Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gaukur Jörunds-son fæddist í Reykjavík 24. sept- ember 1934. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 22. september síðast- liðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Helga Dalm- ansdóttir, húsfreyja, f. 7. september 1892, d. 24. júlí 1968, og Jörundur Brynjólfs- son, alþingismaður og bóndi í Kaldaðar- nesi, f. 21. febrúar 1884, d. 3. desember 1979. For- eldrar Guðrúnar voru Dalmann Ármannsson, bóndi, síðast í Hítar- neskoti í Kolbeinsstaðahreppi, f. 14. ágúst 1865, d. 3. janúar 1922, og Steinunn Stefánsdóttir, hús- freyja, f. 24. júlí 1855, d. 19. októ- ber 1942. Foreldrar Jörundar voru Brynjólfur Jónsson, bóndi, síðast á Starmýri í Geithellnahreppi, f. 23. nóvember 1844, d. 6. desember 1913, og Guðleif Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 26. ágúst 1852, d. 2. september 1948. Hálfsystkini Gauks samfeðra eru Haukur, f. 11. maí 1913, d. 26. Skálholti og Kaldaðarnesi. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1954 og lauk embættis- prófi í lögfræði frá Háskóla Ís- lands 1959. Hann stundaði fram- haldsnám í Osló, Kaupmannahöfn og Berlín 1959–62. Hann lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands 1970. Gaukur var fulltrúi hjá yf- irborgardómaranum í Reykjavík frá 1962–1968 og settur hæstarétt- arritari 1967. Hann var lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1967– 1969 og skipaður prófessor til 1992. Hann var settur hæstarétt- ardómari 1983 og 1987. Gaukur var kjörinn af Alþingi umboðs- maður Alþingis 1988–1998. Hann átti sæti í Mannréttindanefnd Evr- ópu frá 1974–1999 og kjörinn dóm- ari við Mannréttindadómstól Evr- ópu frá 1998. Gaukur hefur gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörf- um. Hann var formaður gerðar- dóms Verkfræðingafélags Íslands 1974–1988, í yfirfasteignamats- nefnd 1969–1987, í prófnefnd fast- eignasala 1968–1987 og formaður höfundarréttarnefndar 1973– 1987. Hann var varaformaður jarðanefndar Árnessýslu 1980– 1987 og formaður Veiðifélags Ár- nesinga frá 1985. Hann var kjör- inn félagi í Vísindafélagi Íslend- inga. Gaukur var bóndi í Kaldaðarnesi. Útför Gauks fer fram frá Hall- grímskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. febrúar 2002, Guðrún, f. 21. desember 1916, d. 20. október 1998, Guðleif, f. 21. desem- ber 1916, d. 27. febr- úar 2000, Þórður, f. 19. febrúar 1922, Auð- ur, f. 16. júní 1923, og Unnur, f. 9. apríl 1929. Hinn 21. febrúar 1958 kvæntist Gaukur Ingibjörgu Eyþórs- dóttur, húsmóður, f. í Selvogi 14. maí 1936. Foreldrar Ingibjargar voru Bergljót Guð- mundsdóttir, húsmóð- ir, f. 18. apríl 1906, d. 19. júní 1980, og Eyþór Þórðarson, bóndi, f. 20. mars 1898, d. 6. október 1988. Börn Gauks og Ingibjargar eru: 1) Guðrún, dósent við Háskólann í Reykjavík, f. 30. október 1963. Dóttir hennar er Ingibjörg Þor- steinsdóttir, f. 20. júlí 1988. 2) Jör- undur, lögmaður, f. 24. janúar 1966, unnusta hans er Anna Guð- mundsdóttir framkvæmdastjóri, f. 13. mars 1967. Dóttir þeirra er Auðbjörg, f. 1. ágúst 1993. Sonur Jörundar er Gaukur, f. 12. apríl 1988. Gaukur Jörundsson ólst upp í Frændi okkar Gaukur Jörundsson lést í Reykjavík 22. september, eftir erfiðan sjúkdóm, 2 dögum fyrir 70 ára afmælisdaginn. Gaukur fæddist í Lækjargötu 6a í Reykjavík og er hann fyrsta ung- barnið, sem ég man eftir og fannst eftirminnilegt að fá að horfa á svo lít- ið barn baðað í bala í eldhúsinu. Móð- ir