24 stundir - 17.09.2008, Page 6

24 stundir - 17.09.2008, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 24stundir Hrökkvi eignir Tryggingarsjóðs ekki til að greiða heildarfjárhæð innstæðna fari fjármálastofnun á hausinn á að skipta greiðslum kröfuhafa þannig að krafa hvers þeirra upp á allt að 2,5 milljónir króna er bætt að fullu. Allt umfram það er bætt hlutfallslega, að því er Jónas Þórðarson, framkvæmda- stjóri sjóðsins greinir frá. Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, telur að neytendur séu ekki nægilega vel upplýstir um lág- markstryggingarverndina. „Í Sví- þjóð stendur upphæðin á árlegu yf- irliti frá bönkunum. Hér er farið með þetta eins og viðkvæmt mál,“ segir Þuríður. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, kveðst ekki telja að lág- marksupphæðin þurfi að vera hærri. „Ef menn eiga meira fé geta þeir dreift því á milli bankanna.“ Í samræmi við ákvæði tilskipun- ar Evrópusambandsins um inn- lánstryggingar er Ísland, sem aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, lagalega skuldbundið til að upp- fylla lágmarkstryggingarvernd að fjárhæð 20 þúsund evrur. Lág- markstryggingarfjárhæðin hér á landi jafngildir rúmlega þeirri upp- hæð eða 20.887 evrum. „Þetta er pólitískt mat á hverjum tíma. Lág- marksupphæðin í Svíþjóð og Finn- landi er 25 þúsund evrur en í Nor- egi er upphæðin miklu hærri,“ greinir Jónas frá. Tryggingarsjóður, sem sam- kvæmt lögum á að eiga 1 prósent af innstæðum á hverjum tíma, átti í mars á síðasta ári um 12,5 millj- arða króna. Aðildarfyrirtæki sjóðs- ins eru bankar og önnur fyrirtæki sem hafa heimild til að taka við innlánum og standa þau skil á greiðslum til sjóðsins. Að sögn Jónasar hefur ávöxtun sjóðsins, sem ekki má fjárfesta í hlutabréf- um, verið mjög góð í ár. „Sjóður- inn á mikið af erlendum eignum, aðallega skuldabréfum, og vegna falls krónunnar hefur ávöxtunin verið góð.“ ingibjorg@24stundir.is Greiðslur úr Tryggingarsjóði vegna gjaldþrots fjármálastofnana 2,5 milljónir bættar að fullu Eftir Magnús Halldórsson magnush@24stundir.is Þróunar- og fjárfestingarfélagið Nýsir rambar á barmi gjaldþrots samkvæmt heimildum 24 stunda. Unnið hefur verið að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins undanfarna mánuði og vikur. Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Nýsis, segir að unnið sé að því hörðum höndum að létta á greiðslubyrði lána félagsins til þess að tryggja áframhaldandi rekstur þess. Endurfjármagna þarf sjö til tíu milljarða af skammtímalánum félagsins á þessu ári svo að rekstur félagsins geti gengið áfram. Auk þess þarf að endurskipuleggja lán félagsins til lengri tíma. „Niður- staða liggur fyrir innan nokkurra vikna frekar en mánaða,“ segir Höskuldur. Landsbankinn stærstur Stærsti lánveitandi Nýsis er Landsbankinn og hefur hann, í samráði við aðra lánveitendur fé- lagsins, leitt vinnu sem miðar að því að bjarga félaginu frá gjaldþroti og lánveitendum þess frá vandræð- um vegna þess. Samkvæmt heimildum 24 stunda kemur vel til greina að lán- veitendur félagsins verði eigendur þess, að minnsta kosti að hluta til. Rætt hefur verið um ýmsar lausnir á stöðu Nýsis, þar á meðal hvernig unnt sé að auka hlutafé, selja eignir og framlengja íþyngjandi lán fé- lagsins. Óveðtryggðar skuldir Nýsis nema tæplega fimmtán milljörðum króna. Þær eru að mestu í formi víxla og skuldabréfa. Meirihluti eigenda þeirra eru lífeyris-, verð- bréfa- og fjárfestingarsjóðir. Skuldir Nýsis nema um fimmtíu milljörðum króna líkt og eignir fé- lagsins. Eigið fé félagsins er því lítið sem ekkert. Viðmælendur 24 stunda voru sammála um að lánveitendur væru að reyna að „halda lífi“ í félaginu með öllum mögulegum ráðum. Meðal annarra lánveitenda Nýsis eru Glitnir, Kaupþing og Aareal Bank sem er með höfuðstöðvar í Þýskalandi. Hann var fjárhagslegur bakhjarl Nýsis í verkefnum félags- ins í Danmörku. Samtals ræður Nýsir yfir meira en 200 þúsund fermetrum af at- vinnuhúsnæði sem leigt er til fyr- irtækja og opinberra stofnana á Ís- landi, í Bretlandi og Danmörku. Áður hefur verið greint frá því í 24 stundum að vandræði fóru að skapast í rekstri Nýsis þegar alþjóð- leg lausfjárþurrð fór að hafa áhrif hér á landi. Höskuldur Ásgeirsson sagði meðal annars að lausafjár- þurrðin hefði keðjuverkandi áhrif til hins verra á starfsemi fyrirtæk- isins. Nýsir á barmi gjaldþrots  Enn er unnið að því að bjarga Nýsi frá gjaldþroti  Skuldir fé- lagsins eru um fimmtíu milljarðar króna líkt og eignirnar ➤ Eitt stærsta verkefni Nýsis erbygging Tónlistarhússins í Reykjavík í samvinnu við aðra. ➤ Óljóst er enn hvenær vinnuvið endurfjármögnun á fyr- irtækinu lýkur. ➤ Félagið á og leigir fasteignir íBretlandi, á Íslandi og í Dan- mörku UM NÝSI 24stundir/RAX Sikiley Stuttgart/ Heidelberg Barcelona Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Prag Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Kraká Frá kr. 24.900 Flugsæti báðar leiðir m. sköttum Róm Frá kr.19.900 Flugsæti aðra leið m. sköttum, 7. eða 10. okt. Frá kr. 93.353 Flug og gisting. Frá kr. 69.990 Flug og gisting. Búdapest Frá kr. 59.990 Flug og gisting Brottför 23. okt., m.v. gistingu í tvíbýli á Mercure Duna í 3 nætur. Montreal Frá kr. 29.990 Flugsæti báðar leið m. sköttum, 2 fyrir 1, 26. sept. Gisting frá kr. 4.900 Netverð á mann á nótt, m.v. gistingu í tvíbýli á Travelodge Montreal með morgunverði. Gisting á Best Western Ville Marie kr. 5.900 á mann á nótt. Borgarveisla í haust & vetur Fullt af frábærum sértilboðum! www.heimsferdir.is 14. okt. Vikuferð í beinu flugi Aðventuferð 27. nóv. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Allt verð er netverð á mann. Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 3 53 86 Tónlistarhús Nýsir kemur að uppbyggingu tónlistar- húss í Reykjavík í gegnum félagið Portus.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.