Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Risaeðlugrín
© DARGAUD
JÓN SAGÐI AÐ ÉG ÆTTI AÐ
SNÚA VIÐ BLAÐINU
ÞAÐ ER BARA EITT
VANDAMÁL...
ÞAÐ ER ALLT OF
LANGT Í BURTU
STÆKKUN
FLUGVALLAR
VERÐUR
FRESTAÐ
BORGIN ÆTLAÐI AÐ
LEGGJAST Í FAMKVÆMDIR Á
NÆSTU DÖGUM EN SÁ SEM Á
LANDIÐ NEITAR AÐ SELJA...
HVER ÆTLI ÞAÐ SÉ?
PABBI, AF HVERJU
BÝRÐU Í ÞESSU HÚSI
MEÐ MÖMMU...
Í STAÐINN FYRIR ÞAÐ AÐ
BÚA Í ÍBÚÐ MEÐ TVEIMUR
FÁKLÆDDUM STELPUM
UM TVÍTUGT?
VÁ! MAÐUR SPYR BARA
EINNAR AUÐVELDRAR
SPURNINGAR OG MAÐUR MÁ
EKKI HORFA Á SJÓNVARP
Í VIKU!
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 3. nóvember, 308. dagur ársins 2004
Víkverji fór út aðborða fyrir
skömmu og tók með
sér fjölskylduna. Þar
sem hann sat við borðið
og var að reyna að
ljúka við kjúklingarétt-
inn sinn og sannfæra
yngsta barnið um að
vera rólegt í smá stund
í viðbót þá velti hann
því fyrir sér hvers
vegna fleiri veitingahús
reyna ekki að höfða til
foreldra með því að
bjóða ungviðinu af-
þreyingu. Fyrir utan
skyndibitastaði þá minnist Víkverji
sérstaklega heimsóknar einu sinni á
veitingastaðinn American Style í
Kópavoginum. Þar var búið að útbúa
lítið herbergi fyrir krakka með leik-
föngum af ýmsum gerðum og teikni-
myndum sem þau gátu horft á. Stað-
reyndin er sú að oft eru börnin
nefnilega miklu fljótari en foreldr-
arnir að borða og þá er gott að dreifa
huganum í smá stund á meðan full-
orðna fólkið fær að ljúka við matinn
sinn í rólegheitum.
x x x
Víkverji og dóttir hans þræddutískuverslanir á dögunum. Er-
indið var að hafa uppi á fallegum kjól
fyrir stúlkuna sem
komin er á unglings-
aldur. Farið var í marg-
ar búðir og hún var ekki
í vandræðum með að
finna flíkur til að máta
og sannfæra foreldri
sitt um að sig bráðvant-
aði þær. Minnisstæðust
er heimsóknin í versl-
unina Vila. Þar stjön-
uðu tvær afgreiðslu-
stúlkur við dótturina
þegar hún hafði komið
auga á það sem Vík-
verja fannst vera fal-
legur undirkjóll en
dóttirin sá fyrir sér sem sparikjól.
Kjóllinn var ekki til í hennar númeri
en þær vissu af einum í útláni og lof-
uðu að hringja þegar hann kæmi inn.
Það gerðu þær og þá vissu þær að
hún þyrfti að nota kjólinn daginn eft-
ir svo þær straujuðu hann. Verðið
kom þægilega á óvart, kjóllinn kost-
aði tæplega fjögur þúsund krónur.
Þjónustan var hins vegar eins og
hún gerist best í fínustu verslunum.
Víkverji hefur oft þrætt tískuversl-
anir með dóttur sinni hér heima og í
útlöndum og það er alls ekki oft sem
hann mætir svona fyrsta flokks þjón-
ustu í slíkum búðum. Það er því gam-
an að geta sagt frá þessari notalegu
heimsókn Víkverja í Vila.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Háskólabíó | Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur undanfarið átt samstarf við
nokkrar af helstu popphljómsveitum Íslands og eru næstir í röðinni dreng-
irnir í hljómsveitinni Nýdönsk. Á morgun kl. 19.30 munu sveitirnar leiða
saman hesta sína og flytja helstu lög Nýdanskrar í nýjum búningi. Þeir
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm æfðu
með sveitinni í gær og var félagi þeirra Jón Ólafsson skammt undan við slag-
hörpuna.
Morgunblaðið/Golli
Sígilt popp í sígildan búning
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar
mér. (Sálm. 3. 6.)