Morgunblaðið - 04.10.2004, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
ORRI Vigfússon, formaður Verndarsjóðs villtra
laxastofna, er í hópi fólks frá Evrópu, Afríku og
Mið-Austurlöndum sem Evrópuútgáfa banda-
ríska fréttatímaritsins Time Magazine telur hafa
skarað fram úr á þessu ári varðandi hetjuskap.
Var greint frá þessu í
netútgáfu tímaritsins
í gær.
„Það er mjög gam-
an að fá svona við-
urkenningu, ég vona
að þetta verði hvatn-
ing til að breiða út
hugmyndir mínar um
skynsamlega stjórn-
un fiskveiða. Sér-
staklega laxastofna í
Norður-Atlantshafi,
sem eru aðalatriðið í
lífsstarfi mínu. Einn-
ig vona ég að þetta
verði hvatning
stangaveiðimönnum
og veiðiréttareig-
endum að þeir geri betur og betur hver á sínu
sviði,“ sagði Orri í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann sagði mikilvæga áfanga hafa náðst í
samningum um að hætta laxveiðum í sjó í Norð-
ur-Atlantshafi. Eftir væri að semja um þrjú
svæði, það er reknetaveiðar við vesturströnd Ír-
lands, alla innfjarðaveiði í Noregi og svo strand-
veiðar við Skotland. „Ég er með í undirbúningi
að hrinda af stað á næstu mánuðum lokaáfanga í
baráttu minni og ná öllum þessum netum upp.
Ég vona að það taki ekki nema þrjú til fimm ár
og þá get ég sest í helgan stein,“ sagði Orri.
Time Magazine segir Orra vera ástríðufullan
stangveiðimann sem fari einfalda leið til hjálpar
lífríki hafsins. Hann greiði mönnum fyrir að
hætta veiðum. Rakin er barátta Orra fyrir vernd
villtra laxastofna allt frá 1989.
Byggist á verðleikum og mannúð
Fram kemur í tilkynningu frá tímaritinu, að
skilgreining þess á hetjuskap byggist á verð-
leikum og mannúð og gildi þess að yfirvinna and-
stöðu og hugsa ekki fyrst og fremst um eigin
hagsmuni.
Á forsíðu tímaritsins eru ítölsku hjálparstarfs-
mennirnir Simona Torretta og Simona Pari, sem
rænt var í Írak í september en fengu frelsi í síð-
ustu viku. Meðal annarra á hetjulista Time eru
Ólympíumeistarinn Hicham El Guerrouj, tenn-
iskonan Steffi Graf, breski rithöfundurinn Nick
Hornby, Vika og Olya Kallagova sem komust af
úr gíslatökunni í Beslan, Carla del Ponte, að-
alsaksóknari Mannréttindadómstóls SÞ í Haag,
hljómsveitarstjórinn Mstislav Rostropovítsj og
breska leikkonan Emma Thompson sem hefur
unnið í þágu HIV-smitaðra kvenna í Afríku.
Orri Vigfússon
í hetjutölu
TENGLAR
......................................................................
Greinin í netútgáfu Time Magazine:
www.time.com/time/europe/hero2004/
story.html
Orri Vigfússon
SAMNINGANEFNDIR grunn-
skólakennara og sveitarfélaganna
náðu samkomulagi í viðræðum
sínum í gær um vinnutíma kenn-
ara. Í dag hefjast í fyrsta sinn við-
ræður um launamálin síðan verk-
fallið hófst fyrir réttum hálfum
mánuði. Fundur deilenda hefur
verið boðaður kl. 13 í dag hjá rík-
issáttasemjara en viðræður gær-
dagsins stóðu yfir í um þrjá tíma.
ríkur svo á að báðir aðilar hafi get-
að sætt sig við samkomulagið um
vinnutímann, án þess að hann vilji
fara nánar út í efnisatriði þeirra
mála.
Eiríkur vill ítreka að það sé ekki
verið að skrifa undir nýjan samn-
ing. Ef vel miði í viðræðunum í dag
og á morgun þá sé hins vegar aldr-
ei að vita hvað gerist í framhald-
inu.
skyldu. „Við vonum að þetta viti á
gott,“ segir Birgir.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, tekur
heilshugar undir með Birgi Birni
um að áfangi hafi náðst en enn sé
margt óklárað. Tekist hafi að stíga
eitt skref, og ef annað gangi upp
þurfi ekki að stíga aftur á bak. Við-
ræður síðustu daga hafi skilað
málum eitthvað áfram. Lítur Ei-
Á laugardag var fundað sleitulaust
frá morgni til kvölds.
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar Launa-
nefndar sveitarfélaganna, segir
góðan áfanga hafa náðst um
helgina. Vinnutímaþátturinn hafi
lengi verið vandamál í viðræðun-
um. Hins vegar sé enn langt í land,
þá einkum launamálin, en einnig
kröfur kennara varðandi kennslu-
Fyrstu viðræður um
laun kennara í dag
RÁÐHÚS Reykjavíkur var lýst upp í bleikri
birtu í gærkvöldi í tilefni þess að í október-
mánuði verður vakin athygli á brjósta-
krabbameini hér á landi, fimmta árið í röð.
