24 stundir - 17.09.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 24stundir
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Þrátt fyrir ungan aldur er Tanja
Huld Guðmundsdóttir búin að
hanna föt og fylgihluti í nokkur
ár og þegar byrjuð að selja eitt-
hvað af vörum sínum í versl-
uninni Fígúru á Skólavörðustíg.
„Ég byrjaði að prjóna og sauma
koddaver þegar ég var lítil. Ætli
þetta hafi síðan ekki farið stig-
magnandi. Síðan ég man eftir
mér hef ég verið að föndra eitt-
hvað og það hefur sífellt orðið
flóknara.
Ég byrjaði síðan að sauma fyr-
ir alvöru þegar ég var sextán ára
en það voru frekar mikil byrj-
endaverk,“ segir Tanja sem
ákvað að fara með nokkra hluti í
Fígúru.
„Í sumar hóf ég að gera alls
kyns klúta og fór með þá og
töskur sem ég gerði í Fígúru en
það er þegar búið að selja það.“
Mamma kenndi mér mikið
Tanja segir að áhuginn á fata-
hönnun hafi kviknað á öðru ári
sínu í menntaskóla. „Þá var ég
nemi hjá fatahönnuði og áhug-
inn jókst þá verulega. Mamma
hefur líka hjálpað mér mjög
mikið að sauma og kennt mér
mikið,“ segir Tanja sem stefnir á
að læra fatahönnun síðar meir.
„Ég klára Menntaskólann við
Hamrahlíð um jólin og ætla þá
að búa mig undir að sækja um í
fatahönnun, jafnvel einhvers
staðar erlendis.
Ég fæ auðveldlega hugmyndir
að efni og þegar ég einbeiti mér
að því að sauma þá dettur mér
alltaf eitthvað í hug. Ég hef mjög
gaman af þessu og sauma allt
sjálf.“
Góðar viðtökur
Tanja segist sauma mest fyrir
sjálfa sig auk þess að vera dugleg
að gefa vinum sínum og fjöl-
skyldu hönnun sína. „Það litla
sem ég hef selt af hönnun minni
hefur fengið góðar viðtökur og
það seldist fljótlega. Það er mis-
jafnt hve mikið ég hanna og það
fer algjörlega eftir því hvað ég
hef mikinn tíma.
Það er því engin regla á þessu
en þessa dagana er ég mikið í
því að skreyta flíkurnar með sat-
ínborðum og geri alls konar
skraut með því. Skemmtilegast
þykir mér að sauma kjóla, hanna
klúta og töskur,“ segir þessi upp-
rennandi fatahönnuður að lok-
um.
24stundir/Valdís Thor
Tanja Huld er upprennandi hönnuður
Hef saumað og prjón-
að síðan ég var barn
➤ Tanja Huld er að verða nítjánára gömul og byrjaði að
sauma og hanna þegar hún
var sextán ára.
➤ Tanja Huld hefur ekki ákveðiðundir hvaða nafni hún hannar
og er að skoða nokkra mögu-
leika.
➤ Tanja Huld er með sauma-herbergi heima hjá sér þar
sem hún hefur safnað saman
góðu úrvali af efnum og
öðru.
TANJA HULD
Tanja Huld Guðmunds-
dóttir er þegar farin að
selja hönnun sína í tísku-
vöruverslun en hún er
einungis átján ára gömul.
Hún hefur prjónað og
saumað síðan hún man
eftir sér og fengið góða
hjálp frá móður sinni.
Tanja Huld Guð-
mundsdóttir „Þegar ég
einbeiti mér að því að
sauma þá dettur mér
alltaf eitthvað í hug.“
KYNNING
Það er tilvalið að fylla heimili sín
með rómantískum fylgihlutum og
húsgögnum á haustin en þau má
til dæmis finna í versluninni Nóru
í Kópavogi.
Jakobína Sigurðardóttir, eigandi
Nóru, segist hafa opnað verslunina
þar sem vöruúrvalið á Íslandi hafði
verið mjög einhæft. „Það var mjög
mikið til í þessari hörðu tískulínu,
þessum fúnkisma, og mér fannst
vanta vörur sem gefa notalega til-
finningu. Í Nóru erum við fyrst og
fremst að horfa á rómantísk hús-
gögn og heimilisvöru. Hér eru
franskar vörur og stíll okkar er
þessi rómantíski, franski stíll sem
fólk kynnist svo vel á sínum ferð-
um um París og Suðaustur-
Frakkland. Við erum með fullt af
nýjum vörum um þessar mundir
og vorum að taka upp mjög stóra
sendingu fyrir viku. Búðin er nán-
ast full af fallegri, nýrri vöru.“
Nóra var opnuð fyrir tveimur ár-
um en hefur nú verið starfrækt í
eitt ár á Dalvegi 16a í Kópavogi.
Aðspurð hvernig viðtökurnar hafi
verið segir Jakobína að þær séu
góðar. „Fólk er mjög hrifið, and-
rúmsloftið í versluninni er hlýlegt
og vörurnar fallegar og gefa ljúfa
og notalega tilfinningu. Hjá Nóru
er mikið vöruúrval og fólk þarf að
gefa sér góðan tíma til að skoða.
Verslunin er þannig hugsuð að hér
geturðu fengið vörur til að inn-
rétta hvert einasta rými á heim-
ilinu með þessum rómantíska,
franska blæ.“
Rómantíkin ræður ríkjum í Nóru á Dalvegi
Ljúf og rómantísk tilfinning
Rómantískt
og franskt Í
Nóru má
finna róm-
antísk hús-
gögn og
heimilisvöru.
Tíska
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
Glæsilegir kjólar
nýkomnir
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.