Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. G osið sem hófst í Grímsvötnum á mánudags- kvöld er fyrsta gosið í 70 ár sem kemur í kjölfar Skeiðarárhlaups og er því merkilegt fyrir þær sakir að núlifandi jarðvísindamenn hafa ekki séð slíkt gerast áður. Í fyrra eftirlitsflugi vísindamanna í gær- morgun yfir gosstöðvarnar kom í ljós að gos- ið er í suðvesturhorni Grímsvatnaöskjunnar, um 4 km beint vestur af Vestari Svíahnjúk. Að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðeðlisfræðings er gossprungan stutt, eða 1 km löng og liggur frá austri til vesturs. Að þessu sinni gýs um 2 km vestar en í gosinu í Grímsvötnum í desember 1998 en þar gaus einnig 1934 og 1983. „Þegar gosið hófst var ísinn 150 til 200 metra þykkur og það er skýringin á því hvers vegna gosmökkur sést fyrst klukkan 23 þótt gosið hafi byrjað klukkan 22 að því er talið er. Þetta er sá tími sem gosið hefur verið að vinna sig upp í gegnum jök- ulinn og eftir því sem leið á nóttina hefur gosið unnið sig betur í gegn. Þá er talað um 13 km háan gosmökk sam- kvæmt radar sem er talsvert meira en í gosinu 1998,“ seg- ir Magnús Tumi og bætir við að gosið sé mun öflugra nú en 1998. Guðrún Larssen jarðfræð- ingur sem flaug yfir gos- stöðvarnar í gær segir gjóskufallið frá gosinu sömu- leiðis töluvert meira nú en í gosinu árið 1998. Mjög athyglisvert gos að mörgu leyti Að sögn Magnúsar Tuma er um að ræða mjög athygl- isvert gos að mörgu leyti því fyrir um 50 árum setti Sig- urður Þórarinsson jarðfræð- ingur fram þá hugmynd – þvert á það sem menn höfðu haldið fram að því – að hlaup hleyptu gosum af stað með því að minnka fargið á gos- stöðvarnar. „Þetta gerðist síðast árið 1934 og þar á undan 1922 og síðan oft á 19. öld. Ég er því ekki viss um að vísindalega hafi menn séð nákvæmlega svona atburð gerast áður,“ segir hann. Undir þetta tekur Frey- steinn Sigmundsson, for- stöðumaður Norræna eld- fjallasetursins, og spáir því að það sem muni vekja mesta alþjóðlega athygli á gosinu sé sú framvinda að eldgosið hófst í kjölfar þrýstilækkunar á eldfjalli. „Frá 1998 höfum við séð landris og þenslu á eldfjall- inu sem var afgerandi merki um þrýstiaukningu í grunn- stæðu kvikuhólfi og við vor- um búin að meta það svo að það væri mjög hár þrýst- ingur í þessu kvikuhólfi. Þessi skyndilega lækkun er í rauninni gikkurinn sem hleypir gosinu af stað. Við munum geta metið á næstu árum hvort kviku- söfnun haldi áfram. Við þekkjum þetta svæði orðið nokkuð vel. Það bætist kvika inn og landið rís og tútnar út. Um er að ræða mestu jarðskorpuhreyfingar á eldfjalli á kyrrlátu tímabili sem við höfum séð síðan í Kröflueldum. Þetta sýnir okkur ótvírætt að þetta var kvikuþrýstingur og þurfti lítið til að koma gosi af stað,“ segir Freysteinn. Dregur ekki úr hættu á Kötlugosi Magnús Tumi tekur fram að gosið sé ekki inni í sjálfum Gríms- vötnunum en hluti þess vatns sem bráðnað hafi í gosinu hafi runn- ið þangað. Ætla megi að 50–100 milljónir rúmmetra vatns hafi orðið til við gosið. Hann segir að þótt hluti þess fari inn í vötnin muni það ekki hafa veruleg áhrif á flóðið í Skeiðará. Freysteinn Sigmundsson segir ekkert benda til annars en að um stutt gos verði að ræða og spáir viku til 10 daga gosi. Hann segir að gosið dragi ekki úr hættunni á Kötlugosi í Mýr- dalsjökli en nokkrir kippir urðu í Goðabungu er Grímsvatnagosið var að byrja. Ekkert samband sé þó milli gossins þar og hugs- anlegra eldhræringa í Mýrdalsjökli. Fyrsta skipti í 70 ár sem aðdragandi Grímsvatnag Kolsvört gjóska og gufubólstr Gosið kraftmikið Atburðarás eldgossins í Grímsvötnum nú er í samræmi við hugmynd sem Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur setti fram fyrir 50 árum um að hlaup hleyptu af stað gosum í Grímsvötnum.      !" #    %   & '   $    (  )  *  + ,   +    -  . !    /    !  '    ' 0! '    '    Eldgosið kom upp í suðvestur #23N   #  # $?    ! *$%5 $  1? $    *% #      .$  # $%5 # $% D  D   < ! 7%(%   5 #45)* D=$$ # $"%   #  5 1  %  D !   =  7$ $ .$5 #42-%$ ! / %% % + #  $%  %5 #22 $ $  # $%%  $ # O3"$5 ; $  $5  # $ '' #  $   $ # O3"$5 #46 %( .$    $ %%%   ( $ / %% %  ! %(%%"' 5 #247& $   7$% # # $  %   '    5 #/ %% $  $ !   %5 %  &&  VÍSINDAMENN fóru í annað síðdegis í gær með flugvél Flug hitti þá að máli í Björgunarmiðs Freysteinn Sigmundsson, for fjallasetursins, segir að í seinna ur á gosstöðvunum og skyggni v uninn. Aðalgosopið hafi sést vel „Við sáum til viðbótar að keti þar sem einhver sprengjuvirkn greint á milli hvort það er lítið e ur voru miklar í gosmekkinum, gær gengu yfir tímabil þar sem öskufall sömuleiðis. Síðan kom dvínaði verulega, að sögn Freys aðstæður sé stórvarasamt að ve Gosopið sást ve Ketill BANDARÍKIN OG UMHEIMURINN Kjörstaðir voru enn opnir í for-setakosningunum í Banda-ríkjunum í gærkvöldi, þegar þessi forystugrein Morgunblaðsins var skrifuð. En hver svo sem úrslit þeirra kosninga verða – eða hafa orðið þegar þetta tölublað Morgun- blaðsins berst til áskrifenda – er ljóst að þau varða ekki einungis bandaríska ríkisborgara, heldur fólk um heimsbyggðina alla. Hver hefur veitt Bandaríkjamönn- um umboð til þess að vera lögregla heimsbyggðarinnar hafa gagnrýn- endur Bandaríkjanna gjarnan spurt með nokkrum þjósti. Á móti má spyrja: hvað hefur gerzt, þegar Bandaríkjamenn hafa reynzt tregir til að taka að sér það hlutverk? Á síðasta áratug voru voðaverk framin á Balkanskaga. Fólk var drepið í stórum stíl, konum nauðgað í stórum stíl og illvirki framin á börnum. Það var ekki fráleitt að segja sem svo að þjóðir Balkanskaga yrðu að gera út um sín mál sjálfar. En eftir því, sem fjöldamorðin urðu ógeðslegri svo að minnti orðið á út- rýmingu nazista á gyðingum í heimsstyrjöldinni síðari varð ljóst, að einhver yrði að skakka leikinn. Evrópuríkin reyndust ekki hafa afl til þess. Bandaríkjamenn komu til skjalanna og með því hervaldi, sem þeir hafa yfir að búa og þeim fjármunum, sem þeir hafa yfir að ráða stöðvuðu þeir óöldina á Balk- anskaga. Tvisvar sinnum á síðustu öld höfðu þeir afgerandi áhrif á hern- aðarátök í Evrópu. Adolf Hitler réð um skeið yfir meginhluta Evrópu og stórum hluta Rússlands. Tvennt réð úrslitum um að hann beið ósigur að lokum. Bandaríski herinn, sem gekk á land á meginlandi Evrópu og bar- áttuþrek Rauða hers Sovétríkjanna. En baráttuþrek Rauða hersins hefði dugað skammt ef ekki hefðu verið reglulegir flutningar á hergögnum frá Bandaríkjunum til Rússlands, sem m.a. fóru fram beggja megin Ís- lands. Hvað kom Bandaríkjamönnum við, þótt Evrópuþjóðir stæðu í stríði sín í milli? Hvers vegna kallaði Winston Churchill þá til? Og hvers vegna hlýddu þeir því kalli? Vegna þess að lýðræðið var í hættu. Hvað eru Bandaríkjamenn að gera í Mið-Austurlöndum? Verja olíu- hagsmuni sína, segja gagnrýnendur þeirra. En er það svo einfalt? Hvað mundi umheimurinn segja, ef Bandaríkjamenn létu það afskipta- laust þótt Ísraelsmenn beittu hern- aðarlegum yfirburðum sínum til að kúga Arabaþjóðirnar í kringum sig? Ganga má út frá því sem vísu, að fólk um allan heim mundi segja það, sem sagt var um atburðina á Balk- anskaga: það verður að skakka leik- inn. Og hverjir hafa afl til að skakka leikinn í Mið-Austurlöndum? Sú þjóð er ekki til utan Bandaríkjanna, sem hefði bolmagn til þess. Raunar hafa Bandaríkjamenn gripið inn í slíka atburðarás í Mið- Austurlöndum. Á árinu 1956 gengu Bretar, Frakkar og Ísraelsmenn í óheilagt bandalag og gerðu samsæri sín í milli til að ná hernaðarlegum markmiðum sínum í Mið-Austur- löndum. Eisenhower, Bandaríkjafor- seti, stoppaði þá af í Súez-deilunni, sem batt endahnútinn á stöðu Breta og Frakka sem stórvelda. Hefði Ei- senhower ekki gert það hefðu Bret- ar og Frakkar lagt undir sig Súez- skurðinn á ný, sem Nasser, Egypta- landsforseti hafði réttilega þjóðnýtt og Ísraelsmenn hefðu farið sínu fram gagnvart nágrönnum sínum. Hvað er mest gagnrýnt vegna fjöldamorðanna í Rúanda á sínum tíma? Að þjóðir heims skyldu ekki skipta sér af þeim atburðum. Það er hægt að gagnrýna Banda- ríkjamenn fyrir að vera í lögreglu- leik um allan heim. Það er hægt að gagnrýna þá fyrir það, hvernig þeir fara með vald sitt. En það er alltaf kallað á þá að lok- um. Þess vegna skipta úrslit í for- setakosningunum í Bandaríkjunum máli ekki bara fyrir Bandaríkja- menn sjálfa heldur fyrir fólk um all- an heim. Hvort sem þjóðum heims líkar betur eða verr þurfum við á lögreglu heimsbyggðarinnar að halda. Það er svo annað mál, hvernig Bandaríkja- menn fara með það mikla vald. Þeir fóru að mati okkar Vestur- landabúa vel með það í heimsstyrj- öldinni síðari og þeirri fyrri einnig. Þeir fóru vel með það í Kyrrahafs- styrjöldinni, sem var að sjálfsögðu hluti heimsstyrjaldarinnar síðari. Þeir fóru vel með það í kalda stríð- inu. Þeir fóru ekki vel með það í Chile, þegar þeir augljóslega voru með í ráðum að steypa löglega kjörnum forseta af stóli. Þeir hafa ekki farið vel með það í samskiptum sínum við ríki Mið- og Suður-Ameríku. Þegar horft er til baka er ljóst að þeim urðu á herfileg mistök í Víet- nam, en það var ekki auðvelt að sjá á þeim tíma. Þeir komu í veg fyrir að kommúnistar legðu undir sig Suður-Kóreu, þótt það stríð væri háð undir fánum Sameinuðu þjóð- anna. Það er hins vegar hægt að gera þá kröfu til Bandaríkjamanna, að þeir læri af mistökum sínum. Er til betri kostur til þess að gegna því hlutverki að skakka leik- inn og ganga á milli? Á meðan Sam- einuðu þjóðirnar eru ekki raunhæfur valkostur í þeim efnum er erfitt að sjá, að annar kostur sé fyrir hendi. Hafa einhverjir trú á því, að Kín- verjar og Indverjar, væntanleg risa- veldi síðari hluta 21. aldarinnar, mundu gegna þessu hlutverki betur?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.