24 stundir - 02.07.2008, Síða 26
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Þó að innbrot séu framin allan
ársins hring er sérstök ástæða til
að huga að innbrotavörnum áður
en haldið er í sumarfrí. Innbrots-
þjófar grípa gjarnan tækifærið
meðan fólk er að heiman og láta
greipar sópa um heimili þess. Það
er ömurleg lífsreynsla að koma að
heimilinu í rúst að loknu ferða-
lagi.
„Stóra málið er að fólk muni
eftir að læsa og loka gluggunum.
Stór hluti af íbúðum sem brotist
er inn í eru jafnvel ólæstar,“ segir
Ólafur G. Emilsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Í slíkum til-
vikum þurfa þjófarnir ekki á kú-
beini að halda. „Manni finnst
stundum að þjófarnir séu bara
boðnir velkomnir. Það fer í taug-
arnar á manni,“ bætir hann við.
Þjófar eins og kettir
Ekki er síður mikilvægt að sjá
til þess að allir gluggar séu kyrfi-
lega lokaðir áður en farið er í frí.
„Þjófarnir virðast geta skriðið inn
um ótrúlega lítil göt. Þeir eru eins
og kettirnir margir þessara þjófa.
Ef þeir koma hausnum inn þá
komast þeir allir,“ segir hann.
Ólafur bendir á að innbrots-
þjófar gangi skipulega til verks.
„Það er alveg ljóst að menn ein-
beita sér að ákveðnum hverfum
einn mánuðinn og eru kannski
næsta mánuð á ferð í öðru hverfi
hinum megin í bænum,“ segir
hann.
Ólafur leggur einnig áherslu á
að fólk reyni að láta líta út fyrir að
einhver sé heima. Það er til dæmis
hægt að gera með því að hafa
þvott á snúru og fá jafnvel ná-
grannana til að leggja bíl í stæðið.
Ef menn verða frá í langan tíma er
skynsamlegt að fá einhvern sem
maður þekkir til að líta eftir hús-
inu, taka frá póst og dagblöð,
kveikja og slökkva ljós o.s.frv.
Einnig er hægt að fá sjálfvirka
ljósastýringu sem hentar vel þeim
sem eru mikið á ferðinni.
Fartölvur vinsælastar
Ólafur segir að þjófar slægist
helst eftir fartölvum, flökkurum
(gagnageymslum), stafrænum
myndavélum og flatskjáum. Hann
hvetur fólk til að koma slíkum
tækjum fyrir þannig að þau sjáist
ekki inn um glugga. Þá er skyn-
samlegt að koma skartgripum og
öðrum verðmætum fyrir á örugg-
um stað.
Kúbeinið oft óþarft Inn-
brotsþjófar þurfa oft ekki að
beita kúbeininu við iðju sína
vegna þess að fólk skilur dyr
eftir ólæstar.
Varnir gegn innbrotum í sumarfríinu
Innbrotsþjófar
boðnir velkomnir
Mikilvægt er að ganga
vel frá hurðum og glugg-
um áður en haldið er í frí.
Stór hluti íbúða sem brot-
ist er inn í eru ólæstar.
Einnig er mikilvægt að
láta líta út fyrir að ein-
hver sé heima og fá jafn-
vel aðstoð nágranna.
➤ Fólk verður að gæta þess aðskilja ekki eftir skilaboð á
símsvara um að það sé ekki
heima.
➤ Gott er að koma verðmætumí vörslu hjá vinum eða í
bankahólf.
➤ Skynsamlegt er að skrá rað-númer verðmætra tækja og
eiga jafnvel myndir af þeim.
INNBROTAVARNIR
26 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
Það borgar sig að huga vel að
ástandi bílsins áður en menn leggj-
ast í ferðalög um landið. Með því
er minni hætta á að óvæntar bil-
anir á þjóðveginum eyðileggi gott
ferðalag.
● Hjólabúnaður Hjólbarðar
þurfa að vera í góðu ástandi og
loftþrýstingur jafn og réttur.
Með því batna aksturseig-
inleikar bílsins auk þess sem
hann eyðir minna eldsneyti.
Gangið einnig úr skugga um að
varadekk sé í lagi.
● Staða vökva Gott er að at-
huga stöðu rúðuvökva, olíu,
kælivatns og bremsuvökva áður
en haldið er af stað og bæta á ef
þörf er á.
● Varahlutir meðferðis Verk-
færasett og varahlutir ættu að
vera í hverjum bíl. Auk helstu
verkfæra ættu menn að hafa
meðferðis startkapla, vasaljós,
viðvörunarþríhyrning, ljósa-
perur, dráttartaug og sjúkra-
kassa.
● Speglar Baksýnisspeglar
virka best þegar þeir eru hreinir
og rétt stilltir. Ef menn eru með
eftirvagn (til dæmis hjólhýsi
eða hestakerru) sem hindrar
sýn verða þeir að bæta við
stærri speglum til að sjá aftur
fyrir sig.
Ástand bílsins kannað fyrir ferðalagið
Vandræðalaust ferðalag
Góða ferð Ef bíllinn er í
góðu lagi eru meiri líkur
á að ferðin gangi vel.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is neytendur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Barcelona
frá kr. 17.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu 8 sætunum til Barcel-
ona 4. júlí í viku og aðra leið til Barcelona 4. og 11. júlí. Barcelona
er einstök perla sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin
býður frábært mannlíf og óendanlega fjölbreytni í menningu og af-
þreyingu að ógleymdu öllu því úrvali fjölbreyttra verslana sem eru
í borginni. Gríptu þetta frábæra tækifæri.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum. Sértilboð 4. júlí í viku.
4. og 11. júlí
Aðeins örfá sæti í boði!
Verð kr. 17.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með
sköttum (KEF-BCN). Sértilboð 4. og 11.
júlí.
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Salou
11. - 25. júlí
frá kr. 49.995
Tveggja vikna ferð - síðustu sætin!
Terra Nova býður frábært tilboð til Salou og Pineda í tveggja vikna
ferð 11. júlí. Salou og Pineda eru fallegir bæir á Costa Dorada
ströndinni, sunnan Barcelona. Þar er Port Aventura, stærsti og
glæsilegasti skemmtigarður Spánar. Stórkostlegar strendur,
fjölbreytt aðstaða og litríkt næturlíf. Þú bókar og tryggir þér sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Kr. 49.995
- 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára í íbúð með 2 svefn-
herbergjum í 2 vikur, 11. júlí.
Kr. 59.995
- 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 saman í herbergi /
stúdíó / íbúð í 2 vikur, 11. júlí.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.