24 stundir - 15.04.2008, Side 19

24 stundir - 15.04.2008, Side 19
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 19 Það er fátt sem fullkomnar útlit eins glæsilega og fallegur varalitur og flestar konur eiga nokkra. Það er mörgum konum sérstakt áhugamál að varirnar líti vel út enda ekki amalegt að vera kyssi- legur ef einhver aðlaðandi er ná- lægur. Hér eru nokkur góð ráð til að fá fullkomnar varir. Aldrei nota prufueintak af varalit úr búðum því það er ósnyrtilegt. Prófaðu hann frekar á fingurgómunum því þeir eru lík- astir vörunum. Varaliturinn helst lengur og varirnar virðast fyllri ef varablýant- ur er notaður meðfram varalitnum. Notið aldrei dökkan vara- blýant með ljósum varalit. Það er flott að vera með vel lagaðar varir en blýanturinn þarf að vera í svip- uðum lit og varaliturinn. Það er hægt að nota varalit sem kinnalit en því miður ekki öf- ugt. Til að ýkja varirnar má setja varablýant út fyrir varirnar. Síðan er sett örlítið gloss í miðju á neðri vörinni. Það er hægt að setja vara- blýantinn á varirnar fyrir eða eftir að varaliturinn er borinn á. Mörg- um þykja varirnar náttúrulegri þeg- ar blýanturinn er borinn á eftir á. Hendið aldrei varalitum þótt liturinn henti ekki eða sé farinn úr tísku. Með því að blanda mismun- andi litum er hægt að fá hinn full- komna lit. Glossið helst lengur á vör- unum ef varablýantur er borinn á varirnar áður en glossið er borið á. Til að koma í veg fyrir að varaliturinn skilji eftir far á glös- um skaltu laumulega sleikja var- irnar. Ótrúlegt en satt: það virkar. Gerðu tilraunir með því að blanda saman mismunandi vara- litum og glossum. svanhvit@24stundir.is Nokkur góð ráð fyrir fullkomnar varir Kyssilegar og lokkandi varir 24stundir/photos Varir Varablýantinn má setja á varirnar fyrir eða eftir að varaliturinn er borinn á. Það eru ekki allir sem leyfa sér að fara á snyrtistofu til að láta plokka og lita sig mánaðarlega enda vel hægt að gera það sjálfur. Þó er gott að fara nokkrum sinnum á ári til að móta fallega línu. Litinn sem notaður er má kaupa í apóteki. Auk þess er best að fjárfesta í góð- um plokkara, það auðveldar verkið til muna. Síðan er bara að halda augabrúnunum reglulega við og lita sig vikulega. Plokkun og litun heima Þegar vora tekur og það hlýnar er tilvalið að taka fram stuttbuxurnar og sýna á sér leggina. Það er ekki alltaf nauðsynlegt að vera bara í stuttbuxum á ströndinni eða á línuskautum. Eins og sjá má á myndinni geta stuttubuxur hentað hvar sem er. Með fallegum jakka í stíl eru fallegar stuttbuxur allt eins fínar og stutt pils. Þó er ekki nauð- synlegt að hafa jakka í stíl því að fallegur bolur hentar líka vel. Fínar stutt- buxur í stíl Í London er starfræktur óform- legur hópur áhugafólks um tísku sem tengst hefur gegnum netið. Hópurinn kallar sig The London Swapaholics Clothing Swap og hittist víða á pöbbum í stórborg- inni. Á þessum fundum koma saman konur sem vilja skipta á skóm, fötum og fylgihlutum við aðrar konur. Þannig endurnýtast fötin og skartið og allir fá eitthvað notað en nýtt. Notað en nýtt fyrir skiptióða Gerum gott úr flessu Árlega berst miki› af prentu›um pappír inn á heimilin í landinu en kosturinn er sá a› hann má endurn‡ta. Leggjum okkar af mörkum fyrir náttúruna og skilum honum í næsta pappírsgám e›a endurvinnslutunnu. S am tö k ið na ða rin s og S V Þ -S am tö k ve rs lu na r og þ jó nu st u / S já n án ar u m e nd ur vi nn sl u p re nt m ið la á w w w .s i.i s – H ön nu n H ví ta h ús ið / S ÍA

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.