hans Guðrún Dalmannsdóttir var þá matráðskona í Reykjavík. Síðar bjuggu þau á Fjólugötu 1 og svo á Grundarstíg 11. Faðir hans var Jörundur Brynj- ólfsson, kennari, bóndi og alþingis- maður, sem rak búskap í Skálholti. Þau settust síðan að í Skálholti og þar átti Gaukur sína bernsku á þess- um þekkta menningarstað. Þar var rekið stórbú með 30 kýr í fjósi, sem allar voru handmjólkaðar, fjölda kinda og marga hesta. Það var því alltaf fjölmenni í Skál- holti, því það þurfti margar hendur til að sinna öllum búverkum á svo stóru heimili. Það var líka gestkvæmt á sumrin á svo þjóðfrægum stað. Gamla kirkjan var ósköp venjuleg, frekar lítil báru- járnsklædd sveitakirkja, en þangað kom ferðafólk að skoða kirkjuna og þær sögulegu minjar, sem hún hafði að geyma. Það þurfti því ávallt að vera einhver til taks að ganga með gestum og sýna og segja frá. Sitt hvorum megin við innganginn í kirkj- una voru biskupalegsteinar og inni í kirkjunni voru nokkrir slíkir undir kirkjugólfinu, sem var samsett af hlerum er þurfti að lyfta, svo hægt væri að sýna þá. Einnig var altarið á hlera, sem þurfti að lyfta, því þar undir var einn legsteinninn. Erlendir kennimenn komu í pílagrímsför að Skálholti til að skoða þessar minjar og ekki síður minnisvarðann um Jón Arason og syni hans. Jörundur áttu gott bókasafn, enda var hann bókasafnari og var því nóg að lesa, þótt lesið væri við lampaljós (olíulampa), því ekkert var rafmagn- ið. Ef fara þurfti um sveitir t.d. yfir á Skeiðin, þurfti að sundríða Hvítá. Stundum var fólkið ferjað í báti og hestarnir þá hafðir í taumi og látnir fylgja bátnum. Biskupstungan liggur frá Skálholti og myndast þar sem Brúará og Hvítá renna saman. Þar er Þorlákshver meðal annars og í honum var bakað hverabrauð. Vorið, sem Gaukur fermdist fluttu þau að Kaldaðarnesi í Flóa og hefur hann átt þar heima síðan. Oft var far- ið í heimsóknir, þótt það væri dags- ferð að komast að Skálholti og líka alllangur afleggjarinn frá Eyrar- bakkaveginum að Kaldaðarnesi. En margar vetrarferðirnar eru okkur ógleymanlegar í baráttu við veðuröfl- in til að komast á áfangastað og halda upp á áramótin í sameiningu fleiri fjölskyldna. Báðir þessir staðir voru erfiðir fyrir skólagöngu og var fjöl- skyldan því með vetursetu í Reykja- vík þar sem Jörundur þurfti líka að vera vegna þingstarfa. Gaukur kynntist ungur Ingibjörgu Eyþórsdóttur, sem varð hans trausti og góði lífsförunautur. Hún fylgdi honum í hans framhaldsnámi í Ósló, Kaupmannahöfn og Berlín og alls staðar gat hún fengið vinnu við sitt hæfi, enda hafði hún góða menntun úr Kvennaskólanum í Reykjavík. Þau eignuðust 2 börn, Guðrúnu, sem nú hefur nýlega varið doktorsritgerð sína í Lundi í Svíþjóð, tæpum hálfum mánuði fyrir andlát Gauks, svo hann gat glaðst yfir þeim góða árangri hennar í lögfræðinni; og Jörund, sem einnig er lögfræðingur. Ingibjörg annaðist tengdaforeldra sína af stakri natni, en þau bjuggu í sambýli. Guðrún lést 1968 eftir löng og erfið veikindi, en Jörundur lést 1979, þá orðinn 95 ára. Sem barn og unglingur var Gauk- ur af meðalstærð, en óx í það að verða stór maður í orðsins fyllstu merkingu, því hann vann sér alls staðar vináttu og mikið traust allra sinna samstarfsmanna í hvaða landi og hvaða starfsemi, sem hann var. Allir báru mikið traust til hans fyrir réttsýni hans og margir af fyrrum nemendum hans úr Háskólanum hafa spurt um hann og borið lof á hann sem kennara og sýnt honum mikla virðingu. Það verða aðrir til þess að skrifa um öll hans mikilvægu störf, sem hann innti af hendi og huga á lífsleið- inni, svo ég ætla ekki að rekja það nánar, en þetta er sá grunnur og það veganesti, sem hann fékk í byrjun. Faðir hans var ættaður frá Horna- firði og móðir hans af Mýrum, fædd í Mýrasýslu og uppalin í Hnappadals- sýslu. Dalmann Ármannsson, móðurafi Gauks, tók við búi föður síns að Fífl- holtum á Mýrum og hann og Stein- unn Stefánsdóttir byrjuðu sinn bú- skap þar og þar fæddust systkinin Guðrún, Ármann Dalmannsson, sem var þekktur maður á Akureyri og Jón Dalmannsson, gullsmiður í Reykjavík. Þau fluttust yfir ána Hít- ará og voru þá komin í Hnappadals- sýslu og bjuggu þar í Hítarneskoti. Þau tóku líka fósturson Helga Árna- son, sem ólst upp hjá þeim og eftir lát Dalmanns fluttu mæðgurnar til Reykjavíkur með Helga og Baldur Stefánsson, sem var frændi og fóst- ursonur. Fyrir hönd okkar frændsystkina Gauks vil ég þakka honum alla sam- fylgd og vináttu og votta Ingibjörgu, Guðrúnu, Jörundi og barnabörnun- um okkar dýpstu samúð. Dóra Jónsdóttir. Stórt skarð hefur verið höggvið í raðir fjölskyldunnar við fráfall Gauks Jörundssonar, mágs míns. Gaukur var sérlega bóngóður. Gott að leita til hans. Hann kunni að hlusta og á hann var hlustað. Hann var úrræðagóður og ráðhollur. Gauk- ur hafði næmt skopskyn og var alveg bráðfyndinn. Hann var barngóður. Þess nutu börnin mín er þau dvöldu í æsku hjá Ingibjörgu og Gauki í Kaldaðarnesi. Þar kynntust þau sveitinni með öllu tilheyrandi og bjuggu við gott atlæti og öryggi. Gaukur var höfðingi heim að sækja enda heimilið gestkvæmt. Hann var heimakær og undi sér best heima í sveitinni í Kaldaðarnesi, Flóa. Hann var vinnusamur með af- brigðum. Hann var dýravinur og drengur góður. Lífsförunautur Gauks, Ingibjörg, stóð við hlið hans alla tíð og saman fetuðu þau lífsgönguna. Ég þakka Gauki góða samfylgd. Sigríður Eyþórsdóttir. Kveðja frá lagadeild Háskóla Íslands Á einungis fjórum mánuðum hafa þrír fyrrverandi prófessorar við laga- deild Háskóla Íslands lotið í lægra haldi fyrir skæðum sjúkdómi. Fyrst Arnljótur Björnsson, þá Gunnar G. Schram og nú síðast Gaukur Jör- undsson. Dr. Gaukur Jörundsson gegndi starfi prófessors við lagadeild í tæp- an aldarfjórðung. Um það leyti sem hann tók við því starfi hlaut hann doktorsnafnbót frá deildinni fyrir tímamótaritgerð sína um eignarnám. Það lá því beint við að aðalkennslu- grein hans væri eignaréttur. Þó lét hann til sín taka á fleiri sviðum. Með- al þeirra var höfundaréttur og stönd- um við, sem fengist höfum við kennslu og rannsóknir í þeirri grein, í þakkarskuld við Gauk fyrir framlag hans til hennar. Samt var það aðeins lítið brot af því sem hann lagði ís- lenskri lögfræði til á starfsferli sín- um. Á vegum lagadeildar gegndi hann starfi deildarforseta um fjög- urra ára skeið. Ógerlegt er að telja upp öll þau trúnaðarstörf sem honum voru falin á öðrum vettvangi. Eitt þeirra var embætti umboðsmanns Alþingis sem hann gegndi fyrstur manna með þeim ágætum að aldrei verður full- þakkað. Einnig má nefna setu hans í Mannréttindanefnd og síðar í Mann- réttindadómstóli Evrópu, þar sem hann naut einstakrar virðingar sök- um lagaþekkingar sinnar og mann- kosta. Njáli Þorgeirssyni er svo lýst í Njálu: „Hann var lögmaður svo mik- ill að engi var hans jafningi, vitur og forspár, heilráður og góðgjarn og varð allt að ráði það er hann réð mönnum, hógvær og drenglyndur, langsýnn og langminnigur. Hann leysti hvers manns vandræði er á hans fund kom.“ Þessi lýsing gæti allt eins átt við Gauk því að hann hafði allt það til að bera, sem prýða má sunnlenskan höfðingja, ekki að- eins í lund, heldur og á velli. Þannig taldi hann að engin þeirra virðing- arstaða, sem honum hlotnuðust að verðleikum á heilladrjúgri starfsævi, jafnaðist á við þá að vera óðalsbóndi í Kaldaðarnesi. Okkur nemendum Gauks verður hann jafnan minnisstæður. Skiptir þar ekki síst máli sú leiftrandi kímni- gáfa, sem hann bjó yfir, þótt hann færi vel með hana. Fleyg er sagan úr fimmtugsafmæli hans þegar einn af sveitungum hans mærði hann með þeim orðum að hann væri mestur lagamaður á Íslandi og þótt víðar væri leitað. Sló þögn á gesti við þessi orð, en í hópi þeirra voru margir af fremstu lögfræðingum landsins. Af- mælisbarnið kom hins vegar ræðu- manni til bjargar með því að segja stundarhátt: „Oft má satt kyrrt liggja!“ Á þessum tímamótum vil ég, fyrir hönd lagadeildar og starfsfólks henn- ar, færa Gauki þakkir fyrir sam- fylgdina. Jafnframt þökkum við Þór- hildur honum fyrir áratugalanga vináttu og sendum Ingibjörgu og fjölskyldu þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Eiríkur Tómasson. Kveðja frá Hæstarétti Íslands Starfsvettvangur Gauks Jörunds- sonar var fyrst og fremst Háskóli Ís- lands, embætti umboðsmanns Al- þingis og mannréttindastofnanir Evrópuráðsins í Strassborg í Frakk- landi. Spor hans lágu þó víðar og naut Hæstiréttur Íslands starfs- krafta hans um tíma. Þannig var hann settur hæstaréttarritari í ellefu mánuði á árinu 1967 og settur dómari við réttinn í tvígang, hið fyrra sinn í sex mánuði á árinu 1983 og hið síðara í sjö og hálfan mánuð 1987. Þá sat hann sem varadómari í einstökum málum þar að auki. Gaukur hafði sannarlega þá kosti til að bera, sem góðum dómara eru nauðsynlegir. Það var gæfa fyrir Hæstarétt að fá hann til starfa og fyrir það skal þakkað við leiðarlok. Hann var eftirsóttur til allra verka og á hann hlóðust ábyrgðarstörf, sem engan þarf að undra þegar óvenju- legir mannkostir og atgervi hans er haft í huga. Þekking hans á lögvís- indum var djúp og framlag hans til þeirra slíkt að fáir hafa gert jafn vel eða betur. Það var hins vegar ekki aðeins svo að Gaukur nyti virðingar allra fyrir störf sín, heldur var hann einnig vin- sæll og vinamargur. Í vinahópi var hann hrókur alls fagnaðar þar sem rík kímnigáfan naut sín vel. Hans er sárt saknað og með Gauki er genginn einstakur maður. Af djúpri virðingu og einlægri vin- áttu kveðja starfsmenn Hæstaréttar Íslands Gauk Jörundsson. Fjöl- skyldu hans vottum við samúð, en honum sjálfum biðjum við blessunar á eilífðarbrautinni. Gunnlaugur Claessen, varaforseti Hæstaréttar. Gaukur Jörundsson var umboðs- maður Alþingis í áratug – frá 1988 til 1998. Við sem vorum vestnorrænir starfsbræður hans urðum þeirrar ánægju aðnjótandi á þeim árum sem hann gegndi embætti umboðsmanns að eiga við hann náið og mikilsvert samstarf sem leiddi til varanlegrar vináttu. Yfirgripsmikil þekking Gauks á lögum og rétti, lögspeki hans og dómgreind var víðkunn. Í okkar aug- um var hann hinn dæmigerði íslenski lagamaður sem við þekktum frá sög- unni – lögsögumaður. Í nánu sam- starfi okkar um árabil nutum við góðs af hyggjuviti hans, innsæi og mannþekkingu. Glaðlyndi hans og markviss tilsvör gerðu það einnig að verkum að unun var að umgangast hann. Umboðsmannalögin og þær rétt- arreglur sem móta störf okkar eru mjög áþekk. Í starfi okkar stöndum við andspænis mörgum sömu vanda- málunum. Á fundum okkar gátum við borið saman reynslu okkar og skipst á skoðunum. Vegna sinnar faglegu yfirsýnar og alhliða bakgrunns ásamt hlýju viðmóti og glettni varð Gaukur sjálfkrafa miðpunktur í þeim samræðum. Hann var góður ráðgjafi, líka fyrir starfsbræður sína. Í þau mörgu skipti sem fundirnir voru haldnir á Íslandi fór Gaukur með okkur um landið og sýndi okkur ýmsa staði, meðal annars Þingvelli, Snæfellsjökul, Höfn og Akureyri. Það var oft farið á heimili hans í Kaldaðarnesi og við fundum vel hversu sá staður var honum kær. Gegnum samstarf okkar Gauks kynntumst við Ingibjörgu líka vel. Í dag leitar hugur okkar til hennar. Umboðsmaður Alþingis er lög- fræðilegur trúnaðarmaður þjóð- þingsins. Hann skal vera sjálfstæður í störfum sínum og óháður bæði þjóð- þingi og stjórnvöldum og leitast við að tryggja það að þegnarnir séu ekki órétti beittir af stjórnvöldum. Með myndugleik sínum og sjálfstæði stuðlaði Gaukur að því í starfi sínu að gera að veruleika hið forna norræna orðtak að með lögum skal land byggja en með ólögum eyða. Hans Gammeltoft-Hansen, Folketingets ombudsmand, Arne Fliflet, Stortingets ombudsmann. Kveðja frá Dómarafélagi Íslands Gaukur Jörundsson var lærifaðir margra dómara þessa lands í laga- deild Háskóla Íslands, og hafði sem slíkur mótandi áhrif á skilning okkar á tengslum laga og þjóðlífs, tilkomu laganna og notkun þeirra við lausn ágreiningsefna. Hann var skemmti- legur kennari. Einstakt skopskyn hans gæddi oft þurrt námsefnið lífi og kætti viðstadda þar sem hann var fundarstjóri. Þegar Gaukur hvarf frá háskólanum og axlaði það mikilvæga verkefni að móta starf Umboðs- manns Alþingis hélt hann í vissum skilningi áfram hlutverki fræðarans með því að leggja grundvöll að góð- um stjórnsýsluháttum. Forsenda þessa var afburða lagaþekking hans, dómgreind og sjálfstæði. Gaukur hóf farsælan og fjölbreyttan starfsferil sinn sem dómarafulltrúi. Síðar sat hann oft sem varadómari í einstökum málum í Hæstarétti og var einnig í tvígang settur um tiltekinn tíma. Þar mátti sjá áhrif hans. Síðast en ekki síst setti hann mark sitt á þróun rétt- arins og réttaröryggis, ekki aðeins hér á landi heldur á alþjóðavettvangi, með störfum sínum í Mannréttinda- nefnd Evrópu, vinnu við endurritun mannréttindakafla stjórnarskrárinn- ar, og síðar sem dómari við Mann- réttindadómstól Evrópu. Áhrif hans voru mikil, ekki aðeins vegna afburða lagaþekkingar heldur vegna þess hvernig hann beitti henni með rök- festu og af mannskilningi og víðsýni. Við kveðjum Gauk Jörundsson, mikilhæfan lögfræðing, kennara, fræðimann, dómara, óðalsbónda og vin, með söknuði og virðingu og vott- um eiginkonu hans, Ingibjörgu Ey- þórsdóttur, börnum og barnabörnum samúð. Hjördís Hákonardóttir, formaður Dómarafélags Íslands. Dr. Gaukur Jörundsson, dómari Íslands við Mannréttindadómstól Evrópu, lést eftir erfið veikindi hinn 22. september sl., tveimur dögum fyrir sjötugsafmæli sitt. Lauk þar harðri glímu hans við grimman og óvæginn andstæðing sem á endanum hafði betur. Með Gauki er genginn sá úr hópi íslenskra lögfræðinga, sem með framlagi sínu til lögvísindanna átti hvað drýgstan þátt í að þróa þá lögfræðilegu umgjörð, sem um sam- félag okkar lykur og gerir Ísland í dag að öflugu réttarríki. Starfsævi Gauks má skipta í þrjú skeið eða tímabil, þótt skörun hafi GAUKUR JÖRUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.