24 stundir - 04.10.2008, Side 13

24 stundir - 04.10.2008, Side 13
ingur og atvinnulífið.“ Greinilega er að verða samhæf- ing út á við. Hún gengur misnærri hagsmunum og skoðunum valdahópa. Svo má spyrja hver gæti hags- muna almennings og hver stjórni för. Bæði þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar hafa lagt áherslu á að breytt stefna í Evrópumálum myndi ein og sér snúa öllu til betri vegar. Og þeir hafa viljað losna við Davíð Oddsson úr Seðlabankanum. Þó var Davíð í landsföðurstellingum daginn eftir að Össur Skarphéðinsson skammaði hann fyrir pólitísk afskipti. Bæði Össur Skarphéðinsson og Björgvin G. Sigurðsson töluðu á Evrópunótum frá Alþingi um stefnuræðu for- sætisráðherra. Fyrsta útgáfa þeirrar ræðu var stöðvuð og nýrri dreift rétt fyrir flutning. Hvergi voru þó lausn- arorðin, loksins þegar þjóðin nennti að horfa á útsend- ingu frá Alþingi. Ráðherrar vísa oft til ábyrgðar fjöl- miðla sem vandi ekki vinnubrögð. Mættu þeir líta sér nær. Því þótt þögn sé gulls ígildi, geta ráðamenn ekki snúið bakhlutanum í þjóð í neyð, frekar en þeir geta farið með tóma vitleysu. Kjaftæðið getur ekki komið krónunni vel og hrun hennar er kannski beintengt því. Evrópustefna kemur málinu ekki við Guðlaugur Þór Þórðarson segir hugmyndir um nýja Evrópustefnu ekkert hafa að gera með ástandið. „Og það liggur ljóst fyrir hvað við erum að gera. Menn eru búnir að vinna hörðum höndum að því að leysa málið. En það er þess eðlis að menn geta ekki rætt hvað þeir eru að gera. Niðurstöður eru það sem þarf að kynna og ekki áður en þær liggja fyrir. En menn mega vita að all- ir eru meðvitaðir um stöðuna. Þetta er gríðarlega stórt mál sem snertir ekki bara Ísland. En kannski þó Ísland hlutfallslega meira en aðra því fjármálakerfið er svo gríðarstórt miðað við stærð landsins.“ aBjörg Eva Erlendsdóttir Þjóðin á rétt bestu tiltæku upplýsingum um stað- reyndir hverju sinni. Önn- ur eins styggð og kom að ráðherrunum sem hröð- uðu sér í öruggt skjól und- an blaðamönnum eftir rík- isstjórnarfund í gær, hefur ekki sést lengi. 24stundir LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 2008 13 Þú hjálpar ekki neinum með að horfa bara á hann / það hefur engin áhrif þótt þú eflaust meinir vel, söng meistari Megas. Ríkisstjórn Íslands hefur þó varla einu sinni gert svo vel að horfa á vandann, því fjárlagafrum- varp sem liggur nú fyrir Alþingi er merkileg sagnfræðileg heimild um þá meinloku stjórnarflokkana und- anfarin misseri að hér sé allt í lagi. Frumvarpstextinn hefst á setning- unni: „Eftir mesta hagvaxtarskeið um langt árabil er hagkerfið tekið að færast nær jafnvægi á ný.“ Það sem á eftir kemur er síst til þess fallið að auka tiltrú á hagstjórn eða skapa ró á mörkuðum. Raunar eru þeir tímar sem við nú göngum í gegnum með þeim ósköpum að okkur alþingismönn- um var hálfundarlega innanbrjósts að ræða fjárlög í sölum Alþingis. Engin samstaða var þó um að ýta umræðunni til hliðar vegna ástandsins og vafamál að slík ráð- stöfun hefði verið til annars en að auka á óróa og óvissu hagkerfisins. Á nýafstöðnu haustþingi stóð stjórnarandstaðan í skaki við stjórnarliða um það hvort kalla ætti það vandamál sem fyrirsjáan- legt var þá og sagt hefur verið frá í blöðum í hálft annað ár kreppu eða bara lítilsháttar lægð. Þá brá svo við að þingmenn Samfylkingar gengu í takt við bankastjóra Seðla- banka