24 stundir - 09.04.2008, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Við höfum haldið sumarnám-
skeið hér í Waldorfskólanum í
Lækjarbotnum síðustu ár og boð-
ið krökkum að læra sirkuslistir.
Sænski sirkusinn Circus Cirkör
heldur námskeið þar fyrir krakka
sem vilja kynnast sirkuslistinni,“
segir Sólveig sem hefur haft veg
og vanda af námskeiðinu.
„Við erum mest úti við enda
aðstaða hér í Lækjarbotnum afar
góð. Náttúran er hér allt um
kring og fyrir sirkusnámskeiðið
setjum við út alls kyns leiktæki og
sirkustól til notkunar. Þar á með-
al stóra rólu, stórt trampólín,
einhjól og allt annað sem til þarf,
keilur, klifurgræjur, bolta og slá
til að hanga í.“
Sólveig segir börnin fá að prófa
margt af því sem raunverulega fer
fram í sirkus.
„Þau læra alveg hreint ótrúlega
mikið. Þau halda boltum og keil-
um á lofti, hjóla á einhjóli, æfa
sig í fimleikum og brellum. Í lok
námskeiðsins höldum við sýn-
ingu. Eldri börnin skemmta við
Alþingishúsið 17. júní en þau
yngri halda sýningu fyrir foreldra
sína sem margir hverjir verða
hissa á því hversu mikilli færni
börnin hafa náð.“
Sjálfstraust barna vex
Sólveig segir árangurinn af
námskeiðinu afar góðan, kennsl-
an sé mannleg og einstaklings-
miðuð, börnin læri á sínum eigin
hraða og taki þau skref sem þau
sjálf eru tilbúin að taka. „Börn-
unum þykja sirkuslistamennirnir
heillandi og þau bera fyrir þeim
virðingu og leggja sig fram um að
læra listirnar. Við hér sjáum
krakka sem koma á námskeiðið
taka stakkaskiptum, sjálfstraust
þeirra vex og einbeitingin er mik-
il, og það er góð áhersla á sam-
vinnu og börnin eflast í sam-
skiptum við önnur börn.
Auðvitað gerir það svo alla upp-
lifunina enn yndislegri að þau eru
úti í náttúrunni að æfa sig og eru
hjá okkur í fæði og borða hollt,
lífrænt fæði sem gerir þeim gott.“
24stundir/Sverrir
Sænskir sirkuslistamenn kenna börnum listir í sumar
Heimur sirkussins
heillandi fyrir börn
➤ Cirkus Cirkör er nútímasirk-ushópur sem var stofnaður í
Stokkhólmi fyrir tíu árum.
➤ Leiðarljós hópsins og inn-blástur hefur frá upphafi ver-
ið að breyta heiminum með
list, leik og menntun.
CIRCUS CIRKÖR„Heimur sirkussins þykir
börnum heillandi og þau
dást að því listafólki sem
kemur hingað úr sænska
sirkusnum Circus Cirkör
að kenna þeim brögð og
brellur,“ segir Sólveig
Þorbergsdóttir, Waldorf-
leikskólanum í Lækj-
arbotnum.
Börnin eru úti við Ýmis
leiktæki verða sett upp í
sumar að Lækjarbotnum.
Upprennandi sirkuslistamenn
Börnin læra ótrúlega margt á stuttum
tíma.
KYNNING
Gleraugnaverslunin Plusminus
Optic við Suðurlandsbraut er með
sérstaka sportgleraugnadeild en
Friðleifur Hallgrímsson hjá Plus-
minus segir að gleraugun henti
sérstaklega vel fyrir börn. „Rec
Specs eru öryggisgleraugu fyrir
börn sem þurfa að nota gleraugu í
íþróttum og annarri hreyfingu.
Gleraugun eru til í nokkrum litum,
það er hægt að vera með styrk í
þeim og þau eru með teygju svo
þau haldist á barninu. Þess utan
eru þau óbrjótanleg þannig að þau
þola töluvert hnjask. Bæði um-
gjörðin og glerið er óbrjótanlegt
enda gleraugun sérstaklega hönn-
uð til að vera með í íþróttum,“ seg-
ir Friðleifur og bætir við að oft
detti gleraugu af börnum í ein-
hverjum hasar. „Það er ansi hart að
vera í íþróttum og sjá ekki hvað er
að gerast og geta því ekki verið á
toppnum út af svona hlutum. Það
skiptir því máli að börnin sjái vel,
séu vel varin og að gleraugun séu
föst á sínum stað, sama hvað á
gengur. Við erum með tíu vöru-
merki í alls konar sportgleraugum í
sportgleraugnadeildinni og til
dæmis ekta jöklagleraugu fyrir
börn en þau eru fáanleg með eða
án styrks. Við höfum fengið mjög
góð viðbrögð vegna sportgler-
augnanna fyrir börnin enda hald-
ast þau á réttum stað, sem sparar
foreldrum óþarfa gleraugnakaup.“
svanhvit@24stundir.is
Sportgleraugu fyrir börn í íþróttum
Haldast vel á og eru óbrjótanleg
Haldast á sínum stað Sportgleraugu
henta vel fyrir börn í íþróttum.
Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið mikið
úrval af barnabílstólum
Dr.Hauschka
Náttúrulegar snyrtivörur
Rósakrem
fyrir þurra og viðkvæma húð
Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber
hjálpa til við að varðveita rakann í
húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og
veitir henni sérstaka vernd.
Rósakremið inniheldur einungis hrein
náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar
lækningajurtir. Það er án allra kemiskra
rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn
er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á
einnig við um allar aðrar vörur frá
Dr.Hauschka.
Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16,
Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni,
Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi
og Heilsuhornið Akureyri.
dreifing:
Brúðarblað
Auglýsingasímar:
Katrín Laufey 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Það verður fjölbreytt og skemmtilegt
efni í brúðarblaði 24 stunda
11. apríl
Hafðu samband og
fáðu gott pláss fyrir
auglýsinguna þína