Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 9 FRÉTTIR Flott föt Gott verð Túnikurnar komnar Glæsibæ, s. 588 4848 Hallveigarstíg 1, s. 551 4944 Str. 38-56 www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Tweed jakkarnir komnir Pantanir óskast sóttar Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sparilínan frá VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, s. 551 5425 Buxnadagar 20% afsláttur Lee Wrangler Alaska Roberto Club Comfort Five Bankastræti 3 sími 551 3635 Póstkröfusendum www.stella.is Sendibíladekk AGILIS SNOW-ICE Sjúkraþjálfun Styrkur • Stangarhyl 7 • 110 Reykjavík Nýr valkostur - gott tækifæri Í Sjúkraþjálfun Styrk eru að hefjast hóptímar fyrir þá, sem þurfa að viðhalda eða auka úthald sitt og styrk. Tímarnir ættu að henta þeim sem þurfa á almennri og góðri uppbyggjandi þjálfun að halda. Æft verður tvisvar sinnum í viku undir leiðsögn sjúkra- þjálfara, auk þess sem frjáls aðgangur er að tækjasal. Tímarnir hefjast 8. nóvember nk. Nánari upplýsingar og skráning fer fram hjá Styrk sjúkraþjálfun, Stangarhyl 7, sími 587 7750. Suzette Kaper sjúkraþjálfari DRÖG að nýrri þjónustutilskipun Evrópusambandsins (ESB) eru lið- ur í því að fjórfrelsið nái í raun einn- ig til viðskipta með þjónustu, en ekki einungis með vörur, að sögn Gústafs Adolfs Skúlasonar, forstöðumanns stefnumótunar- og samskiptasviðs Samtaka atvinnulífsins. Á heimasíðu SA er samantekt þar sem innihald tilskipunarinnar er reifað í stórum dráttum. Eins eru þar tenglar á gögn frá ESB um til- skipunina. „Þegar maður sér hver tilgang- urinn er með tilskipuninni þá hlýtur maður að taka henni fagnandi,“ sagði Gústaf Adolf. „Hún á að stuðla að raunverulegu frelsi í viðskiptum með þjónustu innan EES-svæðisins, sem hefur ekki verið til staðar nema í orði. Þjónustuviðskipti eiga að vera hluti af fjórfrelsinu, en raunin hefur verið sú að alls konar skriffinnska og kröfur hafa þvælst fyrir þjón- ustuviðskiptum. Því hafa þau orðið lítil yfir landamæri aðildarlanda EES-samningsins.“ Komist hjá tímafrekum starfsleyfisumsóknum Gústaf Adolf segir að kjarni til- skipunarinnar sé sá að fyrirtæki, sem er löglega skráð og með öll til- skilin leyfi í einu aðildarlanda EES- samningsins, geti boðið þjónustu sína í öðrum aðildarlöndum án þess að ganga í gegnum tímafrekar starfsleyfisumsóknir og skráningar- ferli í hverju landi sem það kýs að veita þjónustu. Þetta skiptir miklu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki, að sögn Gústafs Adolfs. Ef fyrirtæki hyggst hins veg- ar opna útibú, eða dótturfyrir- tæki, það er fasta starfsstöð í nýju landi þá verði að skrá það fyrir- tæki samkvæmt reglum þess lands. Gústaf Adolf segir einnig að þess misskilnings hafi gætt að með þjónustu sé einkum átt við svið al- mannaþjónustu á borð við skóla og heilbrigðisstofnanir. „Þetta getur eins átt t.d. við bíla- leigur, ferðaskrifstofur, fasteigna- sölur, fjármálaþjónustu auk al- mannaþjónustu að einhverju leyti. En það er skýrt tekið fram af hálfu ESB að tilskipunin mun ekki hafa áhrif á hvernig einstök aðildarríki skilgreina í hvaða þjónustugeira á að auka frelsi. Ef tiltekið land vill ekki að neinir aðrir en ríkið höndli t.d. með skólamál þá ræður það því, þótt sú afstaða sé sem betur fer vandfundin núorðið,“ sagði Gústaf Adolf. Þá hefur nokkurs misskilnings gætt í umræðunni hér um starfs- menn sem fara á milli landa. „Þó að þessi tilskipun verði sam- þykkt og leidd í lög þá verður það áfram þannig að erlendir starfs- menn, sem koma t.d. til Íslands til starfa tímabundið í þjónustu eða hverju sem er, munu áfram þiggja kjör samkvæmt íslenskum kjara- samningum. Það gilda um það lög sem tóku hér gildi 2001.“ Eins munu þeir njóta sömu réttinda og íslenskir starfsmenn hvað varðar yfirvinnu- greiðslur, orlof, hámarksvinnutíma, hvíldartíma, vinnuvernd, fæðingar- orlof og jafnrétti kynja. Gústaf Adolf segir að tilskipunin eigi að auðvelda öllum, jafnt Íslend- ingum og öðrum aðildarlöndum EES-samningsins, að veita marg- breytta þjónustu yfir landamæri svæðisins. Fjórfrelsið nái einnig til viðskipta með þjónustu Gústaf Adolf Skúlason Samtök atvinnulífsins um þjónustutilskipun ESB Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.