24 stundir - 17.09.2008, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 24stundir
ALLT SEM
HUGURINN
GIRNIST
Verslanir opnar mán-mið 11-19, fim 11-21
fös 11-19, lau 11-18 og sun 13-18
smaralind.is / 528 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
5
3
3
8
Takir þú strætó númer 150S eða
173E í Kaupmannahöfn geturðu
kippt fartölvunni þinni með og
notað tímann til að skoða tölvu-
póst eða ferðast um á netinu. Frá
gærdeginum er boðið upp á þráð-
lausa nettengingu á þessum leiðum
og er þjónustan farþegum að
kostnaðarlausu.
Evrópska almenningssam-
göngufyrirtækið Arriva bryddar
upp á þessari nýjung og er henni
ætlað að laða að fleiri farþega og
minnka jafnframt álag á götum
borgarinnar og draga úr mengun.
Reyndar eru engin borð fyrir
tölvurnar og einnig spurning
hvernig þeir farþegar sem ekki
næla sér í sæti geta nýtt sér nýjung-
ina en forsvarsmenn Arriva eru
fullir bjartsýni og telja að þetta
muni auka aðsókn.
Þráðlausa netið er liður í þriggja
ára samningi Arriva við sam-
gönguyfirvöld. Arriva fær greiddar
um 50 krónur íslenskar fyrir hvern
umframfarþega og hvetur það til
betri þjónustu. jmv@24stundir.is
Vilja fleiri strætófarþega í Kaupmannahöfn
Internetið í strætó
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttir
sibb@24stundir.is
Yfirvöld í Ísrael og á palestínsku
sjálfstjórnarsvæðunum eru nú
sögð nær því en nokkru sinni fyrr
að ná samkomulagi um næsta
skref í friðarferli þjóðanna.
Miguel Moratinos, utanríkis-
ráðherra Spánar og fyrrverandi
sendimaður ESB í Mið-Austur-
löndum, segir Mahmoud Abbas,
leiðtoga Palestínumanna, vera að
íhuga að samþykkja hugmyndir
Ehuds Olmerts, forsætisráðherra
Ísraels, um grundvallaratriði slíks
samkomulags.
„Það er mat mitt eftir fundi
mína með Olmert og Abu-Mazen
að það sé mjög jákvæður tónn í
viðræðunum og að hugmyndirnar
séu góðar. Ég tel þá vera nálægt
samkomulagi. Ég er sannfærður
um að sá árangur sem náðst hefur
í þessum viðræðum verður ekki
aftur tekinn. Hvað sem verður í
innanríkismálum í Ísrael og
stjórnmálum í Bandaríkjunum,
verða báðir aðilar og alþjóðasam-
félagið að tryggja að byggt verði á
þessum grunni,“ segir Moratinos í
viðtali við hebreska blaðið Ha’a-
retz.
Olmert, sem lýsti því yfir í sum-
ar að hann teldi ekki líklegt að
samkomulag næðist fyrir árslok,
er nú sagður leggja allt kapp á
að ná samkomulagi við Palestínu-
menn áður en hann lætur af emb-
ætti. Hann er þó sagður hafa
áhyggjur af því að áhrifamenn
innan heimastjórnar Palestínu-
manna leggi hart að Abbas að
ganga ekki að samkomulagi í
skyndi. Mun það sérstaklega eiga
við um Ahmed Qureia, aðalsamn-
ingamann þeirra í viðræðum við
Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísr-
aels.
Livni er talin líklegur arftaki
Olmerts og haft er eftir Qureia í
blaðinu Al-Jarida, sem gefið er út
í Kúveit, að Livni muni veita Pal-
estínumönnum það sem enginn
hafi verið tilbúinn að veita þeim.
Olmert keppir
við tímann
Jákvæður tónn sagður í viðræðum leiðtoga Ísraels og Palestínu
Utanríkisráðherra Spánar segir samkomulag skammt undan
➤ Olmert gefur ekki kost á sér íleiðtogakjöri Kadima-
flokksins sem fram
fer 17. nóvember.
➤ Gert er ráð fyrir að hann látiaf embætti forsætisráðherra
innan tveggja mánaða frá
leiðtogakjörinu.
ÁHERSLA Á SAMKOMULAG
AFPKunnuglegt Svipmynd af samskiptum Ísraela og Palestínumanna
Samkvæmt spænskum fjöl-
miðlum sýna rannsóknir að
vængbörð spænsku farþegavél-
arinnar, sem fórst í síðasta mán-
uði og kostaði 154 manns lífið,
virkuðu ekki sem skyldi í flug-
taki. Flugmenn hafi ekki vitað af
biluninni þar sem aðvörunarkerfi
hafi ekki farið í gang. Rannsókn
stendur enn yfir. jmv
Biluð vængbörð
á Spanair-vél
Franskar her-
sveitir frelsuðu í
gær tvo sjómenn
sem hafði verið
rænt af sjóræn-
ingum við
strendur Sómalíu
fyrr í mán-
uðinum.
Nicolas Sarkozy, Frakklands-
forseti og forseti ESB, hefur biðl-
að til alþjóðasamfélagsins um að
barist verði í auknum mæli gegn
uppgangi sjóræningja. Svæðið ut-
an við Sómalíu er eitt það hættu-
legasta í heimi vegna tíðra árása
sjóræningja sem hindra mat-
vælahjálp til Sómalíu. jmv
Sarkozy gegn
sjóræningjum