Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 33 CHICAGO Á LAUGARDAGINN! Stóra svið Nýja svið og Litla svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? e. Edward. Albee Fö 8/10 kl 20, Su 10/10 kl 20 Fi 14/10 kl 20, Fö 15/10 kl 20 HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Aðalæfing mi 6/10 kl 20 - kr. 1.000 Frumsýning fö 8/10 kl 20 - UPPSELT 2. sýn su 10/10 kl 20 - Gul kort 3. sýn fi 14/10 kl 20 - Rauð kort 4. sýn fö 15/10 kl 20 - Græn kort 5. sýn su 24/10 kl 20 - Blá kort LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 10/10 kl 14, Su 17/10 kl 14 Su 24/10 kl 14, Su 31/10 kl 14 SÍÐASTA SÖLUVIKA - ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR: ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500) MJÖG GOTT FYRIR LEIKHÚSROTTUR - VERTU MEÐ Í VETUR CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og bestu búningarnir. Lau 9/10 kl 20 Lau 16/10 kl 20 Lau 23/10 kl 20, Fö 29/10 kl 20 Aðeins örfáar sýningar í haust BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Fi 7/10 kl 20, Su 17/10 kl 20 Fi 21/10 kl 20, Su 31/10 kl 20 Aðeins þessar sýningar RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Fi 7/10 kl 20 Fö 8/10 kl 20 Lau 9/10 kl 20 Su 10/10 kl 20 Örfáar aukasýningar 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími SVIK e. Harold Pinter 3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 örfá sæti laus 4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT 5. sýn. sun. 10/10 kl. 20 UPPSELT 6. sýn. sun. 24/10 kl. 20 nokkur sæti laus Það er erfitt að muna lygina SVIK Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20 Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20 ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20 Miðasala á Netinu: www.opera.is Rakarinn morðóði Óperutryllir eftir Stephen Sondheim Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Vakin er athygli á því að atriði í sýningunni eru alls ekki við hæfi barna. ☎ 552 3000Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is MIÐNÆTURSÝNINGAR • Laugard 23/10 kl. 23 • Laugard 30/10 kl. 23 eftir LEE HALL Fös . 8 .10 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Fös . 15 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 16 .10 20 .00 ÖRFÁ SÆTI „Sexý sýn ing og s júk legur söngur ! Bu l land i k ra f tu r f rá upphaf i t i l enda . Hár ið er orkuspreng ja . “ -Brynh i ldur Guð jónsdót t i r le ikkona- ÞAÐ vakti mikla eftirvæntingu þegar Magnús Geir Þórðarson kynnti snemma hausts að fyrsta verk leikársins hjá Leikfélagi Ak- ureyrar (í samvinnu við fleiri aðlia) væri leikritið Svik eftir Harold Pinter. Höfundinn er nánast óþarft að kynna, þar fer eitt fremsta leik- skáld Breta sem skrifað hefur á fjórða tug leikrita auk prósaverka, kvikmyndahandrita og ljóða. Það síðastnefnda er án efa mikilvægt fyrir leikritun Pinters því þekkt er sú aðferð hans að fara sparlega með orð, að brýna og fága tungu- málið, spila á margræðni orða og merkingarmöguleika og draga fram vægi þagnarinnar og undir- textans. Þessi höfundareinkenni eru ef til vill hvergi eins greinileg og í Svik- um enda koma þau fram strax í titlinum. Enska sögnin „to betray“ getur merkt að svíkja, sýna/fela, segja frá og koma upp um – og all- ar þessar merkingar eru stöðugt að verki í leiktextanum. Af þessu ein- falda dæmi má ímynda sér vanda þýðandans því líklega er fátt jafn erfitt og að þýða texta sem á yf- irborðinu er tær og einfaldur en felur í raun í sér flókinn vef marg- ræðni og merkingarauka. Gunnar Þorsteinsson er þekktur sem af- bragðsþýðandi sjónvarpsefnis og hann leysir þetta verkefni með sóma; íslenski textinn er eðlilegur, tilgerðarlaus og tær og í heild virð- ist mér þýðingin skila þeirri marg- ræðni sem nauðsynleg er. Þegar unnið er með texta af þessu tagi ræður úrvinnsla leik- stjórans og túlkun leikara úrslitum um það hvernig til tekst. Auðvitað má segja að þetta gildi um flestar leiksýningar, en ég vil þó halda því fram að þegar textinn er eins spar- samur og hér um ræðir sé meira lagt á herðar listamannanna en ella. Skemmst er frá því að segja að uppsetning Eddu Heiðrúnar Backman, sem hér þreytir frum- raun sína í leikstjórn, er glæsilegur sigur fyrir hana og þá listamenn sem með henni vinna. Flestir sem hafa snefil af innsýn í íslenskt leik- húslíf vita að Edda Heiðrún er listamaður af guðs náð sem mætir hverju viðfangsefni með virðingu og ástríðu og slær hvergi af kröf- unum. Þeirri staðreynd að hún hafi á hápunkti leikferils síns verið neydd til þess að skipta um vett- vang í listsköpun sinni snýr hún upp í listrænan sigur sem eftir verður tekið. Að mínu mati er það aðallega tvennt sem ræður úrslitum um gæði þessarar sýningar. Annars vegar er frábær leikur þeirra Felix Bergssonar, Jóhönnu Vigdísar Arn- ardóttur og Ingvars E. Sigurðs- sonar sem hvert og eitt leggja sál sína í túlkunina