24 stundir - 05.09.2008, Side 19
24stundir FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 19
Eftir Kjartan Þorbjörnsson
veidi@24stundir.is
Laxveiðin í Rangánum hefur verið
lygileg í sumar. Seiðasleppingar
hafa greinilega heppnast vel í fyrra
og vaxtarskilyrði laxins í sjónum
hljóta að vera góð. Nú þegar hafa
árnar sprengt alla skala og sú ytri
nálgast óðfluga 10 þúsundasta lax-
inn. Um síðustu helgi var þar opn-
að fyrir maðkaveiði, en laxinum
hefur eingöngu verið boðin fluga
það sem af er sumri. Það er ekki að
sökum að spyrja að á þremur dög-
um lönduðu veiðimenn á 18 stang-
ir nálægt 1100 löxum! Ef við setj-
um upp frekar ósanngjarna
viðmiðun, þá er þetta svipuð veiði
og kemur að meðaltali, á heilu
sumri, úr ám eins og Miðfjarðará,
Laxá í Dölum, Blöndu og Laxá í
Aðaldal. Þriggja daga veiði í Ytri-
Rangá hefur sem sagt náð sumar-
veiði náttúrulegrar laxveiðiár.
Kaldur Hróarslækur
Ein af þverám Ytri-Rangár er
Hróarslækur. Þar hefur á seinni ár-
um verið sleppt seiðum líkt og gert
er í Rangánum. Veiðimenn sem
voru við veiðar um síðustu helgi
sögðust ekki hafa séð mikið af laxi.
Þeir gengu þó nokkuð meðfram
ánni í leit að fiski en sáu hvergi eða
urðu varir við líf. Eini staðurinn
sem geymdi lax voru ármótin við
Rangá. „Lækurinn er ískaldur. Ég
mældi hann fjórar gráður meðan
Rangáin var sex gráður á straum-
skilunum. Það síðasta sem laxinn
vill er að fara úr sex gráðum í fjór-
ar,“ sagði einn veiðimannanna.
Hann sagði að samkvæmt veiðibók
væru komnir um 200 laxar á land,
þar af nálægt 90 prósent upp úr ár-
mótunum. „Það geta tveir veitt í
ármótunum á sama tíma en stað-
urinn ber ekki meira en það.“
Hópurinn náði fjórtán löxum á
tveimur dögum, en veitt er á fjórar
stangir í Hróarslæk. Veiðimaður-
inn sagði alla veiðina hafa komið
úr ármótunum og mest hafa komið
á spún.
Hítará
Fern hjón sem veiddu í Hítará á
Mýrum um síðustu helgi áttu þar
góða daga. Áin er þegar búin að
gefa fleiri laxa en nokkru sinni áð-
ur, fór yfir þúsund laxa fyrir mán-
aðamótin ágúst-september. Enn er
þó mikill lax í ánni. Staðir eins og
Langidráttur, Grettisbæli, Grettis-
stiklur, Ármót og Bakkastrengir
eru hreinlega fullir af laxi. Veiði-
menn urðu lítið varir við fisk á
svæðinu fyrir neðan veiðihús og
greinilegt er að laxinn á mjög
greiða uppgöngu upp fossinn við
þjóðveginn. Búið er að byggja nýja
brú yfir Hítará og eldri brúin hefur
verið fjarlægð. Sú framkvæmd er
mjög vel heppnuð og allur frágang-
ur til fyrirmyndar við ána.
Á fyrstu vakt var brjálað veður.
Fyrsta hauslægðin hafði læðst upp
að landinu vestanverðu og jós rign-
ingu og roki yfir landið. Þetta virt-
ist þó eingöngu kæta laxinn því þar
sem hægt var að kasta flugu, settu
menn í laxa. Á fjórum vöktum tók
hópurinn 22 laxa. Athyglisvert er
að eftir mikla veiði fyrstu tvær
vaktirnar datt öll taka niður á
þriðju vaktinni og enginn lax náð-
ist. Á sama tíma voru menn að
veiða í Flekkudalsá á Fellsströnd.
Þar var nákvæmlega sama munstur
í gangi. Mikil veiði fyrstu tvær
vaktirnar og síðan enginn lax á
þriðu vakt. Þessi tvo holl, annað í
Hítará og hitt í Flekkudalsá, héld-
ust þétt í hendur. Úr Hítará komu
22 laxar en 23 úr Flekkunni. Fyrstu
tvær vaktirnar fengu nánast alla
laxana í Flekkunni og langstærsta
partinn af veiðinni í Hítaránni.
Tóku sumarveiði góðrar laxveiðár á þremur dögum
Lygileg veiði
Hítará á Mýrum Laxveiðin
hefur verið lygileg í sumar.
24stundir/Golli
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Það geta tveir veitt í ármót-
unum á sama tíma en stað-
urinn ber ekki meira en það.
veiði
,,Því stærri því betra,“ sagði
veiðimaðurinn og gerði mál með
höndunum svo minnti á eins og
hálfs punds urriða. ,,Hún á að vera
minkur.“ Hann var að tala um Sun
Ray Shadow.
Sun Ray komst á spjöldin hjá
okkur á flugur.is eftir veiðisumarið
2003 og birtum við grein sem hét:
„Spútnikflugan Sun Ray Shadow“.
Hún er miklu eldri, auðvitað, en
hefur sótt verulega á hjá veiði-
mönnum á liðnum árum.
Ég nota hana ca. fimm senti-
metra langa eða svo, aðallega sem
flottúpu en einnig sem gárutúpu
og þá heldur minni. Ennþá stærri
eru í boxinu en ég hef nú ekki feng-
ið á þær í „minksstærð“ enn enda
nota ég þær eiginlega aldrei.
Menn rífast mikið um Sun Ray,
telja hana eyðileggja veiðistaði því
annað hvort geri hún allt vitlaust í
töku eða drepi laxinn í dróma. Sem
dæmi má nefna grein á flugur.is
sem heitir: „Að sunreyja allt í
klessu.“ Ég hef heyrt veiðimenn
tala um hana eins og argasta dóna-
skap. Sögur af „löxum“ í losti eftir
Sun Ray-yfirferð hafa komist á
prent með viðeigandi blótsyrðum.
Sjálfur fer ég ekki mikið í lax, en
hef hana alltaf með og hika ekki við
að setja flottúpu undir sem fyrsta
val og athuga hvort ekki kemur líf.
Læt hana skára spegla og rispa.
Mér reyndari laxveiðimenn vitna
þvert gegn þessu og segja að maður
eigi alls ekki að kasta henni í byrjun
yfirferðar, og reyna hana ekki fyrr
en öllu er lokið, sem og þá aðeins
sem örvæntingarfullt lokabragð. Í
nafni hlutlægrar blaðamennsku er
því báðum viðhorfum haldið til
haga. En þá verðum við að muna
að útgáfurnar eru margar. Allt frá
20 cm löngum „minkum“ með
keiluhaus niður í hálfrar tommu
gárutúpur. Það er því hægt að
„sunreyja“ fínlega. En um þetta má
lesa í fræðigreinum á flugur.is!
Önnur fluga sem margir sverja
og sárt við leggja að sé hin end-
anlega fluga er „Þýskaland, Snæld-
an hans Gríms“. Þetta er túpa og
margir leiðsögumenn heimta að
nýgræðingar á bakkanum setji
hana og ekkert annað undir og hafi
hana á allan daginn. Hvílík veiði-
mennska. Útgáfurnar af Snældu
Gríms eru margar, en þessi er með
hala sem er í þýsku fánalitunum og
þaðan kemur nafnið. Í Rangánum
er hún vinsæl, ja, og hvar ekki þar
sem stórveiðimenn koma saman?
Það sama gildir um hana og Sun
Ray: Eftir að Snældan fer yfir þýðir
lítið að reyna annað segja margir.
Ekki er það nú víst. Hitt þykir
drengilegra að nálgast veiðistað
með ákveðinni virðingu og her-
tækni í huga. Einfalda reglan er
þessi: Byrja á yfirborðsflugu, svo
sem gárutúpu af minni gerð. Fara
næst í örtúpu og prófa hraðan inn-
drátt, svo í millistóra flugu og leita
betur, þyngja kannski með keilu-
haus framan á flugunni og enda
loks á stórri túpu. Og þá er ekki vit-
laust að veðja á Snældu. En hvað
sem menn gera þá ætti enginn að
gleyma góðu heilræði: Prófa það
sem enginn annar hefur sýnt lax-
inum. Sleppa bæði Sun Ray og
Snældu, Francis og Black Brahan
og fara beint í einhverja flugu sem
hvergi kemur fram í bókum veiði-
hússins. Það held ég nú að verði
bingó.
Sun Ray Shadow og Þýskaland
Tvær skæðar
Stefán Jón
Hafstein
skrifar um veiði.
VEIDDU BETUR
Sun Ray Shadow Mikið er
rifist um Sun Ray Shadow.