Morgunblaðið - 04.10.2004, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 15
DAGLEGT LÍF
Suzuki Vitara Grand
F.skráð. 01.2004. Ekinn 81.400 km.
Litur: Blár.
Verð: 1.500.000 kr.
Tilboðsverð: 1.190.000 kr.
Suzuki Vitara JLXi0
F.skráð. 05.1997. Ekinn 140.000 km.
Litur: Rauður.
Verð: 690.000 kr.
Tilboðsverð: 390.000 kr.
Hyundai Accent S/D G
F.skráð. 05.1999. Ekinn 109.000 km.
Litur: Grænn.
Verð: 590.000 kr.
Tilboðsverð: 290.000 kr.
Nissan Patrol Elegan
F.skráð. 02.2004. Ekinn 91.000 km.
Litur: Blár.
Verð: 4.200.000 kr.
Tilboðsverð: 3.890.000 kr.
KJARABÓT
www.toyota.is
fyrir þig
Kópavogur
Sími 570 5070
Reykjanesbær
Sími 421 4888
Akureyri
Sími 460 4300
Selfoss
Sími 480 8000
BETRI NOTAÐIR BÍLAR
Það verður mikið að gerast hjá Toyota Betri notuðum bílum í þessari viku.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til þess að eignast góðan bíl
á einstöku verði. Skoðaðu úrvalið á www.toyota.is eða komdu í heimsókn
á Nýbýlaveginn eða til umboðsmanna okkar á Akureyri, Selfossi og
í Reykjanesbæ.
Ínokkrum verslunum hér á landi er hægtað kaupa lífrænt ræktuð epli, en þau eruum þessar mundir miklu dýrari en epli
sem ekki eru lífrænt ræktuð. Í stórmarkaði
kostar kílóið af eplum, sem ekki eru lífrænt
ræktuð, undir tvöhundruð krónum, en lífrænt
ræktuðu eplin kosta í sérbúðunum frá tæpum
fimm hundruð krónum kílóið í tæpar sjö
hundruð krónur.
Dýrt að framleiða lífrænt
Helstu innflutningsaðilar með líf-
rænt ræktað grænmeti og ávexti
eru innflutningsfyrirtækin Ban-
anar og Yggdrasill. Í Blóma-
vali voru lífrænt ræktuðu
eplin komin frá Ítalíu
og Bananar sáu um
innflutning. Í hin-
um búðunum
sem farið var í,
Yggdrasil,
Heilsuhúsið og
verslunina
Maður lifandi
voru eplin feng-
in frá Yggdrasli
en þau eru flutt
inn frá Nýja Sjá-
landi.
Aðspurður um
þennan mikla verðmun á
lífrænt ræktuðum eplum og
þeim sem ekki eru lífrænt ræktuð, sagði Rún-
ar Sigurkarlsson hjá Yggdrasli að lífrænt
ræktuð matvæli væru um allan heim dýrari en
þau sem ekki eru ræktuð með slíku móti. „Auk
þess eru lífrænt ræktaðir ávextir enn dýrari
en lífrænt ræktað grænmeti. Það er einfald-
lega dýrara að framleiða þessa vöru, það tekur
lengri tíma og kostar meira. Allt eftirlit er
mjög strangt og bæði framleiðendur og versl-
unareigendur þurfa að borga fyrir sérstaka líf-
ræna vottun. Íslenskt grænmeti sem er lífrænt
ræktað hér heima er yfirleitt um 20% dýrara
en það sem ekki er lífrænt ræktað. En vissu-
lega er verðið alltaf eitthvað breytilegt eftir
framboði og eftirspurn. Lífrænt ræktað epli
kostar kannski 50 krónur á meðan epli sem
ekki er lífrænt ræktað kostar 20 krónur. En
fólk er í miklum mæli farið að velja þessa líf-
rænu vöru framyfir, þó svo að hún sé dýrari,
einfaldlega af því að það veit að engin eiturefni
hafa verið notuð við ræktunina. Ég líki þessu
stundum við muninn á því að kaupa klæð-
skerasaumuð föt eða verksmiðjuframleidd,
það liggur miklu meiri vinna á bakvið
klæðskerasaumuð föt og þetta er
ekki sama varan. Og auk þess
er svo mikill bragðmunur á
lífrænt ræktuðum ávöxt-
um og grænmeti og því
sem ekki er lífrænt
ræktað. Þegar
fólk hefur fundið
þennan mun,
þá vill það
helst bara
það lífrænt
ræktaða.“
Lífrænt í stór-
mörkuðum
En hvers vegna flytur
Yggdrasill eplin inn alla leið
frá Nýja Sjálandi? Er ekki ódýr-
ara að flytja þau inn frá t.d. Evrópu?
