segir Einar. „Flestir há-
embættismannanna tilheyrðu aftur á móti eða
tengdust fámennum hópi íslenskrar jarðeigend-
aelítu sem beitti oft á tíðum fyrir sig stjórnsýslunni í
því skyni að viðhalda stöðu sinni og embættismenn
skirrðust ekki við að misnota aðstöðu sína ef það
þjónaði þeirra eigin hagsmunum. Þetta kemur einna
skýrast fram við sölu jarða Skálholtsstóls í lok 18.
aldar sem og í þeirri atburðarás sem átti sér stað eft-
ir afnám einveldisins 1848. Meira en 90% allra jarða
Skálholtsstóls höfnuðu í höndum íslensku elítunnar,
einkum fjölskyldnanna Finsen og Stephensen.“
Getum við dregið lærdóm af rannsókninni?
„Það eru fyrst og fremst þrír þættir sem rann-
sóknir fyrri alda geta kennt okkur og eins og dæmin
sanna eru þessir þrír þættir enn mjög áberandi í
þjóðfélagi nútimans. Í fyrsta lagi nauðsyn þess að
hafa sterkt innra eftirlit með starfi embættismanna
innan stjórnsýslunnar, í öðru lagi geta rannsóknir á
stjórnsýslu fyrri tíma gefið okkur skýr dæmi um
nauðsyn þess að draga skýr mörk á milli hagsmuna
ríkisins annars vegar og einkahagsmuna viðkom-
andi embættismanns hins vegar. Þetta síðarnefnda
atriði er svo náskylt þriðja atriðinu sem er að hags-
munir fjölskyldu embættismannsins eða tengslanets
hans, hafa oft á tíðum afdrifarík áhrif á ákvarð-
anatöku.“
Sumir segja að sjálfstæðisbaráttan hafi eingöngu
verið tilfærsla valds á milli embættismanna. Er eitt-
hvað til í þessu?
„Þessi fullyrðing er athyglisverð en ég vil ganga
svo langt að fullyrða að sjálfstæðisbarátta Íslend-
inga leiddi til þess að valdið hélst í höndum sömu
einstaklinga, eða alla vega innan sömu ætta. Það má
leiða að því líkur að ef sjálfstæðishreyfing Íslendinga
hefði ekki komið til á síðari hluta 19. aldar hefði þró-
un stjórnkerfisins orðið önnur og að öllum líkindum
leitt til meiri valddreifingar og hugsanlega annarrar
samfélagsþróunar. Í þessu sambandi er kannski
ekki úr vegi að benda á að valdamesti embætt-
ismaður Íslands árið 1803 hét Stephensen að eft-
irnafni. Það sama er uppi á teningnum árið 1903,
heilli öld síðar.“
Sagnfræði | Rannsókn á íslenskri stjórnsýslu á 18. og 19. öld
Embættismenn viðhalda valdinu
Einar Hreinsson er
fæddur á Raufarhöfn
1969. Hann lauk BA-prófi
í sagnfræði frá HÍ 1993,
MA-prófi frá Gautaborg-
arháskóla 1997 og dokt-
orsprófi frá sama skóla
2003. Síðastliðinn vetur
starfaði Einar sem lektor
í sagnfræði við háskólann
í Karlstad og kenndi við
Gautaborgarháskóla og Háskólann í Borås.
Hann starfar nú við rannsóknir á pólitískri
menningu 19. aldar og sem kennari við MH.
Eiginkona Einars er Hrefna Margrét Karls-
dóttir og eiga þau einn son.
Kennarar í bardagaham
NEI, nú er nóg komið af þessum
skrípaleik. Er enginn vilji til að
leysa þetta kennaraverkfall? Vika
á milli funda? Er ekki kominn tími
til að kennarar brjóti odd af oflæti
sínu og slaki aðeins á yfirgengi-
legum kröfum sínum? Er ekki
markmiðið með samninga-
viðræðum einmitt að semja? Ég
legg ekki þann skilning í orðið að
annar aðilinn eigi að standa blý-
fastur á sínu og hinn aðilinn að
láta undan skilyrðislaust.
Ég hef verið þeirrar skoðunar
að kennarar eigi að hafa sæmileg
laun, þeir bera jú ábyrgð á mennt-
un barnanna okkar, en ég hef
misst alla samúð með þeim í þess-
ari baráttu eftir að þeir hafa
gengið fram með þvílíku offorsi og
frekju sem raun ber vitni. Öll
þessi læti bitna ekki einu sinni á
þeim sem greiða þeim launin,
heldur saklausum börnunum sem
mörg hver mega alls ekki við því
að missa úr námi. Foreldrar mega
heldur ekkert gera til að reyna að
redda málum, allt er umsvifalaust
stimplað sem verkfallsbrot, hvort
heldur er að nálgast skólabækur
fyrir börnin eða bara að hafa ofan
af fyrir þeim nokkrum saman í
hóp.
Það lítur út fyrir að kennarar
séu komnir í einhvern bardaga-
ham og hafi glatað allri umhyggju
fyrir skjólstæðingum sínum og
vilji valda sem mestu tjóni í ákaf-
anum yfir að heimta meiri viðbót í
launaumslagið en hinn almenni
launþegi er vanur að fá í nýjum
samningum.
Kennarar, komið nú niður á
jörðina aftur og haldið áfram að
sinna börnunum okkar og hættið
þessum skrípaleik. Þetta er að
verða fáránlegt!
Móðir.
Híbba er týnd í Mosfellsbæ
LÆÐUNNAR Híbbu er saknað
frá Njarðarholti 8, Mosfellsbæ,
síðan sunnudaginn 19. sept. Hún
er grá með hvíta rönd á milli
augnanna og með rauða ól og blátt
merkispjald. Vinsamlegast látið
vita af henni í síma 566 6848 eða
697 9774.
Kisa fæst gefins
4ra ára fress, dökkgrár og hvítur,
fæst gefins. Ljúfur og góður. Þarf
að komast á nýtt heimili vegna of-
næmis. Upplýsingar í síma
587 3119.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Eftir hverju erum
við að bíða?
Hádegisverðarfundur um samgöngumálin í Reykjavík
þriðjudaginn 28. september 2004 kl. 12.00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Framsögumenn:
Vilhjálmur Þ.Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn og
Kristinn Vilbergsson, framkvæmdastjóri Dreifingarmiðstöðvarinnar og Vörubíls.
Fundarstjóri:
Jórunn Frímannsdóttir, varaborgarfulltrúi.
Allir velkomnir!
Léttur hádegisverður á vægu verði.
Te
ikn
in
g
:Sig
u
rð
u
r
V
alu
r
Sig
u
rð
sso
n
Vörður – Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
og borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
Nánari upplýsingar og skráning í síma 466 3090
og á www.upledger.is
Næstu námskeið verða sem hér segir:
1.-2. okt. Kynningarnámskeið á Upledger höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeðferðinni.
7.-10. okt. CSTII.
28.-30. okt. SERII.
1. nóv. Clinical Symposium dagur opinn öllum.
4.-7. nóv. CSTI byrjendaáfangi (örfá sæti laus).
Upledger stofnunin
á Íslandi auglýsir:
Á SJÖTTU hæð Grófarhúss,
Tryggvagötu 15, stendur nú yfir 50
ára afmælissýning Borgarskjala-
safns Reykjavíkur, „Á fleygiferð til
framtíðar“, en á sýningunni er rak-
ið með skjölum, ljósmyndum, text-
um, frásögnum, tónlist, kvikmynd-
um og munum hvernig Reykjavík
breyttist úr sveit í borg.
Svanhildur Bogadóttir borg-
arskjalavörður segist vera ánægð
með sýninguna, hvað varðar fram-
setningu og ekki síður vegna mikils
og jafns straums gesta sem hefur
komið og skoðað sýninguna. „Við
erum að rekja þær hröðu breyt-
ingar sem urðu á Reykjavík frá því
hún var bara lítið sveitaþorp og
hvað hún byggðist hratt upp á 20.
öldinni,“ segir Svanhildur, en Borg-
arskjalasafn varðveitir fjölbreytt
skjöl borgarstofnana í gegnum tíð-
ina auk einkaskjalasafna borgarbúa
frá ýmsum tímum. Safnið er líka
þjónustuaðili við borgarbúa, fræði-
menn og borgarstofnanir. Þangað
getur fólk leitað með fyrirspurnir
og fengið afrit af ýmsum gögnum
til að fræðast betur um persónulega
hagi sem og sögu síns nánasta um-
hverfis. „Við rekjum sögu Reykja-
víkur frá því hún var sveitaþorp og
litlir stígar til að skerða ekki land-
búnaðarplássið og atvinnuvegir
frekar einhæfir. Síðan rekjum við
þróunina þegar fara að koma götur
og farartæki og atvinnu- og menn-
ingarlíf eflist. Síðan rekjum við
hvernig Reykjavík varð að borg og
höfuðborg og hvernig það kom
fram.“
Í tilefni af afmæli sínu óskar
Borgarskjalasafn Reykjavíkur eftir
að fá til varðveislu frásagnir fólks á
öllum aldri um „Borgina mína“ þar
sem fólk er beðið að lýsa því hvern-
ig það upplifir Reykjavík, hvernig
minningar þess tengjast borginni
og jafnvel hvernig það vilji sjá
borgina í framtíðinni. Frásagnirnar
geta verið handskrifaðar, skrifaðar
í tölvu eða teiknaðar.
Úr sveitaþorpi í borg
Sauðfé á beit í Vogunum. Ekki óalgeng sjón á síðustu öld.
Sýningin „Reykjavík – á fleygiferð
til framtíðar“ stendur til 31. októ-
ber nk. Hún er opin mánudag til
föstudaga kl. 12 til 19 og um helgar
kl. 13 til 17. Aðgangur er ókeypis.
Borgarsaga | Sögusýning í Grófarhúsi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111