Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÓGLEYMANLEG SAGA UM VINÁTTU GYÐINGADRENGS VIÐ ARABAKAUPMANNINN IBRAHIM ÚTGEFANDI SÖGUNNAR AF PÍ KYNNIR: HERRAIBRAHIMOGBLÓMKÓRANSINS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN EFTIR ERIC-EMMANUELSCHMITT KENNARAR RÆÐA LAUN Saminganefndir grunnskólakenn- ara og sveitarfélaganna hefja í fyrsta sinn viðræður í dag um launa- mál síðan verkfallið hófst fyrir um hálfum mánuði. Fundur hefur verið boðaður klukkan 13, en í gær náðu deilendur samkomulagi í viðræðum sínum um vinnutíma kennara. Þær viðræður stóðu yfir í þrjá klukku- tíma, en á laugardag var fundað sleitulaust. Mikið af tófu á Suðurlandi Óhemju mikið hefur verið af tófu á Suðurlandi að sögn Sigurjóns Páls- sonar, bónda og smiðs undir Austur- Eyjafjöllum. Hann segist ekki muna eftir annarri eins tófugengd. Jón Þormar Pálsson, bóndi á Böðmóðs- stöðum, hefur sömuleiðis orðið var við tófuna og er myrkur í máli varð- andi hana og segir að það þurfi að segja tófunni stríð á hendur. Kæfisvefn og reykingar Samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn auka reykingar, bæði beinar og óbeinar, líkurnar á að fólk hrjóti meira og fái einkenni kæfi- svefns. Rannsókninni var að hluta til stjórnað hér á landi í samráði við sænska lækna og náði hún til 15.500 manna. Þórarinn Gíslason, prófessor í lungnasjúkdómum og einn af stjórnendum rannsóknarinnar, segir hana sýna með óyggjandi hætti tengsl milli reykinga og kæfisvefns. Slíkt hafi ekki tekist áður. Áfall fyrir ETA ETA, basknesku hryðjuverka- samtökunum, var greitt þungt högg í gær er franskir og spænskir lög- reglumenn handtóku um 20 liðs- menn þeirra í Baskahéruðunum í Frakklandi. Meðal þeirra voru leið- togi samtakanna og unnusta hans, sem hefur verið mikilvirk í morð- sveitum þeirra. Spenna á ný Kosningabaráttan í Bandaríkj- unum er aftur orðin spennandi. Með frammistöðu sinni í kappræðunum við George W. Bush hefur John Kerry tekist að vinna upp forskot forsetans og aðeins betur. Tvennar kappræður milli þeirra eru eftir og geta þær hugsanlega ráðið því hvor fer með sigur af hólmi 2. nóvember. Blóðbað á Gaza Blóðbaðið á Gaza heldur áfram og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísr- aels, segir, að herförinni þar verði haldið áfram. Þrír Ísraelar hafa fall- ið en að minnsta kosti 65 Palestínu- menn. Hafa þeir skorað á erlend ríki að koma fólki á Gaza til hjálpar. Y f i r l i t Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl IN MEMORIAM?, heimildarmynd Ómars Ragnarssonar, vann til verð- launa á Ecofilm-hátíðinni á Ítalíu. Myndin fjallar um Vatnajökul, svæð- ið norðan hans og Kárahnjúka- virkjun. Ecofilm-hátíðin var nú hald- in í fimmta sinn í Pont Canavese, sem er fjögur þúsund manna bær skammt norðan við Torino. Hófst hún 26. september og lauk á laug- ardag. Að sögn Ómars bárust meira en hundrað myndir til hátíðarinnar. Þar af voru fimmtán valdar til sýningar á stóru tjaldi. Meðal annarra sem sendu inn myndir voru stórar sjón- varpsstöðvar á borð við hið breska BBC, ZDF í Þýskalandi og RAI á Ítalíu. Mynd Ómars, In Memoriam?, var valin upphafsmynd hátíðarinnar og síðan önnur tveggja kvikmynda sem unnu til verðlauna. Hlaut hún sér- stök verðlaun dómnefndar. Hin verðlaunamyndin var framleidd af BBC og fjallar um flóðin í Níl. Hlaut hún verðlaun fyrir kvikmyndatöku, tækni og leikstjórn. Auk þess áhorf- endaverðlaun, annars vegar barna og unglinga og hins vegar fullorð- inna. Myndin enn í vinnslu Myndin In Memoriam? er stytt út- gáfa af mynd Ómars, Á meðan land byggist, sem var sýnd í Sjónvarpinu í fyrra. Var sú mynd m.a. tilnefnd til Edduverðlauna, sem besta heimild- armyndin, og til Menningarverð- launa DV í flokki kvikmynda ársins. „Þetta er helmingi styttri útgáfa, bara 52 mínútur í staðinn fyrir 103 mínútur,“ sagði Ómar. Hann sagðist hafa haft skamman tíma til að útbúa þessa styttu útgáfu. Auk þess að klippa myndina þurfti að þýða text- ann og tala inn á ítölsku. Ómar kveðst ætla sér að laga myndina enn frekar. En skyldu þessi verðlaun greiða fyrir sýningu myndarinnar erlendis? „Kona sem var í forsvari fyrir hópnum frá BBC, sem kom þarna vegna sinnar myndar, vildi fá eintak til skoðunar. Ég ætla mér að vinna meira í myndinni áður en af því verður,“ sagði Ómar. Þessi út- gáfa myndarinnar var útbúin fyrir myndbandaútgáfuna Bergvík sem hefur myndir Ómars til sölu. En hvað hefur gerð myndarinnar staðið lengi? „Í raun er ég búinn að verja mörg- um árum í þessa mynd. Það var þó ekki fyrr en árið 2002 að ég byrjaði upp á eigin spýtur. Þetta hefur allt verið unnið í hjáverkum og frítíma frá daglegum störfum. Ég hélt að ég væri búinn að taka þessa mynd í vor. Vonaði það heitt og innilega svo ég gæti snúið mér að öðru. Svo gerðist svo margt í sumar að ég skipti um skoðun. Þar eru atriði sem ég verð að bæta inn. Þau eru þess eðlis að ef ég tek þau ekki með þá verða þau hreinlega ekki skráð.“ Ómar segist stefna að því að halda áfram kvikmyndagerð. Við gerð þessarar myndar naut hann aðstoðar Páls Steingrímssonar í Kvik, sem lánaði aðstöðu, og eins komu honum til hjálpar þeir Friðþjófur Helgason og Steingrímur Erlendsson. Hann segist ekki vita hvernig framhaldið verður. „Í raun og veru er fyrir löngu búið að afgreiða mig út af borðinu fjárhagslega hvað varðar kvikmyndagerð. Ég á hvorki pen- inga né tíma, en ég reyni að klóra eitthvað í bakkann.“ Færðu hvergi styrki? „Varla. Þeir nema nokkkrum hundruðum þúsunda króna frá óháð- um einstaklingum og umhverf- isráðuneyti. Það er bara dropi í haf- ið. Ég ætla samt ekki að hætta, en þetta gengur grátlega hægt.“ Mynd Ómars Ragnarssonar fréttamanns verðlaunuð Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ómar Ragnarsson hlaut um helgina verðlaun fyrir kvikmynd sína In Mem- oriam? sem fjallar um Vatnajökul, svæðið norðan hans og Kárahnjúka- virkjun. Fyrr á árinu gaf Ómar út bók um virkjunina. UMBOÐSMAÐUR barna fékk 1.076 erindi í fyrra, eða álíka mikið og á árinu 2002. Þar af voru 837 munnleg erindi og 239 skrifleg. Kemur þetta fram í skýrslu umboðsmanns fyrir árið 2003. Þar kemur einnig fram að munnlegum erindum fækki nokkuð milli ára, en á hinn bóginn fjölgi skriflegum erindum. Af þeim 239 skriflegum erindum sem umboðs- maður fékk árið 2003, voru 43 frá börnum og fjölgaði þeim um 48% frá 2002. Umboðsmaður barna fagnar því að börn skuli í auknum mæli leita til embættisins til að fá ráð og leiðbein- ingar varðandi ýmislegt sem snertir þeirra daglega líf. Mörg erindanna séu þó ákaflega dapurleg og sýni mikla vanlíðan hjá mörgu ungu fólki, sem á erfitt með að ná eyrum hinna fullorðnu, jafnvel sinna nánustu, þegar erfiðleikar af ýmsum toga steðja að. Lýsir umboðsmaður áhyggjum af þessu í skýrslunni. Flest erindi vörðuðu fjölskylduna Flest þeirra 239 erinda sem um- boðsmaður fékk í fyrra vörðuðu fjöl- skylduna í samfélaginu, eða 43 er- indi. Þá fjölluðu á þriðja tug erinda um barnavernd og heilbrigðismál, menntun og skólamál, og tómstund- ir, menningu og önnur tilboð, sam- kvæmt flokkun umboðsmanns. Yfir 1.000 mál til umboðsmanns barna Segir mörg erind- anna dapurleg TILRAUN var gerð til þess að ræna verslun í austurborginni um fimmleytið í gær, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Karlmaður kom inn í verslunina og vildi nálgast þar fjármuni en honum tókst ekki ætl- unarverk sitt og fór tómhentur úr versluninni. Nánari lýsingu á atvikinu var ekki að fá hjá lögreglu í gær, m.a. um það hvort um fleiri en einn væri að ræða. Enginn meiddist í ránstilraun- inni. Lögregla rannsakar nú mál- ið og hefur í athugun vísbend- ingar. Misheppnuð ráns- tilraun í verslun ÁFENGI og tóbak voru meðal ým- issa ólöglegra vara sem lögregla ásamt starfsmönnum tollgæsl- unnar í Reykjavík gerði upptæk í húsleit í söluturninum Draumnum við Rauðarárstíg í fyrrakvöld. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfir- lögregluþjóns í Reykjavík, fund- ust engin fíkniefni við leit lög- reglu en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fundust ólögleg lyf. Teknar voru skýrslur af hlut- aðeigandi aðilum vegna málsins, þar á meðal eiganda söluturnsins. Geir Jón segir að mikið ónæði hafi verið af fólki sem sótt hefur verslunina í gegnum tíðina og lögregla hafi fylgst með staðnum. „Þessi aðgerð fór í gang að lok- inni athugun okkar,“ segir Geir. Hann segir að auk hins ólöglega varnings hafi fundist matvæli í versluninni sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi gert athuga- semdir við. Hafi verslunin verið innsigluð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík er málið í rannsókn og er unnið að skýrslu- gerð. Aðspurð hvort eigandi sölu- turnsins komi til með að verða sviptur rekstrarleyfi segir lög- regla það verða metið þegar öll kurl verða komin til grafar og skýrslugerð og rannsókn málsins lýkur með formlegum hætti. Hald lagt á ólöglegan varn- ing í söluturni FOKKER-flugvél Landhelgisgæsl- unnar, TF-SYN, kom til landsins um kl. 18.00 á laugardagskvöld. Hlutur í nefhjóli flugvélarinnar bil- aði í lendingu í Færeyjum síðastlið- inn föstudag og tafðist heimkoma hennar af þeim sökum. TF-SYN komin í loftið á ný TALSVERÐ uppsveifla er um þess- ar mundir meðal iðnfyrirtækja, að því er könnun Samtaka iðnaðarins leiðir í ljós. Könnuð var staða og horfur hjá 93 iðnfyrirtækjum í níu undirgrein- um iðnaðar. Útlit er fyrir að heldur dragi úr uppsveiflunni á næsta ári og að raunaukning veltu í iðnaði verði þá 4% í stað 15% aukningar í ár. Fjár- festingar aukast um 36% á þessu ári en útlit er fyrir að þær dragist saman um 21% á næsta ári. Fyrirtækin sem tóku þátt í könn- uninni áætla að rekstrarhagnaður, fyrir skatta og fjármagnsliði, aukist um 24% á þessu ári miðað við árið í fyrra. Hjá fyrirtækjunum starfa um 7.400 starfsmenn og áætla þau að bæta við 130 starfsmönnum til ára- móta, sem er 2% aukning. Samkvæmt niðurstöðum könnun- arinnar hefur mest veltuaukning orð- ið í mannvirkjagerð og hátæknigrein- um iðnaðar. Framkvæmdir við stóriðju og aukin fjárfesting í hús- næði eru taldar skýra þróunina í jarð- vinnustarfsemi og byggingum. Þá hefur náðst góður árangur í útrás heilsu- og hátækniiðnaðar á erlenda markaði. Velta hefur einnig aukist í upplýsingatækniiðnaði ásamt efna- iðnaði, endurvinnslu, pappírs- og prentiðnaði. Heldur minni vöxtur hefur verið í matvæla- og drykkjar- vöruiðnaði, plastvöruframleiðslu, veiðarfæragerð og málm- og skipa- smíðaiðnaði. Skýringin á því er sögð vera erfið samkeppnisstaða vegna hás raungengis krónunnar. Uppsveifla í iðnaði á þessu ári Í dag Sigmund 8 Minningar 22/29 Viðskipti 11 Dagbók 30/32 Vesturland 11/12 Leikhús 33 Erlent 14 Fólk 34/37 Daglegt líf 15 Bíó 34/37 Umræðan 16/19 Ljósvakar 38 Bréf 19 Veður 39 Forystugrein 20 Staksteinar 39 * * *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.