24 stundir - 04.10.2008, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 24stundir
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
Ferðaskrifstofa
Antalya í Tyrklandi
Maturogdrykkirinnifaldir!
98.900kr.
14. október. Verð á mann miðað við 2 í herbergi í 7 nætur. Innifalið:
Flug og gisting á hótel Fame Residence Lara með fullu fæði og
innlendum drykkjum í 7 nætur, flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
Allra síðustu sætin á ótrúlegu verði!
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
VÍÐA UM HEIM
Algarve 22
Amsterdam 12
Alicante 22
Barcelona 20
Berlín 12
Las Palmas 25
Dublin 9
Frankfurt 12
Glasgow 10
Brussel 8
Hamborg 9
Helsinki 11
Kaupmannahöfn 13
London 12
Madrid 16
Mílanó 21
Montreal 5
Lúxemborg 8
New York 13
Nuuk 4
Orlando 20
Osló 8
Genf 9
París 9
Mallorca 17
Stokkhólmur 11
Þórshöfn 4
Norðaustan 8-15 m/s og él, en bjart S-lands.
Lægir smám saman og léttir til, fyrst vest-
antil, en áfram strekkingur og él austast. Hiti
1 til 6 stig sunnan- og vestanlands, en annars
kringum frostmark.
VEÐRIÐ Í DAG
5
5
4
4 5
Lægir og léttir til
Hægviðri og víða bjart um morguninn, en
gengur í suðaustan 13-18 m/s með rigningu
eða slyddu vestanlands síðdegis.
Hiti 0 til 5 stig, en hlýnar heldur vestantil.
VEÐRIÐ Á MORGUN
6
5
-3
4 2
Rigning eða slydda vestanlands
„Þessi efnahagsniðursveifla var ekki byrjuð
þegar við gengum frá þessu og það var auðvitað
ekki í boði að hætta við þegar búið var að skrifa
undir leigusamninginn,“ segir Sólveig Anna
Þorvaldsdóttir tannlæknir en í gær opnaði hún
nýja tannlæknastofu í Turninum í Kópavogi
ásamt Heiðdísi Halldórsdóttur og Jóhönnu
Bryndísi Bjarnadóttur. Allar eru þær útskrifaðir
tannlæknar frá því síðasta vor.
Vinna allar annars staðar með
Sólveig segir að auðvitað komi efnahagsnið-
ursveiflan verulega niður á þeim. „Þetta er auð-
vitað eins og önnur fyrirtæki. Við erum allar að
vinna annars staðar til að kljúfa kostnaðinn. Ég
held að ég hefði ekki farið út í þetta ef ég hefði
vitað hvernig efnahagsástandið myndi þróast.
Það þýðir samt ekkert annað en að vera bjartsýn
og það er sem betur fer hægt að segja að byrj-
unin lofi góðu. Við höfum fengið mjög góðar
viðtökur.“
Þær stöllur tóku ákvörðun um stofnun stof-
unnar í byrjun árs og gengu frá lausum endum í
mars síðastliðnum. Þá var gengið frá leigu á
húsnæði og kaupum á tækjum. „Við skrifuðum
undir og gengum frá hlutunum nokkrum dög-
um áður en það fór að gefa verulega á bátinn í
efnahagslífinu. Við erum auðvitað að byrja á
mjög erfiðum tímum, kannski þeim svörtustu
sem sést hafa lengi,“ segir Heiðdís. Tækin sem
til þarf í reksturinn eru keypt á gengislánum og
því hafa afborganir af þeim auðvitað hækkað.
„Það er auðvitað mjög dýrt að fara af stað með
svona starfsemi og staðan nú gerir okkur erf-
iðara fyrir. Okkar lán hækka eins og hjá öðrum
en það er bara sama sagan alls staðar. Ég held
samt að ég hefði farið út í þetta þó að ég hefði
vitað hvernig staðan yrði núna. Tannlæknar
vinna sér inn kúnna með góðu orðspori og við
erum góðir tannlæknar. Við erum líka bara með
sanngjarnt verð og ætlum bara að keyra á þetta,“
segir Heiðdís. freyr@24stundir.is
Þrír nýútskrifaðir tannlæknar láta kreppuna ekki hafa áhrif á sig
Opna tannlæknastofu í efnahagslægð
Eftir Láru Ómarsdóttur
lom@24stundir.is
Össur Skarphéðinsson, starfandi
utanríkisráðherra, segir það tóma
vitleysu að umræða hafi verið um
það innan Samfylkingar að slíta
stjórnarsamstarfi eins og 24 stund-
ir greindu frá í gær.
Samkvæmt heimildum 24
stunda innan þingflokks Samfylk-
ingar var samstarf stjórnarflokk-
anna í hættu um miðjan dag á
fimmtudag en innan flokksins
vildu menn senda skýr skilaboð til
almennings um aðgerðir. Voru
þrjár leiðir aðallega ræddar, að lýsa
yfir vilja til að ganga í ESB, að
sækja um lán frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum eða öðrum sjóðum og
að víkja Davíð Oddssyni úr Seðla-
bankanum. Heimildarmenn segja
Samfylkinguna óánægða með af-
skipti Davíðs af stjórnmálum.
Einbeiti sér að lausn
Óánægju með Davíð gætir einn-
ig innan Sjálfstæðisflokksins og
mun það, samkvæmt heimildum,
hafa átt stóran þátt í að róa Sam-
fylkinguna og þá sérstaklega um-
mæli menntamálaráðherra sem
sagði á fimmtudag að Davíð væri
kominn langt út fyrir sitt valdsvið.
Heimildarmenn segja að sammælst
hafi verið um að einbeita sér að því
að leysa efnahagsvandann og láta
ekki ágreining um seðlabanka-
stjóra spilla fyrir. Einn ráðherra
orðaði það svo: „Þetta mál verður
ekki látið snúast um það.“
Stjórnarslit aldrei rædd
Össur Skarphéðinsson, starfandi
utanríkisráðherra, segir þetta ekki
rétt. „Það er tóm vitleysa að það
hafi verið umræða um það innan
Samfylkingar að slíta stjórnarsam-
starfi. Samfylkingin er ábyrgur
flokkur og henni kæmi aldrei til
hugar að hlaupast undan árum á
þeim tímum þegar mestar holskefl-
ur ganga yfir íslenskt samfélag. Ég,
sem staðgengill utanríkisráðherra,
hef hvorki tekið þátt í samræðum
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, aðra þingmenn Samfylkingar
né nokkurn mann um að slíta sam-
starfi við Sjálfstæðisflokkinn. Það
er hugarburður og uppspuni.“
Ræddu aldrei
stjórnarsamstarf
Heimildir 24 stunda innan stjórnarinnar segja stjórnarslit hafa
verið rædd „Hugarburður og uppspuni,“ segir Össur
➤ Stjórnarsamtarfið hékk á blá-þræði samkvæmt heimildum
24 stunda.
➤ Össur Skarphéðinsson þver-tekur fyrir að sú hugmynd
hafi verið rædd.
➤ Sömu sögu sögðu við-skiptaráðherra og mennta-
málaráðherra í fjölmiðlum.
STJÓRNARSLIT
STUTT
● Vill flytja út óseldar bifreiðar
Bílasalan Islandus vill fá end-
urgreidd vörugjöld af óseldum
bifreiðum sem fyrirtækið
hyggst flytja út aftur. Með sölu
bílanna segir fyrirtækið að
mætti losa um milljarða króna.
● Líkt eftir jarðskjálfta
Slökkvilið og björgunarsveitir
æfa viðbrögð við jarðskjálfta í
Grindavík í dag. Um 175
manns taka þátt í æfingunni.
● Stjórn Glitnis vill ríkið
Stjórn Glitnis hvetur hluthafa
til að samþykkja tilboð ríkisins
í 75% hlut í bankanum. Til-
boðið verður tekið fyrir á hlut-
hafafundi 11. október.
Leiðrétt
Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
Rússneskur karlmaður hefur
verið handtekinn fyrir að rífa
vegabréf eiginkonu sinnar
niður og éta snifsin.
„Þau voru að skilja, en bjuggu
enn í sömu íbúð,“ segir tals-
maður lögreglu. „Hann vildi
eyðileggja vegabréfið, þar sem
það var eina skjalið sem stað-
festi að konan mætti búa í
íbúðinni.“ aij
Bitur skilnaður
Át passann
SKONDIÐ
SPURT OG SVARAÐ UM EFNAHAGSVANDANN
? Ef bankinn minn fer á hausinn, - tapa ég þá innistæðunni?
Fólkið sem átti innistæðu í bankanum gerir kröfu á Tryggingarsjóð. Hann
tryggir að lágmarki þrjár milljónir á hverja kennitölu í hverjum banka. Ef þú
átt innistæðu umfram það, þá borgar Tryggingasjóður hlutfallslega út, séu
fjármunir fyrir hendi.
? - þarf ég þá ekki að borga lánið mitt?
Jú. Ef bankinn fer á hausinn mun hann líklega selja útistandandi skuldir til
annars aðila, sem heldur áfram að rukka af láninu.
? - en gengur þá ekki innistæðan mín upp í lánið mitt?
Nei, það er ekki heimild fyrir því í lögum. Því miður.
? Verður skortur á mat eða öðrum nauðsynjum?
Það fer allt eftir því hvernig ástandið þróast. Engin ástæða er til þess
að örvænta að óþörfu. Ýmis innflutningsfyrirtæki hafa nú þegar lent í
vandræðum með gjaldeyrisfyrirgreiðslu. Ef slíkt ástand heldur áfram er
ekki hægt að útiloka vandamál. Það sem hverfur þá fyrst af búðarhillum
eru ferskar vörur með takmarkaðan geymslutíma, til dæmis ávextir og
grænmeti.
? Af hverju er þetta orðið svona slæmt?
Íslenska fjármálakerfið er komið í vítahring núna vegna þess að fyrirtæki
eiga ekki laust fé fyrir afborgunum af lánum. Lausafjárþurrðin er alþjóð-
legur vandi en veikur gjaldmiðill gerir stöðuna hér enn erfiðari. Þá hjálpar
ekki fyrirtækin eigi nægar eignir, ef þau geta ekki selt hlutabréf eða aðrar
eignir til að losa um reiðufé.
Vegna þessara vandræða er að verða of óhagstætt og dýrt að taka erlend
lán til að bjarga stöðunni. Þar að auki fækkar þeim sífellt sem eru fáanlegir
til að veita lán inn í íslenska efnahagskerfið.