24 stundir - 04.07.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
Engin vinnsla verður hjá fisk-
vinnslunni Odda á Patreksfirði
þetta sumarið vegna hráefnisskorts
en Oddi er fjölmennasti vinnustað-
ur bæjarins með um 70 starfs-
menn.
Hætt var vinnslu um miðjan
júní og verður ekki hafin vinnsla
aftur fyrr en um mánaðamótin
ágúst-september, að sögn Sigurðar
Viggóssonar, framkvæmdastjóra
Odda. Segir hann þetta ekki koma
starfsfólki á óvart því vinnslu-
stoppið hafi verið fyrirsjáanlegt
þegar þorskkvótinn var skertur og
því hafi verið tilkynnt um vinnslu-
stoppið fyrir nokkru.
Flestir starfsmenn hafi gert aðrar
ráðstafanir, fundið sér vinnu eða
farið í frí. Afgangurinn, fimm
starfsmenn, vinni viðhaldsvinnu
hjá fyrirtækinu á meðan á vinnslu-
stoppinu stendur.
„Það verður ennþá meiri sam-
dráttur næst, menn höfðu smá
varasjóði seinast,“ segir hann. þkþ
Fiskvinnslan Oddi á Patreksfirði
Vinnslustopp í sumar
Útibúi Landsbankans við Háaleiti í Reykjavík verð-
ur lokað um miðjan mánuðinn og flutt í útibú bank-
ans við Hamraborg í Kópavogi 21. júlí. Starfsmenn
Háaleitisútibús fylgja með og munu þeir þjónusta nú-
verandi viðskiptavini sína úr Kópavoginum. Engar
uppsagnir verða því í kjölfar sameiningarinnar,“ segir
Daníel Scheving, sem fer með málefni útibúa í bank-
anum. „Fjármálaþjónusta er sífellt að verða flóknari og
þarfir viðskiptavina meiri. Því er stefna Landsbankans
almennt að byggja upp stór og öflug útibú sem bjóða
alhliða þjónustu. Núverandi húsnæði bankans við
Háaleiti er að mörgu leyti óheppilegt vegna smæðar og
því erfitt fyrir bankann að ná að veita alla þá þjónustu
þar sem viðskiptavinir þarfnast, “ segir Daníel.
Viðskiptavinir bankans í Reykjavík vilja ekki allir
láta flytja sig hreppaflutningum í annað sveitarfélag og
hafa þeir leitað til annarra útibúa í borginni. Daníel
bendir á að aðgengi í Hamraborg sé gott, húsnæðið
glæsilegt og Hamraborgin sé það útibú sem er styst frá
Háaleitinu og því hafi þessi útibú en ekki einhver önn-
ur verið sameinuð. Daníel neitar því ekki að samein-
ingin bjóði upp á hagræðingu og það sé markmið
bankans að reka starfsemi sína á sem hagkvæmastan
hátt. Landsbankinn fari hinsvegar ekki uppsagnaleið-
ina. Bankinn hagræði í rekstri án þess að segja einum
einasta starfsmanni upp við sameininguna. beva
Landsbankinn stefnir að færri og stærri útibúum
Landsbanki lokar í Háaleiti
Eftir Ásu Baldursdóttur
asab@24stundir.is
„Ég var sjálfur að leita að vefsíðu um
sundlaugar á Íslandi,“ segir Robert
Van Spanje 23 ára, sem er nýútskrif-
aður úr Margmiðlunarskólanum.
„Ég hef mikinn áhuga á vefsíðu-
gerð og hönnun en ég er líka út-
skrifaður úr listaháskóla í Hol-
landi.“
Gagnvirk síða
Robert segir að fólk hafi sent sér
fjölda ábendinga og að sundlaugar
landsins hafi tekið vel í verkefnið.
„Ég treysti ekki á upplýsingar af
netinu og því afla ég mér allra upp-
lýsinga í samstarfi við laugastarfs-
fólk af landinu öllu,“ segir hann og
bætir við að hann vilji fara varlega í
það að setja upplýsingar um hveri.
„Mig langar ekki að taka neina
áhættu því hverir geta verið of heitir
og ákveðin svæði eru varasöm,“ seg-
ir hann og nefnir að það sé ekki
hans að meta hvort staðir séu ákjós-
anlegir til baða eða ekki.
Almennur listi
„Þetta er í grunninn almennur
listi en ég vona að síðan þróist og
það er sérstaklega gaman að hafa
umsagnir notenda við hvern stað,“
segir Robert. Hann nefnir að grunn-
upplýsingar um staðsetningu, stærð
lauga, hita og veður séu nauðsyn-
legar og gagnlegar fyrir Íslendinga
sem erlenda gesti.
Persónulegri með umsögnum
„Með umsögnum notenda geta
aðrir sem heimsækja síðuna fengið
mun persónulegri sýn á baðstaði
landsins,“ segir Robert. Með um-
sögnunum væri hægt að sjá hvort
notendur telja staði barnvæna, fyrir
eldra fólk, þ.e. nánari lýsingu en
ella.
„Ég fagna því þegar fólk er að
senda mér ábendingar en ég mun
fara varlega í að setja inn upplýs-
ingar,“ segir hann.
Robert nefnir að myndir af
nokkrum sundstöðum séu nú þegar
komnar inn, en fleiri muni bætast
við á næstunni. „Svo getur vel verið
að ég fái innsendar myndir, við
sjáum til,“ segir hann en tekur fram
að síðan verði í stöðugri þróun.
„Það hafa margir skoðað síðuna
þennan mánuð sem hún hefur verið
til og á næsta ári verður hún á fleiri
tungumálum.“
Fannst sárvanta
vefsíðu um sund
➤ Vefurinn er útskriftarverkefniRoberts við Margmiðl-
unarskólann en hann útskrif-
aðist í maí síðastliðnum.
➤ Á vefsíðunni má finna upplýs-ingar um og kort af staðsetn-
ingum nærri 200 sundlauga
víðsvegar um landið.
➤ Síðan er gagnvirk því not-endur geta skilið eftir um-
mæli. Í júnímánuði voru um
1700 heimsóknir skráðar á
vefinn.
WWW.SUNDLAUGAR.IS
Á Reykjanesi 7 laugar
Á höfuðborgarsvæðinu 18 laugar
Á Suðvesturlandi 1 laug
Á Vesturlandi 1 laug
Á Vestfjörðum 2 laugar
Á Norðurlandi 19 laugar
Á Austurlandi 4 laugar
Á Suðurlandi 12 laugar
Auk þessa eru upplýsingar um hveri, yl-
strendur, lón, laugar og veðurfar á síðunni.
SKRÁÐAR SUNDLAUGAR
Allir í sund Sundlauga-
gestum fjölgar á sumrin.
Vefsíðan sundlaugar.is er útskriftarverkefni Hollendingsins
Roberts Van Spanje Hagnýtar upplýsingar um laugar og hveri
„Þetta er eitt það vitlausasta sem
að ég hef heyrt í langan tíma“ segir
Ágúst Ólafur Ágústsson varafor-
maður Samfylkingarinnar um
vangaveltur Ögmundar Jónassonar
þingmanns Vinstri grænna um
mögulega uppsögn EES-samnings-
ins. Ögmundur segir í samtali við
24 stundir að hann sakni mjög
meiri dýptar í umræðu um Evr-
ópumál. „Evrópuumræðan er orð-
in mjög einhliða og öll á þann veg
að innganga í Evrópusambandið sé
töfralausn við okkar vandamálum.
Á sama tíma er aðild okkar að EES-
samningnum farin að setja okkur
miklar lýðræðislegar skorður. Við
hljótum að þurfa að endurmeta
kosti og galla þess að vera þátttak-
endur í þessu samstarfi. Ég vil að
fram fari málefnaleg umræða um
þessi mál.“
Ögmundur er tilfinningavera
Ágúst Ólafur segir að uppsögn
EES-samningsins komi alls ekki til
greina. „Vinstri grænir sanna með
þessum málflutningi að þeir eru
nátttröll í nútímanum. Sá upp-
gangur sem verið hefur í íslensku
efnahagslífi á undanförnum árum
er augljóslega að stærstum hluta
aðild okkar að Evrópska efnahags-
svæðinu að þakka.“
Lúðvík Bergvinsson þingflokks-
formaður Samfylkingarinnar segist
telja að Ögmundur hafi ekki meint
bókstaflega það sem hann skrifaði.
„Ögmundi þykir augljóslega miður
það álit Eftirlitsstofnunar EFTA að
Íbúðalánasjóður geti ekki starfað í
óbreyttri mynd og bregst við með
þessum hætti. Ögmundur er til-
finningavera og líkar þetta illa.
Hins vegar er þetta álit að mínu
mati hvorki fugl né fiskur og breyt-
ir svo sem engu á þessum tíma-
punkti. Ég held að þetta sé ástæðu-
laus pirringur hjá Ögmundi og ég
held að það sé enginn stuðningur
við þessi sjónarmið hjá Ögmundi
innan Vinstri grænna.“
Vantar meiri dýpt í umræðuna
Katrín Jakobsdóttir varaformað-
ur Vinstri grænna segir Ögmund
vera að lýsa sínum skoðunum en
ekki flokksins. „Þetta er ekki al-
menn skoðun flokksfélaga að mínu
mati en ég fagna því að Ögmundur
nálgist málið á gagnrýnan hátt. Það
þarf að fá meiri dýpt í Evrópuum-
ræðuna og það er ágætt að menn
þori að koma fram og benda á að
EES-samningurinn er ekki bara
dýrðin ein.“ freyr@24stundir.is
„Eitt það vitlausasta sem ég hef heyrt í langan tíma“
VG nátttröll í nútímanum?
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti í gær að halda áfram að
gefa nemendum í framhalds-
og háskólum frítt í strætó líkt
og síðasta vetur. Á fundinum
voru kynntar upplýsingar sem
sýndu fram á góðan árangur
af átakinu sem fólst meðal
annars í auknum fjölda far-
þega. ejg
Borgarráð Reykjavíkur
Borgin býður
frítt í strætó
Fyrsta úthlutun úr umhverf-
issjóði UMFÍ var veitt í fyrra-
dag. Minningarsjóðurinn er
kenndur við Pálma Gíslason,
sem var formaður UMFÍ árin
1979 til 1993. Alls nam styrk-
urinn milljón, en honum
skipti á milli sína Ungmenna-
félagið geisli á Súðavík, Sund-
félagið Grettir og Ungmenna-
félagið Ingólfur. hos
UMFÍ veitir styrki
Styrkir úr
umhverfissjóði