24 stundir - 04.07.2008, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég vildi komast út í náttúruna,
hitta fólk frá öllum heims-
hornum, upplifa eitthvað spenn-
andi og monta mig af landinu
mínu,“ segir Vilhjálmur Goði
um ástæður þess að hann ákvað
að gerast leiðsögumaður um
landið.
Vilhjálmur hefur mikla
reynslu af því að skipuleggja
ferðir og fara með kvikmynda-
gerðarfólk og atvinnuljósmynd-
ara um landið.
„Ég fer alltaf skemmtilegustu
leiðina! Þessi skóli varð fyrir val-
inu þegar ég vildi læra leiðsögn,
eins og ég myndi sennilega velja
kokkaskólann ef ég myndi
ákveða að læra að verða kokkur.
En ég fór sum sé í afþreying-
arleiðsögn.“
Forfallinn náttúruunnandi
Spurður um hvað kveiki helst
í honum á ferðalögum hans um
landið segir hann: „Það er að
vaka yfir nótt á toppnum á Snæ-
fellsjökli á heiðskírri nótt í júlí,
Breiðamerkurlón hvernig sem
viðrar, Reynisfjara þegar það er
nýhætt að rigna og sólin brýst
fram, Hallormsstaðaskógur eld-
snemma á sumarmorgni
skömmu áður en sólin rís, speg-
ilsléttur Seyðisfjörður þegar sólin
er að dunda sér við að leysa upp
Austfjarðaþokuna, Flatey í logni,
Hvítá þegar maður hoppar út í
hana og lætur sig fljóta niður
með straumnum, leggjast í grá-
mosa lengst úti í hrauni í sólbað
og sofna við ilminn af blóðberg-
inu og að standa á Látrabjargi
og fá vindinn í fangið.“
Dýrindismáltíðir og grös
Blaðamaður hefur heyrt því
fleygt að Vilhjálmur sé ekki
ónýtur í að elda dýrindismáltíðir
handa ferðamönnum. Hvað
skyldi hann helst elda? „Það fer
mikið eftir þjóðerni. Ef ég er t.d.
með Svía þá er ég m.a. með síld,
reyktan og grafinn lax og alls
ekki gleyma piparrótinni! Ís-
lenski humarinn er elskaður af
öllum þjóðum. Ég grilla hann
gjarnan og líka hörpudisk,
lambafillet, silung, lúðusteikur,
skötusel. „Ég hef slegið upp
veislum við ýmsar aðstæður og
það hefur ekki ennþá verið
kvartað yfir matseldinni hjá mér.
Það er t.d. æðislegt þegar ferða-
mennirnir veiða silung uppi á
fjöllum og við grillum hann við
bakkann. Sérstaklega þegar mað-
ur getur tínt grös og jurtir úr
nágrenninu til að krydda með.
Ég meina hvað myndir þú vilja
smakka?,“ spyr Vilhjálmur.
Hvað með gítarinn? Er hann
tekinn með?
„Já, ég tek hann með ef mér
finnst það passa við stemn-
inguna. Ég söng íslenskt þjóðlag
fyrir 60 manna hóp frá Micro-
soft inni í Gjábakkahelli um
daginn og fékk þau til að syngja
með, það var svaka stuð.“
Villi Goði er forfallinn náttúruunnandi
Gítarspilandi fjallageit
„Klár, áreiðanlegur og
skemmtilegur,“ segir Vil-
hjálmur Goði Friðriksson
spurður um hvað ein-
kenni góðan leiðsögu-
mann. Vilhjálmur Goði
uppfyllir svo sannarlega
öll þessi skilyrði enda
þekktur fyrir létta lund,
uppátektarsemi, gítarspil
og óborganlegar mat-
arveislur í óbyggðum.
Skemmtilegur og
áreiðanlegur Vilhjálmur
Goði elskar náttúruna og
þá áskorun að gera
ferðalög ferðamanna að
upplifun sem þeir
gleyma seint.
Endurmenntun Háskóla Íslands
býður í fyrsta sinn haustið 2008
upp á leiðsögunám á háskólastigi.
Náminu er ætlað að styrkja enn
frekar fagmennsku og fjölbreyti-
leika í faginu. Nemendur geta
stundað staðnám eða fjarnám og
tekur námið þrjár annir.
Megináhersla námsins er lögð á
hagnýta þekkingu á sviði leiðsagn-
ar með erlenda ferðamenn. Miðað
er að því að nemendur geri sér
grein fyrir eðli og starfsemi ferða-
þjónustu á Íslandi og kunni skil á
hlutverki og ábyrgð leiðsögu-
manns.
Þjálfun í hópstjórn og sam-
skiptum við ferðamenn með ólíkar
væntingar er hluti af náminu. Far-
ið verður yfir ímynd lands og þjóð-
ar ásamt þýðingu atvinnugrein-
arinnar fyrir þjóðarbúið. Eftir
námið eiga nemendur m.a. að hafa
haldgóða þekkingu á helstu þátt-
um náttúrufars, sögu og menningu
Íslands ásamt þróun íslensks sam-
félags og geta miðlað þessari þekk-
ingu til ferðamanna.
Tungumálakunnáttan
Mikilvægt er fyrir leiðsögumenn
að vera vel að sér í erlendu tungu-
máli og því er lögð áhersla á auk-
inn sérhæfðan orðaforða sem
tengist sögu, menningu og náttúru
Íslands á völdu tungumáli.
Inntökuskilyrði í námið er stúd-
entspróf eða sambærileg menntun.
Gott vald á íslenskri tungu sem og
fullt vald á því tungumáli sem um-
sækjandi hyggst nota í leiðsögn.
Standast þarf inntökupróf í tungu-
málinu.
dista@24stundir.is
Nýtt nám í leiðsögu – bæði boðið upp á staðnám og fjarnám
Leiðsögunám á háskólastigi
Fjarnám í boði Hægt að
stunda námið með vinnu.
Það hefur löngum verið
vitað mál að tískan fer í
hringi eins og margt ann-
að. Það sem er í tísku einn
daginn getur dottið úr
tísku þann næsta og missir
því gildi sitt fyrir eigand-
anum. Við rennum hér yfir
lífshlaup tískufatnaðar.
Sýningarpallurinn
Allir helstu áhrifavaldar og
tískumógúlar mæta á tísku-
sýningar hjá heitustu
hönnuðunum. Haust- og
vetrarlínurnar eru lagðar
strax í febrúar og vor- og
sumartískan er sýnd í sept-
ember og október. New
York, London, Mílanó og
París eru stærstu tísku-
borgirnar í bransanum.
Hvað verður vin-
sælt? Sölustjórar og
hönnunarteymi greina
hvaða vörur eru líklegastar
til vinsælda eftir við-
brögðum eftir tískusýning-
arnar. Skissur og útlistanir
eru sendar til verksmiðj-
anna sem hefur framleiðslu
aðeins fáeinum dögum eft-
ir að tískusýningarnar fara
fram.
Úr skipum í búð-
arglugga Aðeins fjórum
til sex vikum síðar hafa mörg
þúsund flíkur verið framleiddar í
verksmiðjum tískuvöruframleið-
enda. Þeim er siglt um öll heims-
ins höf og dreift í búðir. Flest föt
baða sig í hillusviðsljósinu í sex
til tólf vikur áður en þau eru
lækkuð í tign og fara á útsölur
eða niður í skúffur.
Fólk á Vesturlöndum end-
urnýjar fataskápa sína á ógn-
arhraða en sem betur fer gefa
margir „úrelt“ föt til þeirra sem
minna mega sín og svo er ekki
óalgengt að föt gangi kaupum og
sölum á uppboðssíðum á borð
við www.ebay.com.
haukurh@24stundir.is
Miskunnarlaus heimur tískufatnaðar
Tískusýning
Skyldi þessi flík ná
í búðargluggana?
Tískan fer í hringi
Erum með sértilboð á tveimur frístundahúsum sem komin eru til landsins
og eru óuppsett. Húsin eru tilbúin að utan með einangruðum veggjum.
Efni í rafmagnsgrind og milliveggjaefni fylgir. Gerum föst tilboð í sökkla-
vinnu, uppsetningu og annan frágang.
Stærð 118.7 fm. Hús klætt með jatoba og stáli, gluggar og hurðir eru úr
furu. Verð kr. 11.600.000,- TILBOÐ KR. 9.800.000,-
Stærð 118.7 fm. hús klætt með jatoba og stáli, gluggar og hurðir eru úr
mahogany. Verð kr. 12.000.000,- TILBOÐ KR. 10.200.000,-
TILBOÐ Á FRÍSTUNDAHÚSUM
Kverkus ehf. Síðumúli 31
Símar 581 2220, 858 0200 eða 840 0470.
kverkus@kverkus.is www.kverkus.is
Nýjar
sumarvörur
frá Brand og
Mona Lisa
Stærðir 40 - 60