24 stundir - 05.04.2008, Qupperneq 1
„Ég vona að menn hafi í heiðri nýja málsháttinn: Batnandi höfundi er
best að lifa,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson. „Ég er þeirrar skoð-
unar að menn verði að læra af mistökum sínum í stað þess að endurtaka
þau. Ég er líka þeirrar skoðunar að peningar skipti ekki öllu í lífinu þann-
ig að ég sé ekki mjög mikið eftir þeim peningum sem ýmsir
hafa verið að reyta af mér.“
Lærði af mistökum
„Batnandi höfundi er best að lifa“
»38
24stundirlaugardagur5. apríl 200865. tölublað 4. árgangur
Ketill Larsen hefur lengi leikið trúða
og jólasveina en inn við beinið er
hann góðhjartaður og mjúkur mað-
ur sem sér það góða í flestum hlut-
um. Meira að segja gallar geta
verið gagnlegir.
Gagnlegir gallar
24SPURNINGAR»28
Gissur Sigurðsson fréttamaður hefur
oft upplifað skemmtilegt aprílgabb
eins og aðrir viðmælendur blaðsins
sem deila reynslu sinni með lesendum.
Fáir vilja hins vegar viðurkenna
að hafa verið gabbaðir.
Gott aprílgabb
SPJALLIл47
70% munur á
kaffibaununum
NEYTENDAVAKTIN »4
Karlmaður hætti við að ræna
matvöruverslun í tékkneska
bænum Cesky Tesin eftir að
afgreiðslukonan bauð honum
að þiggja kaffi og kökusneið.
Ræninginn var með grímu og
beindi byssu að konunni sem
áleit hann þrátt fyrir allt vera
„almennilegan, ungan mann“.
„Ég spurði hvað hann væri að
gera og við lentum á spjalli.
Enginn annar var í búðinni
svo hann róaðist eitthvað við
það. Að lokum baðst hann af-
sökunar á athæfinu og fór.“
Lögregla leitar nú mannsins. aí
Bauð bófa í
kaffi og köku
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 74,00 -1,38
GBP 147,68 -1,42
DKK 15,61 -0,92
JPY 0,73 -1,03
EUR 116,47 -0,91
GENGISVÍSITALA 149,69 -1,09
ÚRVALSVÍSITALA 5.302,39 0,89
0
0
-4
-2 -2
VEÐRIÐ Í DAG »2
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
„Ef konur vildu hámarka vits-
munaþroska barna sinna ættu þær
að borða fisk oftar en tvisvar í
viku meðan á meðgöngu stendur,“
segir dr. Emily Oken, prófessor í
læknisfræði við Harvardháskóla,
en hún ásamt öðrum hefur nýlok-
ið rannsókn á áhrifum fiskáts
kvenna á meðgöngu á vitsmuna-
þroska barna við þriggja ára aldur.
Sýndu börn þeirra kvenna sem
borðuðu fisk oftar en tvisvar í
viku á meðgöngu meiri vitsmuna-
þroska en önnur börn.
Dr. Oken óttast að vegna mik-
illar umræðu um kvikasilfur í
sjávarfangi á undanförnum árum
forðist margar konur að borða
fisk. „Það þarf að hvetja konur til
að kynna sér hvaða fisk má
borða,“ segir Oken og leggur ríka
áherslu á mikilvægi þess að óléttar
konur borði sjávarfang.
Ekki vegna greindari mæðra
Rannsóknin byggir á gögnum
um 341 mæðgur og mæðgin. Voru
mæðurnar spurðar um lífsstíl og
bakgrunn auk þess sem lögð voru
fyrir þær ýmis próf. Þannig tókst
að útiloka ýmsar aðrar skýringar,
t.d. þá tilgátu að meiri vitsmuna-
þroski sumra barnanna væri til-
kominn vegna þess að mæður
þeirra væru almennt meðvitaðri
um heilsuna eða greindari.
Omega 3-fitusýrur skýringin
Ekki er vitað með vissu hvað
það er í fiskinum sem eykur vits-
munaþroska barnanna en rann-
sakendur telja sennilegast að skýr-
ingarinnar sé að leita í omega
3-fitusýrunum.
Geir Friðgeirsson, barnalæknir
á Domus Medica, telur það líklegt.
„Omega 3-fitusýrur eru horn-
steinar í uppbyggingu miðtauga-
kerfisins í fóstrum,“ segir hann.
Fiskur gerir
börnin
greindari
Börn kvenna sem borða fisk oftar en
tvisvar í viku á meðgöngu sýna meiri vits-
munaþroska skv. nýrri rannsókn
➤ Mælt er með því að óléttarkonur forðist fisk sem inni-
heldur mikið kvikasilfur, þar
sem tengsl fundust á milli
kvikasilfurmagns í hári
mæðranna og minni vits-
munaþroska barnanna.
➤ Lítið kvikasilfur er t.d. í þorskiog laxi en talsvert í túnfiski
og stórlúðu.
➤ Rannsóknin birtist í AmericanJournal of Epidemiology og
má nálgast á vefnum: aje.ox-
fordjournals.org.
FISKUR OG KVIKASILFUR
Starfsmenn Tryggingastofnunar
telja að mikið sé um tryggingasvik.
Almenningur er á sama máli.
Norrænu ríkin vinna nú saman að
því að meta umfang svikanna. Vin-
sælt er að þykjast vera
einstætt foreldri.
Hundraða
milljóna svik
»8
Slökkviliðsstjóri hefur víðtækar
heimildir til knýja fram úrbætur
þar sem eldhætta er í húsum. Úti-
gangsmenn skapa eldhættu. Heim-
ilt er að setja öryggisvakt við hús á
kostnað eiganda eða
beita dagsektum.
Úrræði til gegn
brunagildrum
»2 »14
24stundir/RAX
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR