24 stundir - 02.07.2008, Page 2

24 stundir - 02.07.2008, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir flugfelag.is Aðeins eitt símtal í 570 3400 og málið er afgreitt. Sækjum og sendum – hratt og örugglega á hagstæðu verði. REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK Til/frá Reykjavík Akureyri 8-12 ferðir á dag Egilsstaðir 5-7 ferðir á dag Ísafjörður 2-3 ferðir á dag Vestmannaeyjar 2-3 ferðir á dag VÍÐA UM HEIM Algarve 26 Amsterdam 25 Alicante 30 Barcelona 29 Berlín 25 Las Palmas 28 Dublin 15 Frankfurt 28 Glasgow 17 Brussel 25 Hamborg 23 Helsinki 17 Kaupmannahöfn 18 London 26 Madrid 34 Mílanó 29 Montreal 19 Lúxemborg 26 New York 24 Nuuk 6 Orlando 23 Osló 21 Genf 29 París 28 Mallorca 30 Stokkhólmur 23 Þórshöfn 11 Norðaustan 5 til 13 metrar á sekúndu í dag með vætu sunnan- og austantil, en úrkomu- lítið norðanlands. Hlýnar í veðri, hiti 12 til 20 stig, hlýjast vestantil. VEÐRIÐ Í DAG 11 11 9 7 9 Hiti tólf til tuttugu stig Austan 8-13 m/s og víða rigning eða súld sunnan- og austanlands, annars þurrt og bjart á köflum. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norð- anlands. VEÐRIÐ Á MORGUN 11 12 10 8 11 Hiti tíu til tuttugu stig Jóhannes Jónsson, gjarnan kenndur við Bón- us, er ásamt lögfræðingum sínum að vinna að kæru á hendur ríkislögreglustjóra vegna Baugs- málsins svokallaða. Hann mun afhenda kæruna síðar í þessum mánuði. „Ég ætla að sækja rétt minn gegn þessum háu herrum,“ segir Jóhannes. „Ég er ósáttur við embættisfærslur ríkislögreglustjóra, og eins framkomu dómsmálaráðherra á meðan á mál- inu hefur staðið. Og náttúrulega óánægður með yfirmann ákæruvaldsins hjá ríkislögreglu- stjóra.“ Jóhannes segist annars vegar fara fram á skaðabætur, og hins vegar að embættisfærslur þeirra sem komu að Baugsmálinu verði skoð- aðar ofan í kjölinn. Aðspurður hvort upphæð þeirra bóta sem hann fer fram á sé komin á hreint, segir hann svo ekki vera. „Það er verið að vinna að þessu fyrir mig, og kemur fram síðar í þessum mán- uði. Þá skýrist þetta allt saman. En eins og ég hef margoft tekið fram muna skaðabætur, ef mér verða dæmdar þær, ganga til góðra verkefna í þjóðfélaginu. Ég mun ekki taka þær til mín.“ Um góðgerða- og styrktarmál af einhverju tagi verði að ræða. Spennufall að loknum dómi Jóhannes segist hafa orðið fyrir ákveðnu spennufalli eftir úrskurð Hæstaréttar í Baugs- málinu fyrir tæpum mánuði, en segja má að með því hafi málinu lokið. „En málinu er alls ekki lokið af minni hálfu. Ég mun reyna að sjá til þess að komið verði í veg fyrir að embættis- færslur sem þessar eigi sér stað aftur.“ Jóhannes Jónsson hafði stöðu sakbornings í fyrri hluti Baugsmálsins – ekki þeim hluta sem lauk í síðasta mánuði. Ákæruliðum gegn hon- um var ýmist vísað frá eða hann sýknaður. hlynur@24stundir.is Jóhannes Jónsson í Bónus undirbýr kæru vegna Baugsmálsins Kærir ríkislögreglustjóra í mánuðinum Ósáttur Jóhannes er ósáttur við embættisfærslur við Baugsmálið. Frá og með gærdeginum sleppa þeir sem kaupa sína fyrstu fasteign við að greiða stimpilgjaldið af lán- inu því þá tóku gildi lög um afnám stimpilgjalda sem samþykkt voru á Alþingi í maílok á þessu ári. Er von á að fasteignamarkaðurinn glæðist eitthvað í kjölfarið þó að umdeilt sé hve mikil áhrifin verða. Samkvæmt lögunum fá allir fyrstu íbúðarkaupendur stimpilgjöldin afnumin en ef annað hjóna hefur átt fasteign áður fellur aðeins helmingur gjaldsins niður. Þá er nóg að hafa aðeins átt hluta af fasteign til að missa réttinn. Ekki er kveðið sérstaklega á um það í lögunum hver réttur þeirra er sem aðeins hafa átt fasteign erlendis en haft var eftir Árna M. Mathie- sen fjármálaráðherra hér í blaðinu hinn 31. maí síðastliðinn að slíkir einstaklingar yrðu skilgreindir sem fyrstu íbúðar kaupendur þar sem þeir hafi ekki nýtt réttinn áður. þkþ Stimpilgjöldin afnumin Sigurbjörn V. Eggertsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn segist ekki muna eftir skemmdaverkum í lík- ingum við þau í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sem sagt var frá í gær. Hann segist ekki geta sagt til um hvort skemmdarvargarnir hafi ætlað sér að valda slysum. „En það bendir margt til þess.“ hos Man ekki eftir öðru eins máli Búist er við því að borgarstjórinn í Reykjavík, Ólafur F. Magnússon, taki ákvörðun um ráðningu mannréttindastjóra Reykjavík- urborgar fyrir vikulok Þetta segir Hallur Páll Jónsson mannauðs- stjóri borgarinnar. Að sögn Halls Páls voru umsækj- endur um stöðuna 23 talsins. Staðan var auglýst laus til um- sóknar hinn 6. maí, eftir að þá- verandi mannréttindastjóri, Þór- hildur Líndal lét af störfum, og rann umsóknarfresturinn út hinn 26. sama mánaðar. Hallur Páll segir þennan tíma ekki óeðlilegan til ráðningarinnar. ejg Mannréttindastjóri ráðinn í vikulok Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Grunur leikur á að mennirnir sem ollu hættulegum skemmdum á fallturni Fjölskyldu- og húsdýra- garðsins, hafi gangið berserksgang á Náttúrutónleikum í Laugardal um síðustu helgi. „Í kjölfar fréttarinnar í 24 stundum sagði starfsmaður mér að lýsingin á skemmdarvörgunum bendi til þess að hinir sömu hafi ógnað starfsfólki á tónleikunum og reynt að velta bílum,“ segir Tómas Óskar Guðjónsson, forstöðumað- ur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Starfsmaðurinn hafi ekki kann- ast við mennina. Pálmar Ragnarsson var verk- stjóri á svæðinu þegar upp um skemmdarverkin komst, en eins og fram kom í 24 stundum í gær var sprautað úr slökkviliðstæki í olíu- tank fallturnsins, og gengið frá honum aftur þannig að starfsmenn urðu þess ekki varir fyrr en gangur tækisins varð óeðlilegur. Hann segir starfsmenn hafa tekið eftir því að stólar turnsins sem gestirnir sitja í voru farnir að síga neðar en eðlilegt er, sem endaði með að þeir lentu á öryggisbúnaði sem stoppar fallið ef illa fer. Pálmar tekur þó fram að vegna varaöryggisbúnaðar hafi hægst á fallinu áður en sætin lentu á stopp- aranum. „Ég veit ekki hvort þetta séu bara vitleysingar að fíflast, eða hvort þeir voru virkilega að reyna að slasa fólk,“ segir Pálmar. Hann segir ávallt tvo starfsmenn vera staðsetta við turninn sem fylgjast með gangi hans. Þá sé turninn prufukeyrður án farþega á hverj- um morgni. Reyndu að virka svalir Eins og fram kom í gær kom næturvörður stuttu síðar að sömu mönnum, þar sem þeir voru að gera sig tilbúna til að endurtaka leikinn. „Þeir ætluðu fyrst að vera svalir og buðu bara gott kvöld,“ segir næturvörðurinn. „En af því að ég hafði heyrt um það sem gerðist áð- ur tók ég upp símann til að hringja í lögregluna, og þá flúðu þeir.“ Hann vonast til að geta borið kennsl á mennina aftur. Tómas segir ekki standa til að bæta öryggisgæslu sérstaklega vegna atviksins, enda sé hún við- unandi. Gengu berserks- gang í Laugardal  Menn sem grunaðir eru um að hafa skemmt fallturninn hótuðu starfsmönnum á Náttúrutónleikum í Laugardal Verkstjórinn Pálmi og aðrir starfsmenn garðs- ins tóku eftir undarlegum gangi tækisins. ➤ Aðfaranótt 18. júní var átt viðolíutank fallturnsins, sem hefði getað valdið slysum. ➤ Á Náttúrutónleikunum genguþrír menn berserksgang og reyndu að velta bílum. GRUNA SÖMU MENNINA STUTT ● Kvóti ákveðinn Þorskvóti á næsta fiskveiðiári, 2008 til 2009, verður 130 þúsund tonn eins og á yfirstandandi fisk- veiðiári. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra tók ákvörðun um þetta í gær að teknu tilliti til ráðgjafar Haf- rannsóknarstofnunar (Hafró). Tillaga Hafró gerði ráð fyrir 124 þúsund tonna kvóta af þorski. Kvóti í öðrum teg- undum er í flestum tilfellum meiri en Hafró hafði gert að til- lögu. Kvóti í ufsa er 65 þúsund tonn en Hafró lagði til 50 þús- und tonn. Síldarkvóti nemur 150 þúsund tonnum. Kvóti til ýsuveiða verður 93 þúsund tonn. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Lögregla í Sydney hefur hótað að handtaka alla þá sem deila út smokkum og bæklingum með upplýsingum um fóstur- eyðingar og réttindi samkyn- hneigða þegar Benedikt 16. páfi heimsækir Ástralíu um miðjan mánuðinn í tilefni af Alþjóðadegi ungmenna. Fjöldi hópa hafa boðað aðgerðir í til- efni af heimsókn páfa. aí Bannað að trufla páfa Engir smokkar SKONDIÐ

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.