Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Kristín Stefáns-dóttir fæddist í Reykjavík 22. júní 1953. Hún lést á líkn- ardeild Landspítal- ans í Kópavogi 26. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru Magnfríður Kristófersdóttir hús- móðir, f. á Klúku í Arnarfirði 12.7. 1921, d. 27.11. 1998, og Stefán Sigmundsson, húsasmíðameistari frá Norðfirði, f. 19.9. 1912. Bræður Krist- ínar eru: a) Sigmundur Smári, f. 18.4. 1944, kona hans er Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir, f. 20.6. 1947. Börn þeirra eru: Guðlaug Oddný, Guðný Hrönn og Styrmir Már og eiga þau fimm barnabörn. b) Kristófer Valgeir, f. 23.4. 1948, kona hans er Alda Guðmundsdótt- ir, f. 20.6. 1950. Börn þeirra eru Stefán og Gyða og eiga þau þrjú barnabörn. Kristín giftist 25. ágúst 1973 Pétri Önundi Andréssyni, kennara við Kleppjárnsreykjaskóla, f. 10. janúar 1952. Foreldrar hans voru hjónin Ólöf Ragnheiður Sölvadótt- ir húsmóðir, f. 20.12. 1910, d. 7.9. 1980, og Andrés Pétursson renni- smíðameistari, f. 31.8. 1911, d. 23.2. 2000. Systir Péturs er Mar- grét Björk, f. 19.4. 1943, fyrri maður Sveinn Sigurðsson, f. 13.3. 1938, d. 11.4. 1991. Börn þeirra eru Ólöf Adda, Sigurður Rúnar og Bjarki Már og á hún þrjú barna- börn. Sambýlismaður Aðalsteinn Viðar Júlíusson, f. 4.3. 1944. Dæt- ur hans eru Anna og Auðrún. Dætur Kristínar og Péturs eru: 1) Magnfríður Ólöf nemi, f. 24. október 1976. 2) Steinunn Lilja leikskólakenn- ari, f. 20. desember 1978, unnusti Albert Torfi Ólafsson, f. 3.1. 1979. Sonur hans er Ásgeir Þór. 3) Elísa- bet María, nemandi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, f. 28. júlí 1988. Kristín stundaði nám við lýðhá- skólann í Hadsten í Danmörku vorið og sumarið 1971. Starfaði nokkur ár í heildversluninni Eddu. Hún lauk sjúkraliðanámi frá Sjúkraliðaskóla Íslands árið 1981 og vann á kvennadeild Land- spítalans og við afleysingar í heimahjúkrun í Borgarfirði um nokkurt skeið. Einnig starfaði hún við leikskólann Hnoðraból í Borg- arfirði og við Reykholtsskóla starfaði hún frá 1985 til 1993. Kristín tók virkan þátt í starfi Kvenfélags Reykdæla og var for- maður þess um nokkurra ára skeið. Þá var hún í kór Reykholts- kirkju og Freyjukórnum í mörg ár. Kristín og Pétur keyptu og fluttust 1993 að Garðyrkjustöð- inni Kvisti í Reykholtsdal og ráku hana til ársins 2003. Útför Kristínar fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Daginn sem Kristín kvaddi þennan heim skörtuðu laufkrónur trjánna í Kópavogi sínum fegurstu litbrigðum og þegar sólin sendi síðdegisgeisla sína yfir hafflötinn sindraði hann all- ur. Það var sem veröldin skrýddist sínu fegursta í kveðjuskyni. Okkur langar með þessum fáu orð- um að þakka henni Stínu fyrir sam- fylgdina. Heimilið í Kvisti hefur alltaf staðið okkur opið og þar hefur Fúsi fundið það sem hver einstaklingur getur helst óskað sér; hlýju, öryggi og sanna vináttu. Þar voru þau Krist- ín, Pétur og Beta. Fúsi fór oft í tíma heim í Kvist og ég á ekki ýkja erfitt með að sjá þá tíma fyrir mér, þótt ég hafi hvergi verið nærri. Pétur og Fúsi sitja saman í nota- legri stofunni. Fyrst er spjallað og svo tekið til við lærdóminn. Pétur er þolinmæðin uppmáluð en Fúsi dálítið einbeitingarlaus. Kristín sýslar eitt og annað en lætur lítið fyrir sér fara. Samt er hún alltaf skammt undan og hlær sínum dillandi hlátri þegar eitt- hvað skemmtilegt ber á góma. Eftir nokkra stund fer Fúsi að gjóa augunum í átt að eldhúsinu því þaðan berst indæll ilmur. Athyglin hvarflar á augabragði frá lærdómnum, X og Y renna saman í eitt. Og viti menn! Á nákvæmlega sama augnabliki og einbeitingin fýkur út í veður og vind er eftirlætiskaka nemandans komin á borðið. Já, stundirnar í Kvisti voru ekki bara glíma við námið, heldur líka veisla fyrir sál og líkama. Kristín velti því örugglega aldrei fyrir sér hve stóran þátt hún átti í því að gera þessi síðdegi að ljúfustu minningum, svo sjálfsögð var nærvera hennar og um- hyggja. Með kæru þakklæti kveðjum við þig Kristín og óskum þér góðrar ferð- ar yfir móðuna miklu. Þú kveður langt um aldur fram en það er hugg- un að vita að fyrir handan verður tek- ið á móti þér af sömu ást og hlýju og þú gafst okkur í þínu lífi. Þar mun sársaukinn hopa og verðskulduð hvíldin umvefja þig. Þú munt njóta fegurðar haustlitanna og sólargeisl- anna á ný. Fjölskyldurnar á Sturlu-Reykjum senda öllum ástvinum Kristínar inni- legar samúðarkveðjur. Aldís og Sigfús. Í hugum okkar systkinanna eru Stína og Önni ein heild og því er erfitt að skrifa minningargrein um Stínu án þess að minnast á þau bæði. Þegar horft er um öxl hrannast upp minn- ingar frá Seljabrautinni þar sem allt- af voru kökur á boðstólum. Það var mikill samgangur á milli heimilanna og okkur fannst alltaf gaman að heimsækja Stínu og Önna eða fá þau í heimsókn. Þau voru svo barngóð og gáfu sér alltaf tíma fyrir okkur krakkana og því var eftirvæntingin líka sérlega mikil þegar þau voru beðin að passa okkur. Hin árlegu jólaboð á Seljabrautinni er okkur líka sérlega minnisstæð, sem og allar af- mælisveislurnar. Einnig sumarbú- staðaferðir í Svignaskarð og önnur ferðalög þar sem veiðistöngin var oft ekki langt undan, enda hafði Stína mjög gaman af því að renna fyrir fisk. Þegar Andrés afi slasaðist og þurfti að vera á gjörgæslu kom Stína frá Reykholti (þar sem þau Önni bjuggu þá) og heimsótti afa tvisvar á dag í margar vikur. Þetta er gott dæmi um hjartahlýju Stínu og lýsir vel ást hennar á fjölskyldunni og sín- um nánustu – en hún tók ekki bara ástfóstri við okkur öll systkinin held- ur einnig dætur Öddu, þær Andreu og Sveindísi, sem fengu stundum að dvelja hjá þeim á Kvisti. Stína gat verið sérlega hugulsöm í sér og var alltaf til í að létta undir með sínum nánustu enda var hún mikill dugnað- arforkur. Þannig tók hún það t.d. upp hjá sjálfri sér að baka í frystikistuna hjá Öddu þegar hún var nýkomin heim af fæðingardeildinni með And- reu svo Adda þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki með kaffinu fyrir gesti. Minningarnar um Stínu eru ótal- margar en það sem stendur samt upp úr er hjartahlýja hennar, góðvild og væntumþykja sem hún auðsýndi sín- um nánustu óspart. Elsku Önundur og dætur, við eigum svo margar góð- ar minningar um ykkur og Stínu. Er- um við þakklát fyrir að hafa mátt njóta nærveru hennar og vináttu í gegnum árin. Innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar, Stefáns og annarra aðstandenda. Adda, Sigurður og Bjarki. Mig langar að minnast móður minnar með örfáum orðum. KRISTÍN STEFÁNSDÓTTIR ríkidæmi. Gaukur var ástríðufullur fræðimaður á sviði lögfræði og starf- aði alla ævi að þessu áhugamáli sínu. Vinum sínum og samferðamönnum var hann sannur gleðigjafi. Mynd hans mun lifa skýr í hugum þeirra. Pétur Stefánsson, form. Yfirfasteignamatsnefndar. Horfinn er af sviðinu einstakur höfðingi og heiðursmaður. Tæp fimmtíu ár eru síðan ég kynntist Gauki fyrst og aldrei bar skugga á vináttu okkar. Ég var aðeins á eftir Gauki í námi, en kynntist honum fyrst er ég var á sumrum veiðieft- irlitsmaður á vatnasvæði Ölfusár/ Hvítár og Þjórsár og bjó í Kálfhaga, sem var á sinni tíð hjáleiga frá Kald- aðarnesi, en er nú Kaldaðarnes. Gaukur bjó alla sína tíð í Kaldaðar- nesi og var mikill náttúruunnandi. Við kvæntumst systrum og varð náið með fjölskyldum okkar. Á ég margar og dýrmætar minningar um góðar og glaðværar samverustundir á heimili þeirra hjóna, sem og annars staðar. Ég undraðist fljótt hið mikla innsæi og hina miklu þekkingu Gauks í lögfræði, löngu áður en hann tók embættispróf. Las hann þá gjarnan þykkar bækur utan náms- efnis, eins og ekkert væri, kannske í rúmi undir svefn. Mér urðu þegar ljósir afburðahæfileikar Gauks á þessu sviði. Í gegnum tíðina leitaði ég oft í smiðju til hans um lögfræðileg álitaefni og veitti hann mér margan stuðninginn. Í störfum sínum gerði hann það heldur ekki endasleppt, þótt lítillátur væri, en mér virtist hann aldrei framagjarn. Fullyrði ég að enginn lögfræðingur hafi í hans tíð verið hans jafningi hér á landi að öll- um öðrum ólöstuðum. Gaukur var af- kastamikill með afbrigðum og varð þekktur sem fræðimaður, prófessor, umboðsmaður Alþingis og dómari í Evrópulöndum. Gaukur var mjög sérstæður og áhrifamikill persónuleiki. Var hann jafnan yfirvegaður og í jafnvægi. Hann hafði ríka tilfinningu fyrir þró- un og skynjaði vel mismun þess að sýnast og vera. Allt verklag hans ein- kenndist af myndarskap. Hann var spaugsamur og ríkur af skopskyni og brá gjarnan á leik. Hann eygði kjarna máls með ljóshraða og hafði djúpa innsýn í umhverfi sitt. Hann var örlátur mjög og höfðingi í sér, eins og hann átti ætt til. Hann var mikill vinur vina sinna. Þá bar Gauk- ur mikið skynbragð á listir og naut þeirra ríkulega. Hann bjó yfir ró heimspekingsins og innsæi inn í lög- mál og lögmálsleysi tilverunnar. Ég þakka vináttu hans og veglyndi. Gaukur átti því láni að fagna, að eiga mikilhæfa konu, sem var stoð hans og stytta og sem drjúgan hlut átti í farsæld hans. Ég votta henni, Guðrúnu, Jörundi og barnabörnum samúð mína. Jón L. Arnalds. Leiðir okkar hjóna og þeirra Gauks Jörundssonar og Ingibjargar Eyþórsdóttur lágu saman árið 1998 þegar þau síðarnefndu stofnuðu sitt annað heimili í Strassborg. Hafði Gaukur þá látið til leiðast að gefa kost á sér til starfa við endurnýjaðan Mannréttindadómstól Evrópu sem varð til við samruna mannréttinda- nefndarinnar og gamla dómstólsins. Grunar mig að Gaukur hefði frekar kosið að ljúka starfsævinni á Íslandi þar sem rætur hans lágu svo djúpt. En skyldan kallaði, því þörf var á kjölfestu þegar sigla þurfti mann- réttindastofnunum Evrópuráðsins í gegnum öldusjó umbreytinga. Ekki var það að minnsta kosti vegtyllan sem Gaukur sóttist eftir. Ekkert var honum fjær skapi en hirða um met- orð, hvað þá sviðsljós. Hafði ég reyndar reynt sem blaðamaður að ná við hann viðtali þegar hann gegndi embætti umboðsmanns Alþingis en án árangurs. Síðar nefndi ég það einnig við hann hvort ég mætti ekki taka við hann viðtal fyrir Morgun- blaðið en hann færðist undan en gaf þó til kynna að ég gæti reynt aftur þegar hann yrði sestur í helgan stein. Ekki grunaði okkur þá að honum myndi ekki endast til þess aldur. Ég vil ekki ganga svo langt að segja að Strassborgarvistin hafi ver- ið Gauki kvöl nema kannski í mestu sumarhitum en því er ekki að leyna hve feginn hann var að geta skroppið heim öðru hverju í sveitina, jafnvel yfir langa helgi, þótt það kostaði að taka þyrfti með sér þykka bunka af málsskjölum sem kölluðu á yfirlegu. Ekki fer á milli mála hversu mikils metinn Gaukur var í Mannréttinda- dómstólnum sakir afburðareynslu, skarpskyggni og ósérhlífni. Sýndi hann háum sem lágum sama lítillætið og góðlátlegu gamansemina. Er mér næst að halda að það hafi verið ein- kunnarorð Gauks, að gömlum ís- lenskum sið, að láta verkin tala. Sem fyrsti umboðsmaður Alþingis lyfti hann grettistaki. Ekki með opinber- um yfirlýsingum heldur vann hann sitt starf í kyrrþey af mikilli mála- fylgju. Jafnframt rötuðu hugtök eins og „góðir stjórnsýsluhættir“ og „meðalhóf“ inn í íslenska lögfræði og má segja að veitti ekki af. Við hjónin erum þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við höfum átt með þeim Gauki og Ingibjörgu und- anfarin ár. Þeir eru ófáir sunnudag- arnir sem við Þórdís eyddum í góðu yfirlæti hjá þeim hjónum í rue Verdun og þar sem strákarnir okkar, Hjalti og Kjartan, vanari pizzum og hamborgurum, þótt skömm sé frá að segja, fengu að kynnast ekta ís- lenskri lambasteik. Að máltíð lokinni var sest til stofu og dreypt á alsnesku brennivíni úr vínberjahrati, „fyrir lengra komna“ eins og Gaukur orðaði það, og skrafað um menn og málefni. Ég minnist helgarferða til systur Þórdísar á Ítalíu, suður í Svartaskóg og til Luneville. Hápunktur slíkrar ferðar var tvímælalaust þegar Gauk- ur dró upp úr pússi sínu lista með ný- stárlegum spakmælum sem báru spaugsemi hans gott vitni. Örlögin höguðu því svo til að ferð til Toskana á þessu ári reyndist aldrei meira en áformin ein. Elsku Ingibjörg, við Þórdís vott- um þér, Guðrúnu og Jörundi okkar dýpstu samúð. Páll Þórhallsson. Það er mér minnisstætt er ég hitti Gauk Jörundsson fyrst fyrir um tutt- ugu árum í heimsókn minni til Jör- undar vinar míns. Ekki grunaði mig þá hve mikil áhrif Gaukur átti eftir að hafa á mig. Gaukur var stórmenni og bar höf- uð og herðar yfir aðra bæði í eig- inlegum og óeiginlegum skilningi. Hann var jafnlyndur og þægilegur í framkomu og var skammt í glettni. Hann var þó ekki skaplaus og gat byrst sig þegar það átti við. Hann hafði ríka kímnigáfu og gat alltaf séð spaugilegar hliðar á mönnum og mál- efnum. Gaukur var höfðingi heim að sækja og eru ómetanlegar minningar frá heimsóknum mínum í Kaldaðar- nesi. Margt kemur upp í hugann. Lagning og vitjun laxaneta með til- heyrandi sandmokstri í poka, göngu- ferðir um eyjuna að tína dún, trjá- rækt, eggjatínsla uppá sandi, vetrarferð á skautum og skíðasleða niður ána, svona mætti lengi telja. Eftirminnilegast er þó gleði við borð- hald með fjölskyldunni þar sem óð- alsbóndinn sat í öndvegi að segja gamansögur. Fjölskyldan er sam- hent og skemmtileg og hefur ætíð reynst mér vel. Ég naut þeirra forréttinda að fá að starfa náið með Gauki hjá embætti umboðsmanns Alþingis. Þar glímdi hann við margvísleg álitaefni og fylgdi íslenskum stjórnvöldum í gegn um miklar breytingar. Honum þótti mest um vert að líta fram á veg og bæta stjórnsýslu til framtíðar en lagði síður áherslu á aðfinnslur og skammir í garð yfirvalda. Þannig ávann hann sér traust þeirra og tryggði öðrum fremur hve vel hefur gengið að innleiða vandaða stjórn- sýsluhætti á Íslandi. Þá naut hann óskoraðs trausts í Mannréttinda- nefnd Evrópu og síðar sem dómari hjá Mannréttindadómstóli Evrópu. Það var mjög lærdómsríkt að heyra frásagnir hans af málum og hvernig reglum var þar beitt til að komast að niðurstöðu. Gaukur virtist beita svip- uðum aðferðum við úrlausn mála, hvort sem þau væru lögfræðileg eða snertu önnur viðfangsefni og náði alltaf að greina aðalatriði frá auka- atriðum. Jafnvel flóknustu mál urðu einföld þegar Gaukur stillti þeim upp og úrlausn eða val á leið að settu marki varð oft augljós þegar hann hafði bent á hana. Þessi eiginleiki gerði Gauk að ráðhollum manni og veit ég að auk mín treystu margir á heilræði hans. En það var eins gott að leggja vel við hlustir því að um- fjöllun Gauks var svo einföld og eðli- leg að maður áttaði sig stundum ekki á því fyrr en seinna að Gaukur hefði tekið afstöðu til máls og veitt ráð. Gaukur ræddi stundum um eftir- launaárin en hann hafði mörg verk- efni á prjónunum. Örlögin höguðu því hins vegar svo að hann greindist með illvígan sjúkdóm á síðasta ári og í vor varð ljóst að hverju stefndi. Það var ljúfsárt að fylgjast með hvernig fjölskyldan í Kaldaðarnesi nýtti síð- ustu mánuðina og átti góðar sam- verustundir, ekki síst að sjá hvernig barnabörnin, þau Gaukur, Ingibjörg og Auðbjörg, nutu samvista við afa sinn. Fjölskyldan á dýrmæta eign sem er minningin um Gauk Jörunds- son. Við Anna Dóra og strákarnir vottum þeim samúð okkar. Halldór Jónsson. Mér er harmur í huga. Þrátt fyrir að vitað væri að hverju stefndi kom andlátsfrétt Gauks sem reiðarslag. Gauki kynntist ég fyrir tæpum ald- arfjórðungi er ég fór að vinna á skrif- stofu lagadeildar Háskóla Íslands þar sem hann var prófessor. Hann hafði þá þegar getið sér orð fyrir að vera einn sá fremsti, ef ekki fremsti lögfræðingur landsins og nemendum fannst mikið til þess koma að sitja hjá honum í tímum. Ég hóf síðar að vinna hjá Gauki skömmu eftir að hann fyrstur manna var skipaður umboðsmaður Alþingis í ársbyrjun 1988 og fyrir mig var það mikið gæfuspor. Þegar nýju embætti er komið á fót skiptir öllu hvernig haldið er um taumana í byrjun og þar var Gaukur sannarlega réttur maður á réttum stað. Hann lagði sig fram um að leysa málin farsællega og þannig að allir aðilar gengju sáttir frá borði. Gaukur var ekki maður margra orða á fundum. Hann lét aðra um það. Meðan aðrir töluðu þá hugsaði hann og kom að lokum með lausnina. Af hans vörum virtust málin einföld en voru í raun djúphugsuð og vel rök- studd. Ekki voru allir sem erindi áttu við umboðsmann í jafnvægi og stundum féllu erindi þeirra ekki undir hans starfssvið. Hann tók þó á móti þeim sem þess óskuðu og gekk fólk jafnan sátt af hans fundi jafnvel þótt ekki væri hægt að sinna erindum þess. Aldrei fór Gaukur í manngreinarálit og kom jafnt fram við alla. Þó að eðli starfs hans sem umboðsmanns væri alvörugefið var jafnan létt andrúms- loft á vinnustaðnum og hinn besti skóli að fylgjast með störfum hans, bæði hinum lögfræðilegu viðfangs- efnum og eins samskiptum hans við fólk. Ég var svo heppin að fá að fylgja Gauki á fundi og ráðstefnur erlendis. Eftir misskemmtileg erindi og ræðu- höld var gaman að njóta samvista við Gauk. Hann var skemmtilegur ferða- félagi og naut vinsælda meðal koll- ega sinna erlendis. Á heimavelli í Kaldaðarnesi naut Gaukur sín þó best og var gestrisni þeirra hjóna viðbrugðið. Gaukur hafði óvenju mikla kímnigáfu og kunni ógrynni af sögum um menn og málefni. Eftir glæsilegan feril á Íslandi og erlendis var nú komið að starfslokum. Hann fékk þó ekki notið aukins frítíma, meiri nálægðar við fjölskyldu sína, þess að sinna hugðarefnum og ganga að störfum á óðalsjörð sinni. Ég votta Ingibjörgu, Guðrúnu, Jörundi og barnabörnum Gauks mína innilegustu samúð. Minning um einstakan mann mun fylgja mér alla tíð. Katrín Jónasdóttir. GAUKUR JÖRUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.