24 stundir - 09.04.2008, Side 28

24 stundir - 09.04.2008, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir Skaga verða væntanlega opnaðir viku til tveimur síðar en það og þannig verður þetta nokkuð á pari við það sem var á síðasta ári. Fyrir utan hefðbundið viðhald og slíkt eru engar meiriháttar áætlanir um breytingar ef frá er talin uppbygg- ingin sem hafin er á Korpúlfsstöð- um en sá völlur á að stækka tölu- vert á næstu árum.“ Um 500 einstaklingar eru á bið- lista GR en lítið virðist ganga á þann lista og hefur svo verið um árabil. Garðar telur mjög ólíklegt að hægt verði að bæta fleirum við þá 2750 einstaklinga sem nú eru meðlimir. Árgjald GR þetta árið er 68 þúsund krónur. Óvíst hjá Oddi Vallarstjórinn Tryggvi Ölver Gunnarsson sem sér um Urriðavöll hjá golfklúbbnum Oddi segir stöðu vallarins svipaða og fyrir ári en Urriðavöllur liggur talsvert hærra en flestir aðrir nálægt höfuðborg- inni. „Það er erfitt að spá nokkuð fyrir um það hvenær við opnum þessa vertíðina því kuldakast næstu daga og vikur setur mikið strik í reikninginn og opnunardagur frestast sem því nemur ef það kem- ur. Annars sýnist mér staðan á okk- ar velli almennt vera góð og alls ekki síðri en á sama tíma fyrir ári síðan. Fullt er í klúbbinn og ár- gjaldið 76 þúsund krónur þetta ár- ið.“ Bjartsýni hjá GKG Ólafur Einar Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Garða- bæjar og Kópavogs, vill ógjarna nefna opnunardag að svo stöddu. „Næstu tvær vikur ráða öllu um framhaldið og þá meina ég hvenær við opnum formlega en það kæmi mér ekki á óvart miðað við stöðuna að opnunin yrði seinna en til dæm- is á síðasta ári. Þá byrjaði ballið strax í fyrstu viku maí en á þessari stundu er næsta ómögulegt að meta ástand vallarins og jafnvel þó hann líti ágætlega út þá ræður öllu hvernig viðrar næstu tvær til þrjár vikur. Ég tel betri kost að bíða ef völlurinn er tæpur og því ákveðum við ekki opnunardag fyrr en líða Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is Flestir þeir er 24 stundir hafa tekið hús á undanfarna daga eru sam- mála um að golfvellirnir líti nokk- uð vel út þrátt fyrir harðari vetur en verið hefur víðast um nokkurra ára skeið. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eru stærstu golfvellir suð- vestanlands í ágætu ásigkomulagi miðað við árstíð. Stöku vellir eru orðnir betri og þá sérstaklega þeir sem liggja lágt við sjávarmál. Allnokkrir klúbbar hafa þegar skipulagt mót sumarsins og hefjast þau fyrstu þann 1. maí þó stöku innanfélagsmót hefjist fyrir þann tíma. Dæmi um það er í Sandgerði þar sem tvö mót eru skipulögð strax í þessum mánuði. Þó er það svo að tíðin næstu tvær til þrjár vikur hefur verulega mikið um það að segja hvenær vell- irnir almennt verða góðir en ekki aðeins nægilega góðir. Um þetta eru þeir sammála sem reka stóru klúbbana á höfuðborgarsvæðinu en þar treysti enginn sér til að fast- setja opnunardag en þær ákvarð- anir verða teknar síðari hluta mán- aðarins. Misjafnt hjá GR Golfklúbbur Reykjavíkur hefur umsjón með þremur golfvöllum nú þegar rekstur Garðavallar á Akranesi er undir þeirra stjórn. Garðar Eyland, framkvæmdastjóri klúbbsins, segir Korpúlfsstaðavöll opnaðan fyrst. „Staðan er góð á öll- um okkar völlum eins og staðan er nú. Við gerum ráð fyrir svipuðum opnunartíma og fyrir ári. Þannig ætlum við að reyna að opna Korp- una strax í byrjun maí en ef tíðin verður slæm í millitíðinni þá frest- um við því þegar þar að kemur. Grafarholtið og Garðavöllur uppi á tekur á þennan mánuð. Annars er völlurinn okkar að mestu óbreytt- ur frá fyrra ári enda stækkuðum við mikið þá og tókum nýjan völl í notkun. Einhverjar lagfæringar hafa verið gerðar og verða áfram en ekkert stórvægilegt ef frá er talið æfingasvæðið okkar sem hefur al- veg verið tekið í gegn.“ Meðlimafjöldi GKG er 1550 og ólíkt öðrum klúbbum nálægt höf- uðborginni er enn pláss fyrir áhugasama. Rysjótt tíð í vetur, bæði góð og slæm Vellir vel undan vetri Almennt þykir þeim er til þekkja golfvellir landsins koma vel undan vetri. Næstu þrjár vikur ráða öllu um hvenær þeir verða formlega opnaðir. Margir kylfingar líta á 1. maí sem merkan dag enda hefur skap- ast hefð fyrir að þá séu haldin fyrstu stóru mót sumarsins. Þar er árlegt golfmót að Strandavelli við Hellu hvað vinsælast en sá völlur er í uppáhaldi hjá mörgum en það er nú haldið í samvinnu við Hole- in-One-golfverslunina. Samkvæmt síðustu upplýsingum er að heita uppselt í það mót þó að enn séu þrjár vikur til stefnu. Fimm önnur mót eru haldin þann sama dag en þau eru flest lokuð ef frá er talið opið mót í Vestmannaeyjum. Spenntir kylfingar Fyrstu mótin vinsæl Enn virðast nokkrir áhugakylf- ingar ekki hafa gert sér grein fyrir að nýjar reglur um golfkylfur tóku gildi í Evrópu um áramótin. Þær breytingar hafa meðal ann- ars það í för með sér að margir af vinsælli dræverum síðustu ára eru í raun orðnir ólöglegir og hver sá er slíka kylfu notar á mót- um, hversu lítilvæg sem þau eru, á á hættu að vera dæmdur úr leik. Er listinn langur yfir þær kylfur sem nú falla undir að vera ólög- legar og má finna þann lista allan á heimasíðu Golfsambandsins og þar má einnig finna aðrar þær reglur er breyttust um áramótin. Um áramótin tóku gildi nýjar reglur í Evrópu hvað golfkylfur varðar en með þeim breytingum urðu margar kylfur sem vinsælar hafa verið ólöglegar. Eru kylfurnar löglegar? Golfbakterían er sterk og fólk lætur talsvert yfir sig ganga áður en hún er gefin upp á bátinn. Það gildir sérstaklega um golfferðir erlendis en samkvæmt upplýs- ingum 24 stunda eru margar slík- ar ferðir uppseldar vel fram á sumar þrátt fyrir hækkanir og gengisfall. Helst er það næsta vertíð í haust og vetur sem veldur skipuleggj- endum og ferðaskrifstofum heila- brotum. Miðað við gengi dagsins er trúlegt að ferðir þá verði um 30 prósentum dýrari en síðasta haust og mjög á reiki hvort áhugamenn hafa efni á slíku í sama mæli og verið hefur und- anfarin ár. Sýna tölur og kann- anir að um það bil 80 prósent kylfinga hér fara í golfferð minnst einu sinni á ári. Golfferðirnar seljast enn Vífilsstaðavöllur Þar leika þeir alhörðustu allan ársins hring en óvíst er hvenær hann opnar formlega. Verður það ákveðið eftir viku eða tvær. Grafaholtsvöllur Hann er óðum að koma til. Gæla forsvarsmenn GR við að hann opni eigi síðar en um miðjan maí. Urriðavöllur Þar unir gæsin sér vel enda liggur völlurinn hæst af þeim er hér er fjallað um. Sjá má í bakgrunni að enn eimir eftir af snjó í Heiðmörk Hvaleyrarvöllur Þar var ótrúlegur fjöldi kylfinga að leik um helgina enda jafnan fyrstur leikhæfur vegna legu sinnar við sjó. 24stundir/Kristinn „Gengislækkunin hefur hitt okkur nokkuð illa fyrir enda er meirihluti okkar vara að koma í hús um þessar mundir og það er nokkuð almenn hækkun þess vegna,“ segir Sveinn Snorri Sverr- isson, verslunarstjóri Nevada Bob. Þar á bæ hefur verð á golf- vörum hækkað nokkuð að und- anförnu vegna falls krónunnar en engu að síður hefur verð á ódýr- ustu byrjendasettum bæði fyrir krakka og fullorðna ekki hækkað í samræmi við það. „Hugmyndin var að reyna að bjóða barna- og unglingasettin á lægra verði nú en í fyrra en það gekk ekki upp í þetta skipti. Byrjendasett fyrir börnin kosta frá 17.900 og upp úr en full sett fyrir fullorðna frá svona 25 þúsundum og alveg upp í hundrað þúsund krónur.“ Engin kreppa Sveinn segir aðalsölutímabilið enn ekki hafið en sýnist ljóst að miðað við sölutölur fyrri ára sé ekki minni sala nú en áður þó viðskiptavinir þurfi að dýfa putt- um dýpra í pyngjuna nú en áður. „Ekki ennþá allavega, en það er annað sem hafa verður í huga og það er að vörur erlendis hækka líka og þeir sem á annað borð ætla að endurnýja eða kaupa nýtt greiða það líka dýrara verði víðast erlendis.“ Stutt í vertíð Áður fyrr var sölutími golfvara bundinn við vor og sölutoppa um jól en nú er tímabilið mun dreifð- ara. Það helgast af tíðum ferðum íslenskra kylfinga til útlanda yfir vetrarmánuðina. „Þannig að salan almennt er nokkuð jöfn og góð þó vissulega komi kippur á vorin og hann er skammt undan nú. Þó stöku kylfingar leggi vart niður kylfu á veturna vaknar meirihluti þeirra ekki fyrr en hlýna fer og vellirnir eru orðnir góðir. Það gerist í byrjun maí og þess vegna er mikilvægt að vera kominn með nýjustu vörur ársins á þeim tíma.“ Gengisfall krónunnar hefur áhrif á kylfinga sem aðra Talsverð hækkun á golfvörum fyrir sumarið Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Nevada Bob er einn stuðnings- aðila hans á evrópsku mótaröðinni. VORIÐGOLF lifsstill@24stundir.is a Um 500 einstaklingar eru á biðlista hjá golf- klúbbi Reykjavíkur en lítið virðist ganga á þann lista ár frá ári. Enn er hins vegar laust hjá golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.