24 stundir - 09.04.2008, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
LÍFSSTÍLLNEYTENDUR
neytendur@24stundir.is
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Reglur um útsölu og aðra sölu þar
sem selt er á lækkuðu verði hafa
tekið gildi en í þeim er skýrar kveð-
ið á um hvernig megi auglýsa út-
sölur en verið hefur hingað til. Í
reglunum er meðal annars fjallað
um hugtök á borð við verðvernd,
villur í auglýsingum og takmarkað
magn. Þannig er óheimilt að aug-
lýsa takmarkað magn vöru nema
tilgreint sé hversu mikið magn
standi neytendum til boða.
Ekki útsala endalaust
Þá eru seljendum enn fremur
sett ákveðin tímamörk. „Þegar bú-
ið er að selja vöru eða þjónustu á
lækkuðu verði í sex vikur þá teljum
við það venjulegt verð. Það er ekki
hægt að hafa eitthvað á tilboði
endalaust og vísa stöðugt í eitthvert
fyrra verð. Jafnframt gerum við
kröfu um að varan hafi verið seld á
því verði sem er auglýst sem fyrra
verð,“ segir Þórunn Anna Árna-
dóttir, sviðsstjóri neytendaréttar-
sviðs Neytendastofu. Seljandi verð-
ur því að geta sannað að vara hafi
verið seld á fyrra verði.
Rýmingarsölu sett mörk
Þórunn Anna bendir einnig á að
í reglunum séu nýmæli um rým-
ingarsölu. „Við viljum að það sé
tengt við það þegar verslunin hætt-
ir eða hún hættir að selja ákveðinn
vöruflokk,“ segir Þórunn Anna og
bendir á að það eigi ekki ekki við
um árstíðarbundnar vörur. „Það er
hægt að hafa rýmingarsölu á jóla-
skrauti í janúar þó að verslunin
muni selja það aftur í nóvember á
næsta ári.“
Skýrt fyrir alla
Drög að nýju reglunum voru
fyrst sett á blað í desember og unnu
Þórunn og félagar að þeim í janúar
og febrúar þegar útsölur stóðu sem
hæst. „Hugsunin hjá okkur var í
rauninni sú að á þeim tíma fáum
við mest af ábendingum varðandi
útsölur bæði frá neytendum og
samkeppnisaðilum,“ segir hún.
„Við viljum náttúrlega að það sé
skýrt bæði fyrir verslunareigendur
og neytandann hvernig þetta eigi
að vera. Aftur á móti viljum við
ekki heldur setja einhverjar óeðli-
legar hömlur þannig að það verði
erfitt að vera með útsölu eða til-
boð,“ segir Þórunn Anna Árna-
dóttir, sviðsstjóri hjá Neytenda-
stofu, að lokum.
Hægt er að nálgast nýju reglurn-
ar í heild sinni á vef Neytendastofu
www.neytendastofa.is.
Skýrari reglur Nýjar reglur um út-
sölur eru skýrari jafnt fyrir neyt-
endur sem seljendur en fyrri reglur.
Nýjar reglur um útsölur hafa tekið gildi
Reglur um útsölur
gerðar skýrari
Skýrar er kveðið á um
auglýsingar á útsölum í
nýjum reglum en áður.
Ekki er hægt að auglýsa
útsölu í ótakmarkaðan
tíma eða vísa í fyrra verð
án þess að varan hafi ver-
ið seld á því verði.
➤ Reglurnar taka til útsölu eðaannarrar sölu svo sem til-
boða, afsláttar og annarra
aðferða sem fela í sér að
venjulegt verð á vöru eða
þjónustu er lækkað í tiltekinn
tíma.
➤ Brjóti seljendur gegn regl-unum getur Neytendastofa
beitt viðurlögum og jafnvel
sektum ef ástæða er til.
REGLUR UM ÚTSÖLUR
Verðhækkanir hafa dunið á
landsmönnum að undanförnu. Í
sumum tilvikum virðast kaup-
menn hafa hækkað vörur sem
keyptar voru fyrir gengislækkun
krónunnar samkvæmt frétt á vef-
síðu Neytendasamtakanna. „Neyt-
endur hafa haft samband og bent á
að í mörgum tilfellum sé um að
ræða vörur sem legið hafa í versl-
unum frá því fyrir páska og voru
því keyptar fyrir gengislækkun
krónunnar. Dæmi eru um að selj-
endur hafi kroppað gamla verð-
miðann af fyrir framan viðskipta-
vinina og síðan selt vöruna á nýju
og hærra verði,“ segir í fréttinni.
Ekki hafa þó allir nýtt gengisfall
krónunnar til að hækka verðið.
Þannig hefur húsgagnaverslunin
IKEA lýst því yfir að allar vörur
sem finna má í vörulista ársins
2008 muni ekki hækka í verði.
Sömu sögu er að segja af Ellos-
pöntunarlistanum en aðstandend-
ur hans hafa lýst yfir að þeir muni
ekki hækka verð á vörum í vor- og
sumarlista sínum.
Hækkanir á verði
Nú fer hver að verða síðastur að
taka nagladekkin undan bílnum
enda má ekki nota keðjur eða
neglda hjólbarða frá 15. apríl til 31.
október nema þess sé þörf vegna
akstursaðstæðna.
Áður en sumardekkjunum er skellt
undir bílinn ættu menn þó að at-
huga ástand þeirra og kaupa ný ef
þess er þörf. Veggrip hjólbarða
minnkar við slit og öryggi þeirra
að sama skapi.
Tími naglanna
senn á enda
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
Ég myndi segja að þetta sé svona
nútímaævintýri," segir Sveinn Ólaf-
ur Gunnarsson, annar af tveimur
leikstjórum nýs leikverks sem Stúd-
entaleikhúsið frumsýnir í kvöld.
»Meira í Morgunblaðinu
Drottinn í blokkinni
Það er meira
í Mogganum
í dag
Greinargóðan
lista yfir fimm-
tán helstu tón-
listarhátíðir
ársins 2008 er
að finna í
Reykjavík,
Reykjavík í
dag. Sumarið er innan seilingar og
fullt af rokki og róli fylgir með.
» Meira í Morgunblaðinu
Hvar skal rokka?
reykjavíkreykjavík
Paris Hilton vill ólm
eignast erfingja en
vinkona hennar, Ni-
cole Richie, segir
hana herma eftir
sér í einu og öllu.
Kærasti Hilton er
Benji, tvíburabróðir
Joels, sem er unnusti Richie.
» Meira í Morgunblaðinu
Paris hermikráka
Miðvikudagur 9. apríl 2008