24 stundir - 02.07.2008, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Eiður Smári gæti snúið sér að golfinu þegar
hann hættir í fótboltanum. Björgvin Sig-
urbergsson er tilbúinn að leiðrétta sveilfuna
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@24stundir
„Þetta er nú bara nokkuð gott hjá
honum sýnist mér svona við fyrstu
sýn. Svo er hann smart í tauinu,
virkilega smart,“ sagði Björgvin eftir
að hafa litið snöggt á myndirnar hér
fyrir ofan.
Björgvin var gripinn í hádegismat
úti á Keili þar sem hann er við golf-
kennslu allan daginn. Á matseðlin-
um var kjúklingabringa og eftir að
hann hafði fengið sér nokkra bita af
henni og skoðað myndirnar betur
kom greiningin á sveiflunni.
Greinilega efnilegur
„Ef ég á að segja alveg eins og er
þá er þetta nokkuð gott hjá honum.
Hann er greinilega efnilegur og mér
sýnist að þetta geti alveg tekið við
hjá honum þegar hann er búinn í
fótboltanum.
Á fyrstu myndinni er snúningur-
inn bara fínn. Myndin er reyndar
tekin aðeins fyrir framan hann
þannig að maður sér ekki nægilega
vel hvernig hann snýr mjöðmun-
um. Hann snýr sér samt vel aftur
fyrir boltann og kylfan er nokkuð
góð á toppnum þó svo mér sýnist
hún aðeins lokuð. Vinstri öxlin
kemur aftur fyrir boltann þannig að
þetta er bara í nokkuð góðu lagi og
þyngdarskiptingin er bara nokkuð
góð sýnist mér,“ segir Íslandsmeist-
arinn um aftursveifluna hjá Eiði
Smára.
Hann er hins vegar ekki alveg
eins ánægður með það sem hann sá
á næstu mynd þar sem Eiður Smári
byrjar framsveifluna.
„Hér er hann með hendurnar að-
eins of mikið fyrir utan sig og vænt-
anlega hefur hann „slæsað“ boltann
aðeins (slegið hann þannig að bolt-
inn fer í sveig til hægri), eða tekið
hann með sér og húkkað til vinstri.
Örugglega „slæs“ eða tog
Hann er búinn að snúa sér nokk-
uð fljótt á boltann og hefði þurft að
halda kylfunni aðeins lengur uppi.
Miðað við hversu langt frá líkaman-
um hendurnar eru þá sýnist mér
hann búinn að slá boltann dálítið
snemma. Þetta getur því verið
„slæs“ eða bara pool til vinstri (þá
togar hann í boltann).“
Björgvin var nokkuð sáttur við
stílinn hjá Eiði Smára eftir að hann
hitti boltann.
„Framsveiflan hjá honum eftir að
hann hittir boltann virðist vera fín.
Hann heldur höfðinu niðri og þetta
er bara flottur endir hjá honum. Á
þriðju myndinni er hann búinn að
snúa kylfunni og olnbogarnir eru
við líkamann, öfugt við það sem
gerist oft þegar menn koma svona
fyrir utan ferilinn. Venjulega eru
menn þá með olnbogann út til að
reyna að bjarga högginu, en það er
ekkert þannig hjá Eiði Smára. Þetta
virðist bara nokkuð fínt hjá honum
og endirinn er mjög glæsilegur, ekk-
ert út á hann að setja,“ sagði Björg-
vin.
Hermann líka með fína sveiflu
Þegar meistarinn var spurður
hvort hann myndi eftir einhverjum
þekktum manni úr öðrum íþrótt-
um sem væri með afleita golfsveiflu
vildi hann lítið gera úr því. Hann
sagði reyndar að það væri nokkuð
áberandi að eldri fótboltamenn og
handboltamenn væru nokkuð stirð-
ir enda hefði ekki verið lögð áhersla
á liðleika hér á árum áður.
Því gjörsamlega óviðkomandi
sagðist Björgvin hafa fengið Her-
mann Hreiðarsson landsliðsmann í
knattspyrnu í tíma á dögunum. „Ég
tók hann upp á myndband og fór
yfir sveifluna hjá honum. Hermann
er með ágætissveiflu, það mátti laga
aðeins hjá honum, en sveiflan var
bara fín hjá honum,“ sagði meist-
arinn en gaf lítið út á hvor væri með
betri sveiflu, Hermann eða Eiður
Smári.
Kylfuhausinn er
kannski aðeins lok-
aður hjá honum
Björgvin Sigurbergsson, Íslandsmeistari í golfi, segir Eið Smára Guðjohnsen vera með fína golfsveiflu
Svo er hann líka flottur í tauinu
Nokkrar myndir náðust af
landsliðsfyrirliðanum í
knattspyrnu, Eiði Smára
Guðjohnsen, þegar hann
tók þátt í Stjörnugolfi á
dögunum. Björgvin Sig-
urbergsson, Íslands-
meistari í golfi, varð fús-
lega við beiðni 24 stunda
um að skoða sveifluna
hjá landsliðsfyrirliðanum.
➤ Fjölmargir knattspyrnumennhafa reynt fyrir sér í golfi og
með ágætum árangri.
➤ Eiður Smári segist vera meðeitthvað á bilinu 18 til 20 í
forgjöf.
➤ Tryggvi Guðmundsson segirað þeir fari í golf til að hafa
gaman og til að hugsa um
eitthvað annað en fótbolta
LANDSLIÐSSVEIFLA?
Þetta er bara flottur
endir á golfsveiflu
Hérna eru hendurnar
fulllangt frá líkamanum
Höfðinu haldið niðri
og allt í góðu lagi
Björgvin Sigurbergsson
golf
Tryggvi Guðmundsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu og leik-
maður FH, hefur oft leikið golf
með Eiði Smára og fleiri knatt-
spyrnumönnum. Hann segir Eið
Smára þægilegan spilafélaga og
það eigi reyndar
við um flesta sem
hann spili með.
„Eiður er mjög
ljúfur kylfingur.
Þegar við spilum
golf gerum við
það til að dreifa
huganum aðeins
frá fótboltanum
og til að hafa gaman af. En engu
að síður er keppnisskap í okkur,
en það fljúga engar kylfur og við
höfum allir komist lifandi frá
þessu enn þá,“ segir Tryggi í gam-
ansömum tón.
Spurður um hvor sé betri í golf-
inu, hann eða Eiður Smári, hugs-
ar hann sig aðeins um. „Tja, ætli
við séum ekki mjög svipaðir, en
Eiður á það til að fara að hugsa
um eitthvað annað þegar líður á
hringinn. Ef við spilum níu holur
þá væri það mjög jafnt en ég held
ég myndi oftast hafa hann þegar
við leikum átján holur.“
Eiður Smári er
ljúfur kylfingur