Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða glæsilega helgarferð til Vínarborgar í 3 nætur þann 19. nóvember í beinu flugi frá Íslandi á hreint ótrúlegum kjörum. Kynnstu þessari höfuðborg lista og menningar um leið og þú nýtur topp- þjónustu fararstjóra Heimsferða sem kynna þér borgina og lystisemdir hennar. Frábær hótel í boði. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.990 Flug og skattar. Verð kr. 39.990 Flug, hótel, skattar, hótel Ananas, 4 stjörnur, 3 nætur. Verð kr. 43.890 Flug, hótel, skattar, hótel Renaissance, 5 stjörnur, 3 nætur. Glæsileg ferð til Vínarborgar frá kr. 29.990 MEIRA en 25 milljónir króna komu inn í söfnun Rauða kross Ís- lands (RKÍ) síðastliðinn laugardag og í símasöfnun vegna stríðs- hrjáðra barna. Á þriðja þúsund sjálfboðaliða lögðu hönd á plóg- inn. Verja á söfnunarfénu til hjálpar stríðshrjáðum börnum. Gengið var í hús um allt land á laugardag undir kjörorðinu Göngum til góðs. Þá var safnað í verslunarmiðstöðvum og á öðr- um fjölförnum stöðum. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, var mjög ánægð með árangur söfnunarinnar. „Þetta gekk mjög vel, hátt á þriðja þúsund manns gekk í hús auk fjölda barna sem fylgdi foreldrum sínum eða forráðamönnum. Eins mönnuðu sjálf- boðaliðar 80 söfnunarstöðvar Rauða kross-deildanna hringinn í kringum landið. Með samstilltu átaki margra gekk þetta frábær- lega. Það var einnig mjög ánægjulegt að finna hve fólk var tilbúið og jákvætt. Það gaf eftir efnum og ástæðum. Það er mjög ánægju- legt að finna svo mikinn velvilja og stuðning við starf Rauða krossins.“ Sigrún segir að þeim hjá Rauða krossinum sýnist að minnst 25 milljónir króna hafi safnast. Þessi upphæð geti hækkað því áfram verður haldið símasöfnun. Með því að hringja í síma 907 2020 eru gefnar 1.000 krónur í söfnunina. Eins er hægt að leggja framlög inn á sparisjóðsreikning söfnunarinnar í SPRON númer 1151-26- 12. „Það voru mjög margir sem ekki voru heima á laugardaginn þannig að í ljósi þess er þetta frábær niðurstaða,“ sagði Sigrún. Stærsta einstaka framlagið var ein milljón króna og barst frá Ís- lendingi sem búsettur er í Bandaríkjunum. Söfnunarfénu verður varið til hjálpar stríðshrjáðum börnum. Það mun aðallega fara til tveggja verkefna, annars vegar í Afr- íkuríkinu Sierra Leone og hins vegar í Palestínu. Í Sierra Leone er stutt við fjórar miðstöðvar víðsvegar um land- ið. Þar er börnum, sem hafa orðið illa úti í stríðsátökum sem staðið hafa í ellefu ár, hjálpað að aðlagast samfélaginu á ný. Í undirbún- ingi er að opna fimmtu miðstöðina. Um 150 börn njóta þjónustu hverrar miðstöðvar á ári. Rauði kross Íslands mun vinna að þessu verkefni ásamt Rauða krossinum í Sierra Leone og fleiri lands- félögum. Sigrún sagði að verkefnið hefði gengið vel og skilað góð- um árangri. Sagðist hún reikna með að söfnunarféð, sem nú safn- aðist, myndi nægja til að styrkja þetta starf næstu þrjú árin. Þá hefur Rauði kross Íslands unnið ásamt palestínska Rauða hálfmánanum og danska Rauða krossinum að verkefni í Palestínu. Þar verður stutt við um 1.200 stríðshrjáð palestínsk börn í gegnum skólana og í sumarstarfi. Söfnunarféð gerir kleift að hefja þess konar starf í borginni Qalqilya á vesturbakkanum. Rauði kross Ís- lands hefur tekið þátt í sambærilegu verkefni í bænum Tubas. Söfnun RKÍ gekk vonum framar Ljósmynd/Þórir Guðmundsson Söfnunarfé Rauða krossins verður meðal annars varið til hjálpar stríðshrjáðum börnum í Sierra Leone. SKURÐAÐGERÐUM á Landspít- ala – háskólasjúkrahúsi fjölgaði um 2,6% á fyrstu átta mánuðum þessa árs og skilar sú fjölgun sér beint í fækkun á biðlistum, að því er fram kemur í stjórnunarupplýsingum á vefsíðu spítalans. Í september 2003 biðu 3.686 ein- staklingar eftir skurðaðgerð á spít- alanum en nú bíða 2.637 sem er fækkun um 28,5%. Mest hefur fækk- að á biðlistum eftir almennum skurð- aðgerðum eða úr 788 í fyrra í 271 nú. Lengsta biðin hefur verið eftir að- gerð vegna vélindabakflæðis og þindarslits, en biðin hefur frá í fyrra styst úr 20 mánuðum í 6. Svipaður fjöldi bíður eftir aðgerð á augasteini nú og í fyrra en vegna fjölgunar að- gerða hefur meðalbiðin styst úr tæp- um 15 mánuðum í rúma 10. Í sept- ember í fyrra biðu 639 einstaklingar eftir gerviliðaaðgerð en nú bíða 462 sem er fækkun um tæp 28%. Með- albiðin eftir gerviliðaaðgerð á hné hefur styst úr tæpum 11 mánuðum í rúma 7. Eftir gerviliðaaðgerð á mjöðm hefur meðalbiðin styst úr tæpum 6 mánuðum í rúma 4. Eftir hjartaþræðingu bíða nú 157 einstak- lingar sem samsvarar um 2 mánaða biðtíma en í september í fyrra biðu 153 eftir hjartaþræðingu. Eftir kransæðavíkkun bíða nú 8 einstak- lingar sem samsvarar um hálfs mán- aðar bið en í fyrra biðu 6 eftir krans- æðavíkkun. Á legudeildum bíða nú um 100 manns eftir að komast í vistun ann- ars staðar hjá hinu opinbera. Skurðaðgerðum fjölgar á Landspítalanum Skilar sér í 28% fækkun á biðlistum ERFITT var fyrir Sigurjón Jón- asson, bónda á Lokinhömrum í Arn- arfirði, að horfa á eftir fénu sínu þegar því var smalað saman í hinsta sinn um helgina. Sigurjón er síðasti ábúandinn í Lokinhamradal og hefur nú endanlega hætt búskap, eftir að hafa flutt á dvalarheimilið Tjörn á Þingeyri fyrir fáum árum en dvalið á Lokinhömrum yfir sumartímann. „Ætli sé nokkuð hægt að tala um búskap úr þessu,“ segir Sigurjón í samtali við Morgunblaðið. Hann ætl- ar að halda eftir sex eða sjö kindum „til að halda við sálinni,“ eins og hann orðar það. Um 60 kindur fóru til slátrunar en þegar mest lét voru 270 kindur á Lokinhömrum. „Fyrir mér hefur þetta verið allt lífið. Mér þótti vænt um kindurnar og hef haft mikið yndi af því að vera í kringum þær. Ég kvíði nú vorinu að vera ekki vel hress og fá ekki að taka á móti nýjum lömbum. Þetta er svo skemmtilegur tími þegar skepn- urnar eru að bera,“ segir Sigurjón, sem búið hefur á Lokinhömrum alla sína ævi. Rúmlega þrítugur að aldri tók hann við búinu árið 1957, þegar faðir hans lést, og bjó á bænum með móður sinni. Við fráfall hennar bjó hann lengi einn á bænum og hafði til margra ára aðeins einn nágranna í Lokinhamradal, Sigríði Ragn- arsdóttur á Hrafnabjörgum. Hvort hann eigi eftir að koma aft- ur að Lokinhömrum, segist Sigurjón eiga erfitt með að svara. Það verði heilsan næsta sumar að leiða í ljós. Hugurinn verði hins vegar áfram á staðnum. Hann fékk góða aðstoð við smölunina um helgina en í gegnum árin hefur hann haft hjá sér marga vinnumenn, sem ávallt hafa verið reiðubúnir að veita hjálparhönd við sauðburð eða smölun og leita um leið í kyrrð sveitarinnar. Sökum hand- leggsbrots, sem Sigurjón hlaut í byltu á dögunum, gat hann lítið beitt sér. Vildi hann koma á framfæri innilegum þökkum til þessa fólks og allra þeirra sem aðstoðað hafa hann við búskapinn á seinni árum. „Hjálp- in hefur verið mér ómetanleg.“ Heimildarmynd sýnd í Þýskalandi Sigurður Grímsson kvikmynda- gerðarmaður hefur gert heimild- armynd um Sigurjón, Síðasti bónd- inn í dalnum, sem var frumsýnd fyrir tveimur árum. Myndin verður sýnd í Þýskalandi í desember nk. Morgunblaðið/RAX Andrés Jónasson, Hjörleifur Högnason og Sigurjón Jónasson á Lokinhömrum, lengst t.h. á myndinni, horfa til fjalla í Arnarfirði í síðustu smöluninni, sem fram fór um helgina með aðstoð vina og ættingja Sigurjóns. Skilur nokkrar kindur eftir „til að halda við sálinni“ HREPPSNEFND Súðavíkurhrepps hefur samþykkt tillögu fræðslu- og tómstundanefndar þess efnis að nemendum grunnskólans verði boð- in viðvera í grunnskólanum meðan á verkfalli grunnskólakennara stend- ur. Verkfallsstjórn grunnskólakenn- ara og Skólastjórafélags Íslands hefur lagst gegn hugmyndinni. Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir að reynt verði eins og kostur er að forðast að fara inn á það svið sem KÍ telji vera verkfallsbrot. Telja húsnæðið eiga að vera lokað SVAVA Pétursdóttir, formaður verkfallsstjórnar kennara, segir ljóst að kennarar verði að aðhafast eitthvað vegna ákvörðunar Súðavíkurhrepps. „Við erum með þetta mál í skoðun. Þetta gengur þvert á þá túlkun sem hefur verið í fyrri verkföllum að skólahúsnæði eigi yfirhöfuð að vera lokað,“ segir Svava. Aðspurð segir hún þá ákvörðun að ekki eigi að nota skólastofurnar ekki breyta miklu. „Þarna er komið inn á vinnutímann og íþróttahús er auðvitað kennslurými.“ Frjáls viðvera barna í Súðavíkurskóla KENNARAR, sem koma til starfa í þeim fimm skólum sem fengu und- anþágu, fá greidd hefðbundin vinnulaun, en ekki tímakaup eins og kennarar óttuðust að myndi end- urtaka sig frá síðasta verkfalli. Sigurður Óli Kolbeinsson, fulltrúi sveitarfélaganna í und- anþágunefnd, segir engan ágrein- ing hafa verið um þetta. Aldrei hafi staðið annað til en að kennarar fengju greitt eins og um dagleg störf væri að ræða og þeir ekki í verkfalli. Kennarar séu að fara til sinna hefðbundnu starfa en ekki í einhverjar tímabundnar reddingar. Skólarnir sem fengu undanþágu voru Safamýrarskóli, Öskjuhlíð- arskóli, Kleppjárnsreykjaskóli, Brúarskóli og athvarf í Vest- mannaeyjum. Verkfallsbætur greiddar GRUNNSKÓLAKENNARAR hafa nú fengið greiddar verkfallsbætur fyrir tímabilið 20. september til og með 3. október, alls 14 daga. Fullar bætur fyrir þennan tíma eru 42 þús- und krónur, en bætur eftir skatt, að frádregnum persónuafslætti, eru rúmar 38 þúsund krónur en tæpar 26 þúsund kr. hjá þeim kennurum sem hafa kosið að nýta ekki skatt- kortin sín, að því er segir á vef KÍ. Fá greidd hefð- bundin vinnulaun FLÓTTAMAÐUR, sem fór um borð í Norrænu í Björgvin en komst ekki í land á Íslandi þar sem hann var með falsað vegabréf, stökk í sjóinn við Hjaltlandseyjar þegar ferjan var á leið til Noregs á ný. Maðurinn náðist úr sjónum og var fluttur á sjúkrahús á Hjaltlandseyjum en reyndist ekki alvarlega slasaður. Norska blaðið Bergens Tidende hefur eftir Kaare Durhuus, blaða- fulltrúa Smyril Line, að maðurinn, sem er á fertugsaldri, hafi verið handtekinn við komuna til Íslands og fluttur aftur um borð í Norrænu þar sem hann var settur í gæslu. Átti að flytja manninn aftur til Björgvinjar þar sem hann kom upp- haflega um borð. Durhuus segir að þegar einn úr áhöfninni, sem átti að gæta manns- ins, færði honum mat, hafi fanginn ráðist á hann og tekist að sleppa út úr klefanum. Hann náði í björg- unarvesti og hótaði að stökkva fyr- ir borð ef skipinu yrði ekki snúið aftur til Hjaltlandseyja en Norræna var þá um 3 sjómílur frá eyjunum. Stökk í sjóinn af Norrænu OLÍUFÉLAGIÐ Esso og Olís hækk- uðu lítrann af bensíni um tvær krónur í gær en dísilolía, flotaolía og flotadísilolía, hækkuðu um 2,50 krónur. Skýringin á þessum hækk- unum er veruleg hækkun heims- markaðsverðs á olíu að und- anförnu, segir á vef Esso. Sjálfsafgreiðsluverð á bensíni hjá Olís er frá 106,80 kr. upp í 109,10 kr. og dísilolíulítrinn frá 52,40 kr. í 53 kr. Sjálfsafgreiðsluverð á bens- íni hjá Esso er allt frá 103,90 kr. upp í 109,10 kr. og dísilolía frá 49,90 kr. lítrinn upp í 53 kr. Bensínlítri hækk- ar um tvær kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.