24 stundir - 02.07.2008, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
fyrrverandi forsætisráðherra. Mik-
ið sjálfstæðisfólk. Þorsteinn hafði
einu sinni á orði við mig að ömmu
sinni, sem bjó lengi ein eftir lát eig-
inmannsins, að henni hefði ekki
þótt kaupandinn á réttu róli í póli-
tík. Erfingjar þeirra hjóna skildu
líka eftir hvítan borða með áletr-
uninni X-D en af einhverjum
ástæðum hefur hann nú glatast. “
Súpa í garðinum í mars
Guðrún segir frá því að hún sitji
úti í garði um leið og það byrji að
hlýna og það hafi hún alltaf gert.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Garður Guðrúnar er ægifagur
og vel gróinn af fjölda fjölærra
blóma og plantna. Í miðju
garðsins stendur fagurt gullregn
og gamalt og stæðilegt reynitré.
Þá má líta þar fagrar bóndarósir,
jarðarberjarunna, valmúa og fal-
leg afdrep með borðum og stól-
um sem hún hefur listilega
útbúið. Það er ljóst að í garð-
inum má sitja flestum stundum.
Vinstri grænir fingur
„Ég hef alltaf verið með græna
fingur,“ segir Guðrún um rækt-
arsemina í sér og segist muna
eftir sér lítilli að rífa njóla úr
garði foreldra sinna. „Ann-
aðhvort hefur fólk þetta í sér eða
ekki,“ bætir hún við. „Sumir eru
lagnir í að hafa fínt inni hjá sér,
öðrum er það fyrirmunað,
þannig er það líka með garð-
yrkjuna. Sumum er þetta gefið
og mér er það svo sannarlega,
skil ekkert í því af hverju Vinstri
grænir vildu mig ekki á sínum
tíma,“ bætir hún við og hlær.
„Garðræktina hér mætti kalla
frúarleikfimi mína,“ segir Guð-
rún enda er hún við garðvinnu
öllum stundum. „Ég hófst
handa um leið og ég flutti hing-
að árið 1983. Þá hafði um árabil
búið hér gömul kona, einsömul
og lítið ráðið við garðverkin. En
húsið byggðu árið1937 sæmd-
arhjónin Þorsteinn og Ásta, afi
og amma Þorsteins Pálssonar,
„Nágrannar mínir gátu hneyksl-
ast á þessum kommúnista sem
henti börnunum út í garð í mars til
að skenkja þeim súpu strax og
snjóa leysti,“ segir hún.
Aðspurð um hvort garðvinnan
taki nokkuð frá henni dýrmætan
tíma til skrifa segir hún svo alls
ekki vera. „Ég hef ekki frið í mér til
að skrifa ef það er ekki fínt hjá mér,
en þegar það er fínt, bæði úti og
inni, þá gengur allt saman vel. Nú
er ég að bjástra við bók sem kemur
vonandi út í haust.“
24stundir/Golli
Súpu skenkt í garðinum um leið og snjóa leysir
Hef reynt að rækta
garðinn minn
Guðrún Helgadóttir
rithöfundur nýtur
hverrar lausrar stund-
ar í garði sínum við
Túngötuna í Reykja-
vík. Þangað sækja
barnabörnin hennar
tólf hana heim þar
sem hún dekstrar við
þau af alkunnri hjarta-
hlýju.
Ægifagur garður á Tún-
götunni Guðrún Helgadótt-
ir rithöfundur unir sér vel við
garðvinnuna.
Gullregnið Stæðilegt tré
og litafegurð blóma.
Já, hvers vegna vildu
þeir hana ekki hjá
Vinstri grænum? Spyr
Guðrún í gamni.
HEIMILI OG HÖNNUN
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
Á sumrin getur verið góð til-
breyting að bjóða upp á kalda
og ferska súpu með grill-
matnum. Vatnsmelónu-
gazpacho er tilvalin með grill-
uðum kjúkling. Setjið 5 bolla
af vatnsmelónubitum og
trönuberjasafa í matvinnsluvél
og maukið. Sigtið safann úr
maukblöndunni í skál. Bætið
niðurskorinni gúrku, selleríi,
lauk, kóreanderlaufum, nið-
urskornu chili, jalapeno og
niðurskorinni melónu og kæl-
ið blönduna.
Unaðsleg sumarsúpa í garðveisluna
Vatnsmelónu-gazpacho