24 stundir - 05.09.2008, Blaðsíða 22
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Ég get ekki Trabantlaus verið. Það
hefur sennilega verið um 1976 sem
ég kynntist Trabantinum fyrst. Þá
stóð til að henda einum slíkum og
ég fékk að hirða hann,“ segir Örn
Ingólfsson, eini Íslendingurinn sem
tekur þátt í rallinu, en hann hefur
átt Trabant svo áratugum skiptir.
Og stundum fleiri en einn í einu.
„Það er nú bara sáralítið til af
þeim hér á landi. Ég veit að það
voru tíu á skrá í fyrra og þar af átti
ég 20 prósent. Ég á sem sagt tvo,
þennan gamla sem ég ætla á í rallið
en svo á ég annan sem verður forn-
bíll á næsta ári þegar hann verður
25 ára.“ Og Örn segist eiginlega
ekki hafa áhuga á öðrum bílum en
Trabantinum. „Trabantinn er svo
sérstaklega gerður. Hann er svo lík-
ur mér því hann er einfeldningur.“
Engar torfærur
Þótt fornbílarnir séu að fara í rall
þá segir Örn að ekki standi til að
senda þá í neinar torfærur.
„Þetta verður miklu heldur góð-
akstur. Það verður gefinn upp með-
alhraði sem maður á að reyna að
halda á leiðunum. Svo verða refsi-
stig ef maður kemur of fljótt eða
seint.“ Og hann hefur ekki áhyggj-
ur af því að fara yfir Kjöl á 46 ára
gömlum bíl. „Það mun ekki fara
neitt illa með Trabantinn, ég hef
farið yfir Kjöl nokkrum sinnum á
honum. En ég get ekki svarað fyrir
hina. Þarna eru svo margir bílar og
suma hef ég aldrei heyrt nefnda.“
En ætlarðu að halda áfram að
eiga alltaf Trabant?
„Það er nú meiningin!“
Fjöldi erlendra fornbíla tekur þátt í ralli um Ísland
Kjölur fer ekki illa
með Trabantinn
Alls 65 fornbílar víða að
úr heiminum hafa verið
fluttir til landsins til þess
að taka þátt í ralli dagana
7.-12. september þar sem
meðal annars verður ekið
yfir Kjöl. Einn Íslendingur
tekur þátt en hann verð-
ur á Trabant frá árinu
1962 en elsti bíllinn í rall-
inu er Bentley frá 1922.
Góðir saman Örn segir
að Trabantinn sé einfaldur
eins og hann sjálfur.
➤ Elsti bíllinn er frá árinu 1922og sá yngsti frá 1981.
➤ Breski akstursíþróttaklúbb-urinn HERO (hero.org.uk)
stendur fyrir rallinu.
➤ Þann 7. september fara bíl-arnir um Þingvelli, Gullfoss
og Geysi.
FORNBÍLARALLIÐ
24stundir/Valdís Thor
22 FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2008 24stundir
Svokallaður blindur blettur er
það svæði sem ekki er sýnilegt öku-
manni þegar hann horfir fram á
við eða í spegla. Þetta svæði er ná-
lægt afturhluta bílsins á báðum
hliðum og ekki er óalgengt að bíl-
stjórar lendi í tjóni vegna þessa, til
dæmis þegar skipt er um akrein.
En hönnuðir Ford hafa nú sagt
blinda blettinum stríð á hendur og
kynnt nýja gerð hliðarspegils. Hlið-
arspegillinn er að sögn sá fyrsti sem
sýnir blinda blettinn og er hann
búinn einskonar aukaspegli í horni
spegilsins sem eykur sjónsvið bíl-
stjórans til muna.
Verður staðalbúnaður
Nýi spegillinn verður staðalbún-
aður í Ford Edge 2009 en að sögn
framleiðenda er þetta útspil svar
við auknum öryggiskröfum neyt-
enda.
„Nýi spegillinn er þáttur í þeirri
áætlun okkar að bregðast snöggt
við kröfum neytenda, vera leiðandi
í iðnaðinum og auka upplifun öku-
manna,“ segir Derrick Kuzak, að-
stoðarforstjóri vöruþróunar hjá
Ford, en síðar er stefnt á að koma
speglinum fyrir í fleiri bílum fram-
leiðandans.
Notendur ánægðir
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem gerð hefur verið á meðal
fyrstu notenda spegilsins eru flestir
ánægðir. Þannig sögðu 76 prósent
að spegillinn yki sjálfsöryggi þeirra
í umferðinni og þar að auki sögðu
flestir að auðvelt væri að venjast
því að nota hann.
haukurj@24stundir.is
Ný gerð hliðarspegla eykur öryggi bílstjóra í umferðinni
Blindi bletturinn heyrir sögunni til
Toyota er óskoraður sigurvegari
þegar kemur að framleiðslu vin-
sæls tvinnbíls. En nú kannar bíla-
risinn möguleikann á því að
skapa bíl sem eingöngu gengur
fyrir rafmagni. Mun það að öllum
líkindum verða smágerður borg-
arbíll og kæmi hann á markað á
fyrri hluta næsta áratugar. hj
Rafmagnsbíll
frá Toyota?
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is bílar
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Föstudagur 5. september 2008
Spilar fótbolta og finnst
ís svo ósköp góður.
» Meira í Morgunblaðinu
Fjölhæfur hrútur
Þriðja sæti í riðli fyrir HM
er besti árangur til þessa.
» Meira í Morgunblaðinu
Ísland og Noregur
Sýning í Kling og bang og
frumsýnir Háveruleika.
» Meira í Morgunblaðinu
Liðtæk í listinni
Organ lifði í eitt ár en nú
er búið að loka.
» Meira í Morgunblaðinu
Úti er ævintýri
Í samkeppni við íslenskt
hugvit, ekki íslenskan fisk.
» Meira í Morgunblaðinu
Erfiður markaður
Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík
höggdeyfar eru orginal
hlutir frá USA og E.E.S.
Aisin kúplings-
sett eru orginal
hlutir frá Japan
varahlutir í miklu úrvali