Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 17
MINNSTAÐUR
! !
"
!
#$
%&
'
& "
&
"
&
(
%&
)
%
*
!
(
&
%
+
(
,
-(
'
$%
'
&
*
%
!
,
.
! %
!
)
'
-
'
'
/
0
/
1
!
%&
$
1 3
4
1
3
$
%
!
%
5
" $
5
% )
"
(
6
1 * !
)
0
) 7
'
8
8 %
1)
'
1
0
!
" #$ $
% & '
" ( #$$ )))*
! "# $ &'
( !)!*** '
( +$)**
"
,#/ ,(
"+
0
"+
1+
$ !.+
2
3
/! "
$
,
4
+
5
"!
6!.
(
7
(
" " !
/
AKUREYRI
ÖLDRUÐ stríðskempa að nafni
Arthur Green heimsótti Norður-
land á dögunum í fylgd aðstoð-
armanns síns Julians Fox. Þann
tíma sem Green var hér á landi í
seinni heimsstyrjöldinni hélt hann
til í bækistöð við bæinn Krossa-
staði í Hörgárdal, í nágrenni Þela-
merkurskóla, en einnig var hann
sendur í nokkra mánuði til Siglu-
fjarðar. Hersveit Greens hét
Hallamshire og var frá héruðunum
York og Lancaster á Englandi.
Merki sveitarinnar var ísbjörn og
voru þeir kallaðir ísbirnirnir frá
Sheffield.
Hersveitin var send til Norður-
Noregs til að berjast við Þjóðverja
en úr þeirri ferð komu hermenn-
irnir heldur niðurlútir eftir að hafa
tapað orrustunni. Árið 1940 voru
þeir sendir til Íslands og fengu það
verkefni að verja Eyjafjörð fyrir
hugsanlegri innrás Þjóðverja. Að
sögn Arthurs Greens var dvölin
hér heldur viðburðalítil og leiddist
mannskapnum mikið. Hans starf
var að aka alls kyns ökutækjum.
Það er honum minnisstætt að ekki
var hægt að nota ökutækin yfir
vetrartímann, m.a. vegna ástands
vega, ekki var til frostlögur á bíl-
ana og þá þoldu rafgeymar illa
frost.
Eftir að Green var kallaður frá
Íslandi 1942 tók hann þátt í fjölda
orrusta í Frakklandi, Belgíu og
Hollandi og þá tók hann þátt í inn-
rásinni í Normandí á fjórða degi
árásarinnar. Þrátt fyrir mannfall
og hremmingar í stríðinu lifði
hann marga félaga sína. Á síðustu
árum hefur hann tekið þátt í að
skrifa sögu sveitar sinnar „Polar-
bears from Sheffield“ en það var
viðurnefnið sem SS-sveitir Þjóð-
verja gáfu þeim í hildarleiknum á
vígvöllum Evrópu í seinni heims-
styrjöldinni.
Ástæða komu Greens til Íslands
er sú að hann fékk lottóvinning,
sem úthlutað er til aldraðra her-
manna eða ættingja þeirra sem
hafa farist. Sú fjárhæð gerir við-
komandi kleift að ferðast til
þeirra staða sem þeir þjónuðu
á. Auk þess að heimsækja
Hörgárdalinn skoðuðu þeir
Green og Fox söfn á Ak-
ureyri, heimsóttu Siglu-
fjörð og Mývatnssveit og
fóru að Dettifossi og
Goðafossi.
Húsavík | Unnið er að því á Húsavík
að koma upp leikfangasafni með
þroskaleikföngum fyrir börn með
sérþarfir. Áður var Leikfangasafn
rekið um tíma í húsnæði Félags- og
skólaþjónustu bæjarins en það logn-
aðist út af þar sem lítið var hugsað
um það og ekki mikið sótt í það.
Elsa S. Þorvaldsdóttir, iðjuþjálfi á
Húsavík, segir að haustið 2003 hafi
teymi sem starfar í kringum
börn ákveðið að endurvekja
safnið sem kemur til með
að þjóna börnum með sér-
þarfir í Þingeyjarsýslum.
Elsa segir hugmyndina
vera þá að safnið verði
rekið eins og bóka-
safn, einn starfs-
maður sjái um að halda utan um það,
en fagfólk sjái um innkaupin. Þar
sem sérhæfð leikföng eru dýr var
brugðið á það ráð að kynna hug-
myndina að safninu fyrir ýmsum fé-
lagasamtökum og jafnframt óskað
eftir fjárstuðningi.
Fyrsta gjöfin til Leikfangasafns-
ins barst frá Lionsklúbbi Húsavíkur.
Það var kennslutæki til boðskipta
fyrir börn sem eiga í erfiðleikum
með mál. Á dögunum barst safninu
svo gjöf frá Kiwanisklúbbnum
Skjálfanda, 250.000 krónur í pen-
ingum. Elsa og Sigríður Guðjóns-
dóttir leikskólastjóri veittu gjöfinni
viðtöku. „Þetta þýðir það eitt að
safnið er orðið að veruleika,“ segir
Elsa S. Þorvaldsdóttir.
Morgunblaðið/Hafþór
Gjöf Kiwanismennirnir úr Skjálfanda, þeir Skarphéðinn Olgeirsson sem er
til vinstri á myndinni og Sigurgeir Aðalgeirsson, afhentu Elsu S. Þorvalds-
dóttur iðjuþjálfa og Sigríði Guðjónsdóttur leikskólastjóra peningagjöfina.
Koma upp safni
þroskaleikfanga
LANDIÐ
Breskur hermaður
heimsótti fornar slóðir
Morgunblaðið/Hörður Geirsson
Arthur Green horfir yfir Hörgárdalinn en þar eyddi hann tveimur árum
sem hermaður í seinni heimsstyrjöldinni.
Var í hersveit sem hafði það verkefni að verja Eyjafjörð
fyrir hugsanlegri innrás Þjóðverja