og töldu aðalatriði að sporna við of mikilli þenslu sem vís væri með að hellast yfir þjóðina ef Framsóknarflokkurinn færi með völd svo vitnað sé í orðræður þeirra flokksbræðranna Helga Hjörvar og Árna P. Árnasonar. Heimili og fyrirtæki í landinu glíma nú við gríðarlegan fjárhags- vanda og niðurskurð allra útgjalda. En þegar litið er ofan í fjárlaga- frumvarpið kemur glöggt fram að slík leiðindi blasa ekki við þeim sem fara með forystu ríkisstofnana. Í texta frumvarpsins eru tekin af öll tvímæli um að opinberum stofn- unum verður bættur sá skaði sem þær hafa orðið fyrir á þessu ári og verða fyrir á því næsta vegna verð- bólgu og gengislækkunar. Af lið- lega 70 milljarða halla eru um 30 milljarðar tilkomnir vegna verð- lagsuppbótar ríkisstofnana. Að hluta til er hækkunin vegna ný- gerðra kjarasamninga en stór hluti er beint tilkominn vegna almennra verðhækkana í samfélaginu. Í eðlilegu árferði væri slíkt fylli- lega eðlilegt og sjálfsagt. En þeir tímar sem við stöndum frammi fyrir eru allt annað en eðlilegir og ljóst að bæði heimili og fyrirtæki munu taka á sig ómældar byrðar og hafa ekki nema að sáralitlu leyti möguleika á að velta þeim byrðum út í verðlagið eða sækja til þess auknar tekjur. Raunar gera spár fjármálaráðuneytis um hraða kóln- un hagkerfisins og hjöðnun verð- bólgu á næsta ári alls ekki ráð fyrir að neinum hækkunum verði velt út í verðlagið. Það er eðlileg krafa að ríkið búi hér við sama veruleika og herði sultarólina einnig, það tekst aðeins með miklu mun strangari hagræð- ingarkröfu en áður hefur tíðkast. Þar sem fjallað er um aðhaldsað- gerðir vekur mikil vonbrigði að textinn er því sem næst óbreyttur frá fyrra ári og líkt og þá gert ráð fyrir tveggja milljarða hagræðing- arkröfu, eða sem nemur 1,2%. Hagræðingarkrafan sem við leggj- um á heimilin í landinu er hér meira en tíföld. Sem fyrr segir gera spár fjár- málaráðuneytisins ráð fyrir mikilli hjöðnun verðbólgu á næsta ári. Því fer þó fjarri að ríkissjóður ætli sér þar að taka á með atvinnulífinu. Þannig er í fjárlagafrumvarpinu gert ráð fyrir að t.d. bifreiðagjöld, álögur á bensín, olíu, tóbak og áfengi haldi raungildi sínu og velti því upp í sama hraða og verðbólg- an. Semsagt, það verður kreppa en ríkið ætlar að hafa allt sitt á þurru. Það eru slæm skilaboð á slæm- um tímum. Höfundur er alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi – Engin kreppa í ríkisrekstrinum VIÐHORF aBjarni Harðarson Raunar eru þeir tímar sem við nú göngum í gegnum með þeim ósköp- um að okkur alþingismönnum var hálfundarlega innan- brjósts að ræða fjárlög í sölum Alþingis. Þórarinn Hjartarson tók ljóðin saman og rekur sögu Páls og Ragnhildar – eina frægustu ástarsögu á Íslandi. List Páls lifir enn á vörum þjóðarinnar, enda borin uppi af eldi hjartans og óvenju léttvængjuðu rími. Í fyrsta skipti eru öll ástarljóð Páls Ólafssonar komin út í einni bók. Bókin fór beint í fyrsta sæti á metsölulista og seldist upp. Loksins fáanleg aftur. Gjöf sem yljar og gleður. LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvöruverslunum landsins BETRA START Rafgeymar í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla Sérsmíðaðir íslenskir sófar opnunartími 10-18 virka daga 11-15 laugardaga Ármúla 19 // sími 553 9595 // gahusgogn.is Auglýsingasíminn er 510 3744 stundir

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.