24 stundir - 02.07.2008, Síða 32

24 stundir - 02.07.2008, Síða 32
fjölskylduna,“ segir Birgir Olgeirs- son, skipuleggjandi hátíðarinnar. „Ungir sem gamlir fíla allir Ragga Bjarna og Þorgeir Ástvalds, og svo verða Túpilakarnir með lög á borð við „Brennið þið hálfvitar“, en söngvari sveitarinnar er einmitt forsöngvari Ljótu hálfvitanna. Þá eru vestfirsku atriðin vegleg að þessu sinni og má þar nefna Elínu- Sveinsdóttur, Eyrúnu Arnars- dóttur, hljómsveitina the Rim- brandts og Mysterious Mörtu. Þá verða hoppukastalar fyrir yngstu kynslóðina, Go-kart fyrir alla með þunga bensínfætur, happ- drætti, trúðar og margt fleira, en kynnir er stórleikarinn og Bolvík- ingurinn Pálmi Gestsson. traustis@24stundir.is „Lagið heitir Náttúra og fjallar um náttúruna í manninum, sem enn er ekki friðuð, sem betur fer,“ segir Björn Jörundur Friðbjörns- son, höfundur texta nýs lags Nýd- anskrar, sem treður upp á Mark- aðsdegi Bolvíkinga á laugardaginn. Sækir í samtímann Þar mun Nýdönsk frumflytja lagið, en Björn segist innblásinn af atburðum líðandi stundar, en síð- asta lag þeirra fjallaði einmitt um verðbólguna. „Þetta er líka svona samtímabrandari. Manni liggur mikið á hjarta þessa dagana. En lagið ætti að vera klárt fyrir helgi og líklega verða Víkarar fyrstir til að heyra smellinn, sem er naut- sterkt popplag, klassískur Nýd- anskrar-smellur af bestu gerð.“ Ár og dagar eru síðan sveitin heimsótti Bolungarvík, um 10-15 ár að sögn Jóns Ólafssonar, píanó- og hljóðgervlaleikara. „Við spilum alls staðar þar sem einhver vill hlusta. En það er ansi langt síðan við fórum þangað síðast. Við verð- um á Írskum dögum á Skaganum á föstudaginn, en verðum á Mark- aðsdeginum á laugardaginn og hlökkum mikið til, enda mikið um að vera skilst mér,“ segir Jón. Eitthvað fyrir alla „Á Markaðsdeginum geta allir keypt sér bás og selt vörur sínar, hvort sem það er gamalt dót úr bíl- skúrnum, eða dýrindis tertur. Auk þess eru skemmtiatriði fyrir alla Hljómsveitin Nýdönsk á ferð og flugi um helgina Líf og Fjör Frá Markaðsdeginum í fyrra, þegar Hara-systur léku fyrir dansi. Frumflytja nýjan sumarsmell fyrir Bolvíkinga Mynd/Reynir Skarsgård 32 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2008 24stundir Útsalan er hafin 40% afsláttur Laugavegi 51 - sími 552 2201         Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Grínleikarinn Eddie Murphy hugleiðir um þessar mundir að hætta alfarið kvikmyndaleik og snúa sér að öðrum verkefnum. „Ég hef gert nærri 50 myndir og stund- um velti ég fyrir mér, af hverju er ég í kvikmyndum,“ sagði Murphy í viðtali við bandaríska fjölmiðla á dögunum. Ferill Murphys hefur dalað veru- lega á síðastliðnum árum en hann hefur leikið í hverri hörmung- armyndinni á fætur annarri. Murphy sagði að hann hefði hug á því að snúa aftur til upphafs ferils síns, það er að segja uppistandsins. „Ég er búinn að fá nóg af þessum hluta lífs míns. Ég ætla að snúa aft- ur á sviðið og vera með uppistand,“ bætti leikarinn við. Aðdáendur leikarans ættu að gleðjast mikið við þessar fregnir því Murphy sló hressilega í gegn með uppistandi sínu en margir segja að Raw, uppi- standsmynd hans, sé með bestu uppistandsmyndum sögunnar. Ef Eddie Murphy segir skilið við kvikmyndabransann hefur það slæm áhrif á framleiðslu mynd- arinnar Beverly Hills Cop 4 sem Murphy var sterklega orðaður við. Hann sagði þó að það kæmi ekki til greina. „Það er ekki tímabært að gera myndina,“ sagði Murphy að lokum. vij Eddie Murphy á krossgötum FÓLK 24@24stundir.is a Lagið ætti að verða klárt fyrir helgi og líklega verða Víkarar fyrstir til að heyra smellinn, sem er nautsterkt popplag fréttir MYNDASÖGUR Aðþrengdur Afsakið að ég er til! Bizzaró ÉG ER EKKI MIKIÐ FYRIR AÐ KVARTA... EN ÉG GET EKKI SOFIP FYRIR BIRTUNNI FRÁ ÞESSUM GEISLABAUG, OG ÞEGAR MÉR TEKST LOKSINS AÐ SOFNA ÞÁ VELTI ÉG MÉR YFIR Á ÞESS ENDEMIS VÆNGI! Í SÍÐASTA SKIPT I . . . VI LTU GJÖRA SVO VEL AÐ FARA ÚT MEÐ RUSLIÐ!?! KV, ÞÍN ÁSTKÆRA EIGINKONA P.S. HAFÐU ÞAÐ GOTT Í VINNUNNI

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.