Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 39
VINCE VAUGHN BEN STILLER www.laugarasbio.is COLLATERAL Fór beint á toppinn í USA!  Mbl. Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 6 og 8. B.i. 16 ára. Kvikmyndir.is  DV Kvikmyndir.is JAMIE FOXXTOM CRUSE Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP www.regnboginn.is Nýr og betri Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára. THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. Loksins mætast frægustu skrímsli kvikmyndasögunnar í mögnuðu uppgjöri! Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6 og 10.20. Bardaginn um framtíðina er hafinn og enginn er óhultur Hörkuspennandi ævintýramynd ólík öllu öðru sem þið hafið séð áður. Frá leikstjóra Silence of the Lambs Þorirðu að velja á milli? Fór beint á toppinn USA! Hverfisgötu ☎ 551 9000 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Gwyneth Paltrow l Jude Law Angelina Jolie Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16 ára. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 39 Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 www.heimsferdir.is í Austurríki E N N E M M / S IA / N M 13 9 2 4 Frá 29.990 kr. Flugsæti til Salzburg, 29. janúar, fyrstu 30 sætin. Netverð. Frá 59.990 kr. Flug og hótel án nafns, Zell am See/Schuttdorf, með morgunverði. Netverð. 29. janúar. Beint flug til Salzburg • 29. jan • 5. feb • 12. feb • 19. feb • 26. feb Skíðaveisla Heimsferðir bjóða í vetur einstakt tækifæri til að komast á skíði í einum vinsælasta skíðabæ austurrísku alpanna, Zell am See. Beint leiguflug er til Salzburg en þaðan er aðeins um klukkustundar akstur til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt við skíðalyfturnar, veit- ingastaði, verslanir og kvöldlífið. Í Zell er afbragðs aðstaða fyrir alla skíðamenn. 56 lyftur eru á svæðinu og hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers og eins, og snjóbretti og gönguskíði eru þar ekki undan- skilin. Úrval verslana, veitinga- og skemmtistaða er í bænum sem og í næstu bæjum. Sjá nánar á www.heimsferdir.is STEVE Hubback er Walesbúi sem hefur verið með annan fótinn á Ís- landi um hríð. Hubback er bæði hljómlistarmaður og hljóðfæra- smiður en hann býr til eigin hljóð- færi, ásláttarhljóðfæri sem hann hefur notast við í eigin tónlist en einnig hafa ýmsir tónlistarmenn og -hópar keypt af honum hljóðfæri. Hubback hefur þá gefið út plötur og haldið tónleika og sett upp hljóðskúlptúra víða um heim. Er hann t.d. nýkominn til Íslands frá Wales þar sem hann setti upp þrjá hljóðskúlptúra. Nýútkomin er þá bók eftir hann og í næstu viku verður frumsýnd kvikmynd um hann og feril hans. Hubback, ásamt hollenska blást- urshljóðfæraleikaranum Ad Peij- enburg og íslensku tónlistarmönn- unum Páli Ivan Pálssyni (bassi) og Guðmundi Steini Gunnarssyni (gít- ar) munu á næstu dögum halda nokkra tónleika hérlendis og ef vel viðrar taka upp tónlist úti í ís- lenskri náttúru sem ætluð er til útgáfu. Verk- efnið kallast Right Off The Richter – Ice- landic Soundscapes. Ad Peij- enburg á að baki langan feril sem tónlistarmaður í Hollandi og fæst við spuna, heimstónlist og djass m.a. Líkt og Hubback fæst hann við framandi hljóðfæri og spilar m.a á keltneskt bombard, sem ættað er frá Bretagneskaga og japanskt hichiriki en hann hefur túrað oftsinnis um Japan auk þess að starfa regulega með jaðar- tónlistarmönnum frá Evrópu. „Þetta verk er hálfgildings spuni,“ segir Peijenburg blaða- manni. „Ég hef þekkt Steve í dálít- inn tíma en hann var búsettur í Hollandi um hríð. Þetta verkefni kom til fyrir ákveðna slysni. Ég var að lesa viðtal við Steve í Wire (mánaðarrit sem einbeitir sér að jaðartónlist) þar sem hann talaði um það að hann langaði til að gera plötu með mér! Ég sendi honum því rafbréf og sagðist vera til í slaginn og stakk upp á því að við myndum gera þetta á Íslandi.“ Right Off The Richter verður svo flutt í Þýskalandi og Hollandi í desember. Tónlist | „Right Off The Richter“ Náttúrulegt flæði Ad Peijnenburg Hubback og félagar munu halda ferna tónleika. Fyrstu eru í kvöld í Klink og Bank, Brautarholti, klukk- an 20.00. Á morgun eru tvennir tónleikar. Þeir fyrstu í Bókin- Antikvariat (Klapparstíg 25–27) kl 16.00 og í Tónastöðinni, Skipholti 50d, klukkan 20.00. Á föstudag- inn, klukkan 17.00, eru svo tón- leikar í 12 Tónum. Frítt er inn á alla tónleikana. arnart@mbl.is BARNABÓKIN Djúpríkið kom út á vegum Máls og menningar í mán- aðarbyrjun og var af því tilefni efnt til hófs í veiðihúsi við Grímsá. Hér kveður Bubbi Morthens sér hljóðs á nýju sviði og skapar ásamt Robert Jackson og Halldóri Baldurssyni æv- intýri um ferðalag laxanna Ugga og Unu með ættingjum sínum frá Norð- ur-Íshafinu og í heimahylinn á Ís- landi. „Dimma nótt í vetrarlok kallar Stórlax á ættingja sína. Það er kom- inn tími til að leggja upp í ferðina miklu. Hún hefst djúpt í ísi lögðu Norður-Íshafinu og er heitið alla leið upp í heimahylinn – í ánni þar sem allir Hofsárlaxar voru eitt sinn lítil seiði. Uggi og Una eru að fara í ferð- ina miklu í fyrsta sinn. Þau hlakka til en kvíða líka fyrir. Þau hafa heyrt um allar hætturnar sem bíða þeirra á leiðinni og vita að margir úr hópn- um munu ekki komast á leiðarenda,“ segir í tilkynningu frá Máli og menn- ingu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bubbi Morthens, einn ástsælasti tón- listarmaður landsins, sendir frá sér bók því hann hefur áður skrifað barnabókina Rúmið hans Árna. Eins og áður sagði fékk Bubbi ýmislegt gott fólk til liðs við sig en Robert er meðritstjóri og einn af eigendum vikublaðsins The Reykjavik Grape- vine. Þess má geta að þeir eru báðir ástríðufullir laxveiðimenn. Halldór Baldursson hefur myndskreytt fjölda barnabóka, m.a. Sögurnar um Evu Klöru, Allir með strætó og Fíasól í fínum málum. Þroskasaga tveggja ungra laxa Bubbi segir að hugmyndin hafi komið upp fyrir um fimm árum síð- an. „Ég kynntist breskum rithöf- undi, Robert Jackson, og við vorum að veiða saman í Hofsá þegar ég sagði honum frá þessari hugmynd. Þróunin var bara sú að við ákveðum að skrifa þessa bók á ensku,“ segir hann og því aldrei að vita hvort bók- in eigi eftir að koma út víðar. Íslenskan texta vann Silja Aðal- steinsdóttir í samvinnu við Bubba. „Silja er ekki bara einna fróðust Ís- lendinga um barnabækur heldur er hún líka frábær þýðandi,“ segir Bubbi. „Í grófum dráttum segir sagan frá því hvað gerist þegar laxinn leggur af stað úr heimkynnum sínum í haf- inu, og hvað gerist þegar hann fer uppí ána og allar þær hættur sem bíða hans á leiðinni. Þessi saga er líka þroskasaga. Við erum að segja þroskasögu tveggja ungra laxa sem eru að leggja í þetta mikla ferðalag. Ef maður er staðfastur og trúir að maður geti, þá kemst maður alla leið,“ segir Bubbi og heldur áfram: „Um leið er þetta óður okkar Ro- berts til náttúrunnar og til laxins. Við erum að lýsa ást og aðdáun okk- ar á þessum stórkostlega fiski.“ Morgunblaðið/Þorkell Ævintýralegar myndir í samspili við íslenska náttúru en myndum var varp- að á kletta þannig að þær líktust hellamálverkum. Bubbi og Robert með bókina. „Við erum að lýsa ást og aðdáun okkar á þessum stórkostlega fiski.“ Bækur | Barnabókin Djúpríkið fjallar um ferðalag laxanna Ugga og Unu Fiskasaga Bubba

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.