24 stundir - 09.04.2008, Blaðsíða 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 13
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Það er nánast glæpur að nýta sér ólympíukyndilinn
á þennan hátt. Hann er eign alþjóðlegu ólympíu-
nefndarinnar og ekki kínverskur kyndill.
Gunilla Lindberg, nefndarmaður í alþjóðlegu ólympíunefndinni
Kínversk stjórnvöld segja að ekk-
ert geti stöðvað ferð ólympíu-
kyndilsins um heiminn. Eldurinn
er nú kominn til San Francisco,
einu borgar Norður-Ameríku þar
sem hann mun hafa viðkomu.
Hlaupið verður með eldinn um
borgina á morgun og verður ör-
yggisgæsla mikil þar sem búist er
við miklum mótmælum líkt og
raunin varð í Lundúnum og Par-
ís.
Sjö mótmælendur voru hand-
teknir á mánudaginn eftir að þeir
hengdu upp borða með skila-
boðum um frjálst Tíbet á víra
Golden Gate-brúarinnar, helsta
kennileitis San Francisco-borgar.
Á leið sinni yfir Atlantshaf hafði
flugvélin með ólympíukyndlinum
viðkomu á Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar þar sem var fyllt á flugvél-
ina.
Kveikt var á eldinum í Grikklandi
í síðasta mánuði, en til stendur
að hann ferðist um tuttugu lönd
áður en farið verður með hann á
setningarhátíð Ólympíuleikanna
í Peking þann 8. ágúst.
atlii@24stundir.is
Ferð ólymp-
íukyndilsins
ekki stöðvuð
NordicPhotos/AFP
Mannréttindabrotum mótmælt Þrír menn hengdu borða með mótmælum gegn kínverskum stjórnvöldum á víra Golden Gate-brúarinnar í San Francisco á mánudaginn.
Hlaupið verður með ólympíueldinn um borgina á morgun. Mikil öryggisgæsla verður þar sem búist er við miklum mótmælum.
Í útrýmingarhættu Indverskar antilópur hvíla sig í búri sínu í dýragarði í Nýju-Delí á
Indlandi. Indverskar antilópur eru í mikilli útrýmingarhættu. Enn er mikið um ólöglegar
veiðar, auk þess að þeim stafar hætta af innrækt.
Hrein borg Risasígaretta er nú á miðju
Trafalgartorgi í Lundúnum. Þetta er liður í
herferð til að minna reykingamenn á að
kasta ekki sígarettum frá sér á götum úti.
Stúlkubarn Þriggja vikna stúlka sem fæddist með fjögur augu, tvö nef og tvo munna, hvílir í vöggu sinni í indverska bænum Noida.
Margir álíta hana vera guðdómlega.
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð
á allra síðustu flugsætunum í
helgarferðir til Barcelona 17. og
24. apríl. Barcelona er einstök
perla sem Íslendingar hafa tekið
ástfóstri við. Borgin býður frá-
bært mannlíf og óendanlega fjöl-
breytni í menningu, afþreyingu og
úrvali fjölbreyttra veitingastaða
og verslana. Gríptu þetta frábæra
tækifæri - takmarkaður fjöldi
sæta og gistingar í boði!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Vor í Barcelona
17. eða 24. apríl
frá aðeins kr. 22.990
Helgarferðir - Frábær sértilboð
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 22.990
Netverð á mann, flugsæti báðar leiðir með
sköttum, sértilboð, 17. apríl.
Brottför 24. apríl kr. 4.000 aukalega.
Verð kr. 49.990
- flug og gisting ****
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 4
nætur með morgunverði á Hotel NH
Numancia ****, 17.-21. apríl.
Brottför 24. apríl kr. 10.000 aukalega
(ath. 3 nátta ferð).