24 stundir - 15.04.2008, Side 11
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 11
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is
Útgönguspár og spár byggðar á
fyrstu tölum bentu til þess í gær
að bandalag mið- og hægriflokka,
undir forystu auðjöfursins Silvios
Berlusconis, vinni sigur í ítölsku
þingkosningunum. Spárnar
sýndu bandalag Berlusconis með
um níu prósenta forskot á banda-
lag mið- og vinstriflokka undir
forystu Walters Veltronis, fyrr-
verandi borgarstjóra Róm-
arborgar, í neðri deild þingsins,
en milli fjögurra og tíu prósenta
forskot í öldungadeild þingsins.
Búist er við endanlegum úrslitum
í dag og að nú taki við erfiðar
stjórnarmyndunarviðræður.
Vegna erfiðleika í efnahags-
málum lofuðu bæði Berlusconi
og Veltroni skattalækkunum og
að dregið yrði úr skrifræði hins
opinbera. Kosningarnar voru
haldnar þremur árum á undan
áætlun í kjölfar þess að rík-
isstjórn Romanos Prodis riðaði
til falls. Hinn 71 árs gamli Berlus-
coni hefur tvívegis áður gegnt
embætti forsætisráðherra. Næsta
ríkisstjórn Ítalíu verður sú 62 í
röðinni frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar. atlii@24stundir.is
Berlusconi
með pálmann
í höndunum
NordicPhotos/AFP
Berlusconi Ítalinn er einn ríkasti maður Evrópu, en veldi hans nær yfir fjölmiðla, aug-
lýsingar, tryggingar, matvæli, byggingaframkvæmdir og knattspyrnufélagið AC Milan.
Fyrstu skrefin Nýbornir bjarnarhúnar stíga varlega út úr búri sínu í
garðinn við Bjarnarfjallið í útivistargarðinum Skansen í Stokkhólmi.
Sigurvegari Trevor Immermann klæðist græna jakkanum
eftir að hafa sigrað á Masters-golfmótinu um helgina.
Vatnsslagur Nýtt ár hefur gengið í garð hjá búddistum, en íbúar Rangoon í Mjanmar fögnuðu því með því að sprauta vatni hver á
annan. Í Taílandi, Mjanmar, Kambódíu og Laos stendur nýárshátíðin yfir í nokkra daga með tilheyrandi fögnuði og gleði.