24 stundir - 04.07.2008, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008 24stundir
Franski tískurisinn Louis Vuitt-
on hefur fengið einn vinsælasta
tónlistarmann í heiminum í dag,
Kanye West, í lið með sér en þessi
bandaríski rappari mun hanna skó
fyrir Louis Vuitton fyrir næsta
sumar. Skórnir verða að teljast lík-
legir til vinsælda enda nýtur hönn-
uðurinn fáheyrðra vinsælda. West
ku vera mikill áhugamaður um
tísku og segist eyða bróðurpart-
inum af þeim frítíma sem hann fær
í að fara á tískusýningar út um all-
an heim. hh
Kanye West mun hanna
skó fyrir Louis Vuitton
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Léttir pólóbolir og ljósar skyrtur,
jafnvel úr hör, er það sem menn
spyrja mest um í augnablikinu.
Einnig léttar gallabuxur,“ segir
Hermann Hauksson, meðeigandi
í Sævari Karli. „Veðrið hefur verið
gott að undanförnu og þá vilja
menn vera í ljósari fötum. Íslend-
ingar kaupa sér svart 80% af
árinu en þegar við loksins fáum
sól í tvær vikur vilja allir fara í
ljóst.“
Pólóbolir og léttar skyrtur
Hermann segir sumarvörurnar
hjá Dolce&Gabbana vera sér-
staklega vinsælar í búðinni um
þessar mundir. „Dolce&Gabbana
höfðar mikið til yngri kynslóð-
arinnar. Þá erum við að tala um
leðurjakka, létta boli og þröngar,
aðsniðnar skyrtur. Svolítið stráka-
legar og gæjalegar,“ segir Her-
mann. Hann bendir á að sjón-
varpsmaðurinn Þorsteinn J. hafi
mikið til klæðst Dolce&Gabbana-
fötum í útsendingum á EM í
sumar en hann hefur vakið at-
hygli fyrir góðan klæðaburð.
Hermann segist hins vegar ekki
taka eftir því að ákveðin föt séu
sérstaklega „út“ núna. „Mér finnst
menn vera að blanda þessu svolít-
ið vel. Við seljum náttúrlega
minna af til dæmis svörtum stök-
um jökkum á sumrin en svo tek-
ur salan á þeim kipp um leið og
það fer að kólna. Eins er lítil eft-
irspurn eftir peysum í augnablik-
inu. Menn eru lítið að pæla í
þeim núna.“
Hráar gallabuxur og hippaandi
Blængur Sigurðsson, versl-
unarstjóri G-Star á Laugavegi,
tekur undir að ljósu fötin komi
sterkari inn á sumrin. Dökku föt-
in séu þó, eftir sem áður, vinsæl-
ust á þeim bænum. „Dökkar
gallabuxur úr svolítið hráu efni
hafa verið vinsælastar hjá okkur.
Pólóbolir verða líka sífellt vinsælli
og fara mjög vel við slíkar galla-
buxur. Þeir eru teknir í öllum lit-
um,“ segir Blængur.
Hann segist einnig finna fyrir
áberandi breytingu á því hversu
mikið léttari föt fólk kaupi sér á
sumrin. „Það er mikil eftirspurn
eftir stuttermaskyrtum, stuttum
buxum og léttum jökkum,“ segir
Blængur. Hann kveðst finna fyrir
því að tískan í dag beri nokkurn
keim af hippatímabilinu. „Útvíðar
gallabuxur eru til dæmis farnar að
verða vinsælar hjá stelpum. En
annars hef ég ekki tekið eftir því
að það sé eitthvað nýtt að koma
áberandi sterkt inn eða að eitt-
hvað sé sérstaklega á útleið,“ segir
Blængur.
Hermann í Sævari Karli og Blængur í G-Star eru vel inni í herratískunni í sumar
Létt og ljóst vinsælast hjá strákunum
Íslendingar, sem almennt
klæðast dökkum fötum,
sækja í auknum mæli í
ljósan klæðnað þegar sól-
in skín. Pólóbolir eru sér-
staklega vinsælir í sumar
og önnur létt föt, bæði
skyrtur og gallabuxur,
koma einnig sterk inn.
Blængur Í hefðbundinni
G-Star-skyrtu og svört-
um niðurþröngum galla-
buxum.
Hermann Í leðurjakka,
skyrtu, gallabuxum og
með belti. Allt frá Dolce-
&Gabbana sem er eitt
heitasta merkið í Sævari
Karli í sumar.
Tískugagnrýnendur sem voru
viðstaddir kynningu á herralín-
unni fyrir vorið 2009 í París sem
lauk á sunnudaginn segjast greina
breytingu á herratískunni. Hún sé
einfaldlega að verða mun kvenlegri
en áður.
Pallíettur, silki og bleikir litir
„Það sem sló mig mest er að sjá
hvað er mikið af flíkum sem hing-
að til hafa talist til kvennalínunnar
sem nú eru hluti af herralínunni,“
segir Michael Roberts sem er yf-
irmaður tískumála hjá Vanity Fair
tískutímaritinu. Michael við-
urkenndi einnig að hafa stundum
gleymt sér og haldið að hann væri
staddur á dömutískusýningu inn-
an um allt silkið, pallíetturnar og
bleiku litina.
hh
Herralínan 2009 kynnt í París á dögunum
Karltískan að verða kvenlegri
Gulllitaðar með demöntum
Þessar herrabuxur eru tákn um nýja
tíma í tískuheiminum.