Auk þess sem ráðhúsið er lýst upp næstu
200 mannvirki í 40 löndum í tilefni átaksins.
Í október verður lögð áhersla á fræðslu um
brjóstakrabbamein og eru konur hvattar til
að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameins-
félagsins um röntgenmyndatöku.
daga verða sett bleik ljós í staura umhverfis
Tjörnina. Bleik lýsing verður einnig sýnileg
annars staðar á landinu, t.a.m. verða sjúkra-
húsið á Akureyri og Ráðhúsið á Selfossi lýst
upp. Með hliðstæðum hætti verða lýst upp
Morgunblaðið/Golli
Október helgaður brjóstakrabbameini
FÉLAG heyrnarlausra efnir til mót-
mælastöðu fyrir framan Alþingis-
húsið í kvöld klukkan 19.30.
„Tilefni mótmælanna er neyðar-
ástand sem ríkt hefur í túlkaþjón-
ustumálum heyrnarlausra frá því
um miðjan maí,“ segir Hafdís Gísla-
dóttir, framkvæmdastjóri félagsins.
Hún segir ennfremur að heyrnar-
lausum sé meinaður aðgangur að ís-
lensku samfélagi og þeir geti ekki
tekið þátt í því á lýðræðislegum
grundvelli.
„Heyrnarlausir eiga ekki rétt á
túlkaþjónustu í daglegu lífi nema
þeir leggi sjálfir út í þann kostnað
sem því fylgir. Það felur í sér að þeir
þurfa sjálfir að greiða fyrir túlka-
þjónustu vegna viðtala til að mynda
við fasteignasala, lögmenn, ráðgjafa
og fleiri sjálfstætt starfandi sér-
fræðinga. Hvað þá túlkaþjónustu á
starfsmannafundum, námskeiðum,
húsfélagsfundum, foreldrafundum
eða endurmenntunarnámskeiðum.“
Aðeins hjá opinberum aðilum
„Eins og staðan er núna geta
heyrnarlausir aðeins fengið þjón-
ustu sem veitt er af opinberum að-
ilum. Þeir hafa því engan rétt til
túlkaþjónustu þegar kemur að
einkalífi eða fjölskylduviðburðum á
borð við brúðkaup og jarðarfarir.
Þeir hafa ekki rétt til túlkaþjónustu
í daglegu lífi.“
Félag heyrnarlausra efnir til mótmæla
Segja neyðarástand
ríkja í túlkaþjónustu
SUNNLENDINGAR hafa undanfarið orðið varir auk-
innar tófugengdar, jafnvel heima við bæi. Sigurjón Páls-
son, bóndi og smiður, á Steinum undir Austur-Eyjafjöll-
um, segir að óvenju mikið hafi verið um tófur þar um slóðir
í ár. Segist hann ekki muna aðra eins tófugengd.
„Á laugardagsmorgun var ein brún hér niðri á vegi og
önnur hvít um kvöldið og hún náðist. Í gær smöluðum við
Steinabrekkurnar, hér fyrir ofan og utan við bæinn, og þar
voru tvær tófur á eftir okkur. Báðar hvítar, líklega yrð-
lingar frá því í vor. Þetta er komið heim undir bæ.“
Sigurjón sagði að um helgina hafi fundist nýdautt lamb í
brekkunum ofan við bæinn. Það hefði hrapað eða orðið af-
velta tveimur dögum fyrr. Tófan var alveg búin með það.
„Það er búið að vera óhemju mikið af tófu hérna. Ef við
hefðum verið með kindabyssur með okkur í gær hefðum
við náð þessum báðum. Þær voru svo rólegar.“ Um þarsíð-
ustu helgi var Holtsheiði smöluð og sögðu gangnamenn að
tófurnar hafi labbað framhjá þeim sallarólegar.
Sumarbústaðafólk elur tófur
Jón Þormar Pálsson, bóndi á Böðmóðsstöðum, rétt
austan við Laugarvatn, hefur orðið var við tófu í heima-
landi Böðmóðsstaða. „Hún er hér í mýrinni innan við kíló-
metra frá bænum. Við vorum að smala hérna um daginn
og þá gekk einn fram á fullorðna tófu. Tveimur dögum
seinna ók ég afleggjarann að kvöldi til og þá var tófa í veg-
arkantinum. Þessi tófa var eiginlega grá að lit og mjög
spök. Það stendur til að reyna að ná henni. Í haust ók ég
kvöld eitt fram á tvo grábrúna yrðlinga sem stukku yfir
þjóðveginn um þrjá kílómetra frá bænum. Sumarbú-
staðaliðið er að gefa þessu drasli að éta. Svo er mófuglinn
nánast alveg horfinn. Ég hef varla séð lóu eða spóa í landi
mínu í sumar. Það þarf að segja tófunni stríð á hendur.
Stjórnvöld verða að grípa inn í og borga meira fyrir varg-
eyðingu en gert er.“
Man ekki aðra eins tófugengd
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson