Morgunblaðið - 04.10.2004, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 37
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl.8.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl.10.15. B.i. 12 ára.
DV
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Frá leikstóra The Princess Diaries og Pretty Woman
JULIE ANDREWS ANNE HATHAWAYJ I
Hún þarf að
setja upp
hringinn til
að taka við
rf ún a að
tj se a u
ri i tilh ng nn
t iað aka v ð
EINNIG SÝND Í LÚXUS
VIP
KL. 5.30, 8 OG 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
ÁLFABAKKI
kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 6.
Ástríða sem deyr aldrei
Rómantísk spennumynd
af bestu gerð
Ó.H.T. Rás 2
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Sérstakt Yu Gi Oh! Safnkort
fylgir með öllum miðum.
4 tegundir til að safna!
Verður þetta
síðasta einvígið?
í i í i
Sérstakt Yu Gi Oh! Safnkort
fylgir með öllum miðum.
4 tegundir til að safna!
Verður þetta
síðasta einvígið?
í i í i
TOM CRUSE JAMIE FOXX
Hörkuspennumynd
frá Michel Mann
leiksjóra Heat
COLLATERAL
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
Fór beint á toppinn í USA
MILLA JOVOVICH
Ég heiti
Alice og
ég man
allt
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
Milla Jovovich er mætt aftur í toppformi sem
hasargellan Alice í svölustu hasarmynd ársins. Milla Jovovich
er mætt aftur í
toppformi sem
hasargellan Alice
í svölustu
hasarmynd
ársins.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
MICHAEL Mann hefur tekist að
gera allsérstæða hasarmynd, þar
sem sögufléttan stendur og fellur
með tveimur mjög ólíkum sögu-
hetjum. Hann fókuserar algerlega á
þær með sterkum nærmyndum og
samsíða þeim stendur borgin Los
Angeles ljóslifandi.
Max (Foxx) er hinn fullkomni
leigubílstjóri til 12 ára, undirokaður
af yfirmanni sínum, móður sinni og
líkast til öllum. Hann dreymir um að
setja á fót limmósínuþjónustu, en
eitthvað heldur aftur af honum. Þá
sest inn í bílinn hjá honum Vincent
(Cruise), andfélagslegur leigumorð-
ingi, og Max er neyddur til að keyra
hann á milli morðstaða það sem eftir
lifir nætur.
Það er skemmtilegt hvernig sér-
stakt samband myndast á milli Max
og Vincents, þar sem aðstæður gera
að þeir verða algerlega háðir hvor
öðrum. Samleikur þeirra Cruise og
Foxx er frábær, reyndar svo sterkur
að hann gefur karakterunum og
sambandi þeirra aukna dýpt. Maður
hefur sterkt á tilfinningunni að und-
ir niðri líki þeim við hvor annan, sem
gerir andstæðurnar og aðstæðurnar
sterkari. Kannski stafar sú gagn-
kvæma virðing af því að þeir sjá í
hvor öðrum kosti sem þá sjálfa vant-
ar. Að þessu leyti er myndin mjög
vel skrifuð, hárfín og frumleg. Einn-
ig það að þrátt fyrir þá óheppni hjá
Max að taka Vincent upp í, er það
það besta sem fyrir hann hefur kom-
ið. Hann lærir af reynslunni og að
öllum líkindum munu allir hans
draumar ljósir sem leyndir rætast
eftir þessa næturlöngu bílferð. Það
er sjaldan að handritshöfundar leyfa
aðalsöguhetjunni að hafa andfélags-
legan morðingja sem læriföður.
Það hefði mátt vera meira af nán-
um samtölum milli Vincents og Max.
Maður er mjög þakklátur fyir það
sem maður fær, en það hefur mátt
dýpka myndina til muna, og kannski
setja spurningarmerki við endi sem
var ekki í anda þess sem fyrir var
komið.
Tveir menn og borg
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Álfabakka, Laugarásbíó
og Borgarbíó Akureyri
Leikstjórn: Michael Mann. Aðalhlutverk:
Tom Cruise, Jamie Foxx, Jada Pinkett
Smith og Mark Ruffalo. 120 mín BNA.
Paramount 2004.
Í heljargreipum (Collateral)
„Samleikur þeirra Cruise og Foxx
er frábær, reyndar svo sterkur að
hann gefur karakterunum og sam-
bandi þeirra aukna dýpt,“ segir
m.a. í dóminum.
Hildur Loftsdóttir
UPPSELT er á tón-
leika sænsku djass-
söngkonunnar Lisu
Ekdahl sem fram
fara í Austurbæ
hinn 30. október
næstkomandi. Miða-
sala hófst kl. 9 á
föstudagsmorgun á
midi.is og í Bókabúð Máls og menn-
ingar. Miðarnir á Netinu voru seld-
ir á 15 mínútum og að þremur tím-
um liðnum voru allir miðar seldir.
