24 stundir - 09.04.2008, Síða 35
Leikstjóri: Ólafur Jóhannesson Leikarar:
Pétur J. Sigfússon, Eggert Þorleifsson
Stóra planið
Kvikmyndir traustis@24stundir.is
Ólafur Jóhannesson er afkastamik-
ill höfundur og leikstjóri. Á fjórum
árum hefur hann skilað af sér
þremur heimildarmyndum, einni
grínheimildarmynd og loks einni
leikinni mynd í fullri lengd, Stóra
planinu.
Daglegt líf handrukkara
Davíð er frekar misheppnaður
náungi sem er einskonar Ingjalds-
fífl í hópi handrukkara í undir-
heimum Reykjavíkur. Persóna
hans markast verulega af sviplegu
fráfalli bróður hans, sem lést í bíl-
slysi ungur að árum. Æ síðan hefur
Davíð sótt sáluhjálp og styrk í
gjalda verð. Leikur er upp og ofan
eins og gjarnan tíðkast í íslenskum
myndum og virðist erfitt að finna
fullkomið jafnvægi milli sviðsskot-
ins ofleiks og áreynslulauss undir-
leiks, sem virðist stafa af meðvit-
aðri hræðslu leikara við að ofleika.
Þetta er sem betur fer á undanhaldi
og státar myndin af nokkrum gull-
kornum, sér í lagi frá Eggerti Þor-
leifssyni og Benedikt Erlingssyni.
Pétur Jóhann stendur sig vel, en
þarf að passa sig á að verða ekki
fastur í sama hlutverkinu.
sjálfshjálparmyndband frá Austur-
löndum fjær, þaðan sem titill
myndarinnar er sóttur. Þegar Dav-
íð kemst í kynni við grunnskóla-
kennarann Harald Haraldsson,
sem hugsanlega gæti verið einn al-
ræmdasti glæpamaður Íslands fyrr
og síðar, fer lukkan að snúast með
Davíð og vegur hans vex hratt á
stuttum tíma innan gengisins.
Sniðug en flatneskjuleg
Stóra planið verður seint talin til
betri íslenskra mynda, þó margt sé
sniðugt í henni. Hún virðist hökta
stefnulaust á köflum og virðist
skorta festu og tilgang. Þar er helst
um að kenna slitróttu handriti, þó
svo að grunnhugmyndin sé góðra
Lítt eftirminnileg íslensk grínmynd
Mafíósi Michael Imperioli leikur lít-
ið en veigamikið hlutverk.
24stundir MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2008 35
Breska ska-sveitin Specials hygg-
ur nú á endurkomu og söngvar-
inn Neville Staple staðfesti það.
„Við byrjuðum á því að hittast og
spjalla og sjá hvort við gætum
það. Nú erum við að athuga hvort
tónlistin er enn í lagi. Ef það virk-
ar, þá höldum við áfram þar sem
frá var horfið. Ef ekki, þá bara
sorrí Stína, við reyndum alla-
vega.“ Hljómsveitin hætti árið
1981 eftir að lagið Ghost Town
sló rækilega í gegn. re
The Specials
snúa aftur
Dópkrakkinn Pete Doherty, sem
helst hefur unnið sér það til
frægðar að hafa gagnast fyrirsæt-
unni Kate Moss og sungið lög
með Babyshambles, var dæmdur
í 14 vikna fangelsi í gær fyrir að
brjóta skilorð en hann var tekinn
fyrir að aka undir áhrifum fíkni-
efna í fyrra, auk þess sem fíkni-
efni fundust í bílnum.
Doherty dæmd-
ur í fangelsi
Tónlistarmaðurinn Bob Dylan
fékk heiðursútgáfu Pulitzer-
verðlaunanna fyrir „djúp áhrif á
dægurtónlist og bandaríska
menningu“. Sig Gissler úr verð-
launanefndinni segir hana taka
mið af ótrúlega ljóðrænni texta-
gerð Dylan. Þetta er í fyrsta sinn
sem rokktónlistarmaður hlýtur
Pulitzer-verðlaunin, en þau eru
10 þúsund dollarar. re
Dylan fær Pulit-
zer-verðlaunin
Hótelkeðjan Travelodge stóð ný-
lega fyrir könnun meðal 2,248
Breta til að komast að því hvað
hjálpaði þeim að sofna. Hljóm-
sveitin Coldplay trónaði efst á
lista yfir tónlist sem er svæfandi.
James Blunt, Snow Patrol, Take
That og Norah Jones skoruðu
einnig hátt. Á lista yfir svæfandi
bækur reyndist sjálfsævisaga fyr-
irsætunnar Jordan vinsælust. re
Coldplay auð-
veldar svefn
MIRALE
Síðumúla 33
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið
mán.–föstud. 11–18
laugardag 11–16
www.mirale.is
25% afslátt
Mirale tekur við umboði fyrir hið þekkta
franska húsgagnafyrirtæki Ligne Roset
af öllum vörum
Af því tilefni höfum við
ákveðið að rýma til í
versluninni og bjóða