24 stundir - 09.04.2008, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 24stundir
Ólíkt Eiði Smára Guð-johnsen fer heldur illaum Thierry Henry á
Spáni sam-
kvæmt fregn-
um. Ganga
miklar sögu-
sagnir þess efn-
is að hann vilji
aftur til Lond-
on og nafn
Chelsea komið upp í því sam-
bandi. Það væri aldeilis bensín
á þann eld sem glatt logar milli
áhangenda Arsenal og Chelsea
ef rétt reynist.
Björgólfur Guðmunds-son, eigandi West Ham,hefur gefið stjóra liðsins
Alan Curbis-
hley skipanir
þess efnis að
skera umtals-
vert niður
launakostnað.
Fór sá kostn-
aður talsvert úr
böndum í tíð Eggerts Magn-
ússonar en heimildir herma að
ein meginástæða þess að hann
var keyptur út úr félaginu hafi
verið æðibunugangur við
samninga sem þýðir að margir
meðalmenn hjá West Ham eru
með þeim launahærri í Eng-
landi.
Ýmislegt er reynt til aðforðast fallið í bolt-anum.
Hjá Real Zara-
goza veðja
menn á að
lausnin felist í
að sálfræð-
ingateymi dugi
til að fylla leik-
menn vilja og dug en liðið er í
afar slæmri stöðu og þarf
nauðsynlega á stigum að halda
á lokasprettinum, annars bíður
næsta deild fyrir neðan.
Fernando Torres hefðigetað endað hjá Arsenalað eigin
sögn en þeir
ensku gerðu
tilboð í hann
fyrir einum sjö
árum þegar
hann var fyrst
að blómstra
með Atletico de Madrid og
spænska unglingalandsliðinu.
Blöð í Newcastle greinafrá að Kevin Keeganhafi
þegar dregið
upp óskalista
fyrir næstu
leiktíð. Er þar
að finna nafn
Jermaine
Pennant og
hann vill gjarna nýta hæfileika
John Arne Riise, Scott Brown
og Aiden McGeady í framtíð-
inni.
Man-chester United erbesta
félagslið heims
án alls vafa í
huga Ítalans
Marcello Lippi
og Cristiano
Ronaldo besti
knattspyrnumaðurinn á jörð-
inni. Engin önnur félagslið
komast að hans mati með
tærnar þar sem Alex Ferguson
og kumpánar hans hafa hæl-
ana.
Nái lið Roma að gera einhverjar rósir í seinni
leiknum gegn Manchester United í Meistaradeildinni
í kvöld fer það kyrfilega í sögubækur enda sýnir öll
tölfræði að þeirra leik er í raun lokið í keppninni.
Ekki aðeins vann United útileikinn nokkuð sann-
færandi 0-2 og ekki aðeins rústuðu leikmenn United
Roma 7-1 á Old Trafford fyrir ári heldur hafa Rauðu
djöflarnir ekki tapað á heimavelli í Meistaradeildinni
í þrjú ár. Þar að auki er árangur Roma gegn enskum
liðum ekkert til að hrópa húrra fyrir hin síðari ár.
Að sama skapi er róður Schalke mjög þungur gegn
Barcelona á útivelli í hinum leik kvöldsins. Börsungar
náðu marki úti í fyrri leiknum og jafnvel þó þeir hafi
ekki spilað neitt glimrandi um hríð telur mark á úti-
velli drjúgt og gæti dugað til að koma liðinu í fjögurra
liða úrslitin. Börsungar eru einnig ásamt Manchester
eina liðið sem taplaust er enn sem komið er í Meist-
aradeildinni.
Síðustu leikir átta liða úrslita Meistaradeildarinnar í kvöld
Formsatriði fyrir Manchester
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@24stundir.is
„Þetta gerir einfaldlega gæfumun-
inn fyrir mjög marga aðila innan
íþróttahreyfingarinnar og ekki síst
okkur,“ segir Egill Eiðsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsíþróttasam-
bands Íslands. Skerpt hefur verið
mjög á reglum þeim er gilt hafa um
notkun Laugardalshallarinnar en
borið hefur á því að íþróttastarf þar
hafi fallið niður af og til vegna list-
og menningarviðburða sem þar
eru haldnir reglulega.
Eins og 24 stundir sögðu frá í
haust var talsverð óánægja hjá til-
teknum íþróttafélögum með þá
staðreynd að Laugardalshöllin var
þeim oftar en ekki lokuð vegna
menningarviðburða og sýninga
hvers kyns. Almennur skortur á
góðu æfingahúsnæði á höfuðborg-
arsvæðinu jók vandann og vita 24
stundir dæmi þess að þurft hefur
að skutla börnum og unglingum
vítt og breitt um höfuðborgina til
að halda æfingar sem fara áttu
fram í Höllinni.
Frímann Ari Ferdinandsson hjá
Íþróttabandalagi Reykjavíkur segir
að hér eftir gildi ákveðnar reglur og
að á tilteknum tímum eigi íþrótta-
starf forgang á annað. „Nú liggur
fyrir hvenær íþróttastarf nýtur for-
gangs og hvenær ekki og það er
eðlilega mjög jákvætt. Að sama
skapi heldur rekstrarfélag Hallar-
innar áfram að hafa forgang um
helgar og á sumrin eins og verið
hefur en árekstrar ættu að heyra
sögunni til.“
Laugardalshöllin Fyrir hefur komið að
íþróttastarf mætir afgangi þegar aðrir
viðburðir fara þar fram.
Íþróttastarf
fer í forgang
Náðst hefur samkomulag um að íþróttastarf fái að hluta forgang
fram yfir list- og menningarviðburði í Laugardalshöllinni
Golfstjarnan Annika Sörens-
tam er að reyna sitt besta að
standa við loforð sitt um að
veita hinni nýju drottningu
golfsins, Lorenu Ochoa, sam-
keppni á árinu. Engu að síður
dregur sundur með þeim á
peningalistanum þar sem Oc-
hoa hefur nælt sér í 64 millj-
ónir króna á árinu en sú
sænska „aðeins“ 43 milljónir
króna. Er Annika þó öllu
frískari en á síðasta ári þegar
hún vann ekki eitt einasta mót
á kvennamótaröðinni.
Breikkar bil
Eins og sakir standa lítur út
fyrir að síðustu liðin til að
komast inn í úrslitakeppni
NBA-deildarinnar verði Atl-
anta Hawks austanmegin og
Denver Nuggets vestanmegin.
Atlanta líklega á kostnað In-
diana sem fyrir leiktíðina var
spáð einu af fjórum efstu sæt-
um sinnar deildar. Sama gildir
reyndar um Chicago sem
hangir í ellefta sæti aust-
urdeildar en frækileg frammi-
staða í úrslitakeppninni fyrir
ári hefur ekki skilað sér áfram.
Að síðustu
Aðeins rúmar tvær vikur eru í
fyrsta hnefaleikabardaga árs-
ins sem eitthvað kveður að
þegar í hringnum í Las Vegas
mætast hinn evrópski Joe Cal-
zaghe og hinn bandaríski
Bernard Hopkins. Báðir eru
sigurvissir út í æsar sem kem-
ur á óvart í tilfelli Calzaghe
sem hefur náð á toppinn með
hlédrægni og nokkuð al-
mennri kurteisi sem oft fer lít-
ið fyrir í aðdraganda slíkra
keppna.
Sigurviss
Ökuþórinn Fernando Alonso
sem er sem stendur níundi í
keppni ökukmanna í F1 telur
mótlætið styrkja sig og al-
mennt gera sig betri ökumann
en hann var áður.
Mótlæti
SKEYTIN INN
„Það eru blendnar tilfinningar
en ég er ánægður með að hafa tek-
ið við Fylki enda mikill metnaður
þar á bæ, segir Aðalsteinn Eyjólfs-
son sem tekur við starfi Guðríðar
Guðjónsdóttir sem þjálfari
kvennaliðs Fylkis í handbolta. Að-
alsteinn gerði þriggja ára samning
við liðið og hlakkar til að takast á
við nýja hluti en hann hefur verið
með annan fótinn hið minnsta hjá
Stjörnunni í langan tíma við góð-
an orðstír.
Nýr þjálfari kvennaliðs Fylkis
Aðalsteinn tekur við
Mánudagurinn 7. apríl var stór
dagur í íslenskri íþróttasögu en
þá voru 40 ár síðan Ísland vann
fyrst sigur á Dönum í flokka-
íþrótt þegar landinn lagði Dani í
handbolta 15-10. Var þessu and-
artaki fagnað af hálfu handknatt-
leikssambandsins í gær.
Stór dagur
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Hér eftir á að liggja alveg lj́óst fyr-
ir hvenær íþróttirnar hafa forgang
og hvenær ekki og árekstrar vegna
þessa eiga að heyra sögunni til.