Morgunblaðið - 04.10.2004, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Það voru mikil viðbrigði fyrirPhilip Kosnett, næstráð-anda í bandaríska sendi-ráðinu í Reykjavík, að
koma hingað til Íslands í ágúst en
hann hafði áður verið við störf á veg-
um bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins í borginni Najaf í Írak frá jan-
úar og fram í júní á þessu ári. Á
þessu tímabili mátti Kosnett venjast
því að vera meðal helstu skotmarka
uppreisnarmanna í Írak og þá stóð
sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr
einnig fyrir tveggja mánaða langri
uppreisn í Najaf á meðan Kosnett
var þar.
Kosnett segir í samtali við Morg-
unblaðið að hann sé hingað kominn
vegna þess að þeir James Gadsden,
sem nú er sendiherra Bandaríkj-
anna á Íslandi, hafi þekkst fyrir og
Gadsden hafi beðið hann sérstaklega
um að koma og verða sín hægri hönd
hér á Íslandi. Þetta var áður en
Kosnett fór til Íraks í janúar 2004 og
vissi hann því allan tímann, sem
hann var í Írak, að hann færi næst til
Íslands þar sem óhætt er að segja að
öryggisástand sé talsvert betra.
„Viðbrigðin eru mikil en þannig er
það þegar maður starfar í utanrík-
isþjónustunni, einn daginn ertu í
Kosovo, þann næsta í Reykjavík.“
Hættulegt starf
Kosnett sýnir blaðamanni nokkr-
ar myndir sem hann hefur rammað
inn og geymir á skrifborði sínu. Þar
er að finna mynd af honum með
skammbyssu í hendi fyrir framan
nokkur farartæki. „Þessi mynd er
frá því þegar fyrst var setið fyrir
okkur,“ segir hann. „Ég hef þessa
mynd á borðinu hjá mér til að minna
mig á hversu feginn ég er að vera nú
í Reykjavík og til að æsa mig ekki
um of yfir því þegar vandamál koma
upp á skrifstofunni.“
Kosnett segist hafa verið að koma
af ráðstefnu í Bagdad ásamt sam-
starfsmönnum sínum í Najaf þegar
uppreisnarmenn gerðu árás á bíla-
lest þeirra. Þeim hafi tekist að
stökkva árásarmönnunum á flótta,
með aðstoð hermanna frá El Salva-
dor sem störfuðu með fulltrúum
bandarísku bráðabirgðastjórn-
arinnar í Najaf, en til þess þurfti að
beita vopnum og segir Kosnett að
nokkrir uppreisnarmannanna hafi
verið drepnir.
„Fólk ímyndar sér að utanrík-
isþjónustan snúist um það eitt að
sitja við samningaborð og mæta í
veislur en staðreyndin er sú að fyrir
bandarískan diplómat í dag getur oft
ýmislegt annað fylgt starfinu. Og ég
get ekki kvartað því að ég hafði sjálf-
ur frumkvæði að því að fara til
Íraks, í ljósi þess að ég hafði um ára-
bil sérhæft mig í öryggismálum og
viðbrögðum við hættuástandi, og
vegna þess að ég taldi að ég gæti
lagt eitthvað af mörkum.
En ég vil hins vegar leggja
áherslu á að sú hætta sem ég lagði
mig í jafnast ekki á við það sem
bandarísku hermennirnir mega þola
á degi hverjum, að ekki sé talað um
íraskan almenning,“ segir Kosnett.
Nú í ágúst geisuðu harðir bardag-
ar í Najaf milli liðsmanna vopnaðra
sveita Moqtada al-Sadrs og Banda-
ríkjahers. Al-Sadr hafði hins vegar
fyrst staðið fyrir uppreisn í Najaf í
apríl og varaði hún í tvo mánuði.
Uppreisnin naut ekki stuðnings
„Við bjuggum í raun við umsát-
ursástand í Najaf í heila tvo mánuði
á meðan á uppreisninni stóð. Höf-
uðstöðvar okkar voru í sameig-
inlegum herbúðum El Salvadors og
Spánar og um tveggja mánaða skeið
var sprengjum varpað á búðirnar
næstum á hverju kvöldi,“ segir
Kosnett.