„Þetta kemur til af því að uppskeran er ekki
komin frá Evrópu, en við höfum verið með epli
frá Skandinavíu og Þýskalandi og þau fara að
detta inn hvað úr hverju og þau verða vænt-
anlega aðeins ódýrari.“
Rúnar segir að með því að flytja þetta inn
sjálf þá fái þau í Yggdrasli betra verð. „Við
leggjum mikið upp úr því að ná sem bestum
samningum svo verðið sé sem hagkvæmast
fyrir viðskiptavininn. En það er ekki á okkar
valdi hvað þær verslanir leggja á vöruna sem
kaupa hana af okkur, þeir hafa sína frjálsu
álagningu.“
NEYTENDUR | Lífrænt ræktuð epli
Margfaldur verðmunur á eplum
khk@mbl.is
Rjómamysuostur var valinn ostur árins áOstadögum sem haldnir voru í Vetr-argarðinum í Smáralind um helgina.
Osturinn, sem framleiddur er hjá Norðurmjólk,
fékk hæstu einkunn af einstökum ostum eða
12,99 stig.
Friðjón Jónsson, verkstjóri hjá Norðurmjólk,
segir það frábært að hafa fengið heið-
ursverðlaun fyrir
rjómamysu-
ostinn en hann
hefur verið fram-
leiddur í áratugi.
„Við erum ein-
mitt með hann í
nýjum umbúðum
núna. Svo erum
við að bæta við
nýjum bragðteg-
undum af mysingi. Fram að þessu hefur bara
verið framleiddur mysingur með karamellu-
bragði en nú bætist við mysingur með banana-
og súkkulaðibragði og vanillubragði. Auk þess
er Norðurmjólk líka að koma með á markaðinn
smurgráðost.“
Hann bendir á að rjómamysuostur sé góður á
brauð en einnig í alla matargerð og þá ekki síst í
súpur og að hann eigi marga dygga aðdáendur.
Friðjón, sem hefur verið viðloðandi ostagerð
frá því hann lauk námi árið 1986, segir að hóp-
urinn hjá Norðurmjólk hafi áður hlotið ýmis
verðlaun og það beri að þakka samstilltum hópi
hjá fyrirtækinu sem kunni sitt fag og svo góðu
hráefni frá þeim bændum sem leggja fyrirtæk-
inu til mjólk.
Dómhildur A. Sigfúsdóttir, forstöðumaður til-
raunaeldhúss Osta- og smjörsölunnar, gefur
hér að lokum uppskrift að súpu þar sem rjóma-
mysuosturinn er í lykilhlutverki.
Mysuostssúpa
1½ lítri vatn
100 g sveskjur
40 g sykur
250 g rjómamysuostur
25 g hrísmjöl
1 dl rjómi, þeyttur
Sjóðið sveskjurnar í vatninu og færið þær
upp. Skerið ostinn í bita og látið hann bráðna í
soðinu.
Jafnið súpuna með hrísmjölinu og sjóðið í 10
mín. Sykrið. Þeytið rjómann og setjið í skál og
hellið súpunni saman við. Leggið sveskjurnar í.
MATUR | Besti osturinn valinn á Ostadögum
Rjómamysu-
ostur varð
fyrir valinu
Morgunblaðið/Golli
Friðjón Jónsson: Þakkar bændum og sam-
starfsfólki frábæran árangur á Ostadögum.
Rjómamysuostur: Hentar á
brauð og í ýmsa matargerð.