Að sögn Gríms Atlasonar, kynn-
ingarstjóra Zonet-útgáfu, sem
stendur að tónleikunum, koma
þessi viðbrögð nokkuð á óvart þar
sem Lisa hafi farið fremur hljótt
hér á landi.
Verið er að kanna hvort hægt sé
að koma við aukatónleikum.
Uppselt á
tónleika
Lisu Ekdahl
Lisa Ekdahl
skiptir, alltaf eitthvað nýtt á seyði, á
eftir djass kom blús og síðan sú tón-
list sem einkennt hefur Morrison alla
tíð, bræðingur af poppi, djassi, soul
og blús, morrisonsk tónlist. Ekki var
mikið um lög sem hann hefur gert
vinsæl í gegnum árin, þó „Have I
Told You Lately“ og „Jackie Wilson
Said“ (og „Gloria“ í restina), en allt
afbragðsmúsík engu að síður. Það var
dæmigert fyrir Van Morrison, forn-
leifafræðinginn og ævintýramanninn,
á sínum tíma þegar hann tók lagið
„It’s All In The Game“ á Into the
Music á sínum tíma (1979); lagið sam-
ið 1912 og textinn fjörutíu árum síðar.
„It’s All In The Game“ er til í ótal út-
gáfum, allt frá fjörugu hrynblúslagi í
væminn poppslagara, en enginn hef-
ur flutt það eins og Van Morrison,
innhverfur spuni þar sem orðin
skipta varla máli lengur eða þýða eitt-
hvað annað eins og hann beyglar þau
og skælir – röddin notuð sem hljóð-
færi. Snilldarflutningur á frábærri
útsetningu.
Ekki fylgdi síðra lag þar á eftir,
„And The Healing Has Begun“ (sem
er reyndar næsta lag á undan „It’s
All In The Game“ á Into the Music).
Nú var engin angurvær fiðla en kom
ekki að sök. Í laginu syngur hann um
unglingsárin í Belfast, tónlistina og
ástina, og fór vel á því að ljúka þannig
eiginlegum tónleikum.
„Gloria“ kom svo í lokin eins og
getið er, skemmtilegur endir eftir
einskonar uppklapp. Það stakk
reyndar svolítið í stúf við stemmn-
inguna sem skapaðist með lögunum
af Into the Music, en engu að síður
gott – frábært lag í sínum upp-
runalega búningi, hrátt og ögrandi og
ólgandi kynorka, en nú yfirvegað og
temprað af reynslu áranna.
Morgunblaðið/Golli
Van Morrison hélt frábæra tónleika í Laugardalshöll síðastliðið laug-
ardagskvöld en uppselt var á tónleikana.
Árni Matthíasson
LEIKRITIÐ Vodkakúrinn eftir Kristlaugu Maríu Sig-
urðardóttur var frumsýnt í Austurbæ á fimmtudags-
kvöldið. Hinir góðkunnu gamanleikarar Helga Braga
Jónsdóttir og Steinn Ármann Magnússon fara með aðal-
hlutverkin í leikritinu en leikstjóri er Gunnar Ingi Gunn-
steinsson. Frumsýningargestir gerðu góðan róm að
verkinu en í Vodkakúrnum er sjónum beint að megrun-
arkúrum, skyndilausnum og dýrkun hins magra líkama.
Helga Braga brá á leik að sýningu lokinni ásamt
leikstjóranum Gunnari Inga.
Þeim Kristínu Maríu, Steini Ármanni og Helgu
Brögu var klappað lof í lófa í lok sýningar.
Vodkakúrinn frumsýndur
Morgunblaðið/Golli
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýndi leikritið Svik á
föstudagskvöld fyrir fullu húsi. Frumsýningin var sú
fyrsta á þessu leikári og jafnframt frumraun Eddu
Heiðrúnar Backman sem leikstjóra. Verkið, sem er eitt
af þekktustu leikritum Harolds Pinters, fjallar um hjón-
in Robert og Emmu og vin þeirra Jerry og undirferlið
sem blómstrar í samskiptum þeirra. Um er að ræða
frumuppfærslu verksins á Íslandi en aldarfjórðungur er
liðinn frá frumsýningu þess í London.
Leikarar í sýningunni eru Ingvar E. Sigurðsson, Felix
Bergsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Skúli Gauta-
son.
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar, hafði ástæðu til þess að gleðjast að
sýningu lokinni.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikarar og aðstandendur sýningarinnar voru
að vonum ánægðir með góðar viðtökur áhorf-
enda en uppselt var á sýninguna.
Fyrsta frumsýning leikársins hjá LA