„Auðvitað eru þessir atburðir eft-
irminnilegir,“ bætir hann við, „en ég
reyni þó að beina sjónum manna að
því að okkur tókst að ná umtals-
verðum árangri í störfum okkar í
Najaf. Markmið okkar, sem störf-
uðum á skrifstofu bandarísku bráða-
birgðastjórnarinnar í Najaf, var að
hjálpa til við að sá fræjum lýðræðis
og til að blása lífi í efnahag svæðisins
á ný. Á meðan ég var þarna var mest
áhersla lögð á setja á laggirnar lýð-
ræðislega samsett héraðsráð.“
Segir Kosnett að vinna hans hafi
fólgist í því að eiga fundi með fulltrú-
um Íraka, stjórnmálamönnum á
svæðinu, trúarleiðtogum og ætt-
arhöfðingjum. Hann hafi heimsótt
skóla og sjúkrahús og skoðað brýr;
taka hafi þurft ákvarðanir um það
hvar skyldi byggja upp og í hvað
skyldi leggja fjármuni.
Uppreisn al-Sadrs setti aftur á
móti strik í reikninginn þegar hún
braust út í apríl. „Það breytti
áherslum okkar auðvitað,“ segir
Kosnett. „Menn al-Sadrs réðu í raun
borginni og þar til okkur og hinni
lögmætu stjórn Íraks tókst að ná
stjórn á málum í okkar hendur á ný
var erfitt að halda áfram uppbygg-
ingarstörfunum.“
Segir árangur hafa náðst
Kosnett er spurður hvort það sé
ekki rétt að í reynd ríki upplausnar-
ástand í Írak um þessar mundir og
að Bandaríkjamönnum hafi mistek-
ist ætlunarverk sitt þar. Undir þetta
vill hann ekki taka þó að sannarlega
hafi verkefnið reynst erfiðara en
menn áttu von á og umfang og eðli
mótspyrnunnar, sem Bandaríkja-
menn hafa mætt í Írak, hafi verið
meira en ráð var fyrir gert. „En um
leið og ég segi þetta þá held ég því
líka fram að við höfum náð umtals-
verðum árangri í Írak, okkur hefur
tekist að framselja völd í landinu í
hendur bráðabirgðastjórn á áætlun;
ef þú horfir til baka þá sögðu margir
að það myndum við aldrei gera, en
við gerðum það samt.
Það er auðvitað erfitt að hrinda í
framkvæmd áætlunum um efna-
hagslega uppbyggingu þegar örygg-
isástand er þetta slæmt. En það hef-
ur náðst árangur í þeim efnum
einnig,“ sagði Philip Kosnett.
Viðbrigði að koma til Íslands frá Najaf
Morgunblaðið/Kristinn
Philip Kosnett er næstráðandi í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.
ÞEGAR aðeins mánuður er til forsetakosninganna í
Bandaríkjunum er George W. Bush forseti skyndilega
kominn í vörn eftir að hafa verið með gott forskot á keppi-
naut sinn, John Kerry, um nokkurra vikna skeið. Ástæðan
er frammistaða Kerrys í fyrstu kappræðum þeirra og ný
skoðanakönnun sýnir, að hann hefur ekki aðeins lokað
bilinu, heldur hefur hann ívið meira fylgi en Bush.
Næstu níu dagar geta ráðið miklu um niðurstöðu kosn-
inganna 2. nóvember næstkomandi en á þessum tíma eða
8. og 13. október munu þeir Bush og Kerry aftur takast á í
kappræðum auk þess sem þeir Dick Cheney varaforseti og
John Edwards, varaforsetaefni Kerrys, munu etja kappi
annað kvöld.
Ráðgjafar Bush vonuðust til, að honum tækist að kveða
Kerry í kútinn í fyrstu kappræðunum og innsigla um leið
sigur í kosningunum en sagt er, að nú óttist þeir, að hann
hafi spilað út sínu sterkasta trompi of snemma. Sjálfir
töldu þeir, að hann stæði best að vígi í utanríkismálunum
og lögðu því áherslu á, að fyrstu kappræðurnar snerust um
þau.
Að því er fram kemur í könnun tímaritsins Newsweek
og öðrum könnunum var Kerry óumdeilanlegur sigurveg-
ari í kappræðunum.
„Það, sem Bush hafði út úr kappræðunum, er, að nú er
kosningabaráttan farin að snúast um Kerry þótt hann sé
áskorandinn,“ sagði Jonathan Siegel, lagaprófessor við
George Washington-háskólann. „Og nú eru kjósendur aft-
ur farnir að spyrja þessarar spurningar: Hver er ferill
Bush á forsetastóli? Viljum við meira af svo góðu?“
Margir fréttaskýrendur segja, að með kappræðunum
hafi Kerry tekist að jafna trúverðugleikabilið milli þeirra
Bush en hvað það varðar og fleira stendur sitjandi forseti
yfirleitt fyrirfram betur að vígi en áskorandinn.
