24 stundir - 04.07.2008, Side 8

24 stundir - 04.07.2008, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is „Það hefur verið mismunandi hvað við borgum mikið af húsnæðislán- inu okkar á mánuði,“ segir Krist- inn Þeyr Magnússon kvikmynda- tökumaður. „Við erum að borga mun meira en greiðsluáætlunin gerði ráð fyrir, en höfum áður einnig borgað mun minna, þrátt fyrir að hafa tekið tiltölulega lága upphæð að láni í erlendri mynt,“ „Ég er sammála því eldra fólki sem telur ótækt að tala um að nú sé kreppa,“ segir Rán Reynisdóttir sambýliskona hans. Neysluhegðun og lífsstíll „Kannski snýst þetta um neyslu fólks og lífsstíl,“ segir Rán sem nefnir að parið hafi selt annan bíl- inn og fengið sér hjól. „Svo er það matarkarfan, ég tel það vera mjög svo blóðugt að borga 9.000 kr. fyrir tvo poka í Bónus,“ segir hún og bætir við að allt hækki nema launin í dag. „Vinnudagarnir eru langir og það bitnar á fjölskyldunni.“ Flytja mögulega út „Við vorum heppin því við keyptum fyrir löngu síðan, en þeir sem eru að kaupa núna eru í vond- um málum, sérstaklega þeir sem hafa keypt sér húsnæði á erlendum lánum,“ segir Jóhanna Tryggva- dóttir 26 ára hjúkrunarfræðingur. Jóhanna segir að verð á matvöru haldi áfram að hækka í hvert skipti sem fjölskyldan verslar í matinn. „Ég er farin að breyta innkaup- unum verulega og er dauðfegin að barnið mitt er hætt á bleyju því þær eru fokdýrar,“ segir hún en bætir við að það harðni í ári á næsta ári þegar hún eignast sitt annað barn. „Þá verð ég ekki á fullum launum og get ekki ímyndað mér hvernig við munum ná endum saman.“ Jóhanna telur nær ómögulegt að fara í framhaldsnám hérlendis miðað við dýrtíðina og nefnir að fjölskyldan hugi að því að flytja hreinlega erlendis. „Við erum að hugsa um að flytja til Spánar, Dan- merkur eða Svíþjóðar.“ Hærri lánin hækka og hækka Ung móðir tekur í sama streng og segir líklegt að fjölskylda sín hugi sér til hreyfings. „Við fjármögnuðum einmitt íbúðarkaupin okkar á erlendum lánum,“ segir hún og tekur fram að lánið hafi hækkað um sjö til átta milljónir. „Lánið var að raunvirði 29 milljóna íslenskra króna en við tókum það í japönskum jenum, svissneskum franka og evrum en ákváðum síðar að taka evruna út,“ segir hún og bætir við að evran sé ekki vænlegur kostur í stað krónu. Kvíða kreppu og finnst allt hækka nema launin  Ungt fólk telur vinnudagana of langa og dýrt að lifa  Ungar mæður hyggjast flytja fjölskyldur sínar úr landi Kristinn á hjóli Rán og Kristinn ferðast mikið um á hjólinu. ➤ Kristinn og Rán tóku húsnæð-islán að raunvirði 11,9 millj- óna íslenskra króna, í jap- önskum jenum og svissneskum frönkum. ➤ Afborganirnar af láninu áttuað vera um 77.000 kr. á mán- uði, en eru í dag 90.880 kr. ➤ Þau tóku einnig íslenskt 2milljón króna lán til fimm ára en verðbætur af því hafa lægstar verið 317 kr. en hæstar verið 6.543 kr. ➤ Samtals borga þau 133.880kr. af báðum lánum en það hefur verið mismunandi hversu há afborgunin hefur verið á tímabilinu. Tekið skal fram að þau settu aðra íbúð upp í við kaupin. DÆMI UM HÚSNÆÐISLÁN Leikvellir í Reykjavík sem oft hafa gengið undir nafninu róló eru enn þá til, sex þeirra eru enn með gæslu. Margir foreldrar halda að þeir hafi allir verið lagðir niður. Adda Rut Jónsdóttir, umsjónar- maður leikvallarins við Njálsgötu segir sinn völl best sóttan í júlí. Þeir krakkar sem koma hingað einu sinni koma alltaf aftur. „Það er ástæða til að minna á að þessir vell- ir starfa enn á sumrin. Í ár eru þeir opnir til fimmtánda ágúst. Hjá okkur erum við að brydda upp á ýmsum nýjungum í sumar til að laða fólk að völlunum. Á þriðju- dagsmorgnum eru foreldramorgn- ar, með kaffi og hollustukexi og ávaxtasafi fyrir börnin. Á fimmtu- dögum eru listadagar sem er önnur nýjung og á föstudögum eru skemmtidagar. Við ræktum líka blóm og grænmeti með börnunum og reynum að hafa eitthvað um að vera allan tímann. Börn 2-6 ára fá gæslu hérna frá klukkan níu til tólf og frá eitt til hálffimm. Hvert skipti kostar 110 krónur, sem er auðvitað ekki neitt,“ segir Adda Rut. Við er- um mest úti, en höfum líka athvarf inni ef veðrið er leiðinlegt. beva@24stundir.is Halda að róluvellir hafi verið lagðir niður Róló og gæsluvellir enn í Reykjavík „Þetta er hiklaust frægasta kind Íslandssögunnar,“ segir Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauð- fjársetursins á Ströndum. Um miðja síðustu öld var Surtla hund- elt af smölum, hundum og skot- mönnum vegna mæðiveikinnar. Eftir margra klukkustunda elting- arleik var Surtla síðan felld ofan við Herdísarvík og vöktu örlög hennar mikla reiði því hún var talin heil- brigð. „Kindin Surtla er nálægt okkur í tíma, hún er í raun táknmynd frels- is og óspilltrar náttúru,“ segir Arn- ar og bætir við að til séu fjöldinn allur af kvæðum og greinum um hana. „Fólki er ráðlagt að snerta hana ekki en þetta er fyrsti mun- urinn á Sauðfjársetrinu sem fólk er beðið að koma ekki við,“ segir hann. „Surtla tekur á móti gestum um leið og þeir ganga inn, hún var fótfrá og stórgáfuð,“ segir hann. Höfuð Herdísarvíkur-Surtlu verð- ur til sýnis í sumar sem var fengið að láni hjá Sigurði Sigurðssyni dýralækni. asab@24stundir.is Herdísarvíkur-Surtla til sýnis á Sauðfjársetri Fótfrá og stórgáfuð

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.