24 stundir - 09.04.2008, Síða 1
24stundirmiðvikudagur9. apríl 200872. tölublað 4. árgangur
Bílaverkstæði
Smurstöð
Verslun
Vissir þú að...
vélarslitvörn frá Liqui Moly
kemur í vegfyrir að vélin bræðir
úr sér ef hún verður olíulaus.
Það styttist í golfvertíðina og vall-
arstjórar eru nokkuð sammála um að
golfvellirnir komi vel undan vetri.
Stærstu vellirnir verða opnaðir í
byrjun maí ef veðrið verður
ágætt þangað til.
Koma vel undan vetri
GOLF»28
Jóhanna Einarsdóttir, prófessor
við Kennaraháskóla Íslands, seg-
ir að börn geti oft gert meira
heldur en fullorðnir halda. Þau
skilji líka ýmislegt og eigi heimt-
ingu á því að á þau sé hlustað.
Börnin eru klár
BÖRN»22
180% verðmunur
á tannkreminu
NEYTENDAVAKTIN »4
Séra Ivan Larsen er einn með-
lima Regnbogans, danskra
samtaka sem beita sér fyrir því
að samkynhneigðir fái úthlut-
aðan sérskika í Assistens-
kirkjugarðinum í Kaup-
mannahöfn. Vilja þeir að í ná-
grenni Jónasar Hallgríms-
sonar og H.C. Andersen og
fleiri rísi minnismerki skreytt
regnbogafánanum, þar sem 36
duftker rúmist. Njóti reit-
urinn vinsælda sér Larsen fyr-
ir sér að stækka hann til að
rúma 48 ker. aij
Hinsta hvíla
fyrir hýra
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 71,94 -0,17
GBP 141,68 -1,19
DKK 15,15 -0,22
JPY 0,70 -0,26
EUR 113,03 -0,20
GENGISVÍSITALA 145,12 -0,31
ÚRVALSVÍSITALA 5.428,86 0,67
»14
2
1
-2
-1 -1
VEÐRIÐ Í DAG »2
„Þetta var mjög erfiður dagur, sá
erfiðasti hingað til,“ sagði Íris Inga
Svavarsdóttir, móðir unga manns-
ins sem sætt hefur 170 daga ein-
angrun í Færeyjum vegna svokall-
aðs Pólstjörnumáls. Réttarhöld
hófust í gær og eru móðir manns-
ins og amma komnar til Færeyja til
að styðja son sinn og
dótturson.
Þungur dagur
í Þórshöfn
»6
Baugur Group hefur fært helstu
eignir sínar yfir í systurfélögin
Styrk og Stoðir. Þar inni í eru fjöl-
miðlafyrirtæki, tækni- og fjár-
málafyrirtæki. Sömu einstaklingar
eiga öll félögin að mestu. Fjár-
magn og skuldir færðust til en
Baugur gefur umfang-
ið ekki upp.
Eignatilfærsla en
sömu eigendur
»12
„Allt sem við gerum byggir á
mannlegu eðli, þannig að mögu-
leikinn á mistökum er innbyggður,“
segir Matthew Melis, öryggis-
sérfræðingur hjá NASA. Hann er
hér á landi í boði Háskólans í
Reykjavík og ræðir m.a. við starfs-
menn Alcoa á Reyð-
arfirði um öryggismál.
NASA kennir
Alcoa öryggi
»16
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Tollar á ófylltu pasta með eggja-
innihaldi eru 8 krónur á kíló. Engir
tollar eru á ófylltu pasta sem ekki
inniheldur egg, að sögn Guð-
mundar Marteinssonar, fram-
kvæmdastjóra hjá Bónus, sem
kveðst ekki viss um skýringuna.
„Það eina sem mér dettur í hug er
að egg eru framleidd á Íslandi en
ekki hveiti,“ segir Guðmundur.
Pasta er meðal þeirra vöruteg-
unda sem utanríkisráðherra vill
ekki tollmúra á. „Við getum ekki
látið eins og rödd neytenda sé ekki
til. Að mínu viti er ekki réttlæt-
anlegt að halda uppi tollmúrum á
pasta, kjúklingum og svínakjöti til
þess að halda uppi verði á lamba-
kjöti,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir á ársfundi Útflutnings-
ráðs Íslands á mánudag.
Ólafur Friðriksson, skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytinu, kveðst ekki vita
hvers vegna hafi verið samið um
tolla á pasta á sínum tíma.
Viðræður standa nú yfir við Evr-
ópusambandið um gagnkvæmar
lækkanir á landbúnaðarvörum,
annars vegar mikið unnum vörum
sem bera magntolla, eins og til
dæmis pasta og tilbúnum pitsum,
og hins vegar minna unnum
vörum sem bera bæði verðtolla og
magntolla. Vonast er til að niður-
staða fáist síðari hluta árs.
Ólafur leggur áherslu á að Ísland
hafi ekki haft neinn gagnkvæman
markaðsaðgang að ESB þegar samið
var um núverandi tolla. ,,Núverandi
sjávar- og landbúnaðarráðherra er
harður á því að ekki eigi að semja
einhliða um lækkun tolla og það er
það sem við erum að gera. Við ætl-
um náttúrlega ekki að fara að veita
einhliða markaðsaðgang hjá okkur
nema fá eitthvað á móti.“
Egg eða ekki?
Tollar eru á eggjapasta og háir tollar á kjötfyllingum en engir toll-
ar á ófylltu eggjalausu pasta Utanríkisráðherra vill tollalaust pasta
➤ Magntollur á ósoðnu pastameð eggjainnihaldi sem ekki
er fyllt eða unnið á annan
hátt er 8 krónur á kílóið.
➤ Tollur á fylltu pasta með kjöt-innihaldi, sem að magni til er
meira en 20 prósent miðað
við þyngd fyllingarinnar, er
142 krónur.
PASTATOLLAR
Eigandi sumarhúss í Þingvallaþjóðgarði stendur nú í miklum framkvæmdum, þar sem berg á vatnsbakkanum
hefur m.a. verið sprengt. Færst hefur í vöxt að sumarhúsaeigendur í þjóðgarðinum rífi gömul sumarhús og reisi
ný og jafnvel stærri hús fyrir tugi milljóna. Þetta er þvert á stefnu Þingvallanefndar sem vill kaupa upp sumarhús
í þjóðgarðinum og rífa. „Stefna Þingvallanefndar er skýr, en til þess að framfylgja henni skortir
nefndina fjármagn til að nýta forkaupsrétt sinn,“ segir Sigurður Oddsson þjóðgarðsvörður.
Rask í Þingvallaþjóðgarði
„Þingvallanefnd skortir fjármagn til að nýta forkaupsrétt sinn“
»4