24 stundir - 09.04.2008, Page 6

24 stundir - 09.04.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir Í nýju lagafrumvarpi viðskipta- ráðherra um sölu fasteigna, fyrir- tækja og skipa er gert ráð fyrir nýrri kærunefnd sem vistuð skuli hjá Neytendastofu. Sá sem kvartar til kærunefndar skal greiða kærugjald sem ráðherra ákveður í reglugerð. Gjaldið endurgreiðist ef fallist er í heild eða að hluta á kröfur þess sem ber fram kvörtunina. Þá er í frumvarpinu lagt til að eftirlitsgjald vegna starfsemi eftir- litsnefndar fasteignasala verði lækkað úr 100 þúsundum króna í 80 þúsund krónur. Einnig eru lagðar til breytingar á fyrirkomulagi náms og prófa til löggiltra fasteignasala. Lagt er til að háskólar sjái um námið og próf- nefnd verði lögð niður en starfi til bráðabirgða til ársins 2013. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er gert ráð fyrir að kostnaður vegna þess verði óverulegur og muni rúmast innan útgjaldaramma við- skiptaráðuneytisins. ibs Lagafrumvarp um sölu fasteigna Ný kærunefnd Undirbúningur að opnun Melrakkaseturs Íslands sem staðsett verður í Súðavík er nú í fullum gangi. „Við erum þegar farin að safna sögulegum gögn- um,“ segir Ester Rut Unnsteinsdóttir, forstöðumaður safnsins, en nú þegar hefur verið sett af stað verkefnið Gamlir refir sem snýst um að safna bæði sögum, upp- lýsingum og hlutum frá gömlum refaskyttum. „Við er- um að safna tækjum, vopnum og gildrum, fötum og öðru sem sýnir aðbúnað þeirra þegar þeir lágu úti,“ segir hún. Þá stendur til að opna heimasíðu um refinn nú í vor. „Við erum að velta fyrir okkur leið til að setja upp vef- myndavél í grenjum þannig að fólk geti séð inn í gren- in bæði á safninu og líka í tölvunni heima,“ segir Ester. Hún segir einnig unnið að söfnun upplýsinga um dýrið sjálft, líffræði þess og háttalag. Þá er unnið að viðgerðum á Eyrardalsbænum í Súðavík þar sem safn- ið kemur til með að hafa aðsetur sitt en húsið er 120 ára gamalt. „Svo vorum við að setja af stað samkeppni um merki safnsins og er öllum frjálst að taka þátt í henni,“ segir hún. Stefnt er að því að opna safnið árið 2010 en í sumar verður þó boðið upp á leiðsögn fyrir ferðamenn á refa- slóðum þar sem fólk getur séð refi í sínu náttúrulega umhverfi. fifa@24stundir.is Opnun Melrakkaseturs Íslands undirbúin af kappi Vilja sjónvarpa úr tófugreni Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur í Þórshöfn Níu báru vitni í réttarhöldum í Færeyjum í gær í máli Íslendings sem sakaður er um aðild að smygli tuga kílóa af fíkniefnum með segl- skútu í Pólstjörnumálinu. Hann er ákærður fyrir stórfelld fíkniefna- brot, en játar aðeins að hluta. Flest- ir þeirra sem báru vitni hér í Þórs- höfn í gær eru Færeyingar, en þó kom í vitnastúku Guðbjarni Traustason, kallaður Baddi, einn höfuðpauranna í málinu. „Þetta var mjög erfiður dagur, sá erfiðasti hingað til,“ segir Íris Inga Svavarsdóttir, móðir unga manns- ins, en hún og amma hans eru nú komnar til Færeyja í þriðja sinn til að styðja son og dótturson. Nú fylgdust þær með réttarhöldunum, en í hin skiptin hafa þær fengið að heimsækja hann í einangrun í fangelsinu í Þórshöfn, þar sem hann sat í 170 daga. Móðirin óttast um son sinn, en segir að hann hafi sýnt furðu mik- inn styrk í réttarsalnum. „Við vit- um ekki hvort hann fær áfall seinna. Í dag sá hann framan í vini og kærustu í fyrsta sinn, eftir langa einveru þar sem hann hafði enda- lausan tíma til að velta sér upp úr sektarkennd og því sem hefði átt að vera öðruvísi,“ segir Íris Inga. Hún segir soninn ekki hafa feng- ið sálfræðiaðstoð hingað til, en til- boð um hana hafi komið núna. Þegar mæðgurnar heimsóttu pilt- inn í fangelsið í Þórshöfn, var lög- regla og íslenskur túlkur viðstadd- ur, en Íris Inga segir færeysku lögregluna hafa verið þeim innan handar og gert þeim lífið eins bæri- legt og erfiðar aðstæður leyfðu. Maðurinn hefur setið í einangr- un frá því málið komst upp í fyrra- haust, en yfirheyrslur voru aðeins í fyrstu og þeim lauk í október. Hefur fengið nægan dóm Móðir mannsins vonar að hann fái að afplána á Íslandi, en finnst hann hafa fengið nægan dóm í Færeyjum. „Þessi einagnrun í Fær- eyjum hefur verið okkur öllum mjög þungbær. Færeyska fangelsið er ekki ætlað fyrir venjulega afplán- un og þar er ekkert hægt að gera, enda eru Færeyingar sem þar lenda sendir til Danmerkur eftir átján mánuði. Sonur minn kemur von- andi fljótt heim.“ Áætlað er að dómur verði kveð- inn upp á föstudag. Saksóknari vill vísa manninum burt frá Færeyjum en móðir hans vonar að af því verði ekki. Þungur dagur í Þórshöfn  Móðir Pólstjörnumannsins fylgist með réttarhaldi í Færeyjum Í haldi í hálft ár Réttarhöld í máli ungs Ís- lendings sem sakaður er um aðild að Pól- stjörnumálinu hófust loks í Færeyjum í gær. ➤ Skv. dönskum lögum fjallarkviðdómur um mál geti dóm- ar numið 4 árum eða meira. ➤ Þyngsti dómur í Pólstjörnu-málinu er níu og hálft ár, en sex hafa hlotið dóm á Íslandi. SEX DÓMAR FALLNIR Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga, FÍH, hvetur félagsmenn sína til að sækja ekki um störf í Noregi, Danmörku og Svíþjóð á meðan þarlendir hjúkrunarfræðingar standa í kjarabaráttu. „Kjaravið- ræður þeirra eru á sama tíma og okkar og það er mikilvægt að við stöndum saman því við berjumst fyrir því sama, það er að hjúkr- unarfræðingar fái menntun sína og reynslu metna að verðleikum,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, for- maður Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Félag danskra hjúkrunarfræð- inga hefur tilkynnt viðsemjendum sínum að gripið verði til aðgerða í ljósi þess að ekki hafi náðst saman um nýja samninga. Þá hefur félag sænskra hjúkrunarfræðinga sent frá sér verkfallsviðvörun. Félag norskra hjúkrunarfræðinga hefur frest til 30. apríl til að ná sam- komulagi við viðsemjendur sína. Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga á nú í viðræðum við samn- inganefnd ríkisins vegna komandi kjarasamninga. Komið hefur fram skýr vilji beggja að ljúka samning- um áður en gildandi samningar renna út 30. apríl næstkomandi, að því er segir í fréttatilkynningu frá félaginu. Í henni segir Elsa að fundað hafi verið fjórum sinnum og að hjúkr- unarfræðingar hafi komið áherslum sínum og markmiðum á framfæri. „Við leggjum megin- áherslu á hækkun grunnlauna og teljum verðmat á okkar störfum allt of lágt. Aðstæður í efnahagslíf- inu eru ekki hagstæðar til kjara- samningagerðar og því mikilvægt að vanda sérstaklega til samning- anna. Við vitum líka að væntingar hjúkrunarfræðinga eru miklar og teljum fullvíst að þeir muni standa þétt saman ef samningar nást ekki fljótlega og grípa þarf til aðgerða.“ ibs Stefnir í hart hjá hjúkrunarfræðingum á Norðurlöndum FÍH styður kjarabaráttuna Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skólann undir 1 þaki Sérlega snyrtilegt 130 fm iðnaðarhúsnæði á þessum eftirsótta stað. Innkeyrsluhurð og góður salur innaf. Sér inngangur í skrifstofu / stódíóíbúð sem skiptist í alrými með eldhúsi, lítið herbergi og baðherbergi með sturtu. Allar nánari upplýsingar gefur Ásmundur Skeggjason lögg. fasteignasali S: 895 3000. Hentugt t.d. fyrir litla heild- verslun eða léttan iðnað. Laust strax. Hamraborg - Til sölu Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali, Ásmundur Skeggjason, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.