um leið og þau leika af nauðsynlegri hófstillingu. Hins vegar er auðsætt að leikstjór- inn hefur hugað að hverju einasta smáatriði í leik og umgjörð, hvort sem um er að ræða örfína snert- ingu tveggja handa eða augnatillit, eða t.d. hvernig tónlistin tengir at- riði verksins um leið og hún mynd- ar viðeigandi grunn fyrir þær til- finningar sem miðlað er beint og óbeint á sviðinu. Kontrabassaleikur Gunnars Hrafnssonar var frábær liður í heild uppsetningarinnar og jók henni dýpt. Þótt margflókin svik séu að- alþema leikritsins er ýmislegt fleira á seyði hér en framhjáhald. Það er ekki aðeins verið að fjalla um ástina og hjónabandið heldur ekki síður um vináttuna, sam- keppnina, listina, tímann og minn- ið, svo nokkuð sé nefnt. Í hverjum hinna níu þátta verksins er áhorf- endum gefin innsýn í samband hinna þriggja aðalpersóna, Ró- berts, eiginkonu hans Emmu og vinar þeirra Jerrys, á ákveðnum vendipunktum í lífi þeirra. Fyrsti þáttur sýnir fund Emmu og Jerrys tveimur árum eftir að þau hafa slit- ið ástarsambandi sínu og í næstu þáttum er atburðarásin rakin aftur á bak í tíma þar til við sjáum upp- haf sambandsins í lokaþættinum. Þessi óvenjulega aðferð er áhrifa- rík því áhorfandinn „veit meira“ en persónurnar um framvindu mála. „Að vita eða vita ekki“ er kannski hinn rauði þráður leikflétt- unnar. Þannig er það t.a.m. aldrei alveg á hreinu hvenær Róbert fær vitneskju um samband konu sinnar og Jerrys. Hann gæti jafnvel hafa grunað að þau myndu fella hugi á undan þeim sjálfum! Ingvar E. Sig- urðsson á stórleik í hlutverki Ró- berts, persónusköpun hans er heil- steypt og sterk frá upphafi til enda. Hann sýnir okkur karakter sem ber heitar tilfinningar bæði til konu sinnar og vinar síns Jerrys, án þess þó að hann beri þær bein- línis á torg. Hann sýnir okkur stoltan en særðan mann sem mætir svikunum af hörku og háði í sam- skiptum sínum bæði við Emmu og Jerry, án þess þó að ganga of langt. Jafnvel má segja að hann leiki sér að þeim báðum sem köttur að mús og sá leikur náði hápunkti í atriðinu þar sem þeir Jerry eru að matast saman á veitingahúsi, en um leið sjáum við þarna gleggst í kviku Róberts. Felix veitti Ingvari verðugan mótleik í þessu atriði sem og öðrum. Þarna var hann á verði gagnvart beinskeyttu og tví- ræðu tali Róberts en gat þó ómögulega áttað sig á aðstæðum til fulls. Jerry er í túlkun Felix í grunninn dálítið kokhraustur og góður með sig, enda maður með „allt sitt á hreinu“ – eða hvað? Fel- ix sýndi okkur vel togstreituna í persónu Jerrys, af einhverjum ástæðum finnur hann aldrei tíma til að fara í „skvass“ með Róberti, sem sífellt skorar á hann að takast á við sig í þessum líkamlega leik. Áskorun Róberts er sem leiðarstef í verkinu og gefur færi á skemmti- legum túlkunarmöguleikum. Leikur Jóhönnu Vigdísar ein- kenndist af sömu hófstillingu og margræðni og hjá samleikurum hennar og hún túlkaði afar vel ótta þess sem hefur einhverju að leyna og veit ekki hversu mikið hefur þegar afhjúpast. Með þögn og hár- fínum svipbrigðum og nákvæmri líkamsbeitingu sagði Jóhanna Vig- dís oft meira en orð fá lýst – og reyndar má segja það sama um þau öll þrjú. Skúli Gautason á stutta en skemmtilega innkomu í verkið sem þjónn á ítölsku veit- ingahúsi og skopleg útfærsla á per- sónunni er nauðsynlegt mótvægi við spennu þeirrar senu sem áður er lýst. Jón Axel Björnsson myndlist- armaður þreytir hér frumraun sína á sviði leikmyndagerðar og gerir það með glans. Grunnhugmynd leikmyndarinnar virðist taka mið af sparsemi og tærleika textans, leik- munir eru fáir og jafnvel gagnsæir. Á tjöld í baksviði er varpað mynd- skyggnum sem gefa til kynna stað- setningu sem og bakgrunn per- sóna. Búningar Filippíu I. Elísdóttur eru fágaðir og flottir og undirstrika líka stétt og stöðu per- sóna en um leið má skilja alla þessa yfirborðsfágun sem ívið írón- íska athugasemd við það sem undir kraumar. Ætlunin mun vera að setja þessa sýningu upp í Borgarleikhúsinu eftir að sýningum fyrir norðan lýk- ur og víst er að ég ætla að sjá hana aftur. Það er ekki oft sem manni gefst færi á að njóta ósvik- innar listrænnar upplifunar af þessum gæðaflokki. Missið ekki af þessari glæsilegu sýningu. Ósvikin listræn upplifun LEIKLIST Sögn ehf., Leikfélag Akureyrar, Leikhópurinn Á senunni og Leik- félag Reykjavíkur Höfundur: Harold Pinter. Íslensk þýðing: Gunnar Þorsteinsson. Leikstjóri: Edda Heiðrún Backman. Leikarar: Felix Bergs- son, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Skúli Gautason. Leik- mynd: Jón Axel Björnsson. Búningar: Fil- ippía Ingibjörg Elísdóttir. Tónlist: Gunnar Hrafnsson. Akureyri 1. október. SVIK Soffía Auður Birgisdóttir Felix Bergsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir (á myndinni) og Ingvar E. Sig- urðsson eiga frábæran leik í Svikum, segir í leikdómi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.