Efnahagsmálin á föstudag
Næstu kappræður forsetaframbjóðendanna á föstudag
verða ekki jafn formlegar og þær fyrstu og hugsanlega
mun þá hæfileiki Bush til að ná til hins venjulega manns
koma honum til góða. Á þeim vettvangi hefur Kerry stund-
um átt í erfiðleikum. Það er þó sagt valda ráðgjöfum Bush
nokkrum áhyggjum, að sá háttur hans að hamra á og end-
urtaka í sífellu nokkur meginatriði gangi ekki lengur.
Þessar endurtekningar virtust ekki falla þeim, sem fylgd-
ust með fyrstu kappræðunum, vel í geð. Á föstudag verða
efnahagsmálin umræðuefnið og hingað til hefur Kerry haft
nokkurt forskot á Bush í þeim málaflokki.
Bush skyndilega
kominn í vörn
Ráðgjafar hans eru sagðir óttast, að hann hafi spilað út
sínu sterkasta trompi, utanríkismálunum, of snemma
AP
Frá fyrstu kappræðunum. Formið á þeim næstu verður frjálslegra og mun hugsanlega eiga betur við Bush.
Washington. AP, AFP.
BANDARÍSKI ljósmyndarinn Rich-
ard Avedon, sem frægur var fyrir
tískuljósmyndir og svart-hvítar
myndir af ýmsum kunnustu mönn-
um 20. aldarinnar, lést síðastliðinn
föstudag, 81 árs að aldri.
Tímaritið New Yorker skýrði
fyrst frá andláti Avedons en hann
var að vinna fyrir það er hann fékk
heilablæðingu, sem dró hann til
dauða.
Avedon hætti snemma skólagöngu
og gekk til liðs við sjóherinn þar sem
hann starfaði við ljósmyndun. Að
herþjónustu lokinni árið 1944 fékk
hann starf sem ljósmyndari fyrir
stórverslun en tveimur árum síðar
fór hann að vinna fyrir tískutímaritin
Harpeŕs Bazaar og Vogue. Manna-
myndir urðu honum fljótlega mikil
ástríða og hann varð kunnur fyrir að
ná fyrirmyndinni, manneskjunni á
bak við ljósmyndina, betur en aðrir.
Marylin Monroe, Charlie Chaplin,
Brigitte Bardot, Jean Renoir,
Dwight Eisenhower forseti og Ezra
Pound voru meðal þeirra, sem sátu
fyrir á myndum hans, og margar
stórstjörnur sóttust eftir því, að Ave-
don myndaði þær.
Avedon var sýndur margvíslegur
sómi um dagana og margar sýningar
haldnar á verkum hans. Í viðtali við
hann árið 1994 sagði hann, að þrátt
fyrir allt væru myndir hans líklega
meira um hann sjálfan en fyrirmynd-
irnar.
Ljósmyndarinn
Avedon látinn
New York. AFP.
AP
Richard Avedon við mynd af leik-
aranum Bert Lahr á sýningu á
verkum ljósmyndarans í Metropol-
itan-listasafninu í New York 2002.
TÍU Palestínumenn féllu í gær fyr-
ir ísraelskum hermönnum og Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
hét því að halda hernaðaraðgerð-
unum áfram. Á sama tíma skoruðu
Palestínumenn á alþjóðasamfélag-
ið að koma þeim til hjálpar.
Í síðustu herför Ísraela á Gaza,
sem staðið hefur í fimm daga, hafa
69 manns fallið, 65 Palestínumenn
og þrír Ísraelar. Er um að ræða
mesta blóðbað á Gaza síðan upp-
reisn Palestínumanna hófst fyrir
réttum fjórum árum.
Sex af þeim 10 Palestínumönn-
um, sem Ísraelar skutu í gær, voru
vopnaðir en hinir voru unglingar,
þrír að tölu, og einn mállaus og
heyrnarlaus maður.
Saeb Erekat, samningamaður
Palestínumanna, fordæmdi í gær
þögn alþjóðasamfélagsins frammi
fyrir blóðbaðinu en stjórnvöld í
Egyptalandi, Frakklandi, Sviss,
Spáni og Kanada lýstu áhyggjum
af ástandinu. Það gerðu einnig
erkifjendur Ísraela í Íran, sem
sögðu þá seka um „þjóðarmorð“.
Næstum 70 hafa
fallið á Gaza
Gazaborg. AFP.