24 stundir - 02.07.2008, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
Bútönskum þingmönnum
hefur verið bannað að taka
fartölvur með sér inn í þing-
sal, vegna ósiðs margra þeirra
að dunda sér í tölvuleikjum.
Nima Tshering, forseti þings-
ins, segir fartölvurnar valda
mikilli truflun á meðan á
þingfundum stendur. „Ég hef
séð marga þingmenn spila
tölvuleiki á sama tíma og aðrir
ræða alvarleg málefni.“
Þingmenn hafa sjálfir hafnað
ásökunum þingforsetans. aí
Tölvuleikjafíkn í Bútan
Engar fartölvur
í þingsal
STUTT
● Afsögn Bruno Cuche, yf-
irmaður franska heraflans, hef-
ur sagt af sér vegna atviks er
varð á hersýningu í Carcas-
sonne á sunnudagskvöld, þar
se, hermaður skaut blýskotum
úr byssu sinni í stað púðurskota
og særði fjölda fólks.
● Landamæri Ísraelar lokuðu
í gær landamærum sínum að
Gasa fyrir allri umferð nema
umferð gangandi vegfarenda, í
kjölfar flugskeytaárása her-
skárra Palestínumanna yfir
landamærin á mánudaginn.
● Verkfall Mikil röskun varð á
flugi í Þýskalandi í gær þegar
um 4.500 starfsmenn flug-
félagsins Lufthansa gerðu hlé á
störfum sínum í nokkra tíma.
Eftir Atla Ísleifsson
atlii@24stundir.is
Lech Kaczynski Póllandsforseti
segist ekki ætla að staðfesta Lissa-
bon-sáttmála Evrópusambandsins
þar sem Írar hafi hafnað honum í
þjóðaratkvæðagreiðslu í síðasta
mánuði.
Kaczynski sagði það merkingar-
laust að staðfesta sáttmálann þó að
pólska þingið hafi nú þegar sam-
þykkt hann, en samþykki allra að-
ildarríkja þarf til að sáttmálinn öðl-
ist gildi.
Evrópumenn að missa trúna
Ummælin þykja mikið áfall fyrir
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta,
en Frakkar tóku í gær við forystu í
ESB úr höndum Slóvena.
Sarkozy sagði í sjónvarpsviðtali
að eitthvað væri ekki líkt og það
ætti að vera innan ESB og varaði
jafnframt við að íbúar álfunnar
kynnu að vera að missa trú sína á
sambandið. Íbúar álfunnar veltu
nú fyrir sér hvort þjóðþingin væru
ekki betur í stakk búin að tryggja
hag þeirra í stað fulltrúa ESB. Sar-
kozy sagði þó slíkan hugsanagang
vera skref aftur á bak.
Kemur ekki á óvart
Fréttaritari BBC í Póllandi segir
að orð Kaczynski þurfi ekki að
koma á óvart, en forsetinn hefur
lengi talað gegn Lissabon-sáttmál-
anum og nánara samstarfi Evrópu-
ríkja. Líklegt sé að hann vilji við-
halda núgildandi kerfi eins lengi og
mögulegt er, þar sem núverandi at-
kvæðavægi Pólverja væri ekki í
eðlilegu hlutfalli við íbúafjölda og
mun meira samanborið við önnur
ríki.
Kaczynski sagði í viðtali við
pólska dagblaðið Dziennik að ESB
væri þó enn starfhæft og að svo
yrði áfram. „Vissulega er staðan
ekki fullkomin, en svona flókin
smíð getur ekki orðið fullkomin.“
Segja sáttmálann dauðan
Með ummælum sínum hefur
pólski forsetinn slegist í hóp Vaclav
Klaus Tékklandsforseta og fjölda
þingmanna í álfunni sem höfðu
áður lýst yfir andstöðu við sáttmál-
ann, sagt hann dauðan og að
stöðva þyrfti staðfestingaferlið.
Horst Köhler, forseti Þýskalands,
hefur einnig frestað staðfestingu
sáttmálans, en hann bíður nú úr-
skurðar hæstaréttar landsins varð-
andi lagalega þætti tengda sáttmál-
anum.
Erfið viðfangsefni
Frakklandsstjórn hefur sagt að
þeir muni leggja sérstaka áherslu á
innflytjendamál, umhverfismál,
landbúnaðarmál og varnarmál
þann tíma sem þeir eru í forystu
sambandsins næsta hálfa árið.
Helsta verkefnið verður þó að
halda lífi í Lissabon-sáttmálanum
og finna leiðir til að koma ESB út
úr þeirri kreppu sem það er í.
Evrópumenn að
missa trúna á ESB?
Kaczynski Póllandsforseti segir það merkingarlaust að staðfesta Lissabon-sáttmálann
Vandi Sarkozy þarf að finna
leiðir til að ná ESB út úr þeirri
kreppu sem það er í.
LISSABON-SÁTTMÁLINN
➤ Sáttmálanum er ætlað aðkoma í stað stjórnarskrá ESB
sem var hafnað 2005.
➤ Honum er meðal annars ætl-að að einfalda ákvarð-
anatökuferli innan ESB auk
þess að koma á embætti for-
seta og utanríkisráðherra
sambandsins.
➤ Írar höfnuðu sáttmálanum íþjóðaratkvæði 12. júní.
Bill Burton, talsmaður Baracks
Obama, forsetaefnis bandarískra
demókrata, hefur greint frá því að
Obama og Bill Clinton, fyrrum
Bandaríkjaforseti, hafi rætt saman í
tuttugu mínútur í síma á mánu-
daginn og átt stórkostlegt samtal.
Þetta mun vera fyrsta samtal þeirra
frá því Hillary Rodham Clinton
lýsti sig sigraða í baráttu sinni fyrir
því að verða forsetaefni demókrata.
Burton segir Obama hafa hringt
í Clinton og að það sé honum mik-
ill heiður að njóta stuðnings hans.
„Hann hefur alltaf litið á Bill Clin-
ton sem einn helsta leiðtoga þjóð-
arinnar og einn mesta hugsuð
hennar og hlakkar til að fá hann til
liðs við kosningabaráttu sína og
þiggja ráðleggingar hans.“ mbl.is
Bandarískir demókratar snúa bökum saman
Bill Clinton sættist
við Barack Obama
Að minnsta kosti 45 erlendir her-
menn létust í Afganistan í síðasta
mánuði og hefur mannfallið ekki
verið meira í
einum mán-
uði frá falli
stjórnar talíb-
ana 2001.
Annan mán-
uðinn í röð
létust fleiri
erlendir her-
menn í Afganistan en í Írak.
Rúmlega 40 prósent þeirra 122
erlendra hermanna sem hafa lát-
ist í Afganistan það sem af er ári
létust í síðasta mánuði.
Talsmaður herliðsins segir nauð-
synlegt að líta til þess að fjölgun
hafi orðið í herliðinu í Afganistan
og að sóknin gegn uppreisn-
armönnum talíbana hafi verið
hert til muna að undanförnu. aí
Óöldin í Afganistan
Mannfall það
mesta frá 2001
Dómsmálaráðherra Portúgal seg-
ir ekki rétt að rannsókn á hvarfi
bresku stúlkunnar Madeleine
McCann hafi verið hætt. Fjöl-
miðlar sögðu í gær að rannsókn-
inni hafi verið hætt vegna skorts
á sönnunargögnum.
Ráðherrann sagði lögreglu hafa
skilað lokaskýrslu en að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
hvort rannsókninni skuli hætt.
Madeleine hvarf úr hótelherbergi
fjölskyldu sinnar í Praia da Luz í
byrjun maí á síðasta ári. aí
Mál Madeleine McCann
Rannsókninni
ekki hætt
HEYRNARÞJÓNUSTA
Við bjóðum fullkomnustu heyrnartækin frá danska framleiðandanum ReSound
Heyrnarþjónustan Heyrn ehf. Hlíðasmára 11. 201 Kópavogur. Sími 534 9600. netf: heyrn@heyrn.is
* Hágæða heyrnartæki með vindvörn
* Fyrstu hlaðanlegu heyrnartækin
* Einföld og þægileg í notkun
Tímapantanir í síma 534-9600
* Heyrnarþjónusta
* Heyrnarmælingar
* Heyrnartæki
* Ráðgjöf
Azure er nýjasta og háþróaðasta heyrnartæki
sem ReSound framleiðir.
Hugmyndin að baki Azure heyrnartækinu er að heyrn með því
verði eins eðlileg og frekast er unnt. Kristaltær tónn án takmarkana
og ama fyrir notandann - rétt eins og hann á að vera.
Azure flokkar ekki það sem notandinn fær að heyra og takmörkuð
stærð tölvuforrita afmarkar ekki hljóðvinnslu þess.
Nánari upplýsingar á www.heyrn.is
AZURE EFLIR HEYRN Á EÐLILEGAN HÁTT
Auglýsingasíminn er 510 3744