24 stundir - 15.04.2008, Side 22

24 stundir - 15.04.2008, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2008 24stundir Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@24stundir.is Þegar vora tekur og sólin lætur sjá sig fyrir alvöru má oft sjá áhrif léttara veðurs á útlit kvenna því margar þeirra kjósa léttari förðun yfir sumartímann. Eins eru aðrir og oft litríkari litir not- aðir á sumrin en veturna. Krist- jana Rúnarsdóttir, förðunarfræð- ingur Lancôme, segir að sumarið í ár einkennist af sterkum og glaðlegum litum. „Þeir litir sem verða áberandi í sumar eru litir á borð við sterkbleikan, túrkísblá- an, eplagrænan, fjólubláan og fleiri liti í þeim dúr. Þessir litir verða vinsælir bæði í förð- unarvörum sem og í fatnaði,“ segir Kristjana og bætir við að það sé ýmislegt sem konur ættu að hafa í huga fyrir sumarið. „Það er nauðsynlegt að vanda valið á farða yfir sumartímann. Þegar sólin er hátt á lofti eigum við að hvíla þekjandi farða og fá okkur léttan og eðlilegan farða. Það er líka mikilvægt að und- irbúa húðina vel og góður und- irbúningur er forsenda fyrir fal- legri áferð og endingu farðans.“ Létt og falleg förðun Kristjana farðaði Írisi Hrund Þorsteinsdóttur fyrir 24 stundir til að sýna hvernig létt og falleg sumarförðun gæti litið út. Að- spurð hvernig Íris var förðuð segist Kristjana hafa lagt áherslu á tindrandi augu. „Ég byrjaði á að setja örlítinn maskara á augn- hárin því það hjálpar til við að ákvarða styrk augnförðunarinnar. Næst notaði ég ljósan augn- skugga á allt augnlokið og upp að augabrúnum. Því næst setti ég dökkan skugga yfir ljósa litinn á allt augnlokið. Ég notaði silf- urblýant til þess að afmarka út- línur augnanna og bætti síðan á maskarann. Lokaskrefið var örlít- ið af tindrandi Hypnôse- maskaranum frá Lancôme sem er einn vinsælasti maskarinn sem komið hefur á markað,“ segir Kristjana og bætir við að þetta sé einföld og glæsileg förðun sem sé á allra færi. „Ég hef varirnar ljós- ar en munúðarfullar. Varaliturinn er ljós brúnbleikur og til þess að gera varirnar enn þokkafyllri er Color Fever-glossi bætt ofan á. Að endingu notaði ég englapúður til að gefa andlitinu ferskan sól- arkysstan blæ og lagði áherslu á kinnbeinin.“ Ómissandi sólarpúður Kristjana segir að konur eigi hiklaust að prófa nýja liti í förð- un enda henti sumarið full- komlega til þess. „Þó þarf að fara varlega til að ofgera ekki og það er vel hægt að vera með sum- arlega og fallega augnskugga án þess. Þroskaðri konur ættu að varast að vera með of mikið san- seraða liti, þar sem þeir auka á sýnileika hrukkna. Eins þurfa þær að passa valið á farðanum því hann má ekki vera of mattur.“ Innt eftir því hvort eitthvað sé ómissandi í sumar segir Kristjana að fyrir sitt leyti sé það helst tvennt. „Fyrir utan Flash Bronzer Legs, sjálfbrúnandi krem á fót- leggina, þá vil ég nefna Star Bronzer-sólarpúðrið. Það gengur undir nafninu Englapúðrið vegna þess að fallegur engill er greyptur í púðrið. Það geta allir verið með gylltan og fallegan húðlit með rétta sólarpúðrinu.“ 24 stundir/Valdís Thor Létt og sumarleg förðun með áherslu á tindrandi augu Fersk og munúðarfull sumarförðun Þegar vora tekur verður förðun kvenna oft léttari en þó litríkari. Kristjana Rúnarsdóttir förðunar- fræðingur sýnir hér dæmi um létta og sumarlega förðun þar sem hún legg- ur áherslu á tindrandi augu. Sumarleg Best er að nota léttan og eðlilegan farða yfir sumarið. Glæsileg Hér má sjá augnförðunina betur. Vinsæll Hypnôse- maskari frá Lancôme. Púður Star Bronzer- sólarpúður frá Lancôme. Augu Ombre Absolue nr. A 05 og Ombre Absolue nr. G 30 frá Lancôme.Varir Color Fever nr. 310 frá Lancôme. 24stundir/Valdís Thor Lína sem er umhverfinu vistvæn og verndar náttúruna. Gert úr afurðum frá náttúrunni. Vertu græn/grænn og berðu á þig vörur sem gera gott fyrir líkama og sál. Ný lína frá Origins Fæst í Heilsuhúsinu Skólavörðustíg, Lágmúla, Smáratorgi, Kringlu, Lyfju Lágmúla, Hagkaup Smáralind, Kringlu, Lyf og Heilsu Kringlu og Debenhams. Suðurlandsbraut 50 (bláu húsunum við Fákafen) www.gala.is • Sími 588 9925 Opið 11-18 • 11-16 lau. Full búð af flottum fötum frá Pause Café Str: 34-52 Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viðkvæma húð Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber hjálpa til við að varðveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar lækningajurtir. Það er án allra kemiskra rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aðrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16, Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni, Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi og Heilsuhornið Akureyri. dreifing: Geirvörtuhyljari - 5 pör í pakka. Geirvörtuhyljarinn eru mikilvægur fyrir þær konur sem klæðast ekki brjóstahaldara. Fatalímborðar Ómissandi í handtöskuna! Áhyggjur af að geta ekki klæðs flegnum pilsum, bolum, skyrtum, og hlýralausum kjólum eru úr sögunni með hjálp fatalímborðanna. Svitavörn - frábær nýjung! Svitavörnin er nauðsynleg til að vernda föt gegn gulum blettum og svitalykt. Þú límir þunnann púða í handakrikann sem sýgur í sig svitann og lyktina. Útsölustaðir: www.femin.is, Verslanir Lyfju, Árbæjarapótek og Laugarnesapótek

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.