24 stundir - 05.09.2008, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Samgönguráðherra telur ekki að
draga muni úr póstþjónustu þrátt
fyrir ákvörðun stjórnar Íslands-
pósts um að loka fjórum pósthús-
um á landsbyggðinni. Landpóstar
muni auka þjónustu sína.
Fjórum pósthúsum lokað
Á fundi stjórnar Íslandspósts
síðasta þriðjudag var tekin ákvörð-
un um að loka pósthúsum á
Króksfjarðarnesi, í Varmahlíð, á
Laugum og í Reykholti. Sveitar-
stjórnir og íbúar á svæðunum hafa
lýst allmiklum áhyggjum af því að
lokanirnar muni valda skertri
þjónustu. Sveitarstjórn Reykhóla-
hrepps hefur sent samgönguráð-
herra erindi þar sem þess er farið á
leit við hann að gildistöku ákvörð-
unar um lokun á Króksfjarðarnesi
verði skotið á frest á meðan farið
verði yfir málið með lögmönnum.
Kristján Möller samgönguráð-
herra segir að hann hafi beint
þeirri ósk til stjórnar Íslandspósts
að lokanir pósthúsa muni miðast
við að uppbygging háhraðanet-
tenginga sé langt komin eða lokið á
svæðunum. „Varðandi ósk sveitar-
stjórnar Reykhólahrepps um frest
þá lít ég svo á að þar verði pósthús-
inu ekki lokað fyrr en búið verður
að byggja upp háhraðanettengingu
á svæðinu. Almennt tel ég ekki að
þjónusta muni versna því að land-
póstar munu taka við og sinna því
hlutverki sem pósthúsin sinntu áð-
ur. Það má því segja að þjónustan
geti í sumum tilvikum aukist.“
Landpóstar eiga að sinna verkefnum pósthúsa sem lögð verða niður á landsbyggðinni
Háhraðanettengingar leysa pósthúsin af hólmi
➤ Útboð vegna uppbyggingarháhraðanettengingar á lands-
byggðinni voru opnuð í gær.
➤ Í bókun stjórnar Íslandspóster sagt að lokun pósthúsa
skuli miðast við þá uppbygg-
ingu eftir því sem kostur er.
HÁHRAÐATENGINGAR
Samgönguráðherra
Kristján segir að lokun
pósthúsa eigi að haldast í
hendur við uppbyggingu
háhraðanettenginga.
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
„Það er ekkert að ræða og við
þurfum ekki að fara á fundi til að
horfa hvert á annað,“ sagði Guð-
laug Einarsdóttir, formaður Félags
ljósmæðra, eftir misheppnaðan
samningafund í gær.
„Engu var bætt við tilboðið frá
síðasta fundi, sem var mjög langt
frá leiðréttingunni sem við þurf-
um.“
Bjuggust við breytingu
„Afdráttarlausar stuðningsyfir-
lýsingar úr stjórn og stjórnarand-
stöðu, frá samstarfsfólki og víða úr
þjóðfélaginu eru dýrmætar,“ segir
Guðlaug, en veit ekki hvað stuðn-
ingurinn þýðir, ef ekkert meira ger-
ist. „Þetta kemur, hríðirnar vinna
sitt verk og það hlýtur að koma að
þessari fæðingu, hvernig sem hana
ber að.“ Ljósmæður ætla að halda
áfram yfirsetunni, yfir samningun-
um og fjármálaráðherra. „Það eru
engar hríðir núna.“
Geta ekki bakkað
Nú undirbúa ljósmæður næsta
fund 9. september, en þær ætla ekki
að slaka á neinum kröfum.
„Við getum það ekki. Til þess
eins að standa jafnfætis öðrum
verður krafan ekki minni. Það
kemur á óvart að ekki skyldi hafa
bæst neitt við tilboð ríkisins, miðað
við þau orð sem fallið hafa á Al-
þingi, síðustu daga,“ segir Guð-
laug.
Bíða stuðnings ráðherra
Ljósmæður hafa óskað eftir
fundi með Jóhönnu Sigurðardótt-
ur félagsmálaráðherra, til að ræða
störf nefnda til að eyða kynbundn-
um launamun. „Þann fund höfum
við ekki fengið, óskuðum eftir
honum snemma í ágúst eftir að
deilan var byrjuð. Og við bindum
ekki neinar sérstakar vonir við
jafnréttisþing seinna í haust.
Reynsla okkar af að skrifa undir
vonir og væntingar er ekki góð. Í
síðasta kjarasamningi var skrifað
undir yfirlýsingu um að meta ætti
menntun okkar. Það var ekki gert.“
Nálægt neyðar-
mönnun alla daga
Ljósmæðrum kemur á óvart að samúð með kröfum þeirra breyti engu um tilboð í
samningum Skrifa ekki oftar undir vonir og væntingar
Ljósmæður Verðandi mæður
og mæður sýna samhug.
