24 stundir - 17.09.2008, Page 13

24 stundir - 17.09.2008, Page 13
Grunnnám í Námsflokkum Reykjavíkur Viltu læra stærðfræði, íslensku og ensku? Þessar námsgreinar verða kenndar í Námsflokkum Reykjavíkur þá daga sem hér segir: Enska er kennd á mán. kl. 18:50-21:00 og mið. kl. 17:20-18:40. Stærðfræði er kennd á mán. kl. 17:20-18:40 og mið. kl. 18:50-21:00. Íslenska er kennd á þri. kl.18:15-20:05 og fim. kl.18:15-20:05. Náms- og starfsráðgjafar Námsflokkanna kenna námstækni í tengslum við grunnnámið. Kennsla hefst 10.september 2008. Upplýsingar í síma: 567 7050 Námsflokkar Reykjavíkur, Þönglabakki 4 (efri hæð skiptistöðvar strætó í Mjódd). Verð: Eitt fag: 16.000 krónur, tvö fög: 21.000 krónur og þrjú fög: 26.000 krónur. 24stundir MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 13 Sviptivindar blésu um frétta-stofur ljósvakamiðlanna ígær. Við það fækkaði þeim, fjórir fréttastjórar urðu tveir og nú rekur RÚV aðeins eina fréttadeild. Óðinn Jónsson bætti við sig starfi Elínar Hirst og Stein- grímur Sævarr Ólafsson vék fyrir Óskari Hrafni Þorvaldssyni sem tók við Stöð 2 og Bylgjunni í við- bót við Vísi. Pólitískir spor- hundar telja að með Elínu hverfi síðasti Styrmirinn úr ritstjóra- stóli, tengsl séu skyld. Í dagbók meðritstjóra Styrmis, Matthíasar Johannessen, er Svavar Gestsson hinsvegar borinn fyrir sögu um hlutdrægni Óðins í þágu krata. Sú var óstaðfest. Þótt engin séu flokksblöðinlengur telja margir að póli-tískar ráðningar og hags- munatengsl séu jafnsterk á fjöl- miðlum, en í stað flokkstengsla hafi tekið við tengsl valds og auðs. Steingrímur Sæv- arr gegndi starfi að- stoðarmanns Hall- dórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og var sagður ráðinn inn á Stöð 2 af Framsókn- artengdum eigendum. Sama gilti um stjórnmálamanninn Björn Inga Hrafnsson, sem nú er rit- stjóri Markaðarins. Engar svipt- ingar voru á blöðum í gær, en við þeim er búist. Eigendum þykir pappírinn orðinn dýr, auglýs- ingamarkaður þungur og Frétta- blaðið sagði nýlega upp fjölda fólks í dreifingu. Vísir.is hefur aukið áhorfmeð Óskari Hrafni Þor-valdssyni, sem er yngri en hin, en annars frægastur fyrir að fjalla um frægt fólk og fyrir árekst- ur við einn eigenda Vísis.is, Jón Ásgeir Jóhannesson, vegna frétta Vísis.is af einkaþotu og snekkju þess síðarnefnda. Vís- isritstjórinn hlaut þá hrós fyrir að kikna ekki í hnjáliðunum þótt eigandi miðilsins sýndi tenn- urnar. Óskar Hrafn þarf víst ekki að óttast álíka uppákomur á næstunni, því einkaþotur og snekkjur eru víst lítið á ferðinni í kreppunni og hverfandi líkur á að lenda í einverju jagi þeirra vegna. Það má því segja að Óskar Hrafn taki við sameinaðri fréttastofu á besta tíma. beva@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Þessa dagana stendur yfir al- þjóðleg samgönguvika en Reykja- víkurborg er einmitt aðili að al- þjóðlegum samtökum sem standa að framtakinu. Ég hef áður á þess- um vettvangi skrifað um vegagerð, strætó, lestarsamgöngur, flug og fleira sem lýtur að samgöngum á Íslandi. Í síðustu viku flutti umhverfis- ráðherra Alþingi skýrslu um um- hverfismál. Í umræðum um hana var mikilvægi og gildi almennings- samgangna áberandi. Á tímum hækkandi olíuverðs og aukinnar vitundar um umhverfismál hygg ég að almenningssamgöngur verði sí- fellt raunhæfari og skynsamlegri samgöngukostur í hugum fólks. Við Íslendingar notum strætó allt of lítið og eru ýmsar skýringar á því. Veður, tíðni ferða, áreiðanleiki og fargjöld hefur verið nefnt sem áhrifaþættir sem hindra notkun strætisvagna. Það kann vel að vera að allir þessir þættir hafi áhrif en skipulag byggðar hefur einnig mik- ið að segja svo og forgangur strætó í umferðinni. Bílum fjölgar Því þéttari sem byggðin er því hagkvæmara er að nota og reka strætó og á það hafa margir lærðir skipulagsfræðingar svo og leik- menn í faginu bent á. Á höfuð- borgarsvæðinu stöndum við nú frammi fyrir þeirri staðreynd að byggðin þenst út og bílum fjölgar, með tilheyrandi kröfum um um- ferðarmannvirki, breiðari götur og mislæg gatnamót. Um leið og þessi þróun hefur átt sér stað koma fréttir af því að svif- ryksmengun mælist yfir hættu- mörkum í sumum hverfum borg- arinnar á tilteknum tímum. Og það er þörf á aðgerðum. Aðgerðum til að draga úr mengun og bílaum- ferð, til að losna við mislæg gatna- mót og önnur fyrirferðarmikil um- ferðarmannvirki nálægt íbúðarhúsum og til að koma í veg fyrir slysahættu. Flestir sem ég hef rætt við vilja draga úr mengun, vilja að fleiri noti strætó, finnst umferðin of mikil og hröð, sérstak- lega inni í íbúðahverfum, og býsn- ast yfir því að ekki sé lengur hreint loft og engin mengun í Reykjavík eins og var hér í „gamla daga“. En öll þurfum við að líta í eigin barm. Er til dæmis algerlega nauðsynlegt að vera með tvo og upp í þrjá bíla á heimilinu? Er til dæmis algerlega nauðsynlegt að fara allra ferða sinna á bíl, jafnt styttri sem lengri? Hjólreiðar og strætó Á þinginu í vetur flutti ég tillögu um forgangsakreinar strætó ásamt þingmönnum úr öllum flokkum. Það er að mínu mati brýnt að fjölga þessum reinum svo strætó komist fljótar leiðar sinnar og verði þannig fýsilegur kostur fyrir fólk til að komast hratt og örugglega milli staða. Einnig hef ég bent á þá skrítnu staðreynd að þeir opinberu starfsmenn sem fá bílastyrk vegna starfa sinna fá þær greiðslur sem hlunnindi sem ekki þarf að greiða skatt af, á meðan þeir sem fá strætókort þurfa að greiða fullan skatt af þeim hlunnindum. Á þetta hef ég bent fjármálaráðuneytinu og bíð svara um málið. Þriðji þáttur- inn sem ég vil nefna er aðkoma rík- isvaldsins að almenningssamgöng- um. Ég er þeirrar skoðunar að ríkið eigi nú á þessu kjörtímabili að sýna vilja sinn í verki og koma að al- menningssamgöngum með bein- um hætti. Það hefur verið bent á það að ríkið innheimtir alls kyns gjöld og skatta af strætó. Fjármála- ráðherra hefur ekki verið tilbúinn að skoða niðurfellingu á þeim gjöldum og borið fyrir sig fordæmi gagnvart öðrum. Gott og vel, ef það eru einhverjir tæknilegir gallar á slíkum leiðum, legg ég til ríkið komi þá með bein- um hætti að styrkjum til almenn- ingssamgangna. Þannig myndi rík- isvaldið viðurkenna ábyrgð sína á rekstri almenningssamgangna og leggja með afgerandi hætti sitt lóð á vogarskálar bættrar umferðar- menningar og umhverfismála. Höfundur er alþingismaður Samgöngur í samgönguviku VIÐHORF aSteinunn Valdís Óskarsdóttir Ég er þeirrar skoðunar að ríkið eigi nú á þessu kjör- tímabili að sýna vilja sinn í verki og koma að almennings- samgöngum með beinum hætti. PO RT hö nn un /A P al m an na te ng sl Ég er 100% endurvinnanlegur Mig langar að endurvinna þig Endurvinnsla – í þínum höndum Það er í þínum höndum að ákveða hvaða úrgang þú ætlar að flokka og skila til endurvinnslu. Vel gæti reynst að byrja smátt en bæta svo smám saman við eftir því sem þú venst hugmyndinni. Í öllum sveitarfélögum er tekið á móti spilliefnum og langflest þeirra taka við pappa, pappír og plasti til endurvinnslu. Nánari upplýsingar og einföld ráð um endurvinnslu má sjá á www.urvinnslusjodur.is/endurvinnsluvika Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík S: 58 58 900. www.jarngler.is Vegghengdur gashitari. Þriggja brennara gas geislahitari Tvær hitastillingar, neistakveikja. Afköst 22.000.BTU / 6,5 kWh B:60cm x H:48cm x D:37cm. Sími 567 6744 • Bíldshöfða 14 • 110 Reykjavík höggdeyfar eru orginal hlutir frá USA og E.E.S. Aisin kúplings- sett eru orginal hlutir frá Japan varahlutir í miklu úrvali Hvað ætlar þú að gera í dag? - kemur þér við

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.