Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 óvináttu,
8 fer á hesti, 9 skúta,
10 forskeyti, 11 ákveð,
13 enn innar, 15 dælir,
18 kvartil, 21 eldstæði,
22 ekið, 23 töfrastafs,
24 erting í húð.
Lóðrétt | 2 ysta brún,
3 líffærið, 4 súld, 5 skyn-
færin, 6 glæða, 7 til sölu,
12 þjóta, 14 eyktamark,
15 poka, 16 held til haga,
17 upphafs, 18 ilmur,
19 þekktu, 20 blóma.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 múgur, 4 folum, 7 lufsa, 8 ýfður, 9 rær, 11 rýrt,
13 orri, 14 ýmsir, 15 skær, 17 fold, 20 far, 22 rolla, 23 eflir,
24 korti, 25 nöfin.
Lóðrétt | 1 múlar, 2 gáfur, 3 róar, 4 flýr, 5 læður, 6 morði,
10 æðsta, 12 Týr, 13 orf, 15 sprek, 16 ætlar, 18 orlof,
19 dýrin, 20 fati, 21 regn.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Farðu varlega í viðskiptum í dag og sýndu
gætni. Ekki er ráðlegt að leggja spilin á
borðið núna, misskilningur og blekkingar
liggja í loftinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu vel yfir fyrirmæli sem þér berast
frá yfirboðurum og foreldrum því mikill
misskilningur er á ferðinni. Ef þú ert ekki
viss er farsælast að spyrja.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver á vinnustað segir ekki alla sög-
una, en það er erfitt að vera alveg viss. Ef
þú heldur að eitthvað sé ekki eins og það á
að vera er það líklega rétt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Sköpunargáfa þín er óvenjumikil núna og
þér reynist fært að hugsa utan rammans.
Á hinn bóginn er líklegt að einhver reyni
að plata þig í ástum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að hafa það náðugt ef þú getur.
Þú býrð ekki yfir miklum krafti þessa
dagana. Ekki fyllast vonleysi eða uppgjöf
vegna aðstæðna heima fyrir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þetta er ekki góður dagur til þess að
skrifa undir samninga eða taka mik-
ilvægar ákvarðanir. Ekki skuldbinda þig
ef þú mögulega kemst hjá því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Láttu vera að eyða miklum peningum í
dag, þú gætir átt til að fara yfir strikið og
kaupa einhvern óþarfa eða eitthvað fok-
dýrt. Einhver reynir að blekkja þig.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu ekki að leika tveimur skjöldum í
dag, þú gætir villt um fyrir sjálfum þér!
Ekkert er eins og það sýnist vera um
þessar mundir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Blekkingar og laumuspil gera vart við sig
í dag. Ertu að reyna að firra þig ábyrgð?
Eða er einhver að reyna að forðast þig?
Vertu með á nótunum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Reyndu að sýna öðrum einlægni í dag og
koma hreint fram. Hugsanlegt er að ein-
hver plati þig, annaðhvort óviljandi eða af
ráðnum huga.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki malda í móinn þótt mikilvægir ein-
staklingar séu þér ekki sammála. Það er
ekki víst að þú eða þeir þekki alla mála-
vöxtu. Haltu andlitinu umfram allt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að forðast ágreining um stjórn-
mál eða trúmál í dag. Viðmælendur þínir
vita ekki hvað þeir eru að tala um og
reyna að slá ryki í augu þér.
Stjörnuspá
Frances Drake
Sporðdreki
Afmælisbarn dagsins:
Þrautseigja og þrákelkni koma þér að
góðum notum í lífinu. Þessir eiginleikar
gera þér kleift að gefast ekki upp þótt
á móti blási. Yfirbragð þitt virðist jafnan
rólyndislegt og fjarlægt. Í návígi sýnir
þú jafnan mikið keppnisskap og
ert að sama skapi tapsár.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3
Rbd7 6. Bd3 Bd6 7. O-O O-O 8. b3 He8 9.
Dc2 De7 10. e4 e5 11. cxd5 cxd5 12. Bg5
dxe4 13. Rxe4 exd4 14. Rxf6+ Rxf6 15.
Hfe1 Be6 16. Rxd4 h6 17. Rf5 Dc7 18.
Rxd6 Dxd6 19. Bxf6 gxf6 20. He3 Hac8
21. Dd1 Dd5 22. Hg3+ Kf8 23. Dd2 h5 24.
Db4+ Hc5 25. He1 b6 26. Df4 Ke7 27.
Bc4 Dd6
Staðan kom upp í kvennaflokki Ólymp-
íuskákmótsins sem lauk fyrir skömmu í
Calviu á Mallorca. Guðlaug Þorsteins-
dóttir (2130) hafði hvítt gegn Catarina
Leite (2236). 28. Hxe6+! fxe6 29. Hg7+
Kf8 30. Dxd6+ Kxg7 31. h4 hvítur hefur
nú mann og drottningu gegn tveim hrók-
um svarts og dugði það auðveldlega til
sigurs. 31...He5 32. Dd7+ Kf8 33. Dxa7
b5 34. Bd3 He7 35. Da8+ Kg7 36. Df3
Hd5 37. Dg3+ Kf8 38. Be4 He5 39. Dg6
Hf7 40. f3 Ke7 41. b4 Hf8 42. f4 og svart-
ur gafst upp.
Hvítur á leik.
Tónlist
Borgarleikhúsið | Þjóðlagasveit Tónlist-
arskólans á Akranesi heldur sýningu í
Borgarleikhúsinu, þar sem írsk og skosk
þjóðlagatónlist verður sungin og leikin á
fiðlur. Einnig fléttast inn í sýninguna tal-
kór sem flytur ljóð.
Hafnarborg | Hádegistónleikar kl. 12.
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Antonia
Hevesi flytja söngleikjatónlist.
Nelly’s | Trúbadorinn Einar Örn leikur.
Neskirkja | Caput Brass flytur verkið
Virðulegu forsetar eftir Jóhann Jó-
hannsson kl. 20. Stjórnandi er Guðni
Franzson.
Norræna húsið | Áskell Másson á
darabuka, Bryndís Halla Gylfadóttir á
selló, Einar Jóhannesson á klarínettu og
Örn Magnússon á píanó munu flytja þrjú
verk eftir Áskel Másson. Eitt verkanna er
frumflutt.
Næsti bar | Bára Grímsdóttir flytur lög
af geisladisk sínum, Funa, ásamt gít-
arleikaranum Chris
Foster, kl. 22.
Reykholtskirkja |
Gunnar Kvaran
sellóleikari heldur
tónleika í kvöld og
annað kvöld kl.
20.30, þar sem
hann mun flytja all-
ar einleikssvítur
Bach fyrir selló.
Einleikssvíturnar
teljast meðal merk-
ustu og dýpstu
verka meistarans og þykja prófsteinn á
hæfni hvers sellóleikara. Tónleikarnir
hefjast báða dagana kl. 20.30.
Námskeið
Www.ljosmyndari.is | Þriggja daga staf-
rænt námskeið verður haldið 9.–11. nóv.
kl. 17–20 að Völuteigi 8 í Mosfellsbæ.
Skráning á ljosmyndari.is eða 898–3911.
Leiðb. Pálmi Guðmundsson.
Myndlist
Bókasafn Hafnarfjarðar | Sýning á verk-
um barna úr Litla myndlistarskólanum í
Hafnarfirði stendur til 14. nóv. nk. Sýn-
ingin ber heitið „Fagur fiskur í sjó“ og
„Kisa kisulóra“.
Kirkjuhvoll Listasetur | Íslenskir kven-
gullsmiðir sýna gripi sína í Kirkjuhvoli. Á
þriðja tug gullsmiða sýna þarna verk sín
og meðal þess sem sjá má er sveinstykki
fyrsta íslenska kvengullsmiðsins, Sigríð-
ar Ásgeirsdóttur frá Ísafirði, sem lauk
sveinsprófi 1923, árið áður en Gullsmiða-
félag Íslands var stofnað.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Mat-
ar- og fataúthlutun fyrir efnalitlar ein-
stæðar mæður með börn á framfæri er á
miðvikudögum kl. 14–17 að Sólvallagötu
48. Svarað í síma 5514349 þri.–fim. kl.
12–16 og þá er einnig tekið við fatnaði,
matvælum og öðrum gjöfum.
Fyrirlestrar
Breiðagerðisskóli | Anna Hreinsdóttir
leikskólastjóri heldur fyrirlestur fim. 4.
nóv. kl. 20, um rannsóknarverkefni sitt
um notkun barna á tölvum í leikskóla-
starfi. Aðgangseyrir er kr. 700. Allur
ágóði rennur í Rannsóknarsjóð leikskóla.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Skóla-
málanefndar Félags leikskólakennara.
Málþing
Félagsþjónustan í Reykjavík | Félags-
þjónustan heldur opið málþing á morgun
kl. 9.30 í Gerðubergi þar sem kynnt
verða nýmæli í þjónustu, átaks- og þró-
unarverkefnum. Kynning á ýmsum verk-
efnum og rannsóknum sem hafa verið
unnar m.a. í samvinnu við félagsráðgjöf
við HÍ. Erindi halda: Lára Björnsdóttir fé-
lagsmálastjóri og Sigríður Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs.
Fundir
ITC–Fífa | Fundur kl. 20.15 í kvöld í sal
Safnaðarheimilis Hjallakirkju að Álfaheiði
17, Kópavogi. Allir áhugasamir um að
bæta samskipti – sjálfstraust – skemmt-
un – skipulag og stjórnun velkomnir.
Uppl. www.simnet.is/itc itcfifa@isl.is og
Guðrún í s. 698 0144.
Gunnar Kvaran
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
TÓNLISTARMAÐURINN Hjörvar Hjörleifsson, sem gengur undir listamannsnafninu
Stranger, heldur útgáfutónleika á Gauki á Stöng í kvöld kl. 21 stundvíslega, í tilefni
af útgáfu plötu sinnar Paint Peace. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.
Hjörvar hefur spilað og samið tónlist í fjölmörg ár með hinum ýmsu aðilum, t.a.m.
með hljómsveitunum Los og Monotone. Hjörvar semur öll lög og texta á nýju plöt-
unni.
Tónlist Stranger verður best lýst sem kántrískotnu poppi með þungum og rokk-
uðum undirtóni, og má vel greina áhrif frá hljómsveitum á borð við Beck, Cake og
Depeche Mode.
Með Stranger spila Pétur Benediktsson úr hljómsveitinni Tristian á gítar og úr
Ensími þeir Hrafn Thoroddsen hljómborðsleikari, Guðni Finnsson bassaleikari og
Arnar Þór Gíslason trommari.
Morgunblaðið/Golli
Ókunnur málar frið á Gauknum í kvöld
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
UPPLESTUR verð-
ur haldinn á Súfist-
anum í kvöld kl.
20.30 í tilefni af
útgáfu Bjarts á
smásagnasafninu
Níu þjófalyklar eftir
Hermann Stef-
ánsson, ljóðabók-
inni Andræði eftir
Sigfús Bjartmars-
son og Truflanir í
Vetrarbrautinni
sem hefur að
geyma smáprósa Óskars Árna Ósk-
arssonar. Þessir þrír rithöfundar munu
lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum
í kvöld og milli atriða leikur Guðjón
Ólafsson píanóleikari stutt frumsamin
lög.
Spriklandi skáldskapur á Súfistanum
Óskar Árni
Óskarsson
Sigfús
Bjartmarsson
Hermann
Stefánsson
LÓUHREIÐUR er um þessar mundir
vettvangur sýningar á málverkum Sig-
rúnar Sigurðardóttur, en þar gegnir
náttúran stóru hlutverki og leggur Sig-
rún mikla áherslu á ýmiss konar nátt-
úrufyrirbrigði í verkum sínum.
Sigrún, sem er komin á eftirlauna-
aldri, uppgötvaði myndlistina fyrir
nokkrum árum þegar hún var á ferðalagi
og segir hún það hafa verið gríðarlega
mikilvæga lífsreynslu, enda sé mynd-
listin hennar ástríða. „Þetta er þvílík
lífsfylling,“ segir Sigrún. „Maður er að
gera eitthvað, að skapa, gefa tilfinning-
unum lausan tauminn og úr þessu verð-
ur svo bara eitthvað. Stundum verður
eitthvað vit í því og stundum ekkert
fyrr en löngu, löngu seinna. Þetta er til-
raun til tjáningar um það hvernig manni
líður í hvert skiptið. Stundum er maður
harður eins og grjót og stundum mjúkur
eins og blóm.“
Sigrún dvaldi undir rótum Sierra
Nevada-fjallgarðsins árið 1998 og segir
hún þann kafla lífs síns ómetanlegan.
„Þá breyttist svo mikið, þar var alltaf á
borðinu teiknidót og ég fór að prófa að
teikna og mála fyrir hvatningu sonar
míns,“ segir Sigrún, sem kveðst ekki sjá
eftir þeirri ákvörðun. „Ég fæ svo mikla
fyllingu, og á þessum aldri er það ekkert
smá.
Manni verður að líka vel félagsskapur
sjálfs sín og vera sáttur við sjálfan sig.
Maður er aldrei einmana þótt maður sé
einn, maður er að tjá sig og skapa.“
Sýning Sigrúnar stendur út nóv-
embermánuð.
„Maður er aldrei
einmana“
Morgunblaðið/Þorkell
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn