24 stundir - 09.04.2008, Síða 22

24 stundir - 09.04.2008, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir Eftir Svanhvít Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is „Það hvernig við lítum á börn hef- ur áhrif á hvernig við umgöngumst þau, hvað við kennum þeim og hvernig umhverfi við búum þeim,“ segir Jóhanna Einarsdóttir, pró- fessor við Kennaraháskóla Íslands. „Ýmis viðhorf til barna hafa verið ríkjandi gegnum tíðina, til dæmis sú sýn að börn séu góð og saklaus og með því að láta þau afskiptalaus verði þau að manni. Hins vegar að þau séu í eðli sínu slæm og því þurfi að aga þau og temja til að ná úr þeim óþekktinni. Sú sýn að börn þroskist eftir fyrirfram ákveðnum líffræðilegum stigum hefur verið ríkjandi um nokkuð langt skeið. Ef gengið er út frá því þýðir ekkert að leita eftir við- horfum barna eða tala við þau um ákveðna hluti þegar þau eru fimm ára því þá hafi þau takmarkað vit á hlutunum. Í dag er viðurkennt að börn séu fær um miklu meira en áður hefur verið haldið og að þau hafi rétt á því að það sé hlustað á þau.“ Réttur barna Jóhanna mun fjalla um sýn fólks á börn á ráðstefnunni Rödd barns- ins sem haldin verður í Borgarleik- húsinu 18. apríl sem Reykjavík- urborg heldur í samstarfi við Rannsóknarstofu í mennt- unarfræðum ungra barna við Kennaraháskóla Íslands. Þar verð- ur fjallað um leiðir til að hlusta á raddir leikskólabarna og hvernig tryggja megi að þau hafi áhrif á viðfangsefni sín og umhverfi. Jó- hanna segir að ráðstefnan sé haldin í kjölfarið á þeim hugmyndum sem meðal annars koma fram í barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna. „Þar kemur fram að börn eigi rétt á því að hlustað sé á þau og að þau eigi að hafa eitthvað um líf sitt að segja. Við þurfum að hlusta á börn og taka mark á því sem þau segja svo hægt sé að miða leikskólastarf við þarfir, þroska og áhuga hvers einstaklings. Því ef við trúum því að börn geti ýmislegt og hafi rétt á að taka ákvarðanir um líf sitt þá þarf að byggja skólastarf á því. Hver og einn einstaklingur er ekki með einhverja eina sýn á börn heldur getur eitthvað annað átt við líka. Þetta er ekki svo klippt og skorið að einungis eitt viðhorf sé ráðandi. Allt starf með börnum byggir á einhverri hugmyndafræði og sýn á börn, hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað. Oftar en ekki er það ómeðvitað hvaða sýn fólk hefur á börn. Með því að skrifa undir barnasáttmála Sam- einuðu þjóðanna erum við búin að gangast undir að það sé réttur barna að njóta umhyggju og verndar fullorðinna og að mark sé tekið á skoðunum þeirra.“ 24stundir/Golli Hvernig má tryggja að börn hafi áhrif á umhverfi sitt? Börn hafa rétt á að hlustað sé á þau ➤ Sue Dockett, prófessor viðMurray School of Education, fjallar um þátttöku ungra barna í rannsóknum. ➤ Anne Trine Kjörholt, prófess-or við Háskólann í Þránd- heimi, fjallar um rétt barna til þátttöku í umönnun og menntun sinni. ➤ Anna Magnea Hreinsdóttir,leikskólafulltrúi í Garðabæ, fjallar um mat barna á leik- skólastarfi. ➤ Kristín Dýrfjörð, lektor viðHáskólann á Akureyri, fjallar um aðferðir til að gefa rödd- um barna vægi í leikskóla- starfinu. RÁÐSTEFNAN Sýn fólks á börn ákvarðar hvernig komið er fram við þau og hvað þeim er kennt, að sögn Jóhönnu Einarsdóttur prófessors sem segir að undanfarna áratugi hafi viðhorf til barna verið misjafnt. Jóhanna Einarsdóttir: „Börn hafa rétt á því að hlustað sé á þau og að þau hafi eitthvað um líf sitt að segja.“ Tónagull er námskeið þar sem foreldrar koma saman með börn sín í þeim tilgangi að læra aðferðir til að vinna með tónlistarþroska barna sinna undir faglegri leiðsögn. Námskeiðið er byggt á hug- myndafræði þróaðri af Helgu Rut Guðmundsdóttur, lektor við Kenn- araháskóla Íslands. Barnalög í djassútgáfum Helga Rut kynntist hugmynda- fræðinni fyrst í Bandaríkjunum og fór upp úr því að þróa sína eigin að- ferð. „Á námskeiðinu er tónlist not- uð sem samskiptatæki í mótvægi við þá hugsun að tónlist sé spiluð fyrir börn sem óvirka meðtakendur. Farið er í leiki og börnunum leyft að spila á hljóðfæri en í efnisvali notast ég t.d. við íslensku barnagæl- urnar og húsganga. Stundum spila ég líka léttar djassútgáfur af barna- lögum sem allir hafa gaman af,“ segir Helga Rut. Virk frá unga aldri Helga Rut fór með dóttur sína nokkurra mánaða gamla á námskeið og segir að helst hafi komið sér á óvart hvað barnið hafði gaman af. Strax í kringum fjögurra mánaða aldurinn heyri börnin þegar verið sé að syngja nafnið þeirra og séu því mun meiri þátttakendur en fólk geri sér almennt grein fyrir. Kennt er einu sinni í viku í 45 mínútur í senn og eru námskeiðin þrískipt eftir aldri. Allir þátttakendur fá bók og geisla- disk með efni námskeiðsins til þess að geta líka notið þess heima við. maria@24stundir.is Barnalög í léttri djassútgáfu á Tónagulli Tónlistarnámskeið fyrir börn Börnin Spila á hljóðfæri, dansa og syngja. KYNNING F i r ð i . H a f n a r f i r ð i . 2 . h æ ð . s í m i 5 5 4 . 1 2 0 0 Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.