24 stundir - 15.04.2008, Side 6
er svariðjá
118 ja.is Símaskráin
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.IS
JA
A
41462 03/08
Hvernig hringi ég
til Ástralíu?
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir
Ráðuneyti, sveitarfélög og fyrir-
tæki með flókna starsemi hafa not-
að skorkort með góðum árangri.
Þetta segir Símon Þorleifsson, sér-
fræðingur í skorkortum hjá Capa-
cent, sem gagnrýnir þau ummæli
Gunnars Helga Kristinssonar pró-
fessors að skorkort henti mögulega
ekki jafn flókinni stofnun og Há-
skóla Íslands.
„Aðferðin virkar ef henni er rétt
beitt. Ég veit að HÍ býr yfir það
mikilli þekkingu að það verður
ekki vandamál fyrir skólann að
innleiða skorkort, þótt upp geti
komið ágreiningur um hvaða
mælikvarða eigi að nota.“ hos
Blæs á efasemdir prófessorsins
Segir skorkort vel
geta hentað HÍ
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík og
Samfylkingarfélagið í Reykjavík standa fyrir
fundi um bandarísku forsetakosningarnar, sem
verða næsta haust. Verður farið um víðan völl
og rætt um frambjóðendurna, málefnin og
söguna.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16.
apríl, kl. 20.30-22.00 á Hallveigarstíg 1.
Gestur fundarins er Karl Th. Birgisson, ritstjóri.
Fundarstjóri: Einar Örn Einarsson,
stjórnarmaður í UJR.
Bandarísku
forsetakosningarnar
Allir velkomnir
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Netvari Símans var kynntur í gær, ný vefvarnarþjón-
usta í samstarfi við Websense, sem innifalin er í ADSL-
áskrift einstaklinga. Með Netvaranum er hægt að loka á
óæskilegt efni á netinu, til dæmis klámfengið efni og vír-
usa. Netvarinn er árangur samstarfs Símans og SAFT,
netverkefni Heimilis og skóla.
„SAFT leggur áherslu á að kenna börnum að um-
gangast tæknina á ábyrgan máta,“ segir María Kristín
Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla. „Við hvetjum
til þess að foreldrar nái samkomulagi við börn sín um
umgengnisreglur á netinu. Þó SAFT mælist ekki til þess
að foreldrar loki fyrir netið þá teljum við mikilvægt að
þeir hafi aðgang að forriti eins og Netvaranum.“
Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri einstak-
lingssviðs Símans, segir það vera hluta af samfélagslegri
ábyrgð að bjóða upp á Netvarann. „Við erum að vinna
að stefnumótun í þeim málum með Háskólann í
Reykjavík okkur til ráðgjafar. Við erum rétt að byrja þá
stefnumótun og ætlum að ná árangri.“
María lýsir ánægju Heimilis og skóla með aðgerðir
Símans til að tryggja örugga netnotkun og hvetur aðra í
iðnaðinum til að gera slíkt hið sama. aij
Síminn býður viðskiptavinum sínum nýja netþjónustu
Hægt að loka fyrir óhroðann
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
í Þórshöfn
„Harðir dómar í fíkniefnamálum
eru ekki einsdæmi í litlum sam-
félögum sem þurfa sérstaka vernd
fyrir fíkniefnum, “ segir Linda M.
Hesselberg, saksóknari í Færeyjum,
en færeyska réttarkerfið hefur sætt
gagnrýni frá Íslandi eftir dóm yfir
Íslendingi í Færeyjarétti, en eink-
um vegna langrar einangrunarvist-
ar sem hann sætti. Saksóknari í
Færeyjum vill gjarnan verja emb-
ættið í Færeyjum og skýra fyrir 24
stundum misskilning sem embætt-
ið telur að gætt hafi í frásögnum af
örlögum Birgis Páls Marteinssonar
í Færeyjum.
Lítil samfélög varin
„Fyrirmyndin er sótt til Græn-
lands, en staðfest var af Hæstarétti í
Danmörku að dæma mætti menn
til þyngri refsingar í fíkniefnamál-
um vegna smæðar samfélagsins.
Færeyingar sigldu í kjölfarið,“ segir
Linda. Gagnrýni á 170 daga ein-
angrunarvist Birgis Páls segir hún
byggða á sandi. Það sé ekki rétt að
Íslendingurinn hafi verið samfellt í
einangrun þennan tíma. Þvert á
móti hafi hann verið látinn laus úr
eingangrun tiltölulega fljótt, en eft-
ir bréfasmygl úr fangelsinu til lykil-
vitnis í málinu hafi verið nauðsyn-
legt að einangra hann aftur.
Saksóknari bendir einnig á að
ólíkt því sem sums staðar hafi
komið fram hafi ákærði verið yf-
irheyrður vegna rannsóknarinnar
langt fram á þetta ár, síðast 26.
mars. „ Það er misskilningur að
færeyska lögreglan ástundi að
stinga fólki sem á leið hjá í gæslu-
varðhald og fleygja lyklinum,“ seg-
ir Linda.
Hugsanlega áfrýjað
Það kemur í ljós innan fjórtán
daga frá því dómur var upp kveð-
inn á föstudagskvöld hvort honum
verður áfrýjað. Saksóknari í Fær-
eyjum gefur ekki upp afstöðu emb-
ættisins. „Lögregluyfirvöld hér geta
ákveðið að lýsa því hvort þau vilja
fara fram á þyngri dóm ef þau
kjósa. En við höfum sent okkar
greinargerð til Danmerkur og þar
verður ákvörðun tekin,“ segir sak-
sóknari.
Færeyingar sýna
fulla hörku
Birgir Páll Marteinsson ekki sá fyrsti sem vísað er frá Færeyjum
Þremur Íslendingum hefur verið vísað úr landi frá aldamótum
➤ Að minnsta kosti þrír til fjórirÍslendingar hafa verið gerðir
útlægir frá Færeyjum með
dómi frá því um aldamót.
➤ Fyrir nokkrum vikum var Ís-lendingi vísað frá Færeyjum í
tvö ár fyrir búðarþjófnað.
STRÖNG LÖGGJÖF
Smæðin skiptir máli Hægt
er að dæma menn í þyngri
refsingu í litlum samfélögum,
segir Linda Hesselberg.
Ljósmynd/Dimmalætting