➤ Við störf undanþágu-nefndar hefur komið fram
mikil dagleg undirmönnun.
➤ Á sumum stöðum er fjöldiljósmæðra undir neyð-
armörkum þótt ekki sé
verkfall.
UNDANÞÁGULISTAR
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar-
bæjar hefur falið hafnarstjóran-
um, Má Sveinbjörnssyni, að und-
irrita viðskiptasamning við
GlacierWorld ehf. Fyrirtækið
hyggst flytja út vatn úr vatnsbóli
bæjarins, Kaldárbotnum.
Már segir að samningurinn sé
aukasamningur við þann um
vatnstökuna. Stefnt sé að því að
flytja út 5000 tonn úr höfninni til
að byrja með. Fyrirtækið fái að-
stöðu á hafnarsvæðinu til að
tappa vatninu á til útflutnings, en
það verði flutt um vatnspípur
þangað. Þannig sparist flutnings-
kostnaðurinn. Unnið sé að und-
irbúningnum sem taki eitt og
hálft til þrjú ár.
Magnús Magnússon verkfræð-
ingur fer fyrir fyrirtækinu.
gag@24stundir.is
Vatnsútflutningur frá Hafnarfirði
Átöppun í höfninni
Það er lögbrot að planta hlutum
í jörð í von um að rugla fornleifa-
fræðinga. Verði Kristín Huld Sig-
urðardóttir, forstöðumaður Forn-
leifaverndar ríkisins, og starfsmenn
hennar vör við að menn leiki hrekk
Gylfa Traustasonar eftir ætlar hún
að kæra.
Gylfi gróf kínverskar styttur nið-
ur við fornleifarnar á Gásum í
Eyjafirði fyrir nokkrum árum.
Hann á þó ekki von á kæru.
„Fólk þekkir ekki alltaf lögin og
því vil ég vekja athygli á þeim,“ seg-
ir Kristín. „Það má ekki hylja for-
leifar, eða grafa í þær. Það er lög-
brot. Ef ég verð vör við að aðrir geri
þetta munum við taka á því,“ segir
hún.
„Ég hræðist að mönnum finnist
þetta svo ofboðslega fyndið að þeir
vilji leika sama leikinn. En með því
eyðileggur fólk ekki aðeins fyrir
sérfræðingum að störfum heldur
einnig fyrir sjálfu sér.“
Kristín hefur áður heyrt af
mönnum sem vilja hrekkja forn-
leifafræðinga.
„Þetta hefur viðgengist í gegnum
tíðina. Fyrir mjög mörgum árum
var grafinn niður járngripur sem
ruglaði fornleifafræðinginn. Svo
veit ég til þess að peningar hafi ver-
ið settur niður. Það er hins vegar
mjög slæmt því peningar eru not-
aðir til þess að aldursgreina rústir. “
Kristín segir kímni manna ólíka.
„Ég geri mér grein fyrir því að þeir
fornleifafræðingar sem grófu á
Gásum hafi haft húmor fyrir kín-
versku styttunum enda erfitt að
rugla þeim saman við fornminjar,
en okkur í stjórnsýslunni finnst
þetta ekki fyndið. Þetta er lögbrot,
ekkert annað.“ gag@24stundir.is
Forstöðumaður fornleifaverndar ríkisins hræðist eftirhermur
Ætla að kæra hrekkjalóma
Gylfi Traustason Hrekkur Gylfa
fyndinn en ekki til eftirbreytni.
Ásta Möller, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og formaður
heilbrigðisnefndar Alþingis,
telur laun ljósmæðra allt of
lág. Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir þingmaður og
flokkssystur hennar í Sam-
fylkingunni hafa lýst stuðn-
ingi við kröfurnar. Árni Mat-
hiesen fjármálaráðherra telur
svigrúm þröngt til leiðréttinga
og Steinunn Valdís segir
reynsluna sýna að misrétti
verði ekki leiðrétt í einni svip-
an og vísar til nefnda og jafn-
réttisþings í haust. bee
Konur í stjórnarflokkum
Vilja hækka
laun ljósmæðra
Nokkur samtök hafa sent frá
sér stuðningsyfirlýsingu við
ljósmæður í verkfalli og hyggj-
ast mæta á Austurvöll í hádeg-
inu á morgun til að sýna þann
stuðning. Þetta eru Femínsta-
félagið, Kvenréttindafélagið,
Flugfreyjufélagið, Félag hjúkr-
unarfræðinga, Læknafélagið,
Kennarasambandið, Félag
framsóknarkvenna og Vinstri
hreyfingin – grænt framboð.
Ljósmæður ætla líka að mæta.
bee
Samtök sýna samstöðu
Styðja verkfall
ljósmæðranna