Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 27
Hún var hjartahlý og yndisleg kona, glaðlynd og jákvæð, bjartsýnin uppmáluð. Hún barðist hetjulega og með aðdáunarverðum styrk fram á síðustu stundu. Hennar er og verður sárt saknað. Skarðið í hjarta mínu verður aldrei fyllt. Mamma, elsku mamma, man ég augun þín, í þeim las ég alla elskuna til mín. Mamma, elsku mamma, man ég þína hönd, bar hún mig og benti björt á dýrðarlönd. Mamma, elsku mamma, man ég brosið þitt; gengu hlýir geislar gegnum hjarta mitt. Mamma, elsku mamma, mér í huga skín, bjarmi þinna bæna, blessuð versin þín. Mamma, elsku mamma, man ég lengst og best, hjartað blíða, heita – hjarta, er sakna ég mest. (Sumarliði Halldórsson.) Guð gefi þér frið mamma mín og okkur sem eftir stöndum huggun og styrk. Ástarkveðjur. Magnfríður Ólöf. Með örfáum orðum langar okkur að minnast hennar Stínu. Við munum eftir Stínu frá því að við bjuggum í sömu blokk á Seljabrautinni. Stína og Pétur bjuggu á hæðinni fyrir ofan með stelpurnar sínar Möggu Lóu og Steinunni. Stína var einstaklega hlý og góð kona og það var alltaf gott að tölta upp á efri hæðina til Stínu og Péturs og alltaf tóku þau vel á móti okkur. Þótt sambandið hafi minnkað eftir að við fluttum úr blokkinni og Stína og Pétur í Borgarfjörðinn þá var allt- af notalegt að hitta Stínu. Hún sýndi alltaf mikinn áhuga á því sem var að gerast í okkar lífi og ávallt fann mað- ur fyrir hlýju frá henni. Elsku Pétur, Magga Lóa, Steinunn og Elísabet María, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Dagbjört Jóhanna, Styrmir Þór og Þorbjörg Inga Þorsteinsbörn. Það kom mér ekki að óvart þegar Guðrún vinkona Stínu hringdi í mig sunnudagskvöldið 26. september og sagði mér að Stína væri dáin, samt var þetta reiðarslag. Ég heimsótti Stínu á kvennadeildina um miðjan ágúst, þá var hún mjög lasin. Hún tók veikindum sínum með æðruleysi, hún var hvorki reið né bitur og ákvað að takast á við veikindi sín með jákvæðu hugarfari. Ég kynntist Stínu fyrst þegar við bjuggum á Seljabraut 72 fyrir u.þ.b 20 árum. Það var mikill samgangur á milli og börnin mín hændust mjög að Stínu. Hún var alltaf svo blíð og góð. Þorbjörg, yngri dóttir mín, var um tíma í pössun hjá Stínu og kallaði hana alltaf Stínu mömmu. Þegar Stína og Pétur fluttu úr bænum upp í Borgarfjörð hittum við þau mun sjaldnar en héldum alltaf sambandinu. Við buðum alltaf hvert öðru í fermingar- og stúdentsveislur. Stína sagði mér að hún ætti von á barnabarni í desember og geislaði hún af gleði og tilhlökkun yfir því en því miður entist henni ekki aldur til að verða þeirrar gleði aðnjótandi og barnabörnin fá ekki að kynnast þess- ari yndislegu ömmu sem ég veit að Stína hefði orðið. Elsku Pétur, dætur og fjölskylda, við Steini vottum ykkur okkar inni- legustu samúð og Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg en minn- ingar um yndislega konu lifir. Ragna Jóhannsdóttir. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Um hjartað liggur leið... 16 ára gamall kom ég upp í Reyk- holt og inn í líf ykkar Péturs og fjöl- skyldu. Þú tókst mér strax vel og varst mér sem önnur móðir, gafst af þér eins og aðeins englar gera. Þú sást það góða í mér meðan flest- ir sáu bara ungling frá Reykjavík. Ég fann og sá, að þú varst andlega sinnuð, listræn, trúuð og umfram allt með hjarta úr gulli, sem skein i gegn- um súrt og sætt. Guð geymi þig um alla tíð, og varð- veiti og blessi þá sem eftir standa. Þinn Trausti Þór. Látin er langt um aldur fram Kristín Stefánsdóttir eftir stutta en snarpa baráttu við vágest sem svo margan leggur að velli. Stínu, eins og hún var ætíð kölluð, kynntist ég er hún var um 18 ára gömul þegar hún og Önundur æskufélagi minn og ein- lægur vinur alla tíð hófu að rugla saman reitum. Góð vinátta hefur ver- ið alla tíð með okkur Guðrúnu konu minni og þeim Stínu og Pétri Önundi þótt stundum hafi liðið fulllangt milli endurfunda eins og verða vill í amstri hversdagsins. Fram í hugann koma minningar frá góðum samverustund- um í Vogahverfinu hér á árum áður og síðar þegar við bjuggum öll um nokkurt árabil uppi í Seljahverfi. Eft- ir þann tíma breyttu Önundur og Stína til og settust að í Reykholti í Borgarfirði fyrst og síðar fluttust þau að Kvisti, Kleppjárnsreykjum þar í næsta nágrenni. Maður minnist margra ánægjustunda í heimsóknum þangað upp eftir og gott var líka að fá ykkur í heimsókn til okkar hér syðra. Stína var hlý manneskja og gefandi sem lét sér umhugað um aðra. Góð nærvera var hennar einkenni í mín- um huga. Manni leið einhvern veginn alltaf vel í nærveru Stínu og Önund- ar, góðar og grandvarar manneskjur þar á ferð. Sérstaklega er minnis- stæð síðasta heimsókn þeirra til okk- ar í Skerjafjörðinn sl. vor – Stína þá orðin mikið veik en bar sig eins og hetja. Hafðu þökk Stína fyrir að hafa gefið mér af þér. Hugur okkar Guð- rúnar og barna okkar er hjá þér, Ön- undur minn, og dætrunum myndar- legu og efnilegu, Möggu Lóu, Steinunni Lilju og Elísabetu Maríu, öldnum föður sem nú sér á bak dóttur sinni og öðrum nákomnum Stínu. Innilegar samúðarkveðjur sendum við ykkur öllum. Leo J.W. Ingason. Þú ert nú, elsku vinkona, horfin yf- ir móðuna miklu til austursins eilífa. Dvelur nú meðal ástvina þinna og ættingja er hurfu héðan á undan þér. Við trúum því að þrautir þínar og las- leiki séu um garð gengin og að þú lifir lífi þínu þar sem þú ert nú, hress og glöð. Þótt við vitum að okkur ber að fagna lausn frá erfiðum veikindum fer ekki hjá því að það myndast tóma- rúm í hugum okkar og ástvina þinna við þessar aðstæður. Að okkur sækir söknuður, þrátt fyrir vitneskjuna um eilíft líf og vitn- eskjuna um að ekkert líf er án dauða og enginn dauði án lífs. Samt sem áður er það nú svo að þegar þessi vitneskja snertir okkur sjálf er hún sár og sýnir okkur smæð okkar gagnvart almættinu. Aftur á móti er það huggun harmi gegn, að okkur eru gefin fyrirheit um endurfundi. Þú kunnir best við þig innan um ástvini þína, eiginmann, dætur og tengdason. Fylgdist vel með lífi þeirra allra og varst mjög áfram um að vita hvernig þeim gengi og hvað þau væru að gera hverju sinni. Barst ómælda umhyggju fyrir þeim öllum. Útdeildir af gnægtabrunni ástar og væntumþykju yfir þau öll og alla samferðamenn þína. Þú varst góðviljuð og vingjarnleg og vildir hvers manns vanda leysa. Þú varst hógvær kona, hæg, traust og hlý. Ég minnist þess og gleymi aldrei er við hittumst í fyrsta sinn. Þú komst á móti mér, tókst í hönd mína og bauðst mig velkominn í stór- fjölskylduna. Upp frá þeirri stundu vorum við vinir. Eg átti eftir að kynnast því að þessi fundur var ekkert einsdæmi, þú tókst öllum vel og öllum þótti strax vænt um þig – strax frá fyrstu stundu. Það geislaði af þér góðvild og kærleikur til allra er þú umgekkst. Það var lærdómsríkt og stórkostlegt að sjá er þú lást í rúmi þínu og eig- inmaður þinn og dæturnar sátu kringum rúmið, hversu mikla ást þau báru til þín, hvernig herbergið fylltist af ást og umhyggju. Margar góðar minningar eigum við Margrét um þig Stína mín, minningar sem munu fylgja okkur um ókomna tíð. Þú félagi, vinur, þín för enduð er á framandi ströndu að landi þig ber. Við syngjum og gleðjumst hér saman um stund, en seinna við mætumst á annarri grund. Sá líknandi faðir er lífið gaf þér hann leiði þig áfram um eilífðar veg. En minningin lifir oss mönnunum hjá á meðan að dveljumst við jörðinni á. Þó leiðir hér skilji og lund okkar sár þú læknað það getur og þerrað hvert tár. Þú bæn okkar kenndir við biðjum þig nú að breyta þeim harmi í eilífa trú. (E.B.V.) Í dag er okkur Margréti efst í huga þakklæti – þakklæti fyrir að fá að kynnast þér. Þakklæti til þín fyrir all- ar þær stundir sem við höfum átt saman. Þakklæti fyrir hvernig þú tókst mér er ég svo skyndilega kom inn í þína fjölskyldu. Við kveðjum þig nú elsku Stína og biðjum algóðan Guð að leiða þig og styðja á þeim ókunnu leiðum er þú hefur nú lagt út á. Þú varst lifandi, glöð og gjöful. Þú varst skapandi, auðmjúk og hlý. Þú fylltir huga okkar allsnægtum og hjarta okkar kærleika. Þú varst góð kona, við munum sakna þín. Við Margrét biðjum algóðan Guð að styðja og styrkja Önund eigin- mann þinn, dæturnar þrjár, tengda- soninn og aldraðan föður þinn. Minningin um ástkæra eiginkonu, móður og dóttur lifir í hugum þeirra og verður þeim leiðarljós um ókomin ár. Við Margrét vottum öllum ættingj- um og vinum þínum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning þín kæra vin- kona. Aðalsteinn V. Júlíusson. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 27 MINNINGAR Elsku mamma. Hjartanlega til ham- ingju með daginn. Í dag hefðirðu orðið 60 ára. Ég vil þakka þér kærlega fyrir alla hjálpina í gegnum þau 34 ár sem ég fékk að vera samferða þér og allt sem þú gerðir fyrir mig, s.s. að prjóna lopapeysur sem ég gaf svo Prince Nassem Hamed og konunni hans í jólagjöf fyrir fimm árum og ýmislegt fleira. Það var nú ósjaldan sem maður gat hringt í þig og spurt ráða um hina og þessa kvilla. Þú gast alltaf hjálpað mér hver sem vandinn var, svo reyndi maður að hjálpa í stað- inn eins og maður gat, ná í vörur í búðina og hitt og þetta. Það var gaman að sjá hvað þér leið vel í Skrínunni, það var þinn draumur að eignast hannyrðaverslun og hann rættist. Nú eru komnir nýir eig- endur að búðinni sem eru okkur ekki ókunnugir. Því miður gat ég ekki sýnt þér myndir af Hróarskeldunni eins og ég talaði um í sms-inu sem ég sendi þér kvöldið áður en þú lést en það var nú gott að fá skilaboð frá þér það kvöld, það var alltaf vaninn hjá okkur að enda skilaboðin með kveðju, það var því miður síðasta kveðjan frá þér. Með þessum orð- um kveð ég þig að sinni. Elsku mamma mín, Guð geymi þig. Við hittumst síðar. Þinn sonur, Björn Ingi. Hinn 4. október hefði orðið sex- tug góðvinkona mín, Steinunn Björnsdóttir, eða Unna eins og ég kallaði hana, en hún lést í sumar langt fyrir aldur fram. Við Unna ól- STEINUNN GUÐRÚN BJÖRNSDÓTTIR ✝ Steinunn GuðrúnBjörnsdóttir fæddist í Björnskoti á Skeiðum 4. október 1944. Hún varð bráð- kvödd 3. júlí síðast- liðinn og var jarð- sungin frá Selfoss- kirkju 10. júlí. umst upp í Ólafsvalla- hverfi og urðum vin- konur mjög ungar. Mig langaði til að hugleiða eitt augnablik hvað það hefði verið dýrmætt að fá að gleðjast með þér í dag, elsku vinkona mín, en nú er allt svo tómlegt og breytt. Enn þá spyr ég; gat það gerst að hún Unna mín yfirgæfi þetta líf svona snöggt? Hún var alltaf svo dugleg og ósérhlífin og var alltaf að – bæði heima og í búðinni sinni. Alltaf tilbúin að gera það besta fyrir sitt fólk og dætur sambýlismanns síns, Guðmundar. Við höfum öll misst svo yndislega manneskju. Það sem styður okkur í sorginni eru góðu minningarnar. Hún Unna kvartaði aldrei eða fann það mikið til, að fólkið hennar grunaði að hún væri með alvarlegan kransæðasjúkdóm. Það er erfitt að sætta sig við að svona fór. Það voru margar góðar stundir hjá okkur Unnu, sérstaklega þegar við leigðum saman ungar í Reykja- vík. Við áttum margt sameiginlegt og gerðum við margt skemmtilegt saman með fjölskyldum okkar hvort heldur var heima eða á ferða- lögum. Fjaran var leikvöllur stóra yndislega barnahópsins okkar. Við vorum mjög stoltar ungar mæður. Oft var mikið að gera hjá okkur og við hugleiddum oft hvort ekki væri alveg hægt að vaka nótt og nótt til að sauma og vinna, því oft var hægt að vaka og skemmta sér en því ekki að prófa þetta? Svona var Unna. Alltaf að hugsa um að finna tíma til að vinna meira. Ég man vel eftir okkar góðu stundum og það hjálpar mér í sorginni. Ég vil biðja góðan guð að vaka yfir öllum hennar aðstandendum og senda þeim styrk. Elsku vinkona. Ég þakka þér samfylgdina gegnum árin. Þín vinkona, Svanhildur. Ástkær sonur okkar, bróðir, ömmubarn og langömmubarn, GUNNAR KARL GUNNARSSON, Bæjarholti 13, Laugarási, Biskupstungum, lést af slysförum fimmtudaginn 30. septem- ber. Jarðarför verður auglýst síðar. Ragnheiður Sigurþórsdóttir, Gunnar Sigurþórsson, Kristrún Harpa Gunnarsdóttir, Sigrún Kristín Gunnardóttir, Kristrún Stefánsdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Áslaug Bachmannn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, stjúp- móðir og tengdamóðir, BJARNDÍS JÓNSDÓTTIR, Skúlagötu 40b, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 5. október kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er vinsam- legast bent á líknarfélög. Kristinn Guðjónsson, Sigurbjört Gunnarsdóttir, Örn Sigurðsson, Unnur Gunnarsdóttir, Jóhannes Gunnarsson, Ásgerður Flosadóttir, Gunnar Gunnarsson, Þorgerður Þráinsdóttir, Helga Gunnarsdóttir, Örn Rósinkransson, Sigrún Kristinsdóttir, Jóhannes Kristinsson, Þorbjörg Jónsdóttir, Elín Kristinsdóttir, Magnús